Dagur


Dagur - 22.09.1995, Qupperneq 15

Dagur - 22.09.1995, Qupperneq 15
IÞROTTIR Föstudagur 22. september 1995 - DAGUR - 15 FROSTI EIÐSSON Lárus Orri Sigurðsson: Upplifun að leika gegn Ruud Gullit „Við áttum að vinna þennan leik tvö til þrjú núll því við sótt- um mun meira. Við höfum leik- ið góða knattspyrnu í síðustu leikjum eftir slaka byrjun en höfum átt erfitt með að skora mörk,“ segir Lárus Orri Sigurðs- son, leikmaður Stoke, en liðið gerði 0:0 jafntefli við úrvalds- deildarlið Chelsea í fyrri leik lið- anna í enska deildarbikarnum í knattspyrnu í fyrrakvöld. Lárus Orri lék allan leikinn með liði sínu en Þorvaldur Ör- lygsson var veikur og því ekki í leikmannahópnum. Meðal leik- manna Chelsea er hollenski snill- ingurinn Ruud Gullit og sagði Lárus það hafa verið upplifun að leika gegn honum. „Ég hef séð hann í sjónvarpinu í mörg ár og það var óneitanlega sérstakt að leika gegn honum,“ sagði Lárus, sem sagði að hann hefði gert sér sérstaka ferð til Gullits í leikslok til að þakka honum fyrir leikinn. Nýr skídaskáli í Ólafsfirði - verkið unnið í sjálfboðavinnu Lárus Orri Sigurðsson. Ólafsfirðingar hafa unnið við að byggja nýjan skíðaskála á skíða- svæðinu á Tindaöxl að undan- förnu. Að sögn Haralds Gunn- laugssonar, formanns skíða- deildarinnar, er vonast lil að skálinn verði kominn í gagnið þegar skíðavertíðin hefst. Hann verður urn það bil 180 til 190 fermetrar að flatarmáli og mun leysa tvo litla skála af hólmi. Þeir koma þó enn með að þjóna skíðamönnum þar sem þeir eru hluti af nýbyggingunni. Verkið hefur verið unnið í sjálfboða- vinnu. Hlynur Birgisson hjá Örebro Vil helst ekki eyða öðru ári eins og þessu „Ég sé alls ekki eftir þessum tíma, sem hefur verið mjög lær- dómsríkur fyrir mig. Hins vegar vil ég helst ekki eyða öðru ári eins og þessu, vera inn og út úr Hlé á deildinni vegna landsleikja íslenska landsliðið í handknattleik hélt til Rúmeníu í morgun og mun leika landsleik í Evrópukeppninni gegn heimamönnum á miðviku- daginn. Liðin mætast síðan aftur í Reykjavrk, sunnudaginn 1. októ- ber. Af þeim sökum verður ekkert leikið í 1. deildinni þangað til fjórða næsta mánaðar. Þá mætast meðal annars toppliðin, FH og KA í Kaplakrika. Þremur dögum síðar á KA leik í Noregi, gegn Viking í Evrópukeppni bikarhafa. Ekki sá fyrsti Alfreð Gíslason kom inn í lið KA gegn Aftureldingu í fyrrakvöld og er það fyrsti leikur Alfreðs með KA-liðinu frá því síðasta vor. Hann fær þó einnig skráðan á sig leikinn gegn KR í fyrstu umferð- inni þar sem hann var á leik- skýrslu en kom ekki inná. Þjálfar- inn gerði sig þó einu sinni líkleg- an til þess, renndi niður rennilásn- um á æfingagallanum þegar illa gekk hjá þeim gulklæddu. liðinu og held að það sé ekki gott fyrir mig,“ segir Hlynur Birgisson, leikmaður Örebro, þegar Dagur sló á þráðinn til hans í vikunni. „Samningurinn sem ég gerði var til tveggja ára en uppsegjan- legur bæði af minni hálfu og þeirra svo ég reikna með að hugsa málið fram í næsta mánuð, þegar deildinni lýkur,“ sagði Hlynur sem var á varamannabekk sænska liðsins í síðasta leik en hafði fram að því verið í byrjunarliðinu í sex leikjum í röð í stöðu hægri kant- manns. „Þetta er búið að vera ágætis- tími að undanförnu, ég er búinn að spila mikið og hefur gengið alveg þokkalega hjá mér. Ég hef hins vegar lítið fengið að spreyta mig í minni stöðu í vörninni," segir Hlynur, en nokkuð hefur verið um meiðsl hjá liðinu og það hefur komið í hlut Hlyns að leika á flestum stöðum á vellinum, þar á meðal sem miðherji." Hlynur hefur verið í sænsku- námi og til stendur