Dagur - 08.09.1995, Page 3

Dagur - 08.09.1995, Page 3
T f PPOt" -laHrnQtn/ap P i! iiichi itpnP — Pl IflAn — C Föstudagur 8. september 1995 - DAGUR - 3 c^ÖNÖUM /i FRÉTTIR B0LUR FYLGIR HVERJU 10 TIMA - 3JA MANAÐA KORTI Minnisvarði um sr. Friðrik Friðriksson afhiúpaður Næstkomandi sunnudag, 10. september, kl. 14 verður afhjúp- aður minnisvarði um séra Frið- rik Friðriksson, æskulýðsleið- toga og stofnanda KFUM og KFUK, á fæðingarstað hans, Hálsi í Svarfaðardal. Húsfreyjan að Hálsi, Guðrún Þorsteinsdóttir, mun afhjúpa minnisvarðann, Kór Dalvíkur- kirkju syngur sálma eftir sr. Frið- rik Friðriksson og séra Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur á Dal- vík, annast bænagjörð. Að afhjúpuninni lokinni verður farið í safnaðarheimili Dalvíkur- kirkju þar sem boðið verður til kaffidrykkju. Við það tækifæri mun dr. Sigurbjöm Einarsson, biskup, flytja ræðu um sr. Friðrik Friðriksson. Kór Dalvíkurkirkju syngur og leiðir almennan söng. Síðar um daginn, nánar tiltekið kl. 17, verður hátíðarmessa í Dal- víkurkirkju í tilefni 35 ára vígslu- afmælis kirkjunnar. Dr. Sigur- björn Einarsson, biskup, predikar. Allir eru velkomnir að vera viðstaddir afhjúpun minnisvarð- Sr. Friðrik Friðriksson. ans og þiggja kaffi í safnaðar- heimili Dalvíkurkirkju. Þess má geta að þeir sem stóðu að því að reisa minnisvarðann um sr. Friðrik Friðriksson eru nokkrir áhugamenn um minningu hans. Náið samstarf hefur verið haft við ábúendur á Hálsi og Vegagerð rík- isins um staðsetningu minnisvarð- ans. óþh Alvarlegt vinnuslys um borð í Óðni: Skipverji fluttur með þyrlu til Hammerfest Alvarlegt slys varð um borð í varðskipinu Óðni í gær þar sem það var með Vestmannaeyjatog- arann Sindra í togi í leiðinlegu veðri. Að sögn Helga Hallvarðs- sonar, skipherra hjá Landhelgis- gæslunni, slitnaði keðja með þeim afleiðingum að einn skip- verja fótbrotnaði á báðum fótum og rifbeinsbrotnaði. Þyrla frá norsku strandgæsl- unni sótti hann og flutti á sjúkra- hús í Hammerfest. Óðinn mun draga togarann í átt til Tromsö þar sem norskur dráttarbátur tekur við skipinu. Nokkur erill hefur verið hjá lækninum um borð í Óðni, þó ekkert mjög alvarlegt hafi komið upp að þessu slysi undanskildu, þó hafa ýmsir hlotið mar og brák- ast. Óðinn hélt í Smuguna 21. ágúst og verður í allt að tvo mán- uði ef þjónustunnar verður enn þörf, þ.e. ef einhverjir íslenskir togarar verða þá enn í Barentshaf- inu. GG Aðeins smá- loðna fannst Loðnuskipið Hólmaborg frá Eskifirði fékk um 170 tonn af loðnu í tveimur köstum um 90 mflur norður af Horni, eða um 10 mflur innan grænlensku lög- sögunnar. Þijú skip hafa verið við loðnuleit fyrir Norðurlandi. Þessar veiðifréttir kveiktu von- ameista hjá ýmsum en hann kóln- aði verulega þegar fréttist að um smáloðnu var að ræða. Frekari aflafréttir hafa ekki borist af þessu svæði. GG Fleecefatnaður í úrvali, s.s jakkar, buxur, peysur, húfur, lúffur, lambhúshettur, eyrnaskjól o.fl. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Saumastofan HAB Árskógsströnd, sími 466 1052. P.S. Fatnaðurinn fœst einnig í versluninni Gilitrutt, Kaup- \ vangsstrœti, Akureyri, sími 462 1 916, ásamt prjónavörum og handverksmunum. THvalin ®*íavara!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.