Dagur - 08.09.1995, Page 1
Þriggja ára áætlun íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar:
Sundlaugin hafi forgang
- stofnað hlutafélag um úrbætur knattspyrnumanna - íþróttahús á svæði Þórs
Þriggja ára áætlun íþrótta- og
tómstundaráðs Akureyrar
var afgreidd frá ráðinu á fundi
þess í fyrrakvöld. Þar er lögð
fram stefna í uppbyggingarmál-
um íþróttamannvirkja á næstu
þremur árum og skiptist áætlun-
in í fjóra liði. Forgangsverkefni
verður að ljúka uppbyggingu
sundlaugarinnar á næstu 2-3 ár-
um. Önnur verkefni verða að
bærinn hafi forgöngu um stofn-
un hlutafélags sem hefur að
markmiði að bæta aðstæður til
knattspyrnuiðkunnar á Akur-
eyri, að gerður verði bygginga-
samningur við Þór um byggingu
íþróttahúss á svæði félagsins og
að lokum uppbygging aðstöðu
skauta- og skíðafólks í tengslum
við Vetraríþróttamiðstöð fslands
á Akureyri.
Sem fyrr segir hefur forgang að
klára uppbyggingu Sundlaugarinn-
ar. Á næsta ári er áætlað að klára
nýja 25 metra laug og steypa
grunn og kjallara fyrir nýtt sund-
laugarhús, sem bætist við það
eldra. Annar áfangi er að klára
nýja húsið og tengja við það eldra
og sennilega einnig íþróttahúsið í
Laugargötu. Þriðji áfangi er breyt-
ing á núverandi sundlaugarhúsi og
síðast breytingar á núverandi
sundlaug, en það er áfangi sem átti
að fara í næst en var færður aftur
fyrir. í þetta hafa verið áætlaðar
60-80 milljónir á næstu árum.
Annað atriði þriggja ára áætlun-
arinnar er að Ákureyrarbær hafi
forgöngu um stofnun hlutafélags
sem hafi að markmiði að bæta að-
stæður til knattspyrnuiðkunar á
Akureyri, t.d. með yfirbyggingu.
Akureyrarbær leggi fram hlutafé á
næstu tveimur til þrentur árum, allt
að 60 milljónir, en jafnframt mun
hlutafélagið leitast við að fá sem
flesta til liðs við sig, einstaklinga,
félagasamtök og fyrirtæki. Þórar-
inn E. Sveinsson, formaður ÍTA,
sagðist gera sér vonir um að hægt
verði að stofna hlutafélagið strax í
þessum mánuði, eða um leið og
bæjarstjóm hefur afgreitt málið.
Að sögn Þórarins liggja fyrir
kostnaðartölur um að 44-57 millj-
ónir muni kosta að byggja vatns-
og vindhelt skýli yfir hálfan fót-
boltavöll og í því ljósi er talan 60
milljónir sett fram. Nú eru að klár-
ast byggingastyrkir við félögin í
bænum og í það hafa farið 34
milljónir á ári. Staðsetningu húss-
ins yrði nýja hlutafélagið að
ákveða. Þórarinn sagði það sína
skoðun að athuga verði vel hvort
ekki gæti verið hagkvæmur kostur
að fara út í þessa framkvæmd í
samvinnu við Skautafélagið eða
jafnvel hestamenn.
Þriðja atriði þriggja ára áætlun-
arinnar er að gerður verði bygg-
ingasamningur við íþróttafélagið
Þór um byggingu íþróttahúss á
svæði félagsins, þannig að greiðslur
geti hafist ekki síðar en á árinu
1998. „I mínum huga er ekki spum-
ing hvort heldur hvenær ráðist verð-
ur í þetta verkefni og þess vegna vil
ég að bæjarstjóm lýsi þessu yfir hér
og nú,“ sagði Þórarinn.
Fjórða atriði áætlunarinnar
snertir úrbætur skauta- og skíða-
fólks, þ.e. uppbyggingu Vetrar-
íþróttamiðstöðvar Islands, sem er
sameign ríkisins og Akureyrar-
bæjar og var stofnuð sl. vetur.
Þórarinn er formaður nýskipaðrar
stjómar miðstöðvarinnar og verð-
ur fyrsti fundur hennar væntan-
lega í næstu viku. HA
A næsta ári er áætlaö að Ijúka við 25 metra laug og steypa grunn og kjallara fyrir nýtt sundlaugarhús.
Mynd: BG
Tónlistarskólinn
á Akureyri:
Nemendur
heldur fleiri
en í fýrra
Tónlistarskólinn á Akureyri
verður settur sunnudaginn
17. september klukkan 18:00 á
sal Tónlistarskólans. 524 nem-
endur hafa sótt um skólavist
sem eru heldur fleiri en í fyrra.
Guðmundur ÓIi Gunnarsson,
skólastjóri, segir að verið sé að
leita leiða til að geta tekið við
þessum fjölda en skólinn hafi
ekki fengið neitt aukafjármagn
til að bregðast við aukinni að-
sókn. Það sé því ekki útséð enn
hve mörgum nemendum verður
hægtað taka við í vetur.
Guðmundur segir að cin-
setning grunnskólans valdi
nokkrum vanda í starfsemi
Tónlistarskólans. „Við óbreytt
fyrirkomulag mun starfsdagur
kennara í tónlistarskóla, sem á
bam í grunnskóla, verða þann-
ig að kennarinn þarf að vakna
og koma baminu í skóla og
þegar barnið kemur heim getur
foreldrið farið niður í Tónlist-
arskóla að kenna, því fyrr
verða engir nemendur til að
kenna þar sem þeir verða allir í
skólanum," segir Guðmundur
og þykir þetta slærn framtíðar-
sýn fyrir tónlistarkennara sem
eru með fjölskyldur.
