Dagur


Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 6

Dagur - 16.09.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1995 I átta ár bjó hann langt frá annarri byggð. Hann var vitavörður á Hornbjargsvita, nyrst á Vestfjörðum, og þótti þar gott að vera. * I vor þurfti hann að finna sér nýjan samastað því tæknin leysti vitavörðinn frá störfum og í Látravík á Hornströndum er komin sjálfvirk veðurathugunarstöð. Hann heitir Ólafur Þ. Jónsson en er betur þekktur undir ✓ nafninu „Oli kommi“ vegna stjórnmálaskoðana sinna. Samstarfskona hans úr vitanum síðustu tvö árin er Svandís Geirsdóttir og saman reka þau nú gistiheimili í Þingvallastræti á Akureyri. Við sitjum í notalegri stofu á jarðhæð Gulu villunnar, sem er gistiheimili og jafnframt nýja heimilið þeirra Óla og Svandísar. Kaff- ið er komið í bollana og tími kominn fyrir fyrstu spurninguna. Hvemig er þetta nafn, „Óli kommi“, tilkomið? „Þetta er eiginlega orðið ættamafn. Ég var kallaður kommi í fyrsta skipti austur á Neskaupstað. Það þótti mér mjög skrýtið. Ég sagði stundum í gríni við bæjarstjórann, sem þar var, að þeir hefðu aldrei séð komma fyrr en ég kom þangað þó þeir sem voru við völd í bænum, og eru reyndar enn, væru samt kallaðir kommúnistar. En það var sem sagt í Neskaupstað sem ég eignað- ist þetta nafn en þar átti ég heima í 11 ár.“ óli er fæddur í Reykjavík og átti þar heima sem bam. „Að vísu áttu krakkar í þá daga aldrei heima í Reykjavík nema hálft árið því allir vom sendir í sveit. Það gekk upp því þá vom svo margir bændur en fáir Reykvíkingar," segir Óli og bætir við að hann hafi í raun sáralítið verið í Reykjavík. „Ég hef oftast verið út á landi og ef ég hef manninn látið hafa þetta því hinir hefðu orðið svo móðgaðir. Þannig að þrautalend- ingin var að láta mig fá stöðuna. En hann iðraðist þess ekki og eftir það lét hann mig hafa allar þær vitastöður sem hann hafði kost á.“ Óli var vitavörður í þremur vitum og var auk þess í sumarvinnu í mörg ár þar sem hann ferðaðist með vinnuflokk um landið og gerði við vita. Síðustu átta árin var hann, eins og fyrr segir, á Hombjargsvita. „Þetta var að vísu ekki samfellt,“ segir hann. „Ég var t.d. að kenna á Þingeyri og vann á Þjóð- viljanum áður en ég fór á Hombjargsvita. Aður hafði ég verið á Galtarvita en ég fór ekki úr einum vitanum í annan heldur liðu einhver ár á milli. En ef maður fær ein- hverja bakteríu er oft erfitt að losna við hana. Það kom alltaf upp aftur og aftur löngun til að fara í vitann." - Er gott að fara í burtu og fá hvfld frá öðru fólki? „Fólk getur náttúrulega verið afskaplega þreytandi en það er þó kannski ekki ástæða vorin fór ég síðan alltaf í skólann og tók nokkur próf. Eitthvað fékk ég líka metið frá gamalli tíð og einn góðan veðurdag var þetta bara allt í einu komið. Ég tók síðan nokkrar einingar í háskólanum í sagnfræði. Það gekk líka ágætlega. Eiginlega vom bara tvær námsgreinar sem komu til greina vegna fjarlægðarinnar, annað hvort sagn- fræði eða guðfræði og ég fór frekar í sagn- fræði. Guðfræðin er náttúrulega líka mikil sagnfræði og að vissu leyti angi af sama stofni. En sagnfræðin byggir á þeim stað- reyndum sem menn komast yfir en hitt á trú sem er allt annar handleggur.“ Samstarfsmenn í tvö ár Svandís hefur fylgst með samtalinu en hvemig sambandi þeirra tveggja er háttað Ef maður vill endilega vera leiðin- legur fær maður það í friði, ekki bara á Akureyri, heldur alls staðar. En okkur hefur verið afskaplega vel tekið hefur ekki komið fram. Spurningin er því hálfvandræðaleg en fær engu að síður að flakka. Emð þið búin að vera gift lengi? Það er Svandís sem nú hefur orðið: „Við emm ekki gift, við bara störfum saman og höfum gert í tvö ár. Ástæðan fyrir að ég fór í vitann var sú að mig vantaði eitthvað að gera. Ég kannaðist við Óla og smellti mér þangað sem aðstoðarvitavörður. Ég vissi svo sem ekkert um hvemig það yrði en ég kunni mjög vel við mig í vitanum." - En áður en Svandís kom, varstu þá einn í vitanum? „Oftast nær var einhver með mér en stundum var ég einn. En þetta em tvær stöður, eða voru, nú er búið að leggja þetta niður. Það þurfti að taka veðrið á þriggja tíma fresti alla daga ársins og sjá unt að halda þessu öllu gangandi." Erfitt að leita að vinnu í gegnum talstöð