Dagur - 21.11.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1995
FRÉTTIR
Húsavík:
Vinnustaður fyrir fatlaða
- uppsetning í athugun
„Hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á
Akureyri starfar atvinnuteymi, sem er ætlað að
finna störf fyrir fatlaða á svæðinu og það hefur
verið að ræða við bæjarstjómir á Norðurlandi
eystra um stofnun vinnustaða fyrir fatlaða.
Tveir verndaðir vinnustaðir eru starfræktir á
Akureyri en ríkið er búið að loka á tjárveitingar
til uppsetningar slíkra vinnustaða,“ sagði Soffía
Gísladóttir, félagsráðgjafi á Húsavík, aðspurð
um athugun á uppsetningu vinnustaðar fyrir
fatlaða á Húsavík.
„Það hefur verið tekið mjög jákvætt í þetta á
Húsavík, en hér eru starfrækt tvö sambýli fyrir fatl-
aða. Það er mikil þörf fyrir vinnustað fyrir fólkið
því það er jafnerfítt fyrir þetta fólk að vera atvinnu-
laust og fyrir annað fóik. Það þarf að hafa eitthvað
til að vakna til og ég hef verið að leita að störfum
fyrir það, og eitt starf er nýlega fundið hér í bæn-
um. Vinnustaður byði upp á miklu meiri möguleika
og breiðari grundvöll því þangað gætu allir af sam-
býlunum komið," sagði Soffía. Hún sagði að upp
hefðu komið hugmyndir um að hægt væri að koma
upp stað þar sem fólk gæti bæði stundað störf og
afþreyingu og atvinnulausir með skerta starfsorku
ættu að geta átt þar athvarf einnig.
Soffía sagði að spumingin væri um að ráða at-
vinnuleitarfulltrúa á vinnustaðinn sem sæi um að
fá verkefni til að vinna á staðnum. Ýmis störf
kæmu til greina, t.d. samsetning á umbúðum og
pökkun af ýmsu tagi. Slíkur fulltrúi mundi ieita
starfa úti í bænum þannig að fólkið gæti einnig
starfað á almennum vinnumarkaði. Hugmynd kom
fram um að þetta gæti orðið miðstöð í bænum þar
sem gestum og gangandi yrði selt kaffí. Almenn-
ingur gæti þar með litið þarna við.
Soffía hefur verið að skoða húsnæði sem hugs-
anlegt er að fá fyrir starfsemi af þessu tagi, en gera
þyrfti verulegar breytingar á fáanlegu húsnæði,
m.a. vegna ferlimála.
„Það eru ýmsir möguleikar í gangi og þetta er
ég allt að kanna. Ég hef verið að skoða vinnustaði
af þessu tagi og reyna að átta mig á heildarpakkan-
um fyrir gerð fjárhagsáætlunar næsta árs,“ sagði
Soffía. IM
Helmingi loðnuaflans landað á Norðurlandi
- Siglufjörður aflahæsta höfnin með 24% heildaraflans
Heildaraflinn á sumar- og
haustloðnuvertíðinni er orðinn
123 þúsund tonn af 536 þúsund
tonna bráðabirgðakvóta og því
enn óveidd 413 þúsund tonn.
Aflahæsta löndunarhöfnin er
Sigluíjörður með 30.331 tonn,
eða 24% heildarinnar.
Til Ólafsfjarðar hafa borist
1.178 tonn, til Krossaness hf.
4.666 tonn, til Raufarhafnar 9.613
tonn, til Þórshafnar 12.824 tonn
og til Vopnafjarðar 4.990 tonn.
Aflahæst Austurlandshafna er
Seyðisfjörður með 14.386 tonn og
síðan Neskaupstaður með 8.909
tonn. Vegna nálægðar við veiði-
svæðið nú í haust hefur töluvert
borist til Bolungarvíkur, og var
heildaraflinn þar í gær 7.066 tonn
og eins hefur Akranes fengið sinn
skerf af kökunni, eða 11.121 tonn.
