Dagur - 21.11.1995, Side 16
STÆKKIIN+RAMMI=900,-
15x21cm stækkun
20x28cm stækkun
og rammi á aðeins
kr. 1290.-
GPedí6myndir‘
Skipagata 16 • 600 Akureyri * Simi 462 3520
Sýningum á Drakúla
hjá LA er lokið:
„Vissulega
vonbrigði*
- segir Viðar Eggertsson
Auðvitað eru viss vonbrigði
að fleiri skyldu ekki sjá sýn-
ingu okkar um Drakúla. Um
1.000 manns sáu þessa upp-
færslu sem okkur, sem að henni
stóðu og fleirum, þótti takast
mjög vel; leiklistarlega séð,“
sagði Viðar Eggertsson, leikhús-
stjóri Leikfélags Akureyrar, í
samtali við Dag.
Lokasýning á verkinu um Dra-
kúla var á laugardagskvöld uni
þarliðna helgi. Viðar segir að
venjulega sé sýningum á haust-
verki atvinnuleikhúsanna að ljúka
um mánaðamótin nóvember og
desember og þá settur allur kraftur
í æfingar á jólasýningu. Segir
Viðar að leikfélagsfólk á Akureyri
hefði því ákveðið að hætta sýning-
um á Drakúla einhverju fyrr en
staðið hefði til, en hella sér þess
frekar af tvíefldum þrótti í upp-
færsluna á Sporvagninum Gimd
eftir Tennessee Williams, sem
frumsýnd verður á þriðja dag jóla.
Henni leikstýrir Haukur Gunnars-
son, en hanin hefur getið sér góðs
orðs sem leikhúsmaður í Noregi.
-sbs.
Húsavík:
Klippt af bílum
Astandið er leiðinlegt í þess-
um málum,“ sagði lögreglan
á Húsavík, sem hefur verið að
klippa númer af bflum undan-
farna daga.
Það hafa á fjórða tug bíla í
sýslunni misst númeraplötur sínar
þar sem eigendunum hefur láðst
að l'æra þá til skoðunar í tíma,
greiða af þeim gjöld eða trygging-
ar. IM
Ágætis andi um borð
- segir skipstjórinni á Akureyrinni EA sem í nótt kom meö
Samherjatogarinn Akureyrin
EA-110 kom til Akureyrar
um miðnættið í gær með mesta
aflaverðmæti sem togari hefur
komið með úr einni veiðiferð,
eða liðlega 120 milljónir króna.
Túrinn stóð í 66 daga sem er
með því lengra sem þekkist í
seinni tíð, en þegar síðutogar-
arnir voru á saltfískveiðum við
Grænland á sjöunda áratugnum
stóð túrinn í allt að þrjá mánuði.
Aflinn er 430 tonn af frystum
afurðum, aðallega stórum þorski,
sem er um 1.100 tonn upp úr sjó,
og segir Sturla Einarsson skip-
stjóri að það sé ekki mesti afli sem
eitt skip hafi borið að landi, en
metafla til Akureyrar
hins vegar hafi verið hægt að
koma milli 15 og 20 tonnum til
viðbótar í frystilest.
Akureyrin EA verður á Akur-
eyri fram undir næstu helgi en fer
síðan í einn stuttan túr fram að jól-
um hér við land og verður Sturla
með skipið í þeim túr en einhverj-
ir úr áhöfninni fara í frí. Sturla
sagði að mannskapurinn væri bara
hress þrátt fyrir svo langa útiveru,
en haft hefur verið á orði að sam-
skipti áhafna versni til muna eftir
um 30 daga á sjó.
„Hér hefur verið ágætis andi en
það hjálpaði til að megnið af afl-
anum, milli 70 og 80%, fékkst
seinni mánuðinn í túmum og lang
kröftugast síðustu tvær vikurnar.
