Dagur - 14.10.1995, Síða 3
FRETTIR
Laugardagur 14. október 1995 - DAGUR - 3
Nú er víðast farið að síga á
seinni hiuta sláturtíðar. Slátur-
hússtjórar á Norðurlandi sem
haft var samband við voru allir
ánægðir og sögðu sláturtíð hafa
gengið vel að þessu sinni. Lömb
eru víðast léttari en í fyrra,
nema hjá KS á Sauðárkróki þar
sem meðalvigt er nákvæmlega
sú sama.
Hjá Kaupfélagi Vestur-Hún-
vetninga á Hvammstanga sagði
Eggert Ó. Levy, skrifstofustjóri,
að búið væri að slátra um 26 þús-
undum fjár en ekki liggur fyrir að
sögn Eggerts hversu miklu verður
slátrað að þessu sinni. Meðal-
þyngd er 15,5 kg, um 900 grömm-
um minni en í fyrra, miðað við
sama fjölda sláturdaga, en þess
ber að geta að þá var fé óvenju
Akureyri:
Björgvin
Halldórsson
í Sjallann
Verið er að semja um að fá
sýningu Björgvins Halldórs-
sonar, „Þó líði ár og öld“, til
Akureyrar og er ætlunin að í
byrjun nóvember verði tvær
sýningar í Sjallanum. Það
mun síðan ráðast af viðtök-
um hvort sýningarnar verða
fleiri; en til að standa undir
sér verður aðsókn að vera
góð og helst þyrfti húsið að
fyllast.
„Framhaldið er allt undir
því komið hvaða móttökur
Björgvin fær því það er mjög
dýrt að fá sýninguna hingað
norður. En okkur langar engu
að síður að bjóða Akureyring-
um upp á þetta,“ segir Elís
Ámason hjá Sjallanum. „Þó
líði ár og öld“ hefur gengið á
Hótel íslandi í á annað ár og
Elís segir sýninguna vera ntjög
skemmtilega. „Ég fór á sýn-
inguna um síðustu helgi og
hún var miklu betri en ég bjóst
við. Fólk var uppi á borðum og
stundum þurfti Björgvin ekki
að syngja því fólkið söng svo
hátt í salnum. Þetla var alveg
meiriháttar."
Allur tæknibúnaður, eins og
ljós og annað, sem notaður er
fyrir sunnan verður fluttur
norður til að sýningin verði
sem líkust því sem hún er á
Hótel íslandi. Þrátt fyrir mik-
inn tlutningskostnað hækkar
ekki miðaverðið og það verður
það sama og fyrir sunnan,
4.600 krónur. Þeim sem vilja
fá meiri upplýsingar um þessar
sýningar eða vilja tryggja sér
miða í tíma er bent á að hafa
samband við ntiðasölu Sjall-
ans. AI
vænt.
Á Blönduósi er búið að slátra
rúmlega 21 þús. fjár, hjá Kaupfé-
lagi A-Húnvetninga, af 32 þús-
undum alls. Meðalvigt er 15,3 kíló
sem er u.þ.b. 300 grömmum
minna en í fyrra. Mjög góð sala
hefur verið í slátri, en góður hluti
þess fer til Reykjavíkur, alls 14-15
þúsund slátur, sem seld eru í Nóa-
túnsbúðunum.
„Við klárum á þriðjudaginn,“
sagði Vésteinn Vésteinsson, hjá
Sláturhúsi KS á Sauðárkróki. Búið
er að slátra um 25 þús. fjár af um
30 þúsundum. Meðalvigt er ná-
kvæmlega sú sama og í fyrra, 14,6
kíló. Skrokkar eru að sögn Vé-
steins ekki eins feitir og flokkast
því betur. Sátursala hefur verið
með minna móti, þó verðið sé
Mývetningar munu innan tíðar
fá bankaþjónustu í héraðið en í
undirbúningi er að opna af-
greiðslu frá íslandsbanka á
Húsavík, sem staðsett verður í
Hótel Reynihlíð. Örn Björnsson,
útibússtjóri íslandsbanka á
Húsavík, segir að þau fimm ár
sem hann hafi starfað á Húsavík
hafi umræða um það að auka
þjónustu við Mývetninga stöð-
ugt verið í umræðunni.
