Dagur - 21.11.1995, Page 9
Þriðjudagur 21. nóvember 1995 - DAGUR - 9
FROSTI EIÐSSON
Handknattleikur - Evrópukeppni bikarhafa:
Milegur stuðningur
nmaliðið en engu að
ur dýrmæt reynsla
n, þjálfari KA, eftir tap gegn Kosice, sem sigraði KA samtals 59:57
jók við muninn en KA eygði
möguleika á áframhaldandi
keppnil Akureyrarliðið var með
knöttinn í stöðunni 29:24 þegar
ein og hálf mínúta var til leiksloka
en heimamenn skoruðu tvö síð-
ustu mörkin.
Hrikaleg dómgæsla
„Það má segja að sóknarleikur-
inn hafi verið allt í lagi í heildina,
þó að ég væri ekkert yfir mig
ánægður með hann, Julian (Dur-
anona) átti til að mynda mjög
góðan leik. Vömin var ekki nógu
sterk en ég held að dómgæslan
hafi ráðið úrslitum í þessum leik.
Hún var alveg hrikaleg og ég get
ekki sagt að ég hafi verið ánægður
með ummæli stjórnarmanna í DV
um að dómgæslan hafi verið sann-
gjörn, hún var út í hött, annað lið-
ið fékk að brjóta af sér eins og það
vildi án þess að dæmt væri á það
og ég er fegnastur því að enginn
leikmanna okkar meiddist varan-
lega. Mörg brot sem gefið er rautt
spjald fyrir hér heima var ekki
flautað á í leiknum," sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari KA.
„Dómararnir voru mjög hlut-
drægir í fyrri hálfleik, en breyttu
um stefnu fyrstu tuttugu mínút-
urnar í þeim síðari og leyfðu þá
allt í einu mun minna. Þá var
munurinn kominn niður í fjögur
mörk, en þá færðist allt í sama
horf og þeir fengu óeðlilega hjálp.
Segja má að dómarnir hafi verið
kennslubókardæmi um það hvern-
ig hægt er að hjálpa öðru liðinu.
Þegar fyrirsjáanlegt var að við
værum að komast í dauðafæri
dæmdu þeir fríköst á einhver brot
sem þeir hefðu aldrei dæmt á ann-
ars,“ sagði Alfreð. Hann sagðist
þó hafa kynnst svona dómgæslu
áður á ferlinum í Evrópumótum.
- En má kannski kenna síðari
hálfleiknum í fyrri leik liðanna, á
Akureyri, þar sem Kosice náði að
breyta sjö rnarka mun niður í
fimm, unt það að KA er fallið úr
keppninni?
„Við hefðum vissulega getað
staðið betur að vígi eftir fyrri leik-
inn en veikindi og fleira spiluðu
inn í það hjá okkur. Eg held að
þetta hafi verið dýrmæt reynsla
fyrir strákana, við getum nú snúið
okkar af krafti að deildinni og bik-
arnum. Ég held að stjómarmönn-
um létti mörgum hverjum að losna
við þá óvissu og þann kostnað
sem óhjákvæmilega fylgir þátt-
töku í Évrópukeppni," sagði Al-
freð.
Mörk KA: Julian Duranona 12/4,
Patrekur Jóhannesson 5/1, Björgvin
Björgvinsson 3, Leó Öm Þorleifsson 3,
Jóhann G.Jóhannsson 1.
.
Julian Duranona átti góðan leik gegn Kosice en það dugði KA-mönnum skammt. Mynd: BG
.
Frá leik Akureyrarliðanna, KA-
2 og Þórs-3 í milliriðlunum sem
lyktaði með 1:1 jafntefli.
Sigurliöiö
Þórsarar sigruðu á Pizza 67
mótinu í innanhússknattspyrnu,
sem haldið var um síðustu helgi.
