Dagur - 21.11.1995, Side 8

Dagur - 21.11.1995, Side 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 21. nóvember 1995 í ÞRÓTTI R Eik og Óðinn fengu gullið í Haustmótinu A-lið Eikar gerði sér lítið fyrir og sigraði í öllum sjö leikjum sínum á mótinu. Sumar þeirra byrjuðu ekki að æfa blak fyrr en í öldungaflokki en aðrar eiga að baki leiki með yngri flokkum og meistaraflokki. Tæplega hundrað manna hópur kvenna af Norðurlandi tók þátt í Haustmóti KA í blaki, sem hald- ið var í KA-heimilinu á laugar- daginn. Mikill áhugi er á þessari íþrótt og þá kannski sérstaklega í eldri flokkum. Keppendur á mótinu voru þó úr flestum ald- urshópum, allt frá sextán ára og fast að sextugu. Sjö félög af Norðurlandi sendu lið til mótsins, Iþróttafélagið Eik, KA, Freyjur og Oðinn, sem öll eru frá Akureyri, sendu tvö lið til keppni og Rimar frá Dalvík, Krækjur frá Sauðákróki og Skaut- ar frá Akureyri voru með eitt lið. Stúlkurnar úr A-hópi Eikar sigruðu í A-riðlinum, 2. flokkur KA varð f öðru sæti og B-hópur Eikar í þriðja sæti. A-lið Óðins varð hlutskarpast í B-riðlinum, Krækjumar frá Sauðárkróki höfn- uðu í öðru sæti og B-Iið Óðins í því þriðja. Dagur var á staðnum og tók nokkra keppendur tali. Hægt að stunda blak í tugi ára „Ef fólk byrjar í blaki á annað, borð getur það verið í þessari íþrótt í tugi ára. Menn gleyma því ekki svo glatt sem þeir hafa lært, það er verra þegar fólk byrjar á miðjum aldri, þá getur það oft átt erfitt með að ná tökum á íþrótt- inni,“ sagði Jóhanna Skaptadóttir, ein þeirra kvenna sem lék með liði Rima. „Það er töluverður áhugi á blaki á Dalvrk. Það er alltaf einhver end- umýjun í liðinu, en kjaminn hefur verið sá sami frá því við byrjuðum svo sennilega er meðalaldurinn nokkuð hár. Sú elsta er 45 ára en sú yngsta átján ára,“ sagði Jóhanna og bætti við að líklega hefði karla- liðið náð lengra í þessari íþrótt. „Það hefur aðeins vafist fyrir okk- ur að ná tökum á tækninni en þetta er þó allt á réttri leið.“ Þær elstu yfir fimmtugt „Þær elstu eru búnar að spila með Eikinni í sextán til tuttugu ár og svo hafa verið að tínast inn yngri konur sem hafa verið að æfa með öðrum liðum. Við erum frá þrjátíu ára og þær elstu eru komnar yfir fimmtugt," segir Ósk Jórunn Árnadóttir, leikmaður íþróttafé- lagsins Eikar frá Akureyri. Eikin sendi tvö lið á Haustmót- ið og sagði Ósk að skiptingin á milli A- og B-liðs, væri að mestu bundin við aldur, eldri konurnar eru í B-liðinu en þær yngri skipa A-Iiðið, sem reyndar vann annan riðil mótsins með því að sigra í öllum sjö leikjum sínum. „Aðalmótið er íslandsmótið sem haldið er á vorin en mót eins og þetta er gott til að halda okkur við efnið. Við getum ekki kvartað yfir að fá ekki mót, það eru mörg mót í gangi yfir veturinn. Við fór- um til Stykkishólms í október og svo reiknum við með að það verði mót á Húsavík í byrjun janúar. Eikin stendur fyrir Þorramóti í febrúar og KA er með vormót í mars. Síðan eru mót fyrir sunnan, þannig að það er af nógu að taka,“ sagði Ósk. Rósa Þóra Hallgrímsdóttir (t.v.), Ragna Sigfinnsdóttir og Ásta Þorsteins- dóttir mynda hluta af liðinu Freyjur, sem á rætur