Dagur - 02.09.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 02.09.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 2. september 1995 FRÉTTIR Launaður framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 1998 ráðinn innan tíðar: Ætlum að vera með besta landsmótssvæðið - segir Sigfús Helgason, formaður hestamannafélagsins Léttis á Akureyri Aðalfundur Melgerðismela hf. var haldinn fyrr í vikunni en að félaginu standa félagsmenn í þremur hestamannafélögum á Eyjaíjarðarsvæðinu. Verkefni fé- lagsins er að byggja upp aðstöðu til mótshalds á Melgerðismelum, en Landsmót hestamanna verður Heldur færri atvinnulausir Atvinnulausum hefur heldur fækkað á skrá hjá Vinnumiðlun- arskrifstofu Akureyrarbæjar en 31. ágúst voru 407 á skrá, þar af 166 karlar og 241 kona, miðað við 422 sem voru skráðir at- vinnulausir í lok júlí. Atvinnuleysisdagar í ágústmán- uði voru hins vegar fleiri en í júlí. í ágúst voru þeir 7928 en 7628 í júlímánuði. I fyrra voru atvinnu- lausir á skrá í lok ágúst 375 en 424 í júlflok. Atvinnulausum hefur því ekki fækkað eins mikið í ágúst í ár og í sama mánuði í fyrra. AI haldið þar sumarið 1998. Á fundinum var endanlega gengið frá skipulagi svæðisins, og m.a. ákveðið að byggja einn keppnis- völl í viðbót. Sigfús Helgason, formaður Léttis, segir fundar- menn hafa verið samstíga um það að hefja þegar á þessu hausti af fullum krafti undirbúning fyr- ir landsmótið, m.a. með jarð- vegsframkvæmdum, útboði verka o.fl., til dæmis við bygg- ingaframkvæmdir á svæðinu. í stjóm félagsins voru kosnir Stefán Erlingsson og Garðar Lámsson frá hestamannafélaginu Létti á Akureyri, Bjarni Kristins- son og Valdimar Hallsson frá hestamannafélaginu Funa í Eyja- fjarðarsveit og Guðni Sigþórsson frá hestamannafélaginu Þráni á Grenivík en stjómin mun velja formann úr sínum röðum á fyrsta stjómarfundi Melgerðismela hf. Sigfús Helgason segir að ráð- inn verði innan tíðar sérstakur launaður framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna 1998 en það sé verkefni framkvæmda- nefndar landsmótsins sem ekki hefur enn verið skipuð. Það gera stjómir þeirra 17 norðlensku hestamannafélaga sem koma til með að standa að landsmótinu. Stefnt er að því að skipa fram- kvæmdanefnd og ráða l'ram- kvæmdastjóra landsmótsins í fyrri hluta septembermánaðar á fundi sem lfldega verður haldinn á Ak- ureyri. „Við ætlum að vera með besta landsmótssvæði sem þekkst hefur á landinu og okkur er það nauðsyn til að sanna að það hafi verið rétt ákvörðun Landssambands hesta- manna að fela okkur framkvæmd- ina árið 1998. Við óskuðum eftir því að fá að sanna okkur og við munum gera það eins og okkur er einum lagið. Á Melgerðismelum hafa verið haldin glæsileg fjórð- ungsmót og þau gerast ekki betri. Nú stendur til að gera svæðið enn glæsilegra og stefna að glæsilegu landsmóti. Mér finnst líklegt að í framtíðinni verði landsmót haldin til skiptis á Melgerðismelum og á Vindheimamelum í Skagafirði þegar landsmót verða haldin norð- an heiða. Ég vona að ákvörðunin um mótsstað 1998 hafi eytt þeirri togstreitu sem vissulega hefur ver- ið til staðar milli Eyfirðinga og Skagfirðinga vegna mótsstaðanna. Við höfum verið tilbúnir árum saman en á okkur hefur ekki verið hlustað fyrr en nú,“ sagði Sigfús Helgason, formaður Léttis. GG Biskupsstofa hefur enn ekki tekið ákvörðun um afleysingaprest í Hrísey og á Árskógsströnd: „Þetta óvissuástand er alls ekki þægilegt" - segir formaður sóknarnefndar Stærri-Árskógssóknar " HLAÐBORÐSKAFFI " Við höfum heitt á könnunni á sunnudaginn frá kl. 14.30. Allt heimabakað á fjölbreyttu hlaðborði. Verið uelfeomin! Gistiheimilið Engimýri —t Öxnadal, sími 462 6838. j— Sóknarprestur Hríseyinga og Ár- skógsstrendinga, sr. Hulda Hrönn Helgadóttir, er farin í námsleyfi og mun dvelja í Edin- borg í Skotlandi næsta árið. Fleiri „yfirvöld“ Hríseyinga verða í leyfi í vetur, því skóla- stjóri grunnskólans, Einar Georg Einarsson, sest á skólabekk í Há- skóla íslands og mun Sigurður H. Þorsteinsson gegna hans störfum í vetur. Fram til 15. október nk. mun sr. Torfi Hjaltalín Stefánsson, sóknar- prestur á Möðruvöllum sinna þess- um prestaköllum. Hvað þá tekur við er óráðið. Sigurlaug Gunn- laugsdóttir, formaður sóknarnefnd- ar Stærri-Árskógsóknar segist ekk- ert hafa frétt um hvað þá taki við, Haustdagskráin í erobik ■ LIKAMSRÆKTIN HAMRI og M, r & I fer í fullan gang mánudaginn 4. september. ♦ Tímar við allra hæfi, drífðu þig strax af stað. ♦ Ókeypis bolur á fyrsta haust- námskeiði. Kl. Mánud. Þriöjud. Miövikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. 11-12 M, r & I 12-13 Karlapúl Pallahr. 3 17.15-18 M, r&l 18.15-19 Pallapuð 2 Karlapúl Vaxtm.erob. 2 Karlapúl Pallahringur 2 19.15-20 Pallapuð 1 Pallapuð 3 Vaxtm.erob 1 Vaxtm.erob. 3 Pallahringur 1 Erobik og sól: 4ra vikna námskeið 3x í viku kr. 3.000 + 10 tíma mánaðarljósakort kr. 4.500 ítækjasalur innifalinn). Lokaðir kvennatímar - Karlapúl Vatnsgufubað, nuddpottur og frábærir Ijósabekkir. Alltaf heitt á könnunni. Mánaðarkort í tækjasalinn aðeins kr. 2.400, ótakmörkuð mæting. Opið frá kl. 9.00-23.00 virka daga, til kl. 18.00 um helgar. Ath! Munið ódýru morguntímana í Ijósabekkina, aðeins kr. 270, frá kl. 9.00-14.00. Skráning og allar upplýsingar í Hamri, símí 461 SOBO. lmI (D Greiðslukjör við allra hæfi hvorki frá Biskupsstofu né prófasti Eyjafjarðarprófastdæmis, sr. Birgi Snæbjömssyni á Akureyri. „Þetta óvissuástand er alls ekki þægilegt en við eigum ekki ann- arra kosta völ en að bíða og sjá til. Sr. Torfi Hjaltalín sagði upp í vet- ur og þá var þess farið á leit við sr. Jón Helga Þórarinsson á Dal- vík að hann leysti hér af, en síðan dró sr. Torfi uppsögn sína til baka. Samkvæmt samkomulagi milli prestakallanna á Möðruvallaprest- ur rétt á að leysa sóknarprest Hrís- eyjar- og Árskógsstrandar af,“ sagði Sigurlaug Gunnlaugsdóttir. Baldur Kristjánsson, biskups- ritari, segir að nokkrir prestar víðs vegar um landið, m.a. einn á Norðurlandi, séu að fara í náms- leyfi í októbermánuði og ekki sé búið að ganga frá því hverjir leysi þá af. Biskupsstofa hefur samband við prófastana og biður þá um til- lögur. Ekki hefur enn verið haft samband við prófast Eyjafjarðar- prófastdæmis en það verður gert innan tíðar. GG Ny hafnarvog byggö a Húsavík Byggingu nýju hafnarvogarinnar á Húsavík er að Ijúka. Á myndinni er ver- ið að leggja síðustu hönd á frágang fyrir malbikun við nýja vigtarhúsið og reiknað er með að vogin verði tekin í notkun innan fárra vikna. Mynd: im Visst uppgjafarhljóð komiö í marga skipstjóra í Smugunni: Sléttbakur og Margrét á landleið Lítil veiði hefur verið í Smug- unni alla síðustu viku og veður oft leiðinlegt. Að sögn Magnúsar Magnússonar, útgerðarstjóra ÚA, er komið nokkuð uppgjaf- arhljóð í flotann en skipin hafa verið dreifð um Smuguna. Það er ólíkt því sem var í fyrra er skipin voru á veiðum við norsku landhelgismörkin og þannig hindruðu þau óbeint fiskgöngur í Smuguna á því svæði. Þá var meira fiskað í botntroll en nú eru flestir togaranna einnig með flottroll. ÚA-togarinn Sléttbakur EA kemur tii Akureyrar á mánudags- kvöld með 50 milljón króna afla- verðmæti en hann hefur verið 44 daga í túmum, þar af 34 daga á veiðum. Togarinn verður ekki sendur aftur í Smuguna. Árbakur EA kom í gær með fullfermi af karfa til Akureyrar, og var afla- verðmætið 8 milljónir króna. Samherjatogarinn Margrét EA kemur úr Smugunni á þriðjudag með 180 tonn af frystum flökum. Verðmæti þess er á bilinu 40 til 45 milljónir króna. Akureyrin EA er enn í Smugunni og hefur veiði gengið mjög vei. Skipið verður einhverja daga enn í Smugunni. GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.