Dagur


Dagur - 08.09.1995, Qupperneq 14

Dagur - 08.09.1995, Qupperneq 14
FROSTI EIÐSSON >3^' _ Pll POD h lorjrrirjtrtfto Cí -! inrhi rf-oo’J 14 - DAGUR - Föstudagur 8. september 1995 ÍÞRÓTTIR Danmerkurferð Þórs 120 unglingar frá Akureyri voru á faraldsfæti í sumar Fimmti flokkur I’órs sem keppt í handknattleik á móti í Danmörku í sumar. Að kvöldi sunnudagsins 9. júlí lagði leiguflugvél upp frá Akur- eyrarflugvelli með 120 unglinga úr Þór innanborðs. Ferðinni var heitið til Randers í Danmörku til að taka þátt í mótum í handbolta og fótbolta. Það var hress hópur sem var um borð, loksins var ferðin hafin eftir mikla vinnu við undirbúning og íjáröflunarstarf sem allir tóku þátt í. Hugmyndin að keppnis- og skemmtiferð unglinga til Dan- merkur kviknaði fyrir tæpum 2 ár- um hjá Jan Larsen, handknatt- leiksþjálfara Þórs. Akveðið var að miða þátttökuna við árgangana 1979-1982 bæði stráka og stelpur og stefna að keppni í handbolta og fótbolta. Frá upphafi var ákveðið að tengja saman þátttöku, æfinga- sókn og vinnu við fjáröflun, en ekki árangur. Þannig var ferðin aldrei hugsuð sem keppnisferð þeirra bestu heldur ferð sem allir sem á annað borð vildu leggja á sig æfingar og fjáröflunarvinnu áttu kost á. Síðast liðið vor var skipuð 7 manna nefnd foreldra til að sjá um undibúning, skipulag og fjáröflun vegna ferðarinnar. Nefndin skipulagði margs konar fjáraflanir allt fram á síðasta dag til að afla sem mestra tekna upp í ferðina. Þátttakendurnir lögðu all- ir hart að sér við að afla Ijár til fararinnar. Viðamesta aðgerðin var sala Bingólottómiða allan síð- asta vetur. Til Danmerkur Lent var í Billund um kl. eitt að nóttu að staðartíma. Þá tók við tveggja tíma rútuferð til Randers, en aðsetur okkar var grunnskóli við miðbæinn. Þetta er gömul skólabygging með malbikuðum skólagarði sem girtur var háum múrvegg, enda höfðu nokkrir á orði að þeir væru kornnir í klaust- urskóla. Eftir að menn höfðu komið sér fyrir var gengið til náða enda stutt í fótaferðartíma. Daginn eftir átti að setja mótin tvö, World Cup handboltamótið í Randers og Dana Cup knattspymumótið í Fredrikshavn. Flesta dagana var hópnum því skipt í tvennt, annar hópurinn ók til Fredrikshavn á hverjum morgni næstu daga til að keppa í knattspymu, en hinn hlut- inn varð eftir í Randers og keppti í handbolta. World Cup í Randers er ár hvert haldið stórt handboltamót undir þessu nafni. í ár voru þátttakendur 2500 í 154 liðunt. Þátttakendur komu frá 11 þjóðum og 3 heimsálfum, þar af voru lið frá 4 íslenskum félögum: Þór, Fjölni, KR og Val. Ekkert fé- lag mætti þó með jafn fjölmennan hóp og Þór, en við vorum með 4 lið í keppninni (5. og 4. flokk drengja og stúlkna). Mótið var sett í 25 stiga hita og sól á aðalleik- vanginum í Randers en síðan hófst keppnin sem fór fram á grasvöll- um. Næstu dagar liðu við hand- boltakeppni á daginn og skemmt- anir og afslöppun á kvöldin. Ár- angur okkar fólks var góður og komust 2 lið Þórs í undanúrslit og annað þeirra lenti í 3. sæti í keppni A liða. Mótinu lauk með úrslitaleikjum föstudaginn 14. júlí. Dana Cup Knattspyrnumót þetta er haldið í Fredrikshavn á Norður-Jótlandi. Þetta er mjög stórt mót með 9000 þáttakendum frá 27 löndum eða 310 lið. Þór er fyrsta íslenska liðið sem tekur þátt í þessu móti, en auk okkar voru Kólumbía og Ástr- alía