sínar að rekja til starfs- fólks FSA. Dalvíkingar attu sina fulltrúa á Haustmóti KA á laugardaginn. í viku eins og flest þau lið sem kepptu á mótinu. Það var lið Rima sem er á myndinni. Þær æfa tvisvar Freyjurnar Freyjur heitir lið sem byggt er upp á starfsmönnum Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri og hefur verið við lýði í áratug og leikmenn liðs- ins sem rætt var við, voru hinir ánægðustu með árangurinn. „Þetta er alvörublak, ekkert gauf og við æfum minnst tvisvar í viku,“ sagði Ásta Þorsteinsdóttir. „Við erum nokkuð ánægðar með árangurinn, þetta hefur lagast hjá okkur eftir því sem liðið hefur á daginn og við værum sjálfsagt ennþá betri ef við værum að spila í kvöld,“ sögðu þær í mótslok. Þó félagið hafi verið stofnað í kringum starfsfólk á sjúkrahúsinu eru einnig aðrar konur úr bænum í liðinu og að sögn þeirra sem rætt var við er gjarnan skipst á heim- sóknum við nágrannaliðin á Dal- vík, Húsavík og á Sauðárkróki. „Þetta er frábær íþrótt, það fínnst okkur að minnsta kosti,“ sagði Rósa Þóra Hallgrímsdóttir og greinilegt var á öllu að Freyjunum leiddist ekki á laugardaginn. Upphaflega stóð til að karlalið mundu einnig keppa á mótinu en eitthvað vafðist það fyrir körlunum að skrá lið sín inn í tæka tíð. KA- menn hafa fullan hug á því að bæta úr því og koma upp sams konar móti fyrir karlana á næstunni. Óe< viðh< síð - segir Alfreð Gíslaso KA-liðið féll út úr Evrópukeppni bikarhafa á sunnudag þegar Iiðið mátti þola tap, 31:24, fyrir Kos- ice í síðari leik liðanna í Slóvak- íu. Samtals sigraði Kosice því 59:57 og er komið í átta Iiða úr- slit keppninnar en KA er úr leik. Leikur liðann var mjög kafla- skiptur en það voru KA-menn sem byrjuðu betur, skoruðu sjö mörk úr fyrstu átta sóknum sínum og leiddu 7:6. f síðari hluta fyrri hálf- leiksins snerist leikurinn Slóvök- um í hag og þeir leiddu 17:11 í leikhléi. KA-hóf síðari hálfleikinn með því að taka Peter Jano, leikstjórn- anda og helsta skotmann Kosice, úr umferð og það skilaði árangri. Munurinn minnkaði niður í fjögur mörk, 25:21 og KA-menn áttu möguleika á að minnka muninn í þrjú mörk. Það varð ekki, Kosice Urslit Úrslit á Pizza 67 mótinu í inn- anhússknattspyrnu sem fram fór í íþróttahöllinni á dagskvöld og laugardag. föstu- A-riðiIl: Þór(l)-ÞSV 11:1 KA(2)-SM 2:2 ÞSV-SM 0:0 KA(2)-Þór( I) 0:0 Þór(l)-SM 6:2 KA(2)-ÞSV 6:0 B-riðilI: Þór(3)-KA(I) 1:1 Dalvík-Neisti 5:2 KA( 1 )-Dalvík 4:6 Neisti-Þór(3) 0:4 KA(1)-Neisti 2:1 Þór(3)-Dalvík 0:3 C-riðiIl: Leiftur-Laugar 2:0 KS-Þór(2) 1:2 KS-Laugar 2:1 Leiftur-Þór(2) 7:3 Þór(2)-Laugar 3:4 Leiftur-KS 0:1 Milliriðill: KA(2)-Þór(3) (Hörður - Elmar) 1:1 Þór( 1 )-KS 4:3 (Hreinn 2, Atli, Birgir - sjálfsm., ??, Steingrímur. Þór(3)-Leiftur (- Júlíus 2) 0:2 Dalvík-Þór(l) 3:4 (Örvar 2, Heiðar 1 - Páll, Árni, Örlygur) Hreinn, Leiftur-KA(2) (Júlíus 2, Sverrir 2, Heiðar-) 5:0 KS-Dalvík 1:7 (Óðinn - Heiðar 3, Örvar 2 Jakob) Jónas, Leikur um 3.-4. sætið: Dalvfk-Þór(3) (Heiðar, Örvar, Jóhann -) 3:0 Leikur um 1.-2. sætið: Þór(l)-Leiftur 5:2 (Árni Þór 3, Hreinn, Páll P. Sverrir) - Páll,

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.