Dagur - 21.11.1995, Qupperneq 1
Stutt-
frakkar
V. 15.900,-
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 462 3599
Akureyri:
Tveir gripnir með hass
Tveir menn voru handteknir á
Akureyri um helgina fyrir
að vera með hass í fórum sínum.
Báðir sögðust hafa fengið efnið í
Reykjavík og báru við að það
væri einungis til eigin neyslu.
Fyrri maðurinn var handtekinn
aðfaranótt laugardags á veitinga-
stað á Akureyri og hafði sá í fór-
um sínum bæði hass og hasspípu.
Hann viðurkenndi að hafa keypt
tæp 10 grömm í Reykjavík og var
búin að reykja hluta þess þegar
hann var tekinn.
I gærmorgun var annar maður
handtekinn en hann hafði fengið
fíkniefnasendingu úr höfðborginni
og var þar einnig um 10 grömm af
hassi að ræða. 011 meðferð ffkni-
efna, hvort sem um innflutning,
sölu, dreifingu, meðhöndlun eða
vörslu er að ræða, er ólögleg og
telst refsivert athæfi. AI
Fyrsta laugardagsopnun ÁTVR:
Meiri viðskipti
en búist var við
að voru miklu meiri viðskipti
hér á laugardag en ég bjóst
við. Ég skaut á að svona 70 við-
skiptavinir kæmu hingað, en
þeir urðu 130,“ sagði Haukur
Torfason, útsölustjóri ÁTVR á
Akureyri, í samtali við Dag. For-
ráðamenn Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins hafa ákveðið
að þrjár verslana fyrirtækisins,
tvær í Reykjavík og sú sem er á
Akureyri, verði opnar á laugar-
dögum frá kl. 10 og fram til há-
degis. Opnunartími fleiri versl-
ana verður í bráð ekki rýmkað-
ur.
„Þetta kemur vel út,“ segir
Haukur Torfason. Hann sagði
jafnframt að liðin væri sú tíð að
áfengisverslunin á Akureyri væri
full út úr dyrum síðdegis á föstu-
dögum heldur dreifðust viðskiptin
nú mun jafnar yfir daginn og jafn-
vel fleiri daga. Þá væru annars-
konar verslanir gjarnan opnar á
laugardögum og að ÁTVR gerði
slíkt hið sama væri ekki nema
eðlileg þjónusta. -sbs.
Borgardætur voru meðal flytjenda á tónleikunum í Iþróttahöllinni.
Mynd: BG
Stórtónleikar til styrktar Flateyringum:
Yfir hátf
milljón safnaðist
Milli 500 og 600 þúsund Bragadóttir, óperusöngkona,
söfnuðust á stórtónleik- kór Tónlistarskólans. Tryggvi
um til styrktar Flateyringum, Hiibner, Borgardætur, Tjamar-
sem haldnir voru í íþróttahöll- kvartettinn, Cigarettes, Pálmi
inni á Akureyri á sunnudag- Gunnarsson og KK. Ellen
inn. Er það nokkru minni ijár- Kristjánsdóttir söng eitt lag með
hæð en skipuleggjendur tón- þeim síðastnefnda.
leikanna gerðu sér vonir um en „Tónleikarnir sjálfir tókust
engu að síður dágóð fjárhæð mjög vel. Dagskráin var vissu-
sem renna mun óskipt í söfún- lega flókin en þetta gekk allt
una Samhugur í verki. saman mjög smurt fyrir sig,
Alls voru það um 140 manns enda vant fólk að störfum bæði
scm komu fram og allir gáfu að innan sviðs og utan. Vissulega
sjálfsögðu vinnu sína. Sr. Pétur komu talsvert færri en við von-
Þórarinsson, sóknarprestur í uðumst til en þessir peningar
Laufási, flutti stutta hugvekju koma sér samt án efa vel,“
áður en tónleikarnir hófust en sagði Guðmundur Óli Gunnars-
þeir sem fram komu voru: Sin- son, skólastjóri Tónlistarskóla
fóníuhljómsveit Norðurhtnds og Akureyrar, einn þeirra sem
með henni söng Rannveig Fnða skipulagði tónleikana. HA
Skemmdarvargar voru á ferð á brekkunni á Akureyri, nánar tiltek-
ið í Lerkilundi, á föstudagskvöld. Föt, aðallega yfirhafnir, sem
héngu úti á snúru voru eyðilögð með því að rista djúpar rifur í bak
flíkanna.