að skella sér á fullu í nám ef svo fer að hann verði áfram hjá sænska liðinu. Sex leikir eru eftir í deildinni og á Örebro þokkalega möguleika á því að tryggja sér sæti í Evrópu- keppninni. Næsti leikur liðsins er á morgun gegn nágrannaliðinu Degerfors. Búist er við því að um fjórtán þúsund áhorfendur mæti á þann leik en meðalaðsókn á leiki Órebro hefur verið rúmlega sex þúsund. Leifturs gæti þýtt þátttöku liðsins í Toto-keppninni en það er jafnframt háð því að Keflavík vinni ekki sigur á KR. Knattspyrna -1. deild karla: Leiftur í Evrópukeppni? Það ræðst á morgun hvort að Leiftursmenn tryggja sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta skipti í sögu félagsins. Liðið leikur þá gegn FH í síðustu umferð 1. deildarinnar og sigur gæti þýtt sæti í Toto-keppninni, það fer þó allt eftir því hverjar lyktir verða í leik KR við Keflavík, sem leikinn er á sama tíma á heimavelli Reykjavíkurliðsins. Jafntefli mundi þýða að Leiftur næði fjórða sætinu, svo framar- lega sem sigur vinnst á FH-ing- um. Bæði liðin leika án fastamanna. Leiftursmenn án þeirra Péturs Bjöms Jónssonar og Ragnars Gíslasonar, sem báðir em í námi erlendis og FH-ingar verða án vamarmannsins Petr Mazrek og miðjumannsins Þorsteins Hall- dórssonar, sem taka út leikbann. FH-ingar vöknuðu til lífsins í síðustu umferð þegar þeir sigruðu í fyrsta leik sínum frá því í maí og það er því ekkert gefið að róður- inn verði léttur hjá Ólafsfirðing- unum, sem hafa átt misjafna leiki að undanförnu. Hverjar sem lyktir leiksins verða hafa Ölafsfirðingar lofað óvæntum uppákomum í leikslok. Um kvöldið fer síðan fram lokahóf hjá knattspymudeild Leifturs og verða þá verðlaunaðir þeir leikmenn sem best hafa staðið sig í sumar að mati stjómarmanna og stuðningsmannaklúbba Leift- ursliðsins, Blíðfara og Nikulásar. Heil umferð verður leikin í deildinni á morgun og hefjast allir leikirnir klukkan 14. Auk fyrr- nefndra leikja eigast Fram og Val- ur við, Grindavík leikur gegn Breiðabliki og íslandsmeistarar Akraness fá Vestmannaeyinga í heimsókn. Ágæt mæting á golfæfingar kvenna Konur í Golfklúbbi Akureyrar stóðu fyrir golfæfingum fyrir byrjendur einu sinni í viku í sumar og voru viðtökur ágætar. Um 30 konur mættu í þessar æfingar og í lokin var haldið Hatta- og pilsamót. Leiknar voru níu holur og ræst út frá þremur teigum samtímis. í mótslok snæddu kcppendur kvöldverð og veitt voru verðlaun. María Daníels- dóttir náði besta skori með forgjöf, Guðrún Ófeigsdóttir varð önnur og Jakobína Reynisdóttir í þriðja sæti. Sú síð- astnefnda fékk einnig sérstök verðlaun fyrir góða mætingu á æfingar sumarsins. Jakobína missti ekki af neinni æf- ingu og bætti sig um sautján högg á sumrinu. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá þátttakendur í lokamótinu. Æfmgar hjá Sundfélaginu Óöni Akureyrarlaug Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. A-hópur (1980 og eldri) Útilaug, sund Höllin, þrek 18,00-20.00 17.15-18.00 18.00-20.00 18.00-20.00 18.00-20.00 20.00-21.00 18.00-20.00 17.15-18.00 09.00-11.00 11.15-12.15 B-hópur(1981-1982) Útilaug, sund Höllin, þrek 15.15-16.15 15.30- 16.15 16.30- 17.30 15.15-16.15 16.30-17.30 15.15-16.15 09.00-11.00 C-hópur (1983-1986) Útilaug, sund Innilaug, sund 18.00-19.00 15.15-16.15 D-hópur (1987 og yngri) Innilaug, sund 16.10-17.15 16.10-17.00 Glerárlaug C-hópur (1983-1986) Sund 15.45-17.00 B-hópur (1981-1982) Sund 16.45-18.45 Skráning og upplýsingar: Ragnheiður Runólfsdóttir, sími 462 4111, Jón Már Héðinsson, sími 462 5486

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.