Dagur - 30.11.1995, Blaðsíða 9
Sviðsmynd úr Jósep, en foreldrar lögðu hönd á plóginn við búningagerð og
tæknivinnu. Myndir: IM
þetta sé heilmikil vinna. Foreldrar
hafa lagt hönd á plóginn við undir-
búninginn: Dómhildur Antonsdóttir
haft yfirstjóm með búningagerð,
Jón Amkelsson og Einar Halldórs-
son með ljósum og Ámi Sigurbjam-
arson, skólastjóri Tónlistarskólans,
með hljóðblöndun.
„Þetta er mikið verkefni en okk-
ur stjórnendunum gengur vel að
vinna saman. Það er með ólíkindum
hvað María er þolinmóð við böm-
in,“ sagði Hólmfríður Benedikts-
dóttir. Hún sagði að uppsetningin
væri menningarviðburður og fannst
fara vel á að ráðist yrði í svo viða-
mikið verkefni að þessu sinni þar
sem 100 ára afmælis skólans yrði
minnst á næsta ári.
Jósep er biblíuefni og titilhlut-
verkið syngur Pétur Veigar Péturs-
son, en hlutverk faraós syngur
Hjálmar Bogi Hjálmarsson. Sögu-
menn eru fjórar stúlkur úr Stúlkna-
kór Húsavíkur: Elísa Rún Heimis-
dóttir, Silja Garðarsdóttir, Ása Mar-
ía Guðmundsdóttir og Sigurveig
Jónsdóttir. Einnig kemur fram
englakór, 11 nemenda úr 4. bekk og
margir fleiri nemendur koma á svið,
auk hljómsveitar nemenda sem ann-
ast undirleik ásamt kennara sínum,
Valmar Valjaots. 1M
Akureyri:
Utgáftitónleikar
Byltingar í kvöld
Hljómsveitin Bylting heldur út-
gáfutónleika í kvöld, 30. nóvem-
ber, í 1929 á Akureyri og hefjast
þeir kl. 22. Auk tónlistarinnar
verða veitingar í boði Pizza 67
og farið verður með gamanmál.
Hljómsveitina Byltingu skipa:
Tómas Sævarsson, hljómborð og
raddir, Valur Halldórson, söngur,
Bjami Valdimársson, bassi, Þor-
valdur Eyfjörð, gítar og raddir, og
Frímann Rafnsson, gítar og raddir.
Tveir gestaspilarar spila með
Byltingu á útgáfutónleikunum í
kvöld; Sigfús Ottarsson, trommur-
leikari, og Karl Olgeir Olgeirsson,
hljómborðsleikari, sem einmitt á
þrjú lög á nýju plötu Byltingar
sem nefnist „Ekta“.
Hver
vegur að
heiman...
- eftir Guðmund Árna
Stefánsson
Skjaldborg hf. hefur gefið út bók-
ina „Hver vegur að heiman... - ís-
lendingar í útlöndum". Höfundur
er Guðmundur Ámi Stefánsson,
alþingismaður.
I þessari bók ræðir Guðmundur
Árni við sex íslendinga sem allir
eiga það sameiginlegt að hafa
flust af landi brott og dvalið er-
lendis við störf og leik um langt
árabil. Landsmenn vilja frá fréttir
af „sínu“ fólki á erlendri grund.
Hvað er það að fást við? Hvemig
gengur? Er gott að vera íslending-
ur í útlöndum? Hver er sýn þess-
ara Islendinga til „gamla“ landsins
eftir langa útiveru?
Viðmælendur em: Ástþór
Magnússon, athafnamaður, Eng-
landi, Gunnlaugur Stefán Baldurs-
son, arkitekt, Þýskalandi, Gunnar
Friðþjófsson, útvarpsstjóri, Nor-
egi, Linda Finnbogadóttir, hjúkr-
unarfræðingur, Bandaríkjunum,
Rannveig Bragadóttir, óperu-
söngvari, Austurríki, hjónin Þórð-
ur Sæmundsson, flugvirki, og
Drífa Sigurbjarnardóttir, hótel-
stjóri, Luxemborg.
Verð kr. 3.480.
Fimmtudagur 30. nóvember 1995 - DAGUR - 9
Tilboð frá
KEA Nettó
30. nóvember-4. desember
Svínabógur hringsk. 398 kr. kg
Svínahryggir 798 kr. kg
Bananar 108 kr. kg
Amerísk vínber, rauð steinlaus 198 kr.
Amerísk vínber, blá 245 kr.
Klementínur 149 kr.
Jólaostakaka 598 kr.
Rjómaostur m/piparbl. 69 kr.
Rjómaostur m/ reyktum laxi 69 kr.
Létt og laggott 109 kr.
Kjúklingar 575 kr. kg
Viennetta vanillu 199 kr.
Viennetta marsipan 199 kr.
Jólasmjör 500 gr. 116 kr.
Pepsi 0,5 lítri 49 kr.
Pepsi Max 0,5 lítri 49 kr.
Athugið!
Laufabrauð 20 stk. 397 kr.
Egg 1 fl. 168 kr. kg
Föstudag og laugardag:
Vörukynning
frá Osta- og Smjörsölunni.
Þegar þú uerslar ódýrt
Ath. Opið laugardag frá 09-18 og sunnudag frá 13-17.