í kjölfar þess að sjálfvirk veðurathugunar- stöð komst í gagnið í Látravík var staða vitavarðar á Hombjargsvita lögð niður. Óli og Svandís stóðu því frammi fyrir að finna sér nýjan samanstað og varð Akureyri fyrir valinu. „Það er afskalplega erfítt að leita að vinnu í gegnum talstöð norður á Horn- ströndum. Að nokkru leyti réð tilviljun því að við fórum hingað en þó ekki alveg. Á sumrum er mikið um ferðamenn á Horn- ströndum og eins er heilmikið um vélsleða- menn seinni part vetrar. Við vomm því ekki alveg ókunnug því hvemig svoleiðis fólk lítur út. Það gekk nokkurn veginn skammar- laust hjá okkur að taka á móti þessu ferða- fólki, alla vega komu sumir aftur og aftur. Það má því segja að það hafi ekki verið hel- ber tilviljun að við fórum út í eitthvað tengt ferðamönnum. Okkur vantaði bæði húsnæði og vinnu og hér á gistiheimilinu var hús- lent í Reykjavík í einhverju ógáti hef ég yfirleitt verið voðalega fljótur að byrja að skipuleggja brottflutning þaðan aftur." Óli hefur unnið við ýmislegt um ævina, var m.a. þrisvar sinnum á Þjóðviljanum, misjafnlega lengi í senn, hefur starfað við kennslu og verið á sjó. Á Norðfirði lærði hann skipasmíði og segist sennilega mest hafa starfað við smíðar. ,Ætli sé ekki fljót- legra að telja upp það sem ég hef ekki gert,“ segir hann og bætir síðan vitastarfinu á list- ann, sem hann segir að sé alveg sérkafli. Þrautalending að ég fékk stöðuna - Hvemig stóð á að þú fórst í vitavörslu? „Það var auglýsing sem kom því öllu af stað. Að vísu var ég búinn að ganga með þetta í maganum í einhvern tíma og þegar auglýsing birtist var ég fljótur að sækja um.“ Óli rifjar upp að þegar hann sótti um stöðuna voru umsækjendur alls fimm; fjórir framsóknarmenn - og hann; sjálfur komm- inn. „Ráðherrann sem veitti í stöðuna var framsóknarmaður, Halldór E. Sigurðsson, en hann lét mig þó fá stöðuna. Hann sagði mér að hann hefði verið í hálfgerðum vand- ræðum því hann gat engan framsóknar- til að fara alla leið í einhvern vita til að fá hvfld.“ - Hvað sækir þú þá í, að vera nær náttúr- unni? „Ætli það ekki. Ég kann lflca mjög vel við að ráða sjálfur hvernig ég geri hlutina. Þegar allar græjur á svona stað eru í lagi er þetta rólegt starf og ég hef alltaf verið frek- ar latur býst ég við. Annars eru menn orðnir svo daufir og lítið rómantískir fyrir svona hlutum að ég veit ekki hvort þeir skilji þetta þó þeir lesi það í blaði.“ Lærði til stúdentsprófs í vitanum - Er það rétt hjá mér að þú hafi lesið eitt- hvað utan skóla í vitanum? „Já, ég sveikst unt að taka stúdentsprófið á sínum tíma þegar jafnaldrar mínir tóku það. Það er nú kannski enginn ljómi yfir því að svíkjast um og mér hefði verið nær að gera þetta á sínum tíma en þó er betra seint en aldrei." - Hvernig fórstu að því að taka próf? „Landhelgisgæslan kom þarna með póst og mat og stýrimennirnir komu með próf, sátu yfir mér og komu prófunum síðan til skila í skólanum. Þegar ég fór í sumarfrí á Hluti af stjórn- málaskoðun er auðvitað að manni líkar ekki skoðanir annarra. Og það verð ég að segja að ekki get ég séð að pólitískir andstæð- ingar mínir, íhaldið, framsókn og krat- arnir, séu neitt geðs- legri en þeir voru. næði og vinna handa a.m.k. öðru okkar,“ segir Óli. Bæði láta vel af rekstrinum í sumar en eiga von á að veturinn verði rólegri. Nokkur herbergi eru þau reyndar búin að leigja skólastúlkum í vetur. Hvorugt þeirra hefur staðið í rekstri áður og neita þau ekki að um stórt skref sé að ræða. „Þetta er samt ekki neitt risafyrirtæki," segir Óli. „Stærðin er alveg viðráðanleg og maður er ekki kominn í Kolkrabbann. Miðað við alla skriffinskuna gæti maður þó stundum haldið að þetta væri eitthvert risafyrirtæki.“ Mörgum kann að þykja það skjóta skökku við að maður sem er jafn ákafur vinstrisinni og Óli sé kominn út í rekstur. Hefði hann trúað því sjálfur, fyrir einhverjum árum, að þetta ætti fyrir honum að liggja? „Það hefur aldrei komið mér neitt á óvart í lífinu. Ég er frekar jarðbundinn og er aldrei hissa á neinu af þessu tagi. Ég hef oft breytt um vinnu þannig að ég hef ímyndað mér allt mögulegt og ég tek þessu nteð ró.“ Svandís er heldur ekki að æsa sig yfir þessari breytingu og segir að það sem hún

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.