Það er alltaf léttara yfir mann-
skapnum þegar vel fiskast. Heim-
siglingin hefur gengið vel þar til á
sunnudag er við fengum á okkur
brælu þegar við vorum mitt á milli
Jan Mayen og íslands. Þar sem
við vorum við veiðar í Smugunni
var nánast stöðugt myrkur allan
sólarhringinn, aðeins dagsskrma
milli 9 og 10 á morgnana. Ég held
að það hafi ekki haft nein slæm
áhrif enda mannskapurinn að
mestu neðan þilja, frekar að það
hefði áhrif á okkur héma uppi að
vera stöðugt í mykri,“ sagði Sturla
Einarsson skipstjóri. GG
Lentu í
umferðaróhappi
á leið á fæð-
ingardeildina
Þeim Guðlaugu Önnu Stefánsdótt-
ur og Richard Péturssyni á Dalvík
fæddist sonur í gær á fæðingar-
deild FSA sem reyndist 13,5
merkur og 51 cm og var drengur-
inn frumburður þeirra. Þegar
drengurinn vildi í þennan heim
koma héldu þau Guðlaug og
Richard til Akureyrar sl. sunnu-
dagsmorgun. Ferðin endaði þó
skyndilega á hæðinni sunnan
Rauðuvíkur á Árskógsströnd er
bifreiðin rann á veginum, lenti á
vegarskilti og síðan út af, þó án
þess að velta. Engum varð þó
meint af í þessu óhappi, en ferð-
inni varð að halda áfram á ann-
arri bifreið. Á myndinni er hin
hamingjusama fjölskylda á fæð-
ingardeild FSA í gær. GG
DÁNFOSS
Enn ein nýjung í
sjálfvirkum ofnhitastillum
%MEUT4
Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Fryst loðna og síld seld Rússum
- í staðinn fyrir þorsk
Hraðfrystistöð Þórshafnar
hefur tekið upp ný viðskipti
við Rússa, en þeim er seld fryst
loðna og síld til manneldis en í
staðinn fær Hraðfrystistöðin
frystan þorsk til vinnslu.
A dögunum lestaöi rússneskt
flutningskip 330 tonn af frystri
loðnu og síld, og var það fyrsti
farmurinn. í gær kom flutninga-
skip til að kaupa loðnufarm, en
Gunnlaugur Hreinsson, yfirverk-
stjóri, sagði síðdegis að ekki væri
búið að semja um magnið sem
skipið tæki. A næstu dægrum er
@ VEÐRIÐ
Samskvæmt spá Veður-
stofu íslands verður veðrið
norðanlands ekkert sérstakt
í dag. Von er á austan og
norðaustan stinningskalda
og skýjuðu veðri. Þegar líða
tekur á daginn er spáð
slyddu eða rigningu. Hiti
verður á bilinu -2°C upp í
4°C og heldur kaldara á
Norðurlandi eystra.
þriðja skipið væntanlegt til að
kaupa loðnu.
Gunnlaugur sagði að viðunandi
verð fengist fyrir þessar afurðir,
loðnan og síldin væri heilfryst en
þessi viðskipti á byrjunarstigi.
Hann sagðist reikna með framtíð á
þessum viðskiptum. Gunnlaugur
CHICOGO
sagðist ekki vita hvernig frysta
loðnan væri nýtt, en hún væri ætl-
uð til manneldis.
Gunnlaugur sagði að alltaf væri
nóg að gera hjá Hraðfrystistöðinni,
sem ekki yrði hráefnislaus, hefð-
bundin vinnsla væri á rússafiski og
ferskum íslenskum fiski. IM
Innimálning
á ótrúlegu verði
m I ■ ■ (S)
® oendio vinum og ®
| i$)
t vandamönnum %
I I ■ (Q)
erlendis
$ sómssta KEA |
hansihjötið
tjffl
m
m
m
Sendingaþjónusta |
dfl!)
(jff)
dff)
tfi)
ðí
m
m
m
m
m
mmmmmmmmmmmmmmmmmm
Byggðavegi
sími 463 0377
dfr
t$)
Allar aðgerðir
eru fljótvirkari,
tenging nemans
við lokann
er enn traustari
og nýting á
heita vatninu
nákvæmari.
Einnig er hægt
að læsa
nemanum á
einfaldan hátt.
NÝR FULLKOMNARI
OFNHITASTILLIR
Á ÓBREYTTU VERÐI.
HITI hf.
Draupnisgötu 2
AKUREYRI