Dagur - 08.09.1995, Side 2

Dagur - 08.09.1995, Side 2
2 - DAGUR - Föstudagur 8. september 1995 FRÉTTIR Halldór Blöndal, samgönguráöherra, segir aö sér „líði óskaplega vel í ríkisstjórnni“: Ráðherrar sem kunna að þegja Halldór Blöndal, samgönguráð- herra, segir að með Sjálfstæð- isflokki og Framsóknarflokki hafi tekist mjög gott samstarf í ríkisstjórn og hann notar þau orð að „sér líði óskaplega vei í ríkis- stjórninni“. Hann er ágætlega sáttur við afgreiðslu stjórnar- flokkanna á íjárlagafrumvarpinu sem nú hefur fengið grænt ljós þingmanna beggja flokka. „Fjárlagafrumvarpið verður lagt fram með eins og við höfum stefnt að fjögurra milljarða halla. Við vonumst til þess að geta staðið við það. A næsta ári verður síðan reynt að ná jafnvægi í rflcisbúskapnum. Það verður auðvitað erfitt verk, við verðum að ráðast á ýmsa rekstrar- liði. En á undanfömum áratugum hefur ríkið safnað skuldum sem við verðum að horfast í augu við og við getum ekki haldið áfram á sömu braut.“ - Er jafnvœgi í ríkisbúskapnum forsenda vaxtalækkunar? b “ BNGIN HÚS jTfj jj [J 5 d S3 AN HITA Blöndunar Nýjar gerdir Gott verb Okkar verð er alltaf betra W3Í3 Verslift vi& fagmann. j| DRAUPNISGÖTU 2 ■ AKUREYRI jj SÍMI 462 2360 ‘i Op/ð á laugardögum kl. 10-12. U BHQQBBBBBBBySByQBBBBBBQBQQyQBBBBU Ibisley skjaiaskápar BI5LEY skjalaskáparnir eru einfaldlega betri LVUTÆKI Furuvöllum 5 ■ Akureyri Sími 462 6100 L______________________Á „Það stuðlar að lægri vöxtum og hilt er það að hér hefur verið aukið þjónustu- stig á mörgum sviðum án þess að nokkur hafi í rauninni óskað eftir því. Rekstur ríkisins hefur vaxið of mikið, hrað- ar en þjóðartekjumar, meira en af- rakstur þjóðarbúsins, og þannig getum við ekki haldið áfram.“ - Verðurþá ekki aðfœkka ríkis- starfsmönnum? „Ef við vinnum betur verkin og skilum betri afköstum eða hættum að sinna því sem óþarft er, þá fækkar þeim sem koma að slíkum störfum. Við getum þá kannski nýtt starfskraftana til annars betra, ef okkur tekst að halda vöxtum og opinberum gjöldum niðri og ef okkur tekst að bæta rekstrarum- hverfi fyrirtækja." - Telurðu, eins og töluvert hef- ur verið í umrœðunni að undan- förnu, að skattar séu einfaldlega orðnir ofháir? „Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við höfum verið of kærulausir í skattlagningu, bæði sveitarfélög og ríki. Við höfum hins vegar ekki verið að tala um að lækka skatta, við erum að reyna að halda í horfinu og koma niður rík- isútgjöldum. En okkur hefur tekist að breyta sköttum og lækka skatta á fyrirtækjareksturinn, þannig að skattalegt umhverfi fyrirtækja er á við það sem best gerist annars staðar." - Fjölskyldufólk kvartar undan skattbyrðinni og töluvert margar fjölskyldur liafa verið að flytja úr landi að undanförnu. Er ekki kom- ið út á hœttulega braut í skattlagn- ingu á fjölskyldufólk? „Skattkerfið er mjög flókið og sömuleiðis styrkjakerfið hér sem og á Norðurlöndum. I nágranna- löndunum er atvinnuleysið meira en hér og það er alveg augljóst ef við berum saman lífskjör hér og í nágrannalöndunum, þá geta ekki allir á íslandi verið með miklu verri kjör en allir í hinum löndun- um. Einkaneyslan hér á landi sýnir að við stöndum nágrannaþjóðunum ekki langt að baki. Ef við viljum hins vegar setja meiri kraft í að auka kaupmátt launa og bæta lífs- kjörin, þá verðum við að leggja áherslu á að auka útflutningstekj- umar. Forsenda þess er sú að af- rakstur þjóðarbúsins vaxi jöfnum höndum við lífskjörin.