Dagur - 16.09.1995, Page 8

Dagur - 16.09.1995, Page 8
8 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1995 Nálægt Toronto í Kanada hefur Vestur- Islendingurinn Gunnar Helgason komið sér Gimli búgarðurinn er staðsettur í Colborne í Kanada, skammt frá Toronto. upp myndarlegum hestabúgarði með eingöngu íslenskum hestum. Deborah Robinson, sem var í Kanada fyrir stuttu, kom við á búgarðinum og ræddi við eigandann. Gunnar er af íslensku bergi brot- inn en forfeður hans yfirgáfu Is- land árið 1875. Hann getur rakið ættir sínar til ýmissa staða á land- inu. Ættingjar móður hans komu m.a. frá Eyjarfirði og föðurfólkið er frá Áshildarholti í Skagafirði, Kirkjuhvammi nálægt Hvamms- tanga í Húnavatnssýslu og fleiri bæjum. Eg hitti Gunnar á búgarðinum sem er aðeins klukkustundar akst- ur frá Toronto. Rekstrarstjórinn, Joe Leggette, býr á býlinu óg var einnig viðstaddur og saman sýndu þeir mér landareignina sem er alls um 640 ekrur. Búgarðurinn er fal- lega staðsettur, umlukinn aflíð- andi brekkum og grenitré og hlyn- ur lífga upp á landslagið. Gunnar fékk fyrst áhuga á ís- lenska hestinum þegar hann kom til íslands í viðskiptaferð árið 1983. Hann heillaðist samstundis og þegar hann kom aftur til Kan- ada fór hann að leita að býli sem væri hentugt fyrir kynbótaræktun. Eftir margra ára leit fann hann 275 ekru landareign og hefur nú bætt við sig svo landið er alls 640 ekrur. Hann nefndi búgarðinn Gimli en hann á margar góðar æskuminningar frá íslendinga- byggðinni í Gimli í Manitoba. Arið 1989 kom hann aftur til Islands og valdi í undaneldisstofn sex hryssur og einn stóðhest sem er Skugga-Baldur frá Hörghóli en hann er undan Baldri 790 frá Syðri-Brekkum. Ári seinna í októ- ber komu 33 hross í viðbótar til Gimli frá íslandi og í undaneldis- stofninum eru nú hestar frá mörg- um bestu ættbogum íslands. Þeirra á meðal eru Þáttur 722, Kjarval 1025, Hrafn 802, Þytur 710, Ylur 720, Hörður og Ófeigur 818. Gríðarstórir markaðir eru ónýttir Á Gimli búgarðinum eru 120 hross og segir Gunnar að auk hans séu 3 stórir hrossaræktendur í Kanada sem leggi aðal áherslu á íslenska hestinn en ef Bandaríkin séu meðtalin, séu þeir alls tólf í Norður-Ameríku. Gunnar hefur nokkur viðskipti við hrossarækt- endur í Bandaríkjunum og hefur selt marga hesta til aðila á austur- strönd Bandaríkjanna. Alls eru um 3000 íslenskir hestar í Norður- Ameríku og telur Gunnar að mikl- ir möguleikar séu á að stækka markaðinn. Hann segir að gríðar- stórir markaðir séu ónýttir og markaðsetning hans fram að þessu hafi fyrst og fremst miðað að því að vekja áhuga fólks á íslenska hestinum. Joe segir að 75% kaup- enda séu fólk sem aldrei hafi átt hesta áður, hvað þá íslenska hesta. Allir vita að íslenski hesturinn er dýr, jafnvel á íslandi. Þegar Gunnar er spurður hvaða markhóp hann hafi í huga sem helst myndi kaupa íslenska hestinn svarar hann því til að það sé miðaldra fólkið. „Þeir sem eru nálægt fimmtugsaldri og búnir að koma sér upp fjölskyldu." Islenski hesturinn kostar um 10.000 kandadíska dollara, eða tæpa hálfa milljón tslenskar krón- ur, en aðrar hestategundir, eins og veðhlaupahesta eða hestana sem kúrekar nota gjarnan í ródeo, er hægt að fá fyrir 20-35% af þessu verði. Gunnar hefur sett sér það markmið að lækka þetta verð og telur það raunhæft þar sem hann er búinn að koma sér upp grunn- stofni. Hann er því farinn að rækta sína eigin hesta og kostnaður á hvern hest er minni sem þýðir að íslenski hesturinn verður á verði sem er mun samkeppnishæfara en Norður-Ameríka: hann getur lært meira um íslenska hestinn og hvernig best er að temja hann. Gunnar leggur áherslu á að rækta hesta með mismunandi eig- inleika og hefur þess vegna reynt að rækta hesta í fjölbreytilegum lit- um og hann gekk í skugga um að Skugga-Baldur hefði til að bera hið góða lundarfar sem íslenskir hestar eru þekktir fyrir. Flestir hestar und- an Skugga-Baldri eru dökkir en