Dagur - 22.09.1995, Blaðsíða 1
78. árg. Akureyri, föstudagur 22. september 1995
182. tölublað
Skandia
Ufandi samkeppni
W - lœgri iðgjöld
Geislagötu 12 • Sími 461 2222
Útgerð á Nýfundnalandi:
Sýnir áhuga
á Hrímbaki EA
Hrímbakur bundinn við bryggju á Akureyri í gær. Mynd: BG
Fulltrúar útgerðar frá Ný-
fundnalandi komu til Akur-
eyrar í vikunni í þeim tilgangi
að skoða einn togara Útgerðar-
félags Akureyringa hf., Hrímbak
EA-306, sem verið hefur á sölu-
skrá. Yfirmönnum togarans hef-
ur verið sagt upp störfum.
Verðmæti togarans liggur fyrst
og fremst í úreldingarverðmæti
hans en reynt verður að auka það
vermæti að einhverju marki.
Hvort af samningum verður skýr-
ist væntanlega á næstunni. Ekki
verður keypt nýtt skip fyrir Hrím-
bak EA, kvóti hans verður færður
á önnur skip útgerðarinnar og
þannig verður stefnt að meiri hag-
ræðingu í útgerðinni.
Samningaumleitanir hafa
einnig átt sér stað milli Útgerðar-
félags Akureyringa hf. og útgerðar
í Olafsvík um kaup á togaranum
Svalbak EA-302, sem ekki hefur
neinar veiðiheimildir en hefur í ár
og á síðasta ári stundað veiðar í
Smugunni og er þar um þessar
mundir. Óskað var eftir fresti af
hálfu Ólafsvíkinga en þeir fengu
höfnun á umsókn sinni í sjávarút-
vegsráðuneytinu. Togarinn var úr-
eltur á sínum tíma þegar ÚA
keypti Svalbak EA-2, en reglurnar
segja að taka megi þrjú skip út á
móti nýju og það gerði ÚA á sín-
um tíma. Hugmynd Snæfelling-
anna var að taka Svalbak „gamla“
inn en taka út tvö skip á móti og
þannig væri búið að taka út fjögur
skip fyrir nýja Svalbak samkvæmt
túlkun laganna. GG
Búið að klæða allar
götur í Grimsey
Amiðvikudaginn lauk
vinnuflokkur frá Klæðn-
ingu hf. í Garðabæ við að
leggja bundið slitlag á allar
götur í Grímsey. Verkið sjálft
gekk vel, en sem kunnugt er
varð það óhapp að tankbíll
með tjöru sem lagt hafði verið
við höfnina rann í sjóinn. Sæ-
fari flutti tækjabúnaðinn sem
notaður var við verkið til
lands, að undanskildum tjóna-
bflnum, sem sóttur verður
seinna.
Að sögn Þorláks Sigurðsson-
ar, oddvita í Grímsey, eru menn
afar ánægðir með að þetta skuli
vera komið í höfn, en kostnaður
skiptist milli Vegagerðarinnar
og sveitarfélagsins. Fleiri verk-
legar framkvæmdir hafa verið í
Grímsey að undanförnu því fyrr
í sumar var vinnuflokkur í grjót-
vinnslu framan við eldra hafnar-
mannvirkið. „Við eram að sjálf-
sögðu mjög ánægð með að vera
búin að fá þessi verk unnin,“
sagði Þorlákur.
í þeim vestanáttum sem ríkt
hafa að undanförnu segir hann
Grímseyinga lítið hafa fiskað, en
í þeirri vindátt er bæði erfitt að
sækja sjó og eins virðist fiskur
síst gefa sig til í þeirri átt. Ann-
ars segir Þorlákur veður hafa
verið gott í sumar, sem deyfi
leiðindahugsun til síðasta vetrar
og geri menn betur undirbúna að
takast á við næstu leiðinda tíðar-
kafla. HA
Fimmtugir Akur-
eyringar efna
til stórveislu
Ekið á hryssu á Fljóts-
heiði og stungið af
- skepnan skilin eftir slösuð og kvalin
Tveggja vetra hryssa var aflíf-
uð á Fljótsheiði um hádegi í
gærdag. Ekið hafði verið á
skepnuna og hún skilin eftir
með opið beinbrot á hægra
framfæti auk fleiri áverka. Um-
merki á slysstað báru með sér að
skepnan hafði lengi legið brölt-
andi í blóði sínu og taldi lögregla
að slysið hefði orðið snemma um
morguninn eða um nóttina.
Það var rétt fyrir hádegi í gær
Fýrsta hausthretið
Igær var skaplegt veður á
Norðurlandi og grunnskóla-
börnin á Akureyri voru úti við
eins og meðfylgjandi mynd ber
með sér. Einar Sveinbjörnsson,
veðurfræðingur á Veðurstofu
íslands, fer hins vegar ekki í
grafgötur með að nú verði
snögg veðurumskipti á Norð-
urlandi. Stíf norðanátt með
slyddu eða snjókomu verður í
dag um norðanvert landið, sér-
staklega á Norðurlandi vestra.
Einar segir skýringu á þessu
einfalda. „Það er kalt loft í há-
loftunum fyrir norðan okkur sem
er að fá útrás suður á bóginn og
veðrið kólnar heldur hastarlega,"
segir Einar.
