Dagur - 02.09.1995, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 2. september 1995 - DAGUR - 3
Skipverjarnir fjórir af Málmey SK, sem gerðu sér dagamun og leigðu limosínu frá Sauðárkróki og til síns heima í
Hafnarfirði. Með þeim á myndinni er bílstjóri bifreiðarinnar. F.v. Friörik Sigurðsson, Kjartan Ólafsson, Sigfús
Magnússon, Jóhann Hilmar Haraldsson og bílstjórinn Árni Þorvaldsson. Myndir: ÁS
Málmey SK til heimahafnar meö metafla:
Kallinn er fískinn
og skipið er gott
- segir Sigfús Magnússon, skipverji, sem ásamt þremur öðrum tóku
limosínu á leigu frá Sauöárkróki til Hafnarfjarðar eftir vel heppnaðan túr
Það ríkti sannkölluð hátíðar-
stemmning á Sauðárkróki á
fímmtudag, þegar Málmey SK,
togari Fiskiðjunnar Skagfírðings,
kom úr Smugunni með metafla,
442 tonn af frystum flökum og
aflaverðmæti upp á einar 105
milljónir króna. Þessi afli sam-
svarar um 1000 tonnum af slægð-
um fiski og er hásetahluturinn í
þessum túr um 1 milljón króna.
Málmey SK var keypt úr Hafn-
arfirði og hluti áhafnarinnar býr
einmitt þar. Fjórir skipverjanna
ákváðu að gera sér dagamun og
tóku glæsilega limosínu á leigu frá
Akureyri og þeir létu því fara vel
um sig á leiðinni suður. Aðrir úr
áhöfninni, sem búa fyrir sunnan
létu sér hins vegar nægja að fara
með rútunni sem þeim stóð til boða.
„Við fengum þessa hugdettu á
leiðinni í land og vildum með þessu
lyfta okkur aðeins upp eftir góðan
túr. Ferðin til Hafnarfjarðar gekk
vel en við gáfum okkur góðan
tíma,“ sagði Sigfús Magnússon,
einn fjórmenninganna sem fóru
heim í limosínunni. Þessi túr togar-
ans tók eina 47 daga og sagði Sig-
fús að svona túrar tækju á mann-
skapinn. Hins vegar væri gaman
þegar gengi svona vel.
„Túrinn gekk mjög vel og það
gekk nánast allt upp. Það var ekkert
um bilanir enda er þetta mjög gott
skip. Það er góður mannskapur um
borð og auk þess er „kallinn" rnjög
fiskinn. Það slasaðist að vísu einn
skipverji á fæti og við vorum fyrstir
til þess að leita aðstoðar hjá læknin-
um í borð í Óðni í Smugunni."
Sigfús sagði að skipverjamir
hefðu verið að reikna það út að
gamni sínu og fengið þá niðurstöðu
að skatturinn sem áhöfnin á Málm-
ey borgar eftir þennan eina túr næg-
ir til þess að greiða kostnaðinn við
að senda Óðinn í Smuguna og ör-
ugglega einhvem hluta af læknis-
kostnaðinum líka. „Þannig að við
fáum þetta ekki allt í vasann.“ KK
|
Málmey SK, kemur til heimahafnar á Sauðárkróki á fimmtudag, með met
afia úr Smugunni.
Þróunarverkefni i Valsárskóla á Svalbarseyri:
Hefur nýst
feykilega vel
- segir Gunnar Gíslason, skólastjóri
Valsárskóli á Svalbarðsströnd
hefur undanfarna tvo vetur unn-
ið að þróunarverkefni sem snýst
um námsmat og að gera námið
skilvirkara, en skólinn fékk
styrk til verkefnisins úr þróun-
arsjóði grunnskóla skólaárið
1993-94.
í Valsárskóla em rúmlega 50
nemendur og segir Gunnar Gísla-
son, skólastjóri, að verkefnið hafi
að hluta til falist í því að fá utanað-
komandi aðila til að meta skóla-
starfið og draga fram einkenni
skólans. Hinn hluti verkefnisins
fólst í því að vera með gátlista í
stærðfræði. „Gátlisti þýðir að mað-
ur býr til lista yfir öll þau atriði
sem maður ætlar nemendum að
vera búnir að læra eftir hvert ár.
Síðan er merkt inn á gátlistann eft-
ir ákveðnu kerfi hvort þeir hafi
lært þessi atriði eða ekki og þannig
er reynt að fylgjast með því að
ekkert fari fram hjá þeim. Þannig
er unnið kerfisbundið að því að
kenna það sem nemendur þurfa
nauðsynlega að kunna til að kom-
ast yfir á næsta stig,“ segir Gunnar
og bendir á að með þessu móti sjái
kennarar ekki aðeins betur hvort
kennslan sé skilvirk, heldur geti
nemendurnir sjálfir og foreldrar
einnig betur áttað sig á hvemig
þeir standi. „En þetta er fyrst
og fremst vinna sem snýst í um
námsmat og að gera starfið skil-
virkara,“ segir hann.
Fengu ekki framhaldsstyrk
Gunnar segir að undirbúningsvinn-
an hafi að mestu leyti verið unnin
skólaárið 1993-94 þegar styrkur-
inn fékkst og síðasta skólaár hafi
farið í að pmfukeyra þessa gátlista.