GG
Verkalýðsfélagið Fram
á Sauðárkróki:
Forsendur
kjarasamninga
brostnar
Kjaramálin voru til umræðu á
félagsfundi í Verkalýðsfélaginu
Fram á Sauðárkróki sl. föstu-
dag. f ályktun fundarins kemur
fram það álit að forsendur nú-
gildandi kjarasamninga, efnis-
legar og siðferðislegar, séu
brostnar og tekið er undir álykt-
anir þings Alþýðusambands
Norðurlands á Illugastöðum sl.
haust og þings Verkamanna-
sambands íslands.
I ályktuninni segir að með
kjarasamningunum 21. febrúar sl.
hafi verið mörkuð skynsamleg
stefna, hvað það snerti að hækka
laun með jafnri krónutölu á alla þá
kauptaxta sem samningurinn náði
til, í stað hefðbundinnar prósentu-
hækkunar. Hins vegar hafi komið
á daginn að fjölmargir sem skrif-
uðu undir þessa kjarasamninga
hafi ekki fylgt þeim. Vísað er til
úrskurðar kjaradóms og kjara-
nefndar og þau skattalög sem al-
þingismenn hafi sett sér.
í lok ályktunarinnar segir orð-
rétt: „Náist ekki viðunandi lausn á
þessum málum samþykkir stjórnin
að boða til félagsfundar fyrir nk.
mánaðamót og leggja fyrir hann
tillögu um uppsögn samninga.“
óþh
Hafralækjarskóli:
Söngleikir
frumfluttir
- allir 100 nemendurnir
koma á svið
Tveir söngleikir verða frumflutt-
ir á íslandi á árshátíð Hafra-
lækjarskóla 1. des. nk. Söngleik-
irnir taka um klukkutíma í
flutningi og eru eftir Michael
Hurd. Texta við fyrra verkið,
sem fjallar um Adam Evu og
syndafallið, þýddi Haukur
Agústsson en sr. Sigurður Ægis-
son þýddi seinna verkið, sem er
jólaleikur.
Sigurður Hallmarsson setur
verkin á svið en Robert Faulkner
stjómar tónlistinni. Juliet Faulkner
annast tónlistarflutning ásamt
bömum úr Hafralækjarskóla. Það
em 100 böm sem stunda nám við
skólann í vetur og koma þau öll á
svið á einn eða annan hátt við
uppsetningu verkanna, að sögn
Sigmars Olafssonar, skólastjóra.
IM
Neytendasamtökin:
Vilja að
viðskipti
A. Finnssonar hf.
verðiskoðuð
Á fundi stjórnar Neytendasam-
takanna 16. nóvember sl. var
samþykkt að senda eftirfarandi
erindi til Ríkissaksóknara og
Bankaeftirlits Seðlabanka fs-
lands:
„í tilefni af greinargerð „Sam-
starfshóps um bætt viðskiptasið-
ferði“ til bústjóra þrotabús A.
Finnssonar hf. á Akureyri, beinir
stjórn Neytendasamtakanna þeim
eindregnu tilmælum til Ríkissak-
sóknara og Bankaeftirlits Seðla-
banka íslands, að viðskipti A.
Finnssonar hf., sem nú hefur verið
tekið til gjaldþrotameðferðar, við
ýmsa aðila verði tekin til gaum-
gæfilegrar skoðunar.“ óþh
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
íbúðabyggð við Viðjulund
Á fundi skipulagsnefndar 10.
nóvember sl. var lagt l'ram er-
indi frá Baldri Ó. Svavarssyni,
arkitekt f.h. S.S. Byggis, þar
sem lagt er til að byggð verði
tbúðarhús á lóðum fyrirtækis-
ins við Viðjulund í stað at-
vinnuhúsnæðis.
