Dagur - 08.09.1995, Síða 5
Föstudagur 31. ágúst 1995-DAGUR-5
HVAÐ ER AÐ 6ERA5T
Töðugjöld í Vín
Töðugjaldadagar verða í Blómaskál-
anum Vín í Eyjafjarðarsveit um helg-
ina og verða pönnukökur með rjóma
bakaðar í veitingasal skálans. Kristján
Stefánsson frá Gilhaga leikur á harm-
oniku fyrir gesti báða dagana.
AliaíTBob í Deiglunni
Hljómsveitin Alias Bob kemur fram á
tónleikum í Deiglunni á Akureyri á
laugardagskvöld. Þó nafn sveitarinnar
hljómi ekki kunnuglega er hér á ferð-
inni sveit sem spilað hefur um margra
ára skeið undir mismunandi nöfnum.
Á tímaili bar hún nafnið 200 þúsund
naglbítar og Askur yggdrasils en und-
ir fyrra nafninu náði sveitin þriðja
sæti í Músíktilraunum í Reykjavík.
Efnið sem sveitin flytur á tónleikun-
um annað kvöld er allt frumsamið -
nýbylgja með melódísku ívafi og suð-
uramerískum rythma. Tónleikarnir
hefjast milli kl. 21.30 og 22 og er að-
gangseyri stillt í hóf með 200 kr.
miðaverði.
Ferðafélagar til
Mývatnssveitar
Ferðafélag Ákureyrar efnir á morgun
til skoðunarferðar að Seljahjallagili í
Mývatnssveit. Gilið þykir hin merki-
legasta náttúrusmíð og segir í bókinni
Ódáðahraun eftir Ólaf Jónsson að svo
virðist sem það sé heljarmikill gígur
er opnist fram á sléttlendi Mývatns-
sveitar. Þar finnast mjög fallegar
berggerðir úr kubbabergi og stuðlum
er hallast á ýmsa vegu. Leysingavatn
fellur um það á vorin og myndast þá
efst í því foss, allt að 80 metra hár.
Fyrirhugað er að leggja upp frá
skrifstofu Ferðafélagsins að Strand-
götu 23 kl. 8.30 í fyrramálið og fer
ferðafólkið á einkabílum að Víkumesi
í Mývatnssveit en þaðan sér Jón Ámi
Sigfússon urn að flytja fólk að gilinu
sem síðan verður skoðað undir leið-
sögn staðkunnugs manns. Skrifstofa
félagsins verður opin í dag milli kl.
17.30 og 19 til skráningar í ferðina.
Sími Ferðafélags Akureyrar er
422720.
Flóamarkaður NLFA
Flóamarkaður NLFA í Kjamalundi
verður á morgun, laugardginn 9. sept-
ember, frá kl. 14 til 17. Sumarfatnað-
ur og ýmislegt annað býðst á mark-
aðnum á stórlækkuðu verði. Vakin er
athygli á að opnunartími hefur aftur
verið færður yftr á laugardaga.
Reikifélagið fundar
Reikifélag Norðurlands boðar til
fyrsta fundar haustsins á sunnudags-
kvöld kl. 20 í Bamaskóla Akureyrar.
Allir sem hafa stig í reiki eru vel-
komnir á fundinn.
Síðustu forvöð að sjá
sýningu Sirrku
Þann 9. september lýkur sýningu
Sirrku Könönen í Punktinum á Akur-
eyri en þar gefst tækifæri til að sjá
góða sýningu á prjónhönnun og fjár-
festa í fallegum fatnaði.
Brimkló á sveitaballi
í Sjallanum
Hljómsveitin Brimkló ásamt Björg-
vini Halldórssyni mun Ieika á svoköll-
uðu sveitaballi á mölinni sem haldið
A morgun verður opnuð á Café Karólínu á Akureyri sýningin „Myndir af
skáldum“. Um er að ræða þurrkrítarmyndir eftir Aðalstein Þórsson. Mynd-
irnar eu allar unnar á þessu ári. Sýningin stendur í þrjár vikur hið minnsta.
verður í Sjallanum á Akureyri annað
kvöld. Sveitaböll af þessu tagi eiga
rætur sínar að rekja til Hótels Islands
sem tók þennan sið upp í fyrra. Nú í
sumar hefur þetta verið endurtekið við
góðar móttökur og ætla félagarnir í
Brimkló að bregða sér til Akureyrar
með sveitaballastemmninguna um
helgina.
