Dagur - 16.09.1995, Page 3

Dagur - 16.09.1995, Page 3
FRETTIR Laugardagur 16. september 1995 - DAGUR - 3 Hugmyndir um úrbætur fyrir knattspyrnumenn á Eyjafjarðarsvæðinu: Aðalmálið að fá hús - segir Björn Friðþjófsson á Dalvík - sjúkrahúsið án rafmagns í rúman klukkutíma vegna bilunar í varaaflsstöð Rafmagn fór af Húsavíkurbæ á fimmtudagskvöldið um kl. 21 og rafmagnslaust var í bænum að megninu til í fjórar klukku- stundir. Ný varaaflsstöð, sem sett var upp fyrir tæpum þremur árum, fór í gang og sá sjúkra- húsinu fyrir rafmagni en stöðin bilaði á ellefta tímanum og þá var sjúkrahúsið rafmagnslaust á annan klukkutíma þar til gamla varaaflstöð bæjarins hafði verið gangsett. Arnar Guðlaugsson, rafvirki hjá sjúkrahúsinu sagði að raf- Umhverfisráðuneytið hefur skipað í samvinnunefnd um norðurmál- efni í samræmi við þingsályktun frá 25. febrúar sl. um stofnun Vil- hjálms Stefánssonar á Akureyri. Hlutverk nefndarinnar er að treysta samstarf þeirra stofnana sem hafa og munu annast rann- sóknir á norðurslóðum og að vinna í samráði við ráðuneytið að undirbúningi stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, sem á að hefja starf- semi í ársbyrjun 1997. Samvinnunefnd um norðurmál- efni er þannig skipuð til næstu fjögurra ára: Olafur Halldórsson, líffræðingur, formaður, skipaður án tilnefningar, Þóra Ellen Þór- hallsdóttir, prófessor, lilnefnd af Háskóla íslands, dr. Kristján Kristjánsson, forstöðumaður, til- nefndur af Rannsóknarráði ís- lands, Davíð Egilsson, forstöðu- maður, tilnefndur af Hollustu- vernd ríkisins, Þorsteinn Tómas- son, forstjóri, tilnefndur af Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, Þór magnsleysið hefði ekki valdið teljandi óþægindum, en þegar raf- magn frá Laxá kom á aftur vildi svo óheppilega til að brunakerfið á sjúkrahúsinu fór í gang. Amar var tljótur til að slökkva á kerfinu. Hann sagði starfsfólkið hafa sýnt mikla yfírvegun, flestir sjúkling- anna hefðu verið komnir í ró sem hávaðinn hefði ekki raskað. Rafmagnsleysið varð er straumur fór af línunni frá Laxá á sunnanverðri Hvammsheiði. Þar slitnaði einn vírinn í línunni, væntanlega vegna tæringar í sam- Jakobsson, verkefnisstjóri, til- nefndur af Veðurstofu íslands, dr. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri, til- nefndur af Náttúrufræðistofnun ís- lands, dr. Steingrímur Jónsson, útibússtjóri, tilnefndur af Hafrann- sóknastofnun og Þorsteinn Gunn- arsson, rektor, tilnefndur af Há- skólanum á Akureyri. Stofnun Vilhjálms Stefánsson- ar á Akureyri heyrir undir um- hverfsiráðuneytið. Verkefni henn- ar er m.a. að vera íslensk miðstöð fyrir norðursamstarf og rannsókn- ir, að safna og ntiðla upplýsingum um heimskautamálefni, að skipuleggja rannsóknir sem m.a. varða umhverfisvernd í norður- höfum, að samræma innienda og alþjóðlega þátttöku íslendinga í rannsóknum á norðurslóð, að ann- ast tengsl við hliðstæðar mið- stöðvar og stofnanir erlendis og laða þær til samstarfs og að vera ráðgefandi fyrir stjórnvöld urn norðurmálefni. Fréllatilkynning. setningu, að sögn Árna Vilhjálms- sonar hjá Rarik. Ámi sagði óvana- legt að línur slitnuðu í slíkri veð- urblíðu, en ólíkt þægilegra hefði verið fyrir viðgerðarmenn að at- hafna sig. Viðgerðarflokkur kom frá Akureyri og var viðgerð lokið um eittleytið. Árni sagði að mein- ingin væri að yfirfara línuna fyrir veturinn. Víglundur Þorsteinsson veitu- stjóri sagði að varaaflstöðin hefði farið sjálfvirkt í gang fyrir sjúkra- húsið, 8 sek. eftir straumrof. Vinnsla var í gangi í rækjuvinnsl- unni og rafmagn var því sett fljót- lega á rækjuvinnslu og nágrenni. Ákveðið var að skammta ekki raf- magn til annarra hverfa í bænum þar sem fljótt kom í ljós að raf- magnsleysið mundi standa skamman tíma og mikil vinna er að dreifa rafmagninu, að sögn Víglundar. Nýja varastöðin sló síðan út vegna bilunar, væntanlega vegna yfirálags og þá fór rafmagn aftur af öllu, einnig sjúkrahúsinu. Rúm- um klukkutíma síðar tókst að koma gömlu varaaflstöðinni í áhaldahúsi bæjarins í gagnið. Nýja stöðin er staðsett við sjúkrahúsið. „Þetta er hlutur sem við þurfum að komast að hvað hefur orsakað, væntanlega varð bilun í stýribúnaði. Það var einnig bagalegt að geta ekki séð slátur- húsinu fyrir rafmagni, en þar var verið að frysta kjöt,“ sagði