“ - En það er staðreynd að marg- ir hafa verið að flytja aflandi brott á síðustu misserum. „Það koma líka margir til baka og á þessu er áramunur. Sum árin tala fjölmiðlar mikið um að fólk flytji úr landi, en fjölmiðlar tala minna uin þegar þetta snýst við. Mér fínnst of mikið af því þessa dagana að menn séu í fjölmiðlum að kvarta yfir öllum hlutum og mér finnst fjölmiðlar vera svolítið rolu- legir að þessu leyti. En það alveg rétt að |iað eru margir að flytja úr landi, en það eru lfka margir að koma heim.“ - Nút virðist samkomulagið í ríkisstjórninni vera nokkuð gott, ef horft er til þess að fjárlagafrum- varpið rann í gegnum báða stjórn- arflokka án stórátaka? „Upphlaup í fjárlagagerð þýðir einungis það að í rfldsstjóminni eru menn sem ekki kunna að þegja.“ - Það vill segja að núsitjandi ráðherrar kunna það? „Já, já.“ - Ertu ánœgður í þessari ríkis- stjórn? „Mjög ánægður.“ - Anœgðari en í ríkisstjórn með krötum? „Mér líður óskaplega vel í ríkis- stjóminni. Okkur hefur tekist að ná saman um það sem við emm að fást við.“ - Nú eru í gangi miklar opin- berar framkvœmdir á Norðurlandi eystra, ég nefni viðbyggingu FSA og vegaframkvœmdir. Verður eng- in breyting á áœtlun um þessar framkvœmdir samkvœmt fjárlaga- frumvarpinu? „Við erum ekki búnir að af- greiða fjárlagafrumvarpið og ég tala ekki um það fyrr en það hefur hlotið afgreiðslu. Þú færð ekkert upp úr mér um þetta,“ sagði Hall- dór Blöndal. óþh Halldór Blöndal. Staðan verri en ég bjóst við - segir Valgerður Sverrisdóttir, formaður þingflokks Framsóknarflokks Valgerður Sverrisdóttir, þing- flokksformaður Framsóknar- flokksins og þingmaður Norður- lands eystra, segir að útgjöld ríkisins verði meiri á næsta ári en yfirstandandandi ári og því sé vart hægt að tala um fjárlaga- frumvarpið sem niðurskurðar- frumvarp. Hins vegar séu niður- stöðutölurnar fjarri útgjaldaósk- um ráðuneytanna. Valgerður sagði að þrátt fyrir að fjárlagavinnan hafi farið fram á lágum nótum hafi þetta verkefni verið afar erfitt, kjarasamningamir hafi kostað sitt og ríkissjóður hafi orðið af umtalsverðum tekjum vegna afnáms tvísköttunar á líf- eyri. Valgerður sagðist fúslega viðurkenna það að staða ríkissjóðs og fjárlagadæmið væri því erfið- ara en hún hefði ímyndað sér. Eins og fram hefur komið er markmið stjórn- arflokkanna að ríkissjóður verði ekki rekinn með meiri halla en sem nemur fjór- um milljörðum króna. Gangi þetta eftir verður hallinn á næsta ári um helmingi minni en á yfirstandandi ári. Val- gerður sagðist auðvitað gera sér Ijóst að útgjöldin eigi eftir að auk- ast í þinginu, en því verði þá að mæta með því að skera niður á móti eða auka tekjurnar. - Sérðu fyrir þér að stórfram- kvæmdum á vegum ríkisins verði frestað á nœsta ári? „Það verður öllum þeim stór- framkvæmdum frestað á næsta ári sem hægt er að fresta." - Hvað með einstakar stór- framkvæmdir í Norðurlandskjör- dæmi eystra? „Ég geri mér alveg grein fyrir að mitt kjördæmi sleppur ekki frá niðurskurðinum, en ég get ekki á þessu stigi nefnt neinar sérstakar framkvæmdir." Valgerður segist sammála því að ekki verði gengið lengra í að hækka skatta á almenning. „Við erum alveg hörð á því í Fram- sóknarflokknum að skattahækkan- ir komi ekki til greina og það verður reynt að stíga skref í því að lækka jaðarskattana fyrri hluta kjörtfmabilsins." - Þú segir að staða ríkissjóðs sé verri en þú hafðir gert ráð fyr- ir. Mun Framsóknatflokkurinn í Ijósi þess geta efnt kosningaloforð sín? „Já, ég held að við getum gert það. Við lofuðum kjarabótum, en tókum fram að það yrði á síðari hluta kjörtímabilsins. Þess vegna erum við nú að búa í haginn fyrir síðari hlutann. Við erum alveg sannfærð um það að það verður að ná niður þessum halla á rík- isrekstrinum til þess meðal annars að lækka vexti. Einnig má ekki gleyma því að halli á fjárlögum hefur meiri áhrif á íslandi