auk hans notar Gunnar fjóra aðra stóðhesta. Einn er leirljós og bles- óttur, annar brúnskjóttur og tveir eru jarpir. Hryssumar eru einnig í mismunandi litum og á Gimli eru hestar í öllum litum nema kolsvört- um. Gunnar segir stoltur að hann geti ræktað allar tegundir af hest- um og uppfyllt mismunandi kröfur. „Allir hestar á Gimli eru til sölu - fyrir rétta verðið." Sífelldar endurnýjanir Sex ár eru liðin frá því að Gunnar hóf hrossaræktun og á þessum tíma hafa húsin og byggingarnar á Gimli tekið stakkaskiptum. Á íslenski hesturinn á greiða leið inn á markaði nú er. „Allt eru þetta langtíma- markmið sem taka sinn tíma,“ segir Gunnar. Unt helmingur stofnsins á Gimli er heimaræktað- ur og á þessu ári fæddist fyrsta folaldið af annarri kynslóð, þ.e.a.s. kom undan hryssu sem einnig fæddist á Gimli. Aldrei séð folald fæðast Joe Leggette sér um daglegan rekstur á Gimli. Hann ólst upp í kringum hesta og hefur mikla reynslu, var m.a. forseti Ontario ródeósambandsins og einn af aðal keppnismönnunum þar. Þegar hann kom fyrst til Gimli árið 1992 köstuðu hryssurnar á tímabilinu apríl- september en nú kasta þær allar á tveggja mánaða tímabili. „Sjötíu og eitt folald hafa fæðst síðan ég kom og ég hef ekki enn verið viðstaddur þegar folald er að koma í heiminn,“ segir Joe mæðu- lega. Þegar ég forvitnast um hvernig hann kunni við íslenska hestinn í samanburði við aðrar tegundir segist hann taka hann framyfir aðra ef hann vill fá geð- góðan hest sem er góður í reiðtúra og þarf ekki of mikla umönnun. Honum þykir gaman að temja fimmgangs-hesta og í stuttu máli lýsir hann íslenska hestinum sem „vingjarnlegum, gáfuðum og auð- veldum í tamningu.“ Ætlunin er að senda Joe til Islands þar sem Gunnar Helgason ásamt uppáhaldsreiðhestinum sínum landareigninni var 140 ára gamalt hús sem búið er að gera upp og hefur það nú endurheimt fyrri glæsileika. í húsinu er skrifstofa en á neðri hæðinni býr Joe ásamt fjölskyldu sinni. Margar hlöður eru staðsettar víða um búgarðinn og þar er einnig fullbúið verkstæði sem jafnframt er geymsla fyrir ýmis áhöld og tæki. Búið er að byggja hesthús sem Joe sá um að hanna og í því eru bæði lausir og fastir stallar. Meðfram stöllunum er malbikuð gangstétt og í hesthús- inu er herbergi fyrir reiðtygi og geymsla fyrir hey. „Hesthúsið hef- ur reynst vel og það er auðvelt að halda því hreinu,“ segir Joe. Gunnar stefnir enn hærra og í framtíðinni sér hann fyrir sér stórt gistiheimili og æfinga- og sýning- arsvæði innandyra. Þangað gætu knapar komið og fengið þjálfun hjá atvinnuþjálfurum. Gimli gæti þannig orðið eins konar miðstöð fyrir íslenska hestinn. Allir hestamir hafa lítinn kubb ígræddan í hálsinn sem gegnir svipuðu hlutverki og frostmerk- ing. Þegar færanlegur skanni er settur yfir kubbinn birtist númer hestsins á skjánum. Hugmyndin er að setja inn á tölvu upplýsingar um hvern hest og myndir frá mis- munandi aldursskeiðum svo hægt sé að fylgjast betur með framför- um og þróun. Gunnar og rekstrarstjórinn, Joe Lcggette, skoða eitt af afkvæmum Skugga- Baldurs. Myndir: Deborah Fjórir af fímm aðal stóðhestunum: Skugga-Baldur er lengst til hægri, þá Höttur frá Gimli, Blængur frá Leysingjastöðum og Leistur frá Gimli. Hjálp og þekking frá íslandi mikilvæg Aðstaðan er komin og markaður- inn er fyrir hendi. En hvert skyldi vera næsta skrefið? „Við þuifum meiri hjálp frá íslandi við að þjálfa upp fólk sem getur kennt öðrum um íslenska hestinn og get- ur dæmt um hæfileika og gæði hestanna," svarar Gunnar. „Allar aðstæður hér í Norður-Ameríku eru góðar og á Gimli er svæði sem er tilvalið undir sýningarsvæði. Þar eru tré sem veita skugga og grasbakkar þar sem áhorfendur geta setið.“ Gunnar segir að allir hestamir séu skráðir í Kanada sem búpeningur en nauðsynlegt sé að endurbæta ýmsa viðmiðunarstaðla og slíkt sé ekki hægt nema með hjálp frá íslandi. AI

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.