Ráðnir verða tveir starfsmenn
við afgreiðslu íslandsbanka í
Reynihlíð en ekki er um að ræða
yfirtöku á Sparisjóði Mývetninga,
en hann er með afgreiðslu á
Helluvaði og í Reykjahlíð.
„Það hefur áður verið leitað til
okkar um þessa þjónustu og það
hefur nú orðið að veruleika. Við-
skipti mjög margra Mývetninga
eru í bankastofnunum á Húsavík
og víðar þannig að bæði eykst
þjónustan við þá og eins gerum
við okkur vonir um að markaðs-
Flugmálastjórn hefur ekki enn
gengið til samninga vegna leng-
ingar flugbrautarinnar í Mý-
vatnssveit en lægsta tilboðið var
frá Arnarfelli hf. á Akureyri að
upphæð 6,8 milljónir króna sem
er 38% af kostnaðaráætlun. Jó-
hann Helgi Jónsson, fram-
kvæmdastjóri flugvallaþjónustu,
segir að framkvæmdir munu
hefjast innan tíðar en um 160
metra lengingu er að ræða á
flugbrautinni sem þá verður um
950 metra löng.
Þessar framkvæntdir eru gífur-
lega mikilvægar fyrir Mýflug hf.
og áætlunarflug þess til og frá
Mývatni, aðallega til Reykjavíkur,
vegna þess að félagið hefur notað
flugvél af Shiftain-gerð sem hefur
haft undanþágu á brautina í Mý-
vatnssveit vegna þess að hún hef-
ur verið of stutt. Flugmálaáætlun
gerir ráð fyrir breikkun flugbraut-
arinnar á Ákureyri, þ.e. malbikaða
svæðið breikkar, en þessar fram-
kvæmdir eru hins vegar ekki inn í
fjárlögum ríkisins því þar er gert
hagstætt, en Vésteinn benti á að
litlar sem engar auglýsingar hafi
verið í gangi til að hvetja fólk til
sláturkaupa, eins og oft áður.
Hjá Sláturhúsi KEA á Akureyri
er vika eftir af sláturtíð. Búið er
að slátra 25-26 þúsundum fjár af
um 33 þúsundum, en að sögn Óla
Valdimarssonar, sláturhússtjóra,
hefur heldur verið að bætast við
töluna undanfama daga þar sem
bændur virðast ætla að fækka fé.
Meðalvigt er um 800 grömmum
minni en í fyrra, 15,4 kíló í stað
16,2. Slátursala hefur verið
þokkaleg að sögn Óla.
Páll Gústaf Amar, sláturhús-
stjóri KÞ á Húsavík, sagði slátur-
tíð hafa gengið mjög vel og útlit
fyrir að henni ljúki næstkomandi
miðvikudag. Alls verður slátrað
hlutdeild íslandsbanka í Mývatns-
sveit muni aukast þegar afgreiðsl-
an hefur tekið til starfa,“ sagði
Örn Bjömsson.
Leitað var til Landsbankans á
sínum tíma um að sá banki opnaði
útibú eða afgreiðslu í sveitarfélag-
inu en ekkert varð af því. Ámi
Sveinsson, útibússtjóri Lands-
bankans á Húsavík, segir að fyrir
sjö árum síðan hafi verið rætt við
þáverandi sparisjóðsstjóra Spari-
sjóðs Mývetninga, Ingólf Jónas-
Þorsteinn Jónsson í Samkomu-
gerði í Eyjaljarðarsveit hefur
verið skipaður nýr hreppstjóri í
sveitinni.
Sýslumaður skipar í þetta emb-
ætti og er hlutverk hreppstjóra að
vera umboðsmaður sýslumanns,
ráð fyrir verulegum niðurskurði til
flugmálaáætlana og því verða enn
tafir á því að þær hefjist. Aukin
þotuumferð um Akureyrarflugvöll
hefur gert þessar framkvæmdir
mikilvægar, aðallega beint leigu-
flug, en með breikkun brautarinn-
ar minnka líkumar á því að upp í
þotuhreyflana sjúgist grjót og möl.
41-42 þúsundum fjár og voru um
34 þúsund búin í gær. Meðalvigt
er 700 grömmum lakari en á sama
tíma í fyrra, 14,6 kíló á móti 15,3.
Slátursala hefur að sögn Páls verið
svipuð og í fyrra en heldur hefur
verið að draga úr sölu á slátri und-
anfarin ár.