en víð- ast annars staðar vegna þess hve hagkerfið er smátt og þjóðhags- legur sparnaður er lítill. Svo má ekki gleyma því að til þess að byggja upp tiltrú á efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar er nauðsynlegt að leggja fram raunhæft fjárlaga- frumvarp." óþh Málverkasýning Söngur og dans í Árskógi 9. og 10. september í tilefni 100 ára árstíðar Freymóðs Jóhannssonar, 12. september. Flutt æviágrip listamannsins, einnig lög og Ijóð 12. september. Sýnd verða málverk og teikningar eftir Freymóð. Laugardaginn 9. september hefst dagskráin kl. 15. Adgangur ókeypis en Kvenfélagid Hvöt selur kaffiveitingar. Sunnudaginn 10. september, málverkasýning og kaffisala frá kl. 13-17. Undirbúningsnefnd. Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Bæjarráð samþykkii á fundi sínum í gær að Akureyrarbær kaupi húseignina Sæból í Sandgerðisbót af Lífeyrissjóði sjómanna. Húseignin er á bráðabirgðastöðuleyfi og í samræmi við reglur bæjar- stjórnar um kaup á slíkum eignum er kaupverð kr. 619.000.-. Bæjarlögmanni var falið að ganga frá samningi um kaupin og tæknideild að láta rífa húsið. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá héraðsnefnd Eyjatjarðar, þar sem leitað er eftir samstarfi við Akurcyrarbæ um bruna- vamir og þess óskað, að bær- inn tilnefni fulltrúa til við- ræðna við nefndina um málið. Bæjarráð hefur óskað eftir um- sögn slökkviliðsstjóra um er- indið, sem skilað verði til bæj- arráðs fyrir 18. september nk. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá félagsmálaráðuneytinu, þar sem tilkynnt er um ákvörðun ráðuneytisins um stuðning við Menntasmiðju kvenna á Akur- eyri sem þróunarverkefni í tvö skólaár, 1995-1996 og 1996- 1997. Hvort ár mun ráðuneytið leggja fram til verkefnisins kr. 1.500.000.-. Við framkvæmd verkefnisins skal hafa samráð við starfsmenntaráð og vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðu- neytisins og senda ráðuneytinu í lok hvors árs yfirlit um fjár- hagslega stöðu og útgjöld verkefnisins. Bæjarstjóra var falið að leita frekari skýringa á fjárveitingu lil verkefnisins. ■ Guðmundur Guðlaugsson, yfirverkfræðingur, hefur með bréfi til bæjarráðs sótt um námsleyfi til endurmenntunar frá 1. desember 1995 til 1. júní 1996, í samræmi við samþykkt bæjarstjómar um námsleyfi fyrir starfsmenn Akureyrarbæj- ar. Bæjarráð samþykkti að verða við erindinu. ■ Bæjarráð hefur samþykkt að erindum sem kunna að berast um niðurfellingu eða lækkun á útsvari vegna fjárhagserfið- leika eða sjúkleika gjaldanda verði framvegis vísað til ráð- gjalardeildar til faglegrar um- fjöllunar og afgreiðslu. ■ Bæjarráð hefur hafnað erindi frá Náttúrulækningafélagi Ak- ureyrar, þar sem leitað var eftir styrk úr Bæjarsjóði til þess að mæta hækkun á fasteignaf- gjöldum af húseigninni Kjarna- lundi. ■ Bæjarráði hefur borist erindi frá Randers, þar sent boðað er til fundar með fulltrúum frá norrænu vinabæjunum um auk- ið samstarf á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála. Gert er ráð fyrir að tveir fulltrúar frá hverjum vinabæ sæki fundinn og verði hann haldinn f Rand- ers í október eða nóvember nk. Bæjarráð fól félagsmálastjóra að svara erindinu. ■ Ámi V. Friðriksson, Magnús Gauti Gautason og Baldvin Valdimarsson, hafa verið end- urkjörnir í stjóm Fóðurverk- smiðjunnar Laxár hf. til eins árs. Til vara eru Jóhann A. Jónsson, Einar Sveinn Ólafs- son og Öm Þórsson. ■ Bæjarráð hefur tilefnt Jakob Bjömsson, bæjarstjóra, og Sig- urð J. Sigurðsson, bæjarráðs- mann, til samningaviðræðna við Jón Hjaltason, sagnfræð- ing, um l'ramhald á ritun sögu Akureyrar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.