„Við þessu þarf að bregðast
á einhvern hátt en við höfum í
sjálfu sér enga töfralausn á
þessu vandamáli,“ segir Guð-
mundur en ekki er gert ráð fyr-
ir neinum skipulagsbreytingum
á starfi Tónlistarskólans í velur
vegna einsetningar grunnskól-
ans. AI
Skagstrendingur hf. rekinn með 20 milljóna tapi fyrstu sex mánuði ársins:
Stefnum að því að vera með þrjá öfluga
frystitogara eftir uppstokkun
Utgerðarfyrirtækið
strendingur hf. á
Skag-
Skaga-
strönd var rekið með 20 milljóna
króna tapi fyrstu sex mánuði
Norðurland:
Fyrstu fjárréttir
haustsins í dag
Fyrstu íjárréttir á Norður-
landi á þessu hausti fara
fram í dag en þá verður réttað í
Landsrétt í Öxarfirði og Gróf-
argilsrétt í Seyluhreppi í Skaga-
firði. Það ríkir jafnan mikil eftir-
vænting eftir réttum á hverju
hausti og bæði sveitafólk og fólk
úr þéttbýlinu tekur þátt í réttar-
störfum af miklum áhuga.
Á morgun, laugardag, verður
svo réttað í Tungurétt í Öxarfirði,
í Auðkúlurétt í A- Húnavatns-
sýslu, í Miðfjarðarrétt og Hrúta-
tungarétt í V-Húnavatnssýslu, í
Illugastaðarétt og Víðikersrétt í S-
Þingeyjarsýslu og í Skarðarétt í
Skagafirði.
Stóðréttir eru oftast nokkuð
seinna á ferðinni en fjárréttir en
þó verður réttað í Miðfjarðarrétt í
V-Húnavatnssýslu á morgun,
laugardag og nk. föstudag verður
hrossastóð rekið til réttar í Mæli-
fellsrétt í Skagafirði.
I Degi í gær voru birtar tíma-
setningar helstu fjár- og stóðrétta
á Norðurlandi á þessu hausti. KK
- segir Oskar Þórðarson, framkvæmdastjóri
ársins sem er 4% af veltu tíma-
bilsins. Á sama tíma á sl. ári var
rekstrartapið 10 milljónir króna
og rekstrartekjur lækkuðu um
tæpar 50 milljónir króna milli
ára, voru 554 milljónir króna
fyrstu sex mánuði ársins 1994 en
eru 507 milljónir króna fyrstu
sex mánuði þessa árs.
Óskar Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri, segir að með sölu á
togaranum Amari gamla HU-101
til Samherja hf. á Akureyri og
Amari HU-1 til Royal Greenland
sé verið að snúa þessari þróun við
en þessi afkoma sé óviðunandi.
Við þessar breytingar á útgerðinni
rnuni skuldir fyrirtækisins lækka
um allt að 500 milljónir króna
þegar allt er gengið í gegn en
áhrifa aðgerðanna mun ekki gæta
að marki fyrr en á árinu 1996.
Verið er skoða kaup á frysti-
skipi í stað Amars HU-1 og eins
og fram hefur komið hefur útgerð-
in fest kaup á rækjufrystitogara frá
Grænlandi í stað Arnars gamla
HU- 101.
„Við stefnum að því að vera
Sala á Arnari HU er aögerð til að
snúa við rekstri Skagstrendings.
með þrjá öfluga frystitogara eftir
þessa uppstokkun á fyrirtækinu,
ekkert „súperskip“ eins og Arnar
HU en heldur ekkert mjög gamalt
skip. Skipið sem kemur frá Græn-
landi er smíðað 1977 en er með
nýrri vél og spilum sem endumýj-
að var árið 1986,“ sagði Óskar
Þórðarson.
Togarar Skagstrendings hf.
hafa ekki verið á rækjuveiðum
undanfarin ár nema í mjög óveru-
legu mæli þar til nú er þetta skip
fer á slíkar veiðar hér á heimaslóð
og einnig í Flæmska hattinn.
Sá hluti aflans sem ekki fer í
pakkningar á Japansmarkað, þ.e.
iðnaðarrækjan, fer til vinnslu hjá
rækjuverksmiðju Hólaness hf. á
Skagaströnd.
Eftir að gengið var frá sölu á
Amari HU-1 til Grænlands í júlí-
mánuði sl. hefur gengi hlutabréfa
félagsins farið hækkandi og tölu-
vert verið sóst eftir bréfum í félag-
inu en gengi hlutabréfanna er um
3,0 en var 2,5 í aprílmánuði sl.
Hjá Kaupþingi Norðurlands feng-
ust þær upplýsingar að frá 1. júlí
sl. hefðu verið seld hlutabréf í
Skagstrendingi hf. fyrir um 17
milljónir króna, eða liðlega 5
milljónir króna að nafnvirði.
Stærstu hluthafar í Skagstrend-
ingi hf. er Höfðahreppur með
26%, Burðarás hf. með 12%, Jökl-
ar með 6%, Sveinn Ingólfsson
með 5%, Tryggingamiðstöðin hf.
með 4%, Hólanes hf. með 3% og
Bjöm Rúríksson með 2% en alls
eru hluthafar 503 talsins. GG