Dagur - 21.11.1995, Síða 5

Dagur - 21.11.1995, Síða 5
LESENPAHQRNIÐ Viska mannanna Aðfluttur skrifar. Merkileg er viska mannanna þegar þeir geysast fram á ritvöll- inn og hafa ótakmarkaða þekk- ingu á því hvað bæjarfélaginu er fyrir bestu, bara ef það hentar þeim. Sárara er en tárum taki að horfa upp á endalausar réttlætingar á því að Þórsarar þurfi nauðsynlega á íþróttahúsi að halda. Það er ekki að sjá eða heyra að þeir eða aðrir bæjarbúar hafi lært nokkurn skap- aðan hlut á þeim „mistökum" sem voru gerð þegar tvö stórglæsileg minnismerki um stórhuga og framtakssama menn voru reist hlið við hlið, að heita má, á Brekkunni. Það er vafalaust gott og hollt með afbrigðum að stunda íþróttir í góðu og glæsilegu húsi, þar sem félagsfáni með réttu merki blaktir við hún. En hvað um hina sem hafa ekki hús, ekki einu sinni í næsta nágrenni? Er það ekkert til- tökumál að senda börn úr Síðu- skóla langar leiðir, í öllum veðr- um og við misjafnar aðstæður, til íþróttaiðkana? Á kannski að byggja íþróttahús við skólann líka? Er ekki nærtækara að nota af- ganginn af fjármunum bæjarins í annað en að endurtaka sömu vit- leysuna upp aftur og byggja íþróttahúsin í pörum, hlið við hlið? Hvaðan kemur hann annars þessi afgangur? Kom hann í ljós þegar búið var að skera niður hjá bænum, undir þvf yfirskini að ábyrgðin vegna HM 95 hafi kost- að... og þurft hafi að standa við hana? Svo má líka taka lán til að fjár- magna samfélagslega hagstæðar framkvæmdir og réttiæta allt sam- an í hástemmdum lofræðum um nauðsyn og óendanlega gagnsemi fyrir æsku landsins. Þá koma jól Einar Ingvi Magnússon skrifar. „Það lætur kannski undarlega í eyrum, að hátíð ljóss og friðar skuli vera skammt undan, þegar skammdegismyrkrið rökkvar land um miðja daga og snjóstormurinn rýfur kyrrð og gnauðar við glugga og gætt. - En þá koma jól. Dagamir styttast og nætumar virðast eilífar og umbreytingar- lausar, eins og litúr geimsins, í þungu myrkri norðursins að vetr- arlagi. Þegar birtu dagsins nýtur hve síst við um vetrarsólstöður, þá höldum við hátíð ljóssins, - þá koma jól. I öílu þessu myrkri minnist ég orða sálmaskáldsins, þegar hann ritaði hin fleygu orð: „Jafnvel þó ég fari um dimman dal, óttast ég eigi, því að þú ert hjá mér.“ í myrkvuðum dalnum treysti hann á Guð og gekk í ljósi, hversu fjarstætt, sem það kann annars að láta, og fór þar upplýstur maður. Það leiddi huga minn að öðmm orðum heilagrar ritningar sem höfð eru eftir syni Guðs, er hann sagði: „Ég er ljós í heiminn kom- ið.“ Þess vegna lifum við í birtu og yl. Þess vegna höldum vér hátíð ljóssins, þó skammdegismyrkrið grúfi yfir. Á þeim tíma þegar myrkur vetrarins er hve svartast, - þá koma jól. Mitt í þessu þunga myrkri, þessari skuggaveröld, þegar élin berja á glugga og kaldir vindar gnauða við dyr undir drungaleg- um ísabólstrum á þröskuldi jarðar, minnist ég aftur orða guðssonarins míns kæra er hann sagði: „Minn frið gef ég yður.“ í rökkurveröld á miðjum vetri, á dimmum dögum og um nætur svartar, þegar naprir vindar kvæsa kaldri rödd, höldum við hátíð ljóssins og friðarins, - heilög jól, þegar vér lifum í ljósi og friði guðssonar um jólin, gefin okkur mönnum af sjálfum heilögum Guði.“ Tíbet Már Kjartansson, Kaupmanna- höfn, skrifar. „Fyrir tæplega 50 árum réðust kínverskar hersveitir inn fyrir landamæri Tíbet og innlimuðu frjálst land með eigin landamæri, sögu, tungu og listir. Með þetta í huga og að Kína skyldi öðlast að- ild að Sameinuðu þjóðunum er skömm og skömm Islendinga er meiri þar eð ísland sökum smæðar sinnar skyldi samþykkja það á sínum tíma. Undirlægjuháttur ís- lenskra ráðamanna upp á síðkastið gagnvart Kína er til háborinnar skammar. Danir eru að taka upp umræður vegna Tíbet þrátt fyrir mótmæli Kínverja og eiga þó Danir mikilla hagsmuna að gæta, en ætla samt að ríða á vaðið. Ef við lítum yfir háttvirt Al- Pennavinir óskast „Ég er 53ja ára gamall Þjóðverji og óska eftir að komast í penna- samband við íslendinga. Ég safna frímerkjum og hef mikinn áhuga á menningu og þjóðlífinu á Islandi. Ég skrifa á þýsku og ensku. Herwig Labahn Stendaler Str. 84 39646 Oebisfelde Deutschland þingi íslendinga, hvað skyldi um- ræða um Tíbet og þau fjöldamorð er þar hafa átt sér stað, oft komið til umfjöllunar í þingsölum? Eða hversu margar greinar hafa birst í íslenskum dagblöðum til hjálpar eða stuðnings Tíbet?