Veitingavagn við Strandgötu
Á sama fundi skipulagsnefndar
var lagt fram bréf dags. 8. nóv-
ember frá Ólöfu lndíönu Jóns-
dóttur, þar sem óskað er heim-
ildar til þess að koma fyrir
færanlegum veitingavagni
sunnan Strandgötu, austan
Hjalteyrargötu. Skipulags-
nefnd frestaði afgreiðslu erind-
isins.
Félagsmiðstöð Glerárskóla
íþrótta- og tómstundaráð sam-
þykkti á fundi sínum 8. nóv-
ember sl. að strax verði farið í
framtíðarlausn félagsmið-
stöðvarinnar í Glerárskóla í
kjallara stjómunarálmunnar í
stað bráðabirgðaúrlausnar.
Forstöðumanni félagsmið-
stöðva ásamt framkvæmda-
stjóra var falið að fylgja mál-
inu eftir.
Leikskólinn Ársól
Á fundi leikskólanefndar 2.
nóvember sl. var rædd umsókn
Sigurjóns Haraldssonar um
stofnstyrk fyrir Leikskóla
Guðnýjar Önnu hf. vegna leik-
skólans Ársólar. Leikskóla-
nefnd gaf eftirfarandi umsögn
um umsóknina: „Engin fagleg
úttekt á leikskólanum liggur
fyrir nefndinni og nefndin hef-
ur ekki aðgang að slíkri úttekt
þar sem öðrum aðila hefur ver-
ið falið faglegt eftirlit með
leikskólanum. Nefndin bendir
á að hér er verið að sækja um
stofnstyrk fyrir leikskóla í
leiguhúsnæði. Miðað við hið
takmarkaða fé sem til ráðstöf-
unar er í leikskólamálum hjá
Akureyrarbæ, getur nefndin
ekki mælt með að stolnstyrkur
sé greiddur leikskólanum og
vísar til fyrri röksemda."
Eins og fram kom í Degi sl.
föstudag vísaði bæjarráð um-
sókn Leikskóla Guðnýjar
Önnu hf. ásamt umsögn leik-
skólanefndar til gerðar fjár-
hagsáætlunar fyrir næsta ár.
Talkennsla í leikskólum
Á sama fundi leikskólanefndar
var lögð fram greinargerð Ingu
Einarsdóttur, leikskólaráð-
gjafa, vegna stuðningsbama
varðandi þörf fyrir talkennslu í
leikskólum haustið 1995.
Leikskólanefnd frestaði af-
greiðslu þessa máls uns fyrir-
komulag skólaþjónustu verði
afráðið, „en leikskólanefnd tel-
ur að aðstöð við börn haldin
talmeinum skuli veitt þaðan.“
Jóni færðar þakkir
Þá þakkaði leikskólanefnd Jóni
Bjömssyni, fráfarandi félags-
málastjóra, fyrir störf í þágu
nefndarinnar og lcikskólamála
í bænum og óskaði honum vel-
famaðar í nýju starfi.
Troðfull búð
LOFTVERKFÆRI
Þórshamar getur nú boðið viðskiptavinum
sínum mjög vönduð loftverkfæri á góðu verði
frá þýska fyrirtækinu Rodcraft. Úrvalið er
aldeilis prýðilegt. Komdu og skoðaðu!
RODCRAFT
POWER TOOLS
HOGGDEYFAR
Höggdeyfar og hlífar á höggdeyfa í
fólksbíla, fiutningabíla og vinnuvélar.
Einnig verkfæri, gúmmí og annað sem
til þarf þegar skipt er um höggdeyfa.
’fMOKROEr T#
Þ0RSHAMAR
<
CD
N !Ji!!!
•—h> / w I O * u
PB
i-t C a
£3
TRYGGVABRAUT 3-5, AKUREYRI. SIMI 462 2875.
PórsA'j/??;//- - þe&Á/'// a/Ztr