Víg- lundur. Mikið líf varð í bænum í ljós- leysinu en lögreglu er ekki kunn- ugt um að neitt hafi út af borið. Kári Sigurðsson, myndlistamaður brá sér út í garðinn við heimili sitt í blíðviðrinu og kveikti á rúmlega 40 kertaljósum, sem lýstu í kappi við stjörnurnar. IM Fyrsta skipið í flotkvína Rækju- og loðnuskipið Guðmundur Ólafur ÓF var fyrsta skipið sem tekið var í nýja flotkví Akureyrarhafnar á fimmtudag og sést hér sigla inn. Af myndinni má glöggt sjá að miklu stærri skip má taka þar inn. Sökkva þurl'ti þó kvínni í tvígang áður en skipið kom inn því trébrú, sem sést fremst á myndinni, skorti flotmagn og þurfti að kippa því í liðinn áður. En fall er fararheill. Mynd/txt: GG Stofnun Vilhjálms Stéfánssonar: Hefur starfsemi 1997 - samvinnunefnd um norðurmáiefni skipuð KAUPLAND Kaupangi • Sími 23565 hugmynd að Dalvíkurbær eða knattspymudeildin myndu ábyrgj- ast að kaupa einhvem ákveðinn tímafjölda," sagði Bjöm. „Auðvitað er það bara hið besta mál ef hægt er að fá fjármagn í þetta frá öðrum en sveitarfélögun- um. Fyrir okkur knattspyrnu- áhugamenn er spurningin fyrst og fremst að fá hús. Mér finnst knattspyman á Eyjafjarðarsvæð- inu vera í öldudal um þessar mundir, kannski að Ólafsfirði slepptum, og held að astöðuleys- inu sé a.m.k. að hluta um að kenna. Eg trúi ekki öðru en knatt- spymuáhugamenn snúi nú bökum saman og finni lausn á þessu máli,“ sagði hann jafnframt. Nú liggur fyrir að malarvöllur- inn á Dalvík mun fara undir nýjan skóla. Bjöm segir menn hafa flýtt sér hægt í að ákveða með annan malarvöll. „Við erum alveg til í að skoða þann möguleika að finna einhverja ódýra lausn hér á staðn- um, ef menn eru að fara í að leysa þetta mál fyrir Eyjafjarðarsvæðið í heild sinni.“ Bjöm segir það sína skoðun að önnur staðsetning en Akureyri komi vart til greina fyrir yfir- byggðan knattspymuvöll. „Ég vona bara að Akureyringar láti ekki einhver innri mál hjá sér stoppa þetta.“ HA Húsavík: Rafmagnslaust í fjóra tíma er lína ffá Laxá slitnaði Kiðagil tekið í notkun Nýr leikskóli, Kiðagil, var tekinn formlega í notkun á fímmtudag. Bygging skólans hófst í aprflmánuði 1994 og er byggingarkostnaður 65 milljónir króna en húsið er 650 fermetrar. Arkitektar eru Gísli Kristinsson og Páll Tómas- son. Rými er fyrir 45 börn á tveimur deildum en Giljaskóli er í hluta húsnæðisins en hann flytur haustið 1997 og þá tvöfaldaldast rýmið. Fyrstu börnin koma nk. mánudag en þau eru af 300 bárna biðlista og eru á aldrinum 2 til 5 ára. Á myndinni eru starfsmenn nýja leikskólans. Forstöðumaður, Hugrún Sigmundsdóttir, er lengst til hægri. GG Knattspyrnuáhugafólk á Eyja- ljarðarsvæðinu gerir sér nú von- ir um að skriður fari að komast á hugmyndir um úrbætur því til handa, eftir að íþrótta- og tóm- stundaráð Akureyrar samþykkti þriggja ára áætlun sína á dögun- um. Þar kemur fram að stofnað verði hlutafélag um að bæta að- stæður til knattspyrnuiðkunar, sem væntanlega verður gert með yfirbyggingu af einhverju tagi. Björn Friðþjófsson hjá knatt- spyrnudeild UMFS á Dalvík var spurður hvernig honum litist á þessar hugmyndir. „Við hér á Dalvík myndum auðvitað fagna því ef yfirbyggt hús myndi rísa á Norðurlandi. Hins vegar er ég ekki farinn að sjá að sveitarfélögin hér í nágrenninu myndu taka þátt í uppbyggingu ef húsið yrði staðsett á Akureyri. En við myndum reyna að þrýsta á að Dalvíkingar kæmu inn í rekstur slíks húss með einhverjum hætti þegar þar að kæmi. í því sam- bandi hef ég kastað fram þeirri Slátursamlag Skagfiröinga: Slátrun hefst á mánudag - á sjöunda þúsund fjár slátraö þar í haust Slátrun hefst hjá Slátursam- lagi Skagfirðinga nk. mánu- dag en nokkur óvissa hefur ríkt um hvort starfsemi hæf- ist að nýju vegna fjárhags- legra þrenginga og hvort sláturhúsið gæti staðið við að greiða bændum umsamið verð. Frá tryggingum þar að lút- andi var gengið sl. miðviku- dag. Haustið 1994 var slátrað 7.500 fjár hjá Slátursamlaginu, aðallega frá bændum í Lýt- ingsstaðahreppi, en gert er ráð fyrir að fjöldi sláturfjár verði nú á bilinu 6 til 7 þúsund. Það kann hins vegar að lækka vegna nýrra laga um heima- tökurétt, en heimilt er nú að slátra sem svarar 80 kg á hvem heimilismann á lögbýli sem þar á lögheimili 1. desember 1994. GG

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.