þama í fyrsta sinn. Aðstæður til að spila knattspymu voru mjög góðar, frábært veður og góðir grasvellir. Þór sendi lið í 4. og 3. sba ’i kbiÍvSm akureyraji j. sba | SÍRltYflSaíUR AKURfíWR sba SýlFYHSSf LAS v 4AiíiIfVBAS sba ÍIEYFISBÍUR tKL'RiYRAR XtlEVFlMlÚl I. ‘KI-StYSM ítlltYffá,, Ly|r .. .' v; m ífelpi Lífínu tekið rólega á varamannabekknum. Frá vinstri: Hölli, Gísli, Steini, Jónas þjálfari og Jói. Fararstjóra- og þjálfaraliö feröarinnar. Frá vinstri í aftari rööinni: Hreinn, Arni, Oli, Gunni og Siggi og í neðri röðinni eru þeir Bjarni, Jónas, Jónas og Valdi. flokki drengja og stúlkna, alls 4 lið. Hér náði okkar fólk einnig góðum árangri og 2 lið unnu sína riðla og komust vel áleiðis í úr- slitakeppni A liða. Keppnin í fótboltanum reyndi mjög á okkar fólk, því vegna nið- urröðunar leikja þurfti að leggja snemma af stað á morgnana frá Randers og komið seint til baka. Til að bæta fótboltafólkinu upp langar rútusetur var farið í skemmtigarðinn Fámp Sommer- land á milli leikja í riðlakeppn- inni. Það var vel þegið og vatns- rennibrautir og önnur skemmti- tæki nýtt til síðustu mínútu þann tfma sem við höfðum í Sumar- landinu. í Randers Föstudaginn 14. júlí vorum við boðin í móttöku til borgarstjórans t Randers. Hann tók á móti okkur í gömlu húsi frá 16. öld og bauð upp á drykki og kökur og sagði jafnframt frá ýmsu varðandi Randers. Randersbær styrkti þessa ferð myndarlega og kom fram hjá borgarstjóranum að viðburðir sem þessi væm mjög mikilvægir í vinabæjasamstarfmu. Akureyrar- bær sá sér þó ekki fært að styrkja ferðina, þannig að skilningur á vinabæjasamstarfínu er greinilega ekki sá sami hjá Akureyrarbæ og Randers. Þennan dag höfðu allir lokið keppni nema tvö lið sem þurftu að fara til Fredrikshavn vegna síð- ustu leikja sinna í úrslitakeppn- inni. Dagurinn var því frjáls fyrir flesta sem nutu þess að slappa af eftir erfiða viku. Daginn eftir fór allur hópurinn í skemmtigarðinn Sommerland Djurs og skemmtu allir sér vel í sól og 30 stiga hita. Hinn fjölmenni hópur vakti að sjálfsögðu töluverða athygli þar sem hann fór, enda hressir krakkar á ferð. Framkoma og hegðun ak- ureyrsku unglinganna var þó til fyrirmyndar og góð landkynning að öllu leyti. Aftur heim Á sunnudag var ekið til Billund og á meðan beðið var eftir flugi fór allur hópurinn í Legoland. Ýmsir voru fegnir að komast um borð í flugvélina um kvöldið og var farið að langa heim, en aðrir vildu gjaman vera lengur. Flestir voru hins vegar enn í stuttbuxum og sólarfatnaði þegar komið var út í norðan nepjuna á Akureyrarflug- velli að kvöldi 17. júlí. En það kom ekki að sök því frábærri ferð var lokið og gott að vera komin heim. Ferð sem þessi er mjög mikils virði í því uppeldisstarfi sem unn- ið er á vegum íþróttafélaganna, því allir fá að vera með sem á annað borð vilja æfa og sinna fjár- öflun. Fararstjórar og þátttakendur í Danmerkurferð Þórs 1995 vilja hér með koma á framfæri þökkum til allra sem styrktu ferðina með einhverjum hætti. sba j '<iUYFi\8llAR' sba, ‘ Hressar stúlkur sem æfa handknattleik meö Þór. Frá vinstri: Hrafnhildur, Heiða, Berg- lind, Hildur, Diddí og Rannveig. -----..... -----------^ ■ ■■ - • ; ^ ■■ • . : - V • • ' • Ungar knattspyrnustúlkur úr Þór ásamt þjálfara sínum, Sigurjóni Magnússyni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.