Hann segist reikna með
slydduéljum í byggð en til fjalla
verði snjókoma. Norðlendingum
til huggunar þá stendur þetta
norðanhret stutt því eftir daginn
í dag hlýnar eitthvað á nýjan leik
þó áfram sé spáð norðanátl og
umhleypingasömu veðri. JÓH
sem lögreglu á Húsavík var
tilkynnt um aðkomuna á heiðinni,
og vora bændur fengnir til að af-
lífa hryssuna.
Af ummerkjum á slysstað má
sjá að það var bíll á leið vestur
sem ekið hefur á hryssuna og hef-
ur hægra framljós bílsins brotnað.
Lögreglan á Húsavík hvetur þá
sem orðið hafa varir við bíla á
ferð í gærmorgun og fyrrinótt að
láta vita. IM
Mikið verður um að vera nk.
laugardag hjá fólki sem er
fætt í stríðslok, þ.e. á árinu 1945
og hefur því verið að fagna 50
ára afmæli sínu á þessu ári og
mun væntanlega gera allt til
loka þessa árs. Um 140 manns
hafa þegar tilkynnt þátttöku en
bréf voru send út til Iiðlega 200
manns. Flestir þeirra búa á Ak-
ureyri í dag samkvæmt þjóð-
skrá, bæði „originalar“ og aðrir
sem flutt hafa til bæjarins síðar,
en einnig voru send bréf til fólks
sem var hér í 1. bekk Gagn-
fræðaskólans á sínum tíma og
fætt 1945 auk fermingarbarna.
Fagnaðurinn hefst klukkan þrjú
síðdegis með því að afmælisböm-
in hittast á veitingahúsinu Við
Pollinn og síðan verður sest að
snæðingi kræsinga og fylgst með
skemmtiatriðum í Iþróttahöllinni
klukkan sjö, þá væntanlega með
mökum. M.a. mun Jóhann Már
Jóhannsson, einn Konnaranna,
syngja á skemmtuninni ef hann
verður kominn aftur til landsins
frá því að skemmta erlendis með
bróður sínum, Kristjáni. Jóhann
Már er fæddur 1945. Auk þess
verða dansatriði o.fl. atriði sem sjá
munu dagsins ljós nk. laugardag.
Hljómsveitin Félagar mun sjá til
þess að hrista saman þessa síungu
jafnaldra ásamt þeirra mökum í
dillandi dansi.
Tveir menn eiga hálfrar aldar
afmæli þegar skemmtunin fer
fram. Það eru Friðbjörn Jónsson í
Hrafnagilsstræti 33, sem verður
fimmtugur daginn sem hátíðin
hefst, þ.e. á laugardaginn, og
Pálmi Sigurðsson í Bjarmastíg 15,
sem fagnar sínu afmæli á sunnu-
daginn þegar gleðskapnum
væntanlega lýkur formlega. GG
Sauðárkrókur:
Máki fær styrk frá ESB
Fiskeldisfyrirtækið Máki á
Sauðárkróki hefur ásamt er-
lendum samstarfsfyrirtækjum
sínum fengið 55 milljóna króna
styrk frá Evrópusambandinu.
Hjá Máka er sem kunnugt er
stundað eldi á hlýsjávarfiskinum
barra og er fyrirtækið í samstarfi
við aðila í fjórum löndum, mest
þó í Frakklandi.
Guðmundur Öm Ingólfsson,
sjávarlíffræðingur og fram-
kvæmdastjóri Máka, segir að þessi
styrkur hafi mikið að segja fyrir
starfsemi fyrirtækjanna. Bæði er
um umtalsverða tjármuni að ræða
og eins hafa fyrirtækin aðgang að
mikilli þekkingu gegnum þetta.
„Við erum með tvö verkefni í
gangi, EUREKA verkefni sem
gengur út á eldið á tegundinni
barra. Hins vegar er verkefni sem
gengur út á tæknina við þetta,
óháð tegund, þ.e. að endurnýta
eldissjóinn," sagði Guðmundur.
Hann segir liggja fyrir að ís-
lensk fyrirtæki eigi ýmsa mögu-
leika að sækja sambærilega styrki
til Evrópusambandsins, en svo
virðist sem mikil tregða eða
hræðsla sé meðal íslenskra fyrir-
tækja að sækja um. „Til þess að
þetta sé mögulegt verður þú að
hafa mjög trausta samstarfsaðila
sem trúa á það sem þú ert að gera.
Það er kannski það sem er hvað
erfiðast en Máki hefur alltaf verið
mjög sterkur erlendis. Grunnur
fyrirtækisins er byggður upp sem
samevrópskt viðfangsefni þannig
að samstarfsaðilamir hafa verið til
staðar alveg frá upphafi. Það er
mjög stór þáttur í þessu,“ sagði
Guðmundur.
Hann segir starfsemi Máka
vera í góðum farvegi. Stöðin á að
vera fullbyggð á næstu sex mán-
uðum, en þá mun framleiðslustöð
sem er í byggingu taka við barra-
seiðum frá seiðaeldisstöðinni og
ala í sláturstærð, en ársframleiðsla
af barra er áætluð 70 tonn. HA