Dagur - 21.11.1995, Side 7

Dagur - 21.11.1995, Side 7
Þriðjudagur 21. nóvember 1995 - DAGUR - 7 Knattspyrna: Andri gekk til liðs við Fýlki Andri Marteinsson, hefur ákveðið að leika með Fylki næsta sumar. Andri var ein af styrkari stoðum Þórsliðsins síðasta sumar, en hann gekk til liðs við Akureyrarliðið eftir að hafa hætt sem þjálfari Fjölnis. Gauti hefur æft með KA Nær öruggt er að Gauti Laxdal, sem leikið hefur með Fram undan- farin ár, gangi til liðs við KA. Ekki hefur þó verið gengið frá fé- lagaskiptum en Gauti hefur æft nreð Akureyrarliðinu undanfarið. Að sögn Arna Jóhannssonar, for- manns knattspymudeildar KA, telur hann góðar líkur á að Dean Martin, sem nú leikur með Brent- ford, klæðist gulu og bláu næsta sumar. Arni sagði að samningur hans við enska liðið myndi ekki hindra hann í að leika með KA, hins vegar hafa fleiri íslensk lið sýnt honum áhuga. Úti er ævintýri... KA lauk þátttöku sinni í Evrópukeppni bikarhafa í Slóvakíu, þar sem liðið mátti þola sjö marka tap gegn Kosice. A myndinni má sjá KA-liðið í lest í Kosice, Helgi Arason og Heiðmar Felixson eru hægra megin á myndinni. Mynd: Alfreð Almarsson Knattspyrna: Davíö til Þórs Davíð Garðarsson gekk um helgina frá félagaskiptum í Þór og er hann þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Þórsara á stuttum tíma en fyrir skömmu skiptu þeir Bjarni Sveinbjörns- son og Atli Már Rúnarsson yfir til Þórs, en þeir léku báðir með 3. deildarliði Dalvíkur í fyrra. Davíð lék með Valsmönnum í 1. deildinni sl. sumar en var þar áður hjá FH. Hann hefur bæði leikið sem varnarmaður og í fram- línunni hjá Val þar sem hann var fundvís á leiðina í mark andstæð- inganna og skoraði fimm mörk á síðasta sumri fyrir Valsmenn. „Ég er mjög ánægður yfir því að fá Davíð yfir til okkar. Hann getur spilað nær allar stöður og ég er viss urn að hann kemur til með að styrkja okkur,“ sagði Nói Björnsson, þjálfari Þórs, sem seg- ist hafa augastað á fleiri leik- mönnum. Þjálfarinn segist vonast eftir því að Davíð flytji til Akureyrar í janúar og muni þá geta byrjað að æfa með liðinu en ekki var gengið frá því um helgina. þeim Hauki Arnórssyni og Arn- óri Gunnarssyni. Kristinn verður í Bandaríkjunum fram að jólum en mun korna heim í jólafrí. • Blaklið KA átti sinn slakasta leik á tímablinu þegar liðið steinlá fyrir Stúdentum 0:3 í KA- heimilinu á föstudagskvöld. KA veitti aðeins mótspymu í fyrstu hrinunni, skoraði þá níu stig en tapaði síðustu tveimur hrinunum 3:15 og 0:15. • Sigurður Jónsson, knatt- spyrnumaðurinn úr IA, er með tilboð frá sænska liðinu Örebro. Sigurður hyggst velta tilboði sænska liðsins fyrir sér í nokkra daga. Arnór Guðjohnsen endur- nýjaði nýlega samning sinn við Handbolti - Evrópumótin: Úrslit að mestu eftir bókinni Síðari leikirnir í sextán liða úrslitunum í Evrópukeppni bikarhafa fóru fram um helgina. Kosice sló sem kunnugt er KA út úr keppn- inni en segja má að flest úrslitin hafi verið nokkuð eftir bókinni en greinilegt er að heimavellirnir skipta miklu máli. Fjögur Austur-Evr- ópulið og fjögur úr vesturhlutanum eru eftir í keppninni. Urslit urðu þessi í 16-liða úrslitum, fyrri og síðari leikur og þá úrslit samanlagt. KA (Íslandi)-Kosice (Slóvakíu) Red Star (Júgóslavíu)-Banik Karvina (Tékklandi) Luzern (Sviss)-H. Ankara (Tyrklandi) Vigo (Spáni)-I.C.Kielce (Póllandi) Pelister Bitola (Makedóníu)-Haoel (ísrael) Báðir leikirnir fóru fram í Makedóníu. Sparkasse S.B. (Austurríki)-Teka Santander (Spáni) 20:27/16:29 36:56 Vitrolies (Frakkl.)