Dagur - 08.02.1996, Side 1
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Jón Helgi ráðinn
sláturhússtjóri KÞ
Jón Helgi Björnsson, líffræð-
ingur á Laxamýri, hefur verið
ráðinn sláturhússijóri Slátur-
húss Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík. Frá ráðningunni var
gengið í vikunni.
Jón Helgi tekur við stöðunni af
Páli G. Amar sem gegnt hefur
starfi sláturhússtjóra hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga undanfarin ár en
mun láta af störfum fljótlega og
taka við starfi framleiðslustjóra
hjá Kjötumboðinu hf. í Reykjavík,
en Kjötumboðið er markaðs- og
sölufyrirtæki Sláturhúss Kaupfé-
lags Þingeyinga á höfuðborgar-
svæðinu og gegnir því hlutverki
fyrir meirihluta sláturleyfishafa á
landsvísu.
Jón Helgi Björnsson lauk stúd-
entsprófi frá MA árið 1986 og
BS-gráðu í líffræði lauk hann frá
Háskóla íslands árið 1990. Á ár-
unum 1991-1993 stundaði Jón
Helgi framhaldsnám við háskóla í
Manchester á Englandi og lauk
þaðan mastersprófi í rekstrarhag-
fræði. Frá árinu 1993 hefur Jón
Helgi verið framkvæmdastjóri
Norðurlax hf. á Laxamýri. Þá er
hann varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra. óþh
Akureyri, fimmtudagur 8. febrúar 1996 27. tölublað
Framsóknarfélag Akureyrar:
Ekki verið gerð
samþykkt um sölu
hlutabréfa í ÚA
Skuggi hf. á Akureyri:
millibili komið upp umræða um
sölu þessara bréfa. óþh
Helgi Jónsson í Ólafsfirði
Fær styrk
vegna kvik-
myndahandrits
Helgi Jónsson, kennari í Ól-
afsfirði, hefur fengið 300
þús. kr. styrk frá Kvikmynda-
sjóði til ritunar handrits vegna
kvikmyndarinnar í blóma lífs-
ins. „Eg vil ekki úttala mig um
hugmyndina, en í stuttu máli get
ég sagt að hún er alvarlegs eðlis
og fjallar um ungt fólk í Reykja-
vík,“ sagði Helgi í samtali við
Dag.
Helgi sagðist hafa unnið að
þessari hugmynd um nokkurt
skeið. Styrkurinn gæfi sér kost á
að einhenda sér að því að vinna
við handritsgerð í sumar. í það
verkefni færi hann um leið og
skólastarfí lyki, en að aðalstarfí er
Helgi kennari við Gagnfræðaskól-