Dagur


Dagur - 08.09.1995, Qupperneq 9

Dagur - 08.09.1995, Qupperneq 9
Föstudagur 8. september 1995 - DAGUR - 9 rT ÍV HOTEL Uppselt ÍYrir matargesti leíkur fyrír dansí Húsíð opnað fyrír aðra en matargesti kl. 23.30 Miðaverð á dansleik aðeíns kr. 500 u betínahTrai V B ELKOMIN A VERALDARVEF AHA’I SAMFELAGSINS A I .SLANDI Netfang: http ://www.nyherj i. is/bahai/ Jörðin er aðeins eitt land og allt mannkynið íbúar þess. - Bahá’u'lláh NÝTT! Ráðstefna SÞ um málefni kvenna. Dönsku fulltrúarnir tveir ásamt Arvid Kro, framkvæmdastjóra Sambands loðdýraræktenda, en hann var með þeim í för um ísland þar sem þeir hittu íslenska loðdýrabændur. Honum á hægri hönd er Torben Nilsen frá danska loð- dýrasambandinu og á vinstri hönd er Mikael Sanfin, sölustjóri uppboðshússins í Kaupmannahöfn. Mynd: bg Danskir fulltrúar hitta íslenska loðskinnaframleiðendur: Spá góðu verði á skinna uppboðum í september í ágúst komu hingað til lands fulltrúar danska loðdýrasam- bandsins og uppboðshússins í Kaupmannahöfn þar sem ís- lenskir loðskinnaframleiðendur selja þorra sinnar framleiðslu á hverju ári. í heimsókn sinni ræddu þeir Torben Nilsen og Mikael Sanfin við íslenska loð- dýrabændur og voru markaðs- málin og horfur helsta umræðu- efnið. Eitt af reglulegum skinnaupp- boðum í Kaupmannahöfn ár hvert er í september og að þessu sinni verða boðin upp refaskinn, sem er nýlunda. Septemberuppboðin hafa alla jafna gefið gott verð en auk refaskinnanna verða boðnar 2,9 milljónir ntinkaskinna og athygli- vert er að verði þau seld verða all- ar minkaskinnabirgðir á Norður- löndum úr sögunni. Varðandi spár um verð nú í september töldu Danimir tveir að ekkert bendi til annars en það verði gott. Frá því á uppboði í júní hafi verð hækkað, sérstaklega á minkaskinnum en refaskinnin eru meira spumingarmerki í framhald- inu vegna meiri framleiðslu. Eins og margoft hefur komið fram er loðdýrarækt hér á landi mun minni en var fyrir 6-7 árum. Þá var framboð á heimsmarkaði í hámarki en núna er heimsfram- leiðslan um 24 milljónir minka- skinna og á fjórðu milljón refa- skinna. Urvinnsla skinnanna fer að stærstum hluta fram í Kína og Suður-Kóreu en einnig er töluvert unnið úr skinnum í Grikklandi. JÓH Nemar í sjávarútvegsdeild HA: Félag nemenda aflar §ár með blaðaútgáfu - þriðja tölublað af Stafnbúa gefið út Nemar við Sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri hafa gefíð út blaðið „Stafnbúa“ þar sem fjallað er um sjávarútvegsmál. Sú hefð hefur skapast að þriðja árs nemar við deildina gefí blað út og er leitast við að hafa grein- ar og efni í blaðinu sem vandað- ast og er í þeim tilgangi leitað til aðila sem standa framarlega í ís- lenskum sjávarútvegi. Blaðinu er dreift til sjávarút- vegsfyrirtækja, sem og til stofn- ana og einstaklinga sem hafa með sjávarútvegsmál að gera. Það er fjármagnað með auglýsingum en ágóðanum, þegar þannig ber við, er varið til að styrkja félag sjávar- útvegsfræðinema sem og þá út- skriftamema sem hyggjast fara til útlanda og kynna sér eitthvað sjálfvalið efni tengt fiski eða físk- vinnslu annarra þjóða. I blaðið að þessu sinni skrifa Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, Sigfús Jónsson, ráðgjafi, Brynjólfur Bjamason, forstjóri Granda og Pétur Bjamason, fram- kvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda. Aðsend- ar greinar í blaðinu tengjast á einn eða annan hátt markaðsmálum sem segja má að sé útgangspunkt- ur blaðsins. Þá eru m.a. viðtöl við Jakob Jakobsson, forstjóra Haf- rannsóknastofnunar og Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóra Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. JÓH

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.