-M. Baja Mare (Rúmeníu) 29:18/31:18 60:36 Lemgo (Þýskalandi)-Volgograd (Rússlandi) 28:24/25:21 53:45 Valsmenn töpuðu Valsmenn töpuðu síðari leik sínum í Evrópukeppni meistaraliða gegn ABC Braga í Portúgal 25:29 og því samtals 50:52. Auk portúgalska liðs- 33:28/24:31 57:59 29:18/26:34 55:52 28:19/35:29 63:48 28:24/29:35 57:59 . 23:21/23:14 • Kristinn Bjömsson, skíða- kappi frá Ólafsfirði, tók þátt í heimsbikarmóti á skíðum um helgina. Kristinn keppti í stór- svigi í Colorado í Bandaríkjun- um á föstudag en féll úr keppni eftir að hafa keyrt út úr brautinni í fyrri ferðinni. Kristinn átti að keppa daginn eftir í svigi en ekki tókst að afla upplýsinga um árangur hans. • Kristinn hefur æft að undan- förnu undir stjórna pólska lands- liðsþjálfarans Kaminski ásamt Árni Stefánsson, liðsstjóri KA: Óhress með dómgæsluna Leikmenn Kosice fögnuðu sigri í leiknuin gegn KA á sunnudaginn og eru komnir áfram í keppninni. Kristinn Björnsson. „Við erum mjög óhressir við dómgæsluna og allan aðbúnað. Þeir fengu að komast upp með fólskubrot á meðan við vorum reknir útaf fyrir litlar sakir. Þrír okkar, Patti, Erlingur og Brói voru komnir með blóðnasir þeg- ar eftir kortersleik, eftir að hafa verið kýldir í andlitið, en þeir voru reknir á fætur, sama þó blæddi úr þeim og ekkert spjald gefið,“ segir Árni Stefánsson, liðsstjóri KA, sem var mjög óhress með pólsku dómarana í Kosice í leik KA við samnefnt lið á sunnudaginn. „Þrívegis lentu homamennimir í því að fá vamarmenn á móti sér í gegn um teiginn og þeim var hreinlega „slátrað“. I eitt skiptið rétt náði Björgvin að skjóta áður en hann lenti á hnakkanum, ekkert var dæmt og þeir skoruðu í stað- inn úr hraðaupphlaupi. Ég á eftir að skoða þennan leik á mynd- bandi, en dómgæslan horfði svona við mér í Kosice,“ segir Ámi og bættir við að allur aðbúnaður í kring um þennan leik hafi verið skelfilegur og langt frá því sem tíðkast í Evrópukeppni. „Standardinn“ í Evrópukeppni er þriggja stjömu hótel, en þetta var bara tveggja stjömu, rnjög sóðalegt og maturinn vondur. Við vorurn samt ákveðnir í því að gera okkar besta, en lentum í miklu mótlæti. Við lærðum ýmislegt á þessu, en þarna kynntist ég hlut- um sem ég hélt að væru ekki til,“ sagði Árni. Nyjar perur ins eru eftirtalin lið eftir í Evrópukeppni meistaraliða: GOG (Dan- mörku), Bidasoa (Spáni), THW Kiel (Þýskalandi), Barcelona (Spáni), Banka Zagreb (Króatíu), Winterthur (Sviss) og Fatex Vesgorem (Ung- verjalandi). Það er ekki óalgengt að miklar sveiflur séu í heima og úti- leikjum, ASKÖ frá Austurríki átti til að mynda þrjú mörk á Barcelona eftir 30:27 sigur í Austurríki. Spánverjarnir sigruðu hins vegar í heima- leiknum með átján marka mun, 35:17 og sveiflan því 21 mark á milli leikjanna. Munið ódýru morguntímana Sólstofan Hamrí Sími 4612080

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.