A myndinni hér til hliðar má sjá
sigurliðið en það var skipað eft-
irtöldum leikmönnum. Frá
vinstri í aftari röð; Páll Pálsson,
Hreinn Hringsson, Árni Þór
Árnason og Nói Björnsson þjálf-
ari. Neðri röð frá vinstri eru
þeir Örlygur Helgason, Atli
Már Rúnarsson og Birgir Þór
Karlsson. Á myndina vantar Pál
Gíslason, sem lék með liðinu í
riðlakeppninni. Myndir: bg
Knattspyrna - Pizza 67 mótið:
Árni Þór með
þrennu í úrslitum
gegn Leiftri
Þorsarar stóðu uppi sem sigur-
vegarar á Pizza 67 mótinu í inn-
anhússknattspyrnu, sem haldið
var í íþróttahöllinni á Akureyri
á föstudagskvöld og laugardag.
Bestu félögin á Norðurlandi
sendu öll lið í keppnina og
reyndar voru Akureyrarliðin
bæði með fleira en eitt lið, því
Þórsarar sendu þrjú lið til
keppninnar og KA-menn tvö.
Það var Þór-1 sem hreppti gull-
ið að þessu sinni eftir skemmti-
lega viðureign við Leiftur, sem
skartaði tveimur af nýju mönnum
sínum, þeim Daða Dervic og Auð-
uni Helgasyni. Þórsarar byrjuðu
mun betur, komust í 2:0 með
mörkum Árna Þórs Árnasonar en
Leiftursmenn svöruðu fyrir sig
nteð tveimur mörkum með ör-
skömmu millibili og voru þeir Páll
Guðmundsson og Sverrir Svenis-
son þar að verki eftir snarpar
sóknir. Hreinn Hringsson kom
Þórsurum yfir fyrir leikhlé og
Árni Þór bætti þriðja marki sínu
við með glæsilegu skoti sem hafn-
aði efst upp í markhorninu. Páll
Pálsson átti svo síðasta orðið fyrir
Þór sem vann sanngjaman sigur á
mótinu, en liðið var það eina sem
fór í gegn um keppnina án taps.
„Þetta er allt öðru vísi að spila
inni, þó að völlurinn sé mun styttri
þá er ég ekki frá því að þetta sé
erfiðara, enda reynir þetta mikið á
og það er ntikið um snöggar
hreyfingar," sagði Birgir Þór
Karlsson, fyrirliði Þórsara. „Ég
held að við höfum komið mun af-
slappaðri heldur en Leiftursmenn í
úrslitaleikinn og það hafði mikið
að segja. Þá fannst mér þeir spila
frekar óskynsamlega, við lögðum
áherslu á að spila skynsamlegan
varnarleik en þeir gleymdu sér oft
í vöminni,“ sagði Birgir Þór.
Hvort úrslitin í mótinu gefa
einhverjar vísbendingar um gengi
liðanna næsta sumar skal ekki
dæmt um hér. Líklega hefðu Sigl-
firðingar sem leika í 4. deildinni
ekki mikið að segja í 1. deildarlið
Leifturs á stórum knattspymu-
velli. Öðru máli gegnir um í inn-
anhúsknattspyrnu og KS vann til
að mynda 1:0 sigur í viðureign
liðanna. Leiftursliðið hefur sér
það þó til málsbóta að það hefur
sama og ekkert spilað saman í vet-
ur.
Dalvíkingar gerðu sér lítið fyrir
og slógu KA-1 út úr keppninni í
bráðfjörugum en kaflaskiptum
leik þegar í riðlakeppninni, þar
sem KA pressaði stíft í byrjun og
uppskar þrjú fyrstu mörkin. Dal-
vfkingar vöknuðu til lífsins og
uppskáru sigur 6:4 í einurn af
skemmtilegri leikjum mótsins og
sigruðu síðan Þór-3 örugglega í
leiknum um þriðja sætið.
Liðin léku með fjóra útispilara.
og einn markvörð. Það var Veit-
ingastaðurinn Pizza 67 sem gaf
sigurliðum úttektarverðlaun.
Hreinn Hringsson fékk verðlaun
fyrir að vera markahæstur en hann
skoraði tíu mörk í sex leikjum liðs
síns. Heiðar Sigurjónsson, sem lék
með Þrótti sl. keppnistímabil,
skoraði níu mörk fyrir Dalvík og
sama gerði Sverrir Sverrisson fyr-
ir Leiftur. Ámi Þór Árnason skor-
aði átta mörk en þessir fjórir voru
markahæstir.