“ íþróttahús Þórs er fyrír bömín Birna hringdi fyrir hönd nokk- urra foreldra í Glerárhverfi: „Við viljum koma okkar sjón- armiðum að, í sambandi við um- ræðuna um íþróttahús á félags- svæði Þórs, sem foreldrar bama í hverfinu. Ástandið eins og það er í dag er auðvitað algerlega óviðun- andi. Við erum að keyra krakkana út og suður um bæinn á æfingar, á a.m.k. 3 staði, eða senda þau með strætó. Hins vegar hittast krakkar úr ólíkum hópum aldrei á einum stað, sem hefur afar slæm áhrif á félagsandann. Við foreldarar viljum því minna á í allri þessari umræðu, að íþróttahús á félagssvæði Þórs er fyrst og fremst framkvæmd sem nýtast mun börnunum vel.“ Þriðjudagur 21. nóvember 1995 - DAGUR - 5 Jólakort til styrktar Flateyringum Ragnar Jónsson skrifar: I ljósi atburða 26. október á Flateyri vil ég geta þess að ég hef ákveðið að gefa út jólakort til styrktar þeim sem eiga um sárt að binda. Állur ágóði af sölu kort- anna mun renna til þeirra fjöl- skyldna sem misst hafa ástvini sína og heimili þessa örlagaríku nótt. Ég vil geta þess að sonur minn sem er búsettur á Flateyri og bjó á snjóflóðasvæðinu en var nýfluttur neðar á eyrina og af Guðsblessun var ekki meðal þeirra sem lentu í snjóflóðinu. Því vil ég í einlægni og góðri trú leggja mitt af mörk- um til aðstoðar í þeim hörmung- um sem dunið hafa yfir íbúa Flat- eyrar með útgáfu jólakorts „Krist- ur læknar sjúka" eftir Guðmund Thorsteinsson (frumdrög að altar- istöflu). Ástæða þess að gefa út jólakort með mynd Muggs „Kristur læknar sjúka“ er sú að Jesú kom í heim- inn sem ljós heimsins, kærleikur- inn og sú stoð sem við getum allt- af reitt okkur á í raunum okkar í þessu lífi. Ég votta Flateyringum dýpstu samúð mína. Kortin eru seld í Esju við Norðurgötu á Akureyri. Gleymið ekki gang andi vegfarendum Lesandi á Akureyri hringdi og vildi vekja athygli á því að oft gleymdist að gera ráð fyrir gangandi vegfarendum á Akureyri og væri gott dæmi um þetta snjó- ruðningur eftir októberhretið þeg- ar víða hafi láðst að ryðja gang- stéttir. Þetta komi gangandi veg- farendum afar illa, ekki síst bama- fólki með bamavagna og - kermr. Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107,600 Akureyri Sími46 26900 Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, föstudaginn 24. nóvember 1995 kl. 10, á eftirfarandi eignum: Karlsbraut 21, Dalvík, þingl. eig. Guðrún Benediktsdóttir, gerðar- beiðandi Lífeyrissjóður Austur- lands. Melasíða 8L, íb. 302, eignarhl. Ak- ureyri, þingl. eig. Ingibjörg Elín Árnadóttir, gerðarbeiðandi Sýslu- maðurinn á Akureyri. Múlasíða 1A, íb. 101, Akureyri, þingl. eig. Lilja Sigurðardóttir, gerð- arbeiðandi Akureyrarbær. Sunnuhlíð 2, Akureyri, þingl. eig. Fjölnir Sigurjónsson, gerðarbeið- endur Akureyrarbær og Sýslumað- urinn á Akureyri. Víðilundur 18B, Akureyri, þingl. eig. Hulda Ásbjarnardóttir, gerðarbeið- andi íslandsbanki h.f. Lækjargötu 12. Sýslumaðurinn á Akureyri 20. nóvember 1995. VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 18.11.1995 VINNINQAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 at 5 0 4.396.201 3 147.400 3. 4al5 85 8.970 4.: 2.583 680 Heíldarvinningsupphæð: 7.357.291 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR TRUST margmiðlunartölvur - fyrir heimilið - fyrir námið - fyrir Internetið LVUTÆKI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.