Húsmóðirin á heimilinu hafði verið að taka til í forstofunni og hengt
yfirhafnirnar út á snúru á meðan. Hún þurfti síðan aðeins að bregða sér
af bæ en kom heim um miðnætti og tók fötin inn. Daginn eftir sá hún
síðan hvers kyns var og munu flest fötin vera ónýt. Rannsóknarlögreglan
vinnur að því að upplýsa málið. AI
Erfitt er að segja til um hvað vakti fyrir skemmdarvörgunum sem eyðilögðu
þessi föt annað en hrein og bein skemmdarfýsn. Fremst gefur að líta leður-
jakka sem nú er ónothæfur. Mynd: BG
Akureyri:
Föt á snúru eyðilögð
Fiskverkun Jóhannesar
& Helga hf.:
Skýrist í dag
eða á morgun
hvort nauða-
samningar nást
Fjögurra vikna greiðslustöðv-
unartímabili Fiskverkunar
Jóhannesar & Helga hf. á Dal-
vík lauk sl. föstudag en áður
hafði fyrirtækið fengið tveggja
mánaða greiðslustöðvun og 3
vikur. Hallsteinn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri, segir að
samningaviðræður standi yfir
við stærstu lánardrottnana um
nauðasamninga. Gangi það ekki
eftir mun verða farið fram á að
fyrirtækið verði lýst gjaldþrota.
„Samingaviðræður um nauða-
samninga og nýtt hlutafé í fyrir-
tækið voru mjög langt komnar og
átti þeim að ljúka sl. föstudag.
Viðræðurnar voru þó ekki komnar
á það stig að ræða um hlutfall nið-
urfellingar upphæðar krafna í
nauðasamningum. Það verður svo
í höndum lögfræðings að ganga
frá frumvarpi þar af lútandi náist
samningar," sagði Hallsteinn
Guðmundsson.
Gert er ráð fyrir að ákvörðun
liggi fyrir í dag eða á morgun.
Þokkalega hefur gengið að afla
hráefnis til vinnslunnnar og hefur
verið þar stöðug vinna að undan-
skildum gærdeginum. Hallsteinn
segir að þær framkvæmdir og tjár-
festingar sem ráðist hafi verið í á
undanförnum misserum hafi
reynst fyrirtækinu allt of þungur
baggi, og þar vegur stærst húsið
sjálft en einnig tækjakostur.
„Það er kannski verst að eiga
ekki kvóta og láta báta veiða upp í
hann fyrir sig. Það er lrklega orðið
frumskilyrði í fiskverkun á íslandi
í dag að eiga kvóta eða kvótabáta
til að tryggja hráefnisöflunina,“
sagði Hallsteinn Guðmundsson.
GG
Formaður Verkalýðsfélagsins Einingar um stöðu kjaramálanna:
Það verður hasar ef
launanefndin slítur
þessu ekki
Verkalýðsfélagið Eining í
Eyjafírði stóð fyrir félags-
fundum í gær og á sunnudaginn,
þar sem fyrir var tekin og greidd
atkvæði um uppsögn kjara-
samninga. Talningu atkvæða
lauk í gærkvöld en úrslit lágu
ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun. Miðað við þann anda
sem ríkti á fundinum efuðust þó
fáir um niðurstöðuna, þ.e. að
uppsögn yrði samþykkt.
Sú tillaga sem greidd vom at-
kvæði um var í raun tvískipt.
Skorað er á launanefnd ASÍ að
segja upp samningum fyrir 1. des-
ember þannig að þeir séu lausir
um áramót, og í öðru lagi, ef
launanefndin samþykkir ekki upp-
sögn, að veita stjórn og trúnaðar-
mannaráði Einingar heimild til
þess að segja þeim upp. Þannig
kemur síðari hluti tillögunnar ekki
til framkvæmda samþykki launa-
nefndin uppsögn. Raunar hefur
ekki fengist úr því skorið hvort
einstök verkalýðsfélög geta sagt
samningunum upp, en í gangi er
nokkurs konar prófmál í þessu
efni vegna uppsagnar Verkalýðs-
félagsins Baldurs á Isafirði.
„Miðað við það hljóð sem var í
fólki á fundunum trúi ég ekki öðru
en fólk vilji losa sig undan þess-
um samningum," sagði Björn
Snæbjörnsson, formaður Einingar,
í gær en þá lágu úrslit atkvæða-
greiðslunnar ekki enn fyrir sem
fyrr segir. „Launanefndin verður
að ákveða sig í síðasta lagi í byrj-
un næstu viku hvort hún ætlar að
slíta þessu eða ekki. Ef hún segir
samningum ekki upp þá fara fé-
lögin af stað og láta reyna á hvort
þau geti sagt þessu upp. Það verð-
ur auðvitað mikill hasar ef þessu
verður ekki sagt upp og ég get
ekki ímyndað mér að atvinnurek-
endur vilji hafa hasar á vinnu-
markaði allt næsta ár ef menn
verða bundnir í þessum samningi.
Spumingin er þá á hverju þeir
eiga von eftir eitt ár,“ sagði Björn.
HA