Dagur - 08.09.1995, Page 4

Dagur - 08.09.1995, Page 4
4 - DAGUR - Föstudagur 8. september 1995 LEIÐARI------------------ Talnaleikfimin ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavíkvs. 464 1585, fax 464 2285), FROSTI EIÐSSON (íþróttir). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RIKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 462 7639 Talnaleikfimi hefur um langa hríð verið sérgrein ís- lenskra stjórnmálamanna. Þeir byggja málflutning sinn að stórum hluta á óskOjanlegum hagfræðistærð- um sem eru til þess fallnar að rugla fólk í ríminu og sjá tO þess að hinn venjulegi Jón Jónsson stendur eft- ir sem stórt spurningarmerki. Oft á tíðum er engu lík- ara en stjórnmálamennirnir hafi ekki hugmynd um hvað þeir eru að tala þegar þeir beita talnaleikfiminni, þeir skýla sér á bakvið hana og telja sjálfum sér og öðrum trú um að hún sé lykOatriðið í því að teljast trú- verðugir stjórnmálamenn. Þessi hugsun pólitOcusanna er vitaskuld hinn mesti misskilningur. Almenningur sér í gegnum háfleyga og óskiljanlega pólitík sem byggist á vísitölum, meðaltöl- um og prósentum. Hann sér að á bakvið slíkan mál- flutning er málefnaleg fátækt stjórnmálamannanna. Þeir geta ekki komið fram með staðreyndir á manna- máli, hafa ekki hugmynd um hvernig á að miðla upp- lýsingunum tO fólks á skOjanlegan hátt. Þess vegna er gripið tO þjóðhagsstærða sem ekki nokkur maður skO- ur með góðu móti. Það er ekki gott að segja hvað ræður því að stjórn- málaumræðan er komin á hið gelda talnaplan. Ef tO vOl er skýringin þó að einhverju leyti sú að drjúgur hluti stjórnmálamanna er ættaður úr möppugeira þjóðlífsins, þar sem tölurnar hafa tekið völdin og skýrslur sem enginn skilur eru skrifaðar daginn út og inn. Þessir ágætu fuOtrúar fólksins tala ekki sama málið og fiskvinnslukonan og hafnarverkamaðurinn. Þess vegna verður umræðan svo geld og óskiljanleg. Gott dæmi um hvernig talnaleikfimin birtist lands- mönnum eru tölur sem veifað hefur verið að undan- förnu framan í landsmenn til þess að færa sönnur á að efnahagsbatinn hafi skilað sér tO almennings. Hætt er við að fjölskyldufóUtið hrökkvi í kút þegar það fær slík- ar tölur framan i andlitið. Koma þær heim og saman við stöðuna á launareikningnum? Eru meiri fjármunir aflögu nú en á undanförnum árum þegar búið er að greiða húsnæðisreikningana, bílatryggingarnar, mat- inn, námslánin, orkureikninga o.s.frv.? Nei, heldur er það nú ósennilegt. Miklu lOdegra er að fjölskyldufólk- ið eigi nú um stundir erfiðara með að ná saman end- um en nokkru sinni áður. Eða er það ekká einmitt helsta skýringin á því að tugir fjölskyldna hafa flust búferlum tO nálægra landa og freista þess að ná þar endum saman? Væri ekki ráðlegra fyrir ábyrga pólitík- usa að hætta heimskulegri talnaleikfimi og tala á mannamáli um fólksflóttann sem er eitt stærsta vandamál sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í dag? Vemd gegn „hvít£libbaglæpum“ Það er ekki ýkja langt síðan við íslendingar hentum gaman af því hvernig einum af „sonum þjóðar- innar“ tókst með klækjum að selja útlendum mönnum Norðurljósin og þúfu í Borgarfirði. Þá vorum við í sporum fátækra kotbænda, hlakkandi yfir óförum ríkra og auðtrúa manna einhverstaðar langt úti í heimi. Nú er öldin önnur og fáum dettur í hug að dást að „snilli og kænsku" þess manns sem selur eitthvað sem hann á ekki. jafnvel þó kaupandinn sé auðtrúa útlendingur. Það sem einu sinni voru spaugileg tilvik í út- löndum og hent var gaman að meðal almennings heima á Fróni, er orðið að vandamáli á fslandi í dag. Til okkar sem vinnum að neytendamálum leitar stöðugt fleira fólk sem orðið hefur fómar- lömb óheiðarlegra viðskipta, þá á ég ekki við fólk sem óvænt hefur fengið gallaða smávöm eða þjón- ustu, heldur einstaklinga sem á skipulagðan hátt hafa verið hlunn- famir í viðskiptum. Margur gæti haldið að einföld lausn væri innan seilingar, nefnilega sú að leita til opinberra stofnana eða dómstóla og fá þann sem hin óheiðarlegu viðskipti stundaði, skikkaðan eða dæmdan til að bæta fyrir mis- gjörðir sínar. En málið er ekki svona einfalt. Seinagangurinn inn- an íslenska stjómkerfisins er iðu- lega svo mikill, að erindum er ekki sinnt svo mánuðum skiptir ef þeim er þá yfir höfuð svarað (það eru fleiri en nefndir Sameinuðu þjóðanna sem hafa ástæðu til að kvarta yfir sinnuleysi íslenskra stjómvalda). Ekki tekur betra við ef leitað er til dómstóla, þar geta málin þvælst fram og til baka í mörg ár og hlað- ið á sig ómældum lögfræðikostn- aði. Vegna þessa mikla seina- gangs og kostnaðar, hafa sum fómarlambanna ekki þrek eða fjármuni til að bera hendur fyrir höfuð sér og leggja hreinlega árar í bát. Önnur leita til neytendafé- laganna og biðja þau að aðstoða sig. Fagmenn með kusk á hvítflibbanum Þegar farið er að reyna að hjálpa þessu fólki kemur mjög oft í ljós að það hefur orðið fyrir barðinu á ófyrirleitnum einstaklingum sem beinlínis spila á það ástand sem ríkir í íslenskum viðskiptaheimi. Fyrir mörgum svikahrappinum snýst matið á glæpnum eingöngu um hlutfallið milli áhættu og ávinnings, hann veit sem er, að ef upphæðin sem svikin er út úr ná- unganum er ekki því hærri, þá eru sterkar líkur á því hvað fólk treysti sér ekki til að fóma mikl- um tíma og peningum til að ná fram rétti sínum. Stórtækustu svikahrapparnir búa yfirleitt yfir eða hafa aðgang að sérþekkingu í að þvæla málum fram og aftur. Þeir athafna sig á gráu svæðunum við jaðra þess siðlausa og ólög- lega og verjast með málþófi og lögfræðilegum útúrsnúningum ef upp um þá kemst. Slík mál taka nær alltaf mörg ár og enda oftar en ekki með því, að fómarlömbin gefast upp og svikahrappurinn stendur eftir með pálmann í óhreinum höndunum. En af hverju er svona fyrir okk- ur komið í þessu „velferðarþjóðfé- lagi“? Sinnulitlir alþingismenn íslenskt réttarfar var meira og minna látið danka í áratugi. Fyrir og eftir viðskilnaðinn við hinn danska kóng, hafa íslenskir al- þingismenn haft litla sinnu á því að leyfa réttarfarsmálefnum að þróast á eðlilegan hátt, alþingis- menn hafa að mestu látið reka á reiðanum, og reyndar gengið svo langt að ákveða formlega að rétt- arfarskerfið skyldi vera í andstöðu við stjórnarskrána vegna þess að breytingar væru „hvorki þingi né þjóð neitt áhugamál“. Það þurfti því ekki að koma neinum á óvart þegar hið íslenska löggjafarvald var loksins rassskellt á erlendri gntnd. Löggjafinn, hið íslenska Al- þingi, var gripið með buxumar á hælunum þegar mannréttinda- nefnd Evrópuráðsins staðfesti formlega það sem margir vissu, en enginn hafði haft sinnu á að bæta úr, að aðskilnaður dóms- og fram- kvæmdavalds var ekki í samræmi við stjómarskrána. Ekki bætti það heldur úr skák þegar íslenskar dómsniðurstöður í mannréttinda- málum voru ítrekað dæmdar dauðar og ómerkar. Með skottið á sínum stað, hefur Alþingi íslendinga síðan verið að berja í brestina (samkvæmt hinu útlenda boði), en vinnubrögðin því miður bæði hæg og slorleg, enda viðkomandi ráðherrar gjama verið uppteknari af sjávarútvegi og fiski en dómsmálum og fólki. Vanburða og glæpahvetjandi kerfi Afleiðing þess að réttarfarskerfinu hefur ekki verið sinnt sem skyldi og því leyft að þróast í samræmi við þörf og aðstæður, er sú, að upp hefur hlaðist hjá flestum dóm- stólum landsins fjöldi óleystra mála, mála sem verða að bíða úr- lausnar eins og fyrr segir, jafnvel árum saman. Þó hefðbundnir smákrimmar og glæpamenn fái á færibandi sínar venjulegu áminn- ingar og dóma sem ekki er hægt að fullnusta fyrr en eftir dúk og disk vegna húsnæðisskorts, er langt frá því að nóg sé að gert, því ekki hefur verið bmgðist nægilega við hinum vaxandi fjölda hvít- flibba- eða skrifborðsglæpum. Skrifborðsglæpamenn em ekki ósjaldan menntaðir „fag- eða embættismenn“ sem gerast áræðn- ari með hverju ódæði, vegna þess að þeir vita að kerfið sem á að vemda borgarana hefur takmarkað „Til okkar sem vinnum að neytenda- málum leitar stöðugt fleira fólk sem orðið hefur fórnarlömb óheiðarlegra viðskipta, þá á ég ekki við fólk sem óvænt hefur fengið gallaða smávöru eða þjónustu, heldur einstaklinga sem á skipulagðan hátt hafa verið hlunn- farnir í viðskiptum.