Hljómsveitina Brimkló skipa núna
þeir Björgvin Halldórsson, sem spilar
á gítar og syngur, Haraldur Þorsteins-
son, bassaleikari, Ragnar Sigurjóns-
son, trommuleikari og Arnar Sigur-
bjömsson, gítarleikari. Einnig verður
hinn góðkunni tónlistarmaður Þórir
Baldursson með í för og leikur hann á
orgel og píanó. Ætlunin er að vekja
upp gömlu stemmninguna sem alltaf
var til staðar á hinum frægu Brimkló-
arböllum.
Bændaklúbbsfundur
um kartöflurækt
Bændaklúbbsfundur verður haldinn í
Valsárskóla á Svalbarðseyri mánudag-
inn 11. september nk. og hefst kl. 21.
Framsögumenn verða Sigurgeir Ólafs-
son, sérfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins og Ólafur G.
Vagnsson, ráðunautur, og munu þeir
ræða um kartöflurækt. Fjallað verður
m.a. um upptöku kartaflna, geymslu
kartaflna og kartöflusjúkdóma. Einnig
mun sagt frá ferð til Skotlands í máli
og myndum þar sem heimsótt var
miðstöð útsæðisræktar þar í landi.
Flóamarkaður
Hjálpræðishersins.
Flóamarkaður verður á Hjálpræðis-
hernum að Hvannavöllum 10 á Akur-
eyri í dag kl. 10 til 17. Þar gefst fólki
kostur á að fata sig upp fyrir veturinn
án þess að pyngjan finni mikið fyrir
því. Mikið úrval verður af góðum
fatnaði.
Tvö skákmót um helgina
Vetrarstarf Skákfélags Akureyrar er
að byrja. Keppt verður á móti í kvöld
kl. 20, svokölluðu tíu mínútna móti
með forgjöf. Fyrirkomulag verður þá
þannig að þeir sem eru stigalágir eða
stigalausir fá meiri tíma en hinir. Á
sunnudag kl. 14 verður svo Startmót,
sem er hraðskákmót. Bæði mótin
verða í skákheimilinu og verður öllum
áhugasömum skákmönnum opið.
Hlaðborð í Engimýri
Hlaðborð verður á Engimýri á sunnu-
dag frá kl. 14.30. Um er að ræða
dæmigert hlaðborð með heimabakstri
Ný húsfridunarnefnd:
Guðný Gerður varaformaður
Menntamálaráðherra hefur skipað
húsfriðunarnefnd ríkisins til næstu 5
ára. Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt, er
formaður ept varaformaður er Guðný
Gerður Gunnarsdóttir, forstöðumaður
Minjasafnsins á Akureyri.
Aðrir í nefndinni eru Guðmundur
Gunnarsson, arkitekt, Magnús Karel
Hannesson, oddviti Eyrarbakkahrepps
og Þór Magnússon, þjóðminjavörður.
Varamenn eru Katrín Fjeldsted, lækn-
ir, Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri
sem tilvalið er að njóta á heimleiðinni
úr berjaferðinni.
Spaugstofan komin aftur
Vegna mikillar aðsóknar á 10 ára af-
mælissýningu Spaugstofunnar á Akur-
eyri á dögunum hafa þeir félagar
ákveðið að bregða undir sig betri fæt-
inum og halda norður á ný og sýna
tvær sýningar á laugardag og sunnu-
dag fyrir spaugþyrsta bæjarbúa sem
þurftu frá að hverfa um daginn. Sýn-
ingarnar verða í Samkomuhúsinu og
er forsala þar.
UMFERÐAR
Iráð
HRISALUNDUR
- fyrir ÞW
Skólatilbo&
Frissi fríski, epla
3x33 cl kr. 99
Frissi fríski, appelsínu
3x33 cl kr. 99
Kynm
Frissa fríska epla
föstudag frá kl. 16 til 19
Tilboð
Súpukjöt
kr. 399 kg
Reykt folaldakjöt
kr. 395 kg
Afgreiðslutími:
Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30
laugard.kl. 10.00-18.00
Byggðasafns Skagfirðinga, Pétur H.
Ármannsson, arkitekt og Guðrún Ög-
mundsdóttir, borgarfulltrúi.
Húsfriðunamefnd starfar sam-
kvæmt þjóðminjalögum og eiga sæti í
henni tveir fulltrúar tilnefndir af þjóð-
minjaráði, einn af Arkitektafélagi ís-
lands og einn af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, auk þess sem þjóð-
minjavörður á sæti í nefndinni sam-
kvæmt stöðu sinni. KK
tilboðstorgi
iaugardaginn 9. sept
AEG bakarofn og
helluborð „pússað stál"
30% afsláttur
AEG kæli-/frystiskápur
25% afsláttur
Búsáhöld
25-50% afsláttur
BYGGINGAVORUR
LONSBAKKA . 601 AKUREYRI
cr 463 0321, 463 0326, 463 0323
FAX 462 7813