Sláturtíð er lokið hjá Fjalla-
lambi á Kópaskeri. Þar var slátrað
22 þúsund dilkum og um 900 full-
orðnum kindum. Meðalvigt var
14,2 kfló, sem er 1300 grömmum
lakara en í fyrra. Fé flokkaðist þó
betur vegna minni fitu. Aðeins var
flutt til Húsavíkur til umsýslu-
slátrunar. Fjallalamb hefur út-
flutningleyfi á Japansmarkað, en
ekki til Evrópu og Bandaríkjanna
og því þarf að slátra því sem
þangað á að fara á Húsavík. HA
son, um yfirtöku Landsbankans á
starfsemi hans en ekkert varð úr
því eftir umtjöllun stjómar sjóðs-
ins. Fyrir tveimur árum síðan var
svo aftur á dagskrá hjá Lands-
bankanum að opna afgreiðslu eða
útibú í Mývatnssveit án yfirtöku
eða þátttöku Sparisjóðs Mývetn-
inga en það leiddi ekki til þeirrar
niðurstöðu að það væri hagkvæmt
fyrir bankann, heldur yrði það
eingöngu þjónustuatriði ef af yrði.
GG
það er umboðsvaldsins. Þorsteinn
Jónsson tekur við embættinu af
Kristjáni H. Theódórssyni á Brún-
uin, sem gegnt hafði því frá því
hið sameinaða sveitarfélag, Eyja-
fjarðarsveit, var stofnað í byrjun
árs 1991. -sbs.
Unnið er að stækkun flugstöðvar-
innar á Akureyri og verður við-
byggingin væntanlega tekin í
notkun á útmánuðum en nýlega
var boðinn út síðasti áfangi í við-
byggingunni.
Frá því er efnisvinnsla hófst í
júnímánuði í sumar hefur verið
Hrímbakur EA:
Undirmönnum
sagtupp
störfum
innan tíöar
Togarinn Hrímbakur EA-306
kom til hafnar á Akureyri sl.
miðvikudag með 70 tonn af
blönduðum afla, mest karfa,
sem fór til vinnslu hjá ÚA.
Togarinn fer tvo túra enn áð-
ur en honum verður svo lagt
í næsta mánuði. Yfirmönn-
um skipsins hefur verið sagt
upp störfum, en þeir hafa
þriggja mánaða uppsagnar-
frest, en undirmönnum verð-
ur sagt upp innan tíðar.
í desembermánuði verða
eftirstöðvar kvóta Hrímbaks
EA færðar yfir á önnur skip
Útgerðarfélags Akureyringa
hf. Skipstjóri á Hrímbak EA er
Stefán Sigurðsson. Tveir tog-
arar ÚA, Hrímbakur og gamli
Svalbakur, eru á söluskrá en
þrátt fyrir nokkrar þreifmgar
hefur ekkert gerst enn í sölu-
málum. GG
Útvarpað
frá útför
séra Þórhalls
Höskuldssonar
Ákveðið hefur verið að útvarpa
frá útfór séra Þórhalls Hösk-
uldssonar sem gerð verður frá
Akureyrarkirkju nk. mánudag,
16. október. Útsending hefst kl.
13.30.
Útvarpað verður á FM-tíðninni
104,9 og annast forsvarsmenn Út-
varps VMA, sem hóf útsendingar
sl. föstudag, útsendinguna. Ef
marka má tilraunaútsendingu Út-
varps VMA sl. fimmtudagskvöld,
ætti útsending frá útförinni að
heyrast mjög vel á Akureyri og
um stóran hluta Eyjafjarðarsvæð-
isins. óþh
unnið að því að leggja bundið slit-
lag á Alexandersflugvöll á Sauð-
árkróki og lauk verkinu 9. októ-
ber. Jóhann H. Jónsson segir að
ekki séu fyrirhugaðar neinar nýjar
framkvæmdir á Norðurlandi að
sinni, þær gætu hins vegar séð
dagsins ljós með nýrri flugmála-
áætlun. GG
íslandsbanki opnar afgreiðslu í Mývatnssveit:
„Vonum að markaðshlutdeild
bankans og þjónusta aukist“
Breikkun flugbrautar Akureyrar-
flugvallar ekki á framkvæmdaáætlun
Eyjafjarðarsveit:
Nýr hreppstjóri