“ bolmagn til að bregðast við og skerast í leikinn. Misjafn sauður í mörgu fé Það er að sjálfsögðu mikil einföld- un að taka eina stétt rnanna og út- hrópa hana sem blóraböggul, en því miður og af mörgum gefnum tilefnum tel ég mig geta nefnt til sögunnar lögfræðingastéttina sem ég í starfi mínu að neytendamál- um hef orðið að verja miklum tíma í að kljást við. Ég tel að gera verði meiri kröfur um siðferðis- styrk og vönduð vinnubrögð af löglærðum manni en ólöglærðum, því sérstaða lögfræðinga er sú að þeir hafa í gegnum nám sitt og starf, öðlast þekkingu umfram aðra í mögulegum klækjum og refilstigum, jafnframt standa þeir öðrum oftar frammi fyrir tækifær- um til að láta fallast í freistni. Sá vandi og niðurlæging sem lög- fræðingastéttin á við að glíma, er að mínu mati sjálfskapaður, til- kominn vegna afskipta- og sinnu- leysis starfsbræðra sem horft hafa með blinda auganu á endurteknar misgjörðir kollega sinna. Fagfélög lögfræðinga virðast ekki vinna samkvæmt virkum siðareglum líkt og fagfélög lækna telja sig gera, þannig að svið óheiðarlegra starfandi lögfræðinga á íslandi spannar allt frá þjófum sem stela frá öryrkjum og gömlu fólki, upp í dæmda stórglæpamenn. Síðan eru ótaldir allir þeir sem feta sig á gráu svæðunum. Af slíkum kveð- ur svo rammt, að forseti Hæsta- réttar gefur í skyn að tilteknir lög- menn hindri eðlilegan framgang dómsmála með því að beita mál- þófi og áfrýja málsmeðferð í tíma og ótíma til hæstaréttar. Hvað er til ráða? Það er ekki að ófyrirsynju að for- seti Hæstaréttar hefur nokkrar áhyggjur af seinaganginum í dómskerfinu og leiti sökudólga meðal kollega sinna. Með aukinni tímaeyðslu í óvandaðan og óþarf- an málaflutning innan dómskerfis- ins, skapast síaukið svigrúm fyrir glæpamennina. Ég tel, að auk þess að sinna betur dómstólum og rétt- arfarskerfi, verði að gera neyt- endafélögum landsins fjárhags- lega kleift að hafa á sfnum snær- um fagmenn á ýmsum sviðum, ekki síst lögfræðinga sem kunna að láta krók koma á móti bragði og leysa mál áður en til málaferla þarf að koma. (íslensk stjórnvöld verja því miður hlutfallslega minni fjárhæðum í þágu neytenda, en stjórnvöld í nokkurri annari ná- grannaþjóð okkar.) Hérlendis sem erlendis hafa kvörtunamefndir skipaðar fulltrú- um úr hinum ýmsu starfsgreinum ásamt fulltrúa neytenda gefið góða raun. Nú þegar em nokkrar slíkar nefndir starfandi á vegum Neytendasamtakanna en nauðsyn- legt er að fjölga þeim. Það er hins vegar álitamál en engu að síður vert nákvæmrar skoðunar, hvort ekki megi ein- falda dómstólaleiðina með því að hafa einskonar „smámáladóm- stól“, þar sem tekin væri fyrir all- ur sá aragrúi smámála sem er að flækjast um og tefja fyrir í dóms- kerfinu, en þyrfti í raun mjög ein- falda afgreiðslu og úrskurð til að báðir málsaðilar létu þar við sitja. A sama hátt og hægt er að tak- marka hvaða hagsmunir þurfa að vera í húfi til að hægt sé að áfrýja máli til Hæstaréttar, hlýtur að vera hægt að setja leiðbeinandi mörk á lægra dómsstigi. Vilhjálmur Ingi Árnason. Höfundur er formaður Neytendafélags Akur- eyrar og nágrennis. Freymóðs Jóhannssonar mínnst Á morgun, laugardag kl. 15.00, mun áhugamannahópur standa að dagskrá í Árskógi til að heiðra minningu Freymóðs Jó- hannssonar í tilefni 100 ára árs- tíðar hans. Sett hefur verið upp sýning með málverkum hans og teikning- um og einnig verður flutt sýnis- hom af ljóðum hans óg lögum. Þá mun Birgir Sveinbjömsson flytja æviágrip Freymóðs og fleira verð- ur til gamans gert. Aðgangur er ókeypis og mun kvenfélagið selja kaffiveitingar á staðnum. Á sunnudaginn verður málverkasýn- ing og kaffisala kl. 13-17.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.