Staða verkefnisins nú væri þó
nokkuð óljós. Sótt hafi verið um
framhaldsstyrk til að klára verk-
efnið en hann hafi ekki fengist og
því sé meiningin að reyna að vinna
að verkefninu jafnhliða kennsl-
unni. „í vetur ræðst þetta af nokkr-
um þáttum. Við emm að taka 9.
bekk heim í vetur og eins emm við
að flytja í nýtt húsnæði og þetta
tvennt þýðir að við þurfum að
skipuleggja starfið aðeins öðruvísi
en við höfum gert undanfarin ár og
það verður að hafa forgang áður
en við getum farið að hella okkur
út í þróunarverkefnið aftur.“
Gunnar segir að það sé visst
vandamál með styrkina úr þróun-
arsjóðinum að yfirleitt fáist aldrei
sú upphæð sem þarf til að ljúka
svona verkefni. Það gerist því ansi
oft að þessi þróunarverkefni stöðv-
ast hálfkláruð. Engu að síður segir
Gunnar að vinnan í tengslum við
verkefnið hafi skilað heilmiklu inn
í starf Valsárskóla. „Það er ekki
spuming, að þetta hefur nýst okkur
alveg feykilega vel.“ segir hann.
AI
Akureyri:
Samningur SH og Eimskips
um vörugeymsluþjónustu
í gær var undirritaður á Akur-
eyri samningur milli Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og
Eimskips um vörugeymsluþjón-
ustu á Akureyri. Samningurinn
gildir frá 1. september 1995 og
er til fjögurra ára.
í samningnum felst að Eimskip
muni annast alla vörumóttöku,
lagerhald og afgreiðslu af umbúð-
arlager SH á Akureyri en SH gerir
ráð fyrir að flytja allt að 40% af
umbúðarlager félagsins frá
Reykjavík til Akureyrar í kjölfar
aukinna umsvifa félagsins á Norð-
urlandi.
Fimm starfsmenn munu annast
almenn lager- og afgreiðslustörf
fyrir SH á umbúðalagernum, auk
þeirra starfsmanna sem munu ann-
ast vörudreifingu, segir í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækjunum.
Til þess að mæta þörfum Sölu-
miðstöðvarinnar um aðbúnað og
aðstöðu þarf að framkvæma um-
talsverðar endurbætur á hluta
Oddeyrarskála, vöruhúsi Eimskips
á Akureyri. í kjölfar þessara end-
urbóta áformar Eimskip að bjóða
vörugeymslu- og birgðastýringar-
þjónustu í vönduðu húsnæði til
annarra viðskiptavina félagsins á
Norðurlandi. KK
Rækjuvinnsla Meleyrar hf. á Hvammstanga:
Fær hráefni af Sigurborgu, Jófri og Brimi
- grálúða unnin í húsnæði skelfiskvinnslunnar
Hráefnisöflun rækjuverksmiðj-
unnar Meleyrar hf. á Hvamms-
tanga hefur gengið sæmilega í
sumar, nægilega vel til þess að
halda úti vinnu í verksmiðjunni
frá átta á morgnana til fimm á
daginn. I kringum sjómanna-
verkfallið í júnímánuði féllu þó
niður nokkrir dagar.
Hráefnið hefur fyrst og fremst
komið af Sigurborgu VE-121 sem
keypt var til Hvammstanga frá
Vestmannaeyjum fyrr á þessu ári
og af Jöfri ÍS-172 frá Hnífsdal sem
er gerður út frá Hvammstanga.
Jöfur-ÍS ísaði rækjuna fyrri
hluta sumarsins og þá kom hún öll
til vinnslu hjá Meleyri hf. Eftir það
fór skipið á frystingu, m.a. í
Flæmska hattinn, en þá fékk verk-
smiðjan iðnaðarrækjuna til
vinnslu. Einnig hefur rækjuvinnsla
Meleyrar hf. fengið rækju af Brimi
SU-383 frá Djúpavogi, bæði nteð-
an skipið var á rækjuslóð fyrir
Norðurlandi og eins meðan það
var í Flæmska hattinum. í október-
mánuði hefst væntanlega innfjarð-
arrækjuveiði á Húnaflóa og þá
mun aukast framboð rækju til
vinnslu. Hjá rækjuvinnslu Meleyr-
ar hf. starfa um 20 manns.
Hjá Meleyri hf. hefur einnig
verið unnin grálúða í sumar í húsa-
kynnum þar sem skelvinnsla hefur
verið og er gegnt rækjuvinnslunni.
Stöðug og góð vinna hefur verið
við þá vinnslu, byrjað sex á
ntorgnana og unnið alla laugar-
daga. Grálúðan hefur verið keypt
af fiskmörkuðum um allt land, en
nú standa yfir samningar um kaup
á afla báts frá Fáskrúðsfirði. Afl-
anum er þá ekið þaðan, um 560
km leið. Á miðvikudag var grá-
lúðufarmur sóttur til Þorlákshafnar
af enskum togara sem unnin verð-
ur næstu daga. Athugasemdir voru
gerðar í gærmorgun við löndun
togarans þar sem togarinn hafði
ekki tilkynnt Landhelgisgæslunni
um komu skipsins til Þorlákshafn-
ar. Guðmundur Tr. Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Meleyrar hf„
segir aflann ltafa verið keyptan af
fiskntarkaði í Þorlákshöfn og hann
hafi farið á fjóra staði, um 27 tonn
til Meleyrar hf„ og um mjög gott
hráefni sé að ræða.
Skelfiskkvóti Meleyrar hf. fór
með sölu báta Meleyrar hf. og seg-
ir Guðmundur Tr. Sigurðsson að
þar með sé óvíst um framhald
skelvinnslu hjá fyrirtækinu. Skel
hefur þó verið unnin af og til í
sumar en nú þegar nýtt fiskveiðiár
gengur í garð verður hlé á henni.
Verið er að athuga möguleika með
kaup á skelfiskkvóta og gangi það
eftir mun skelfiskvinnsla hetjast
fljótt aftur á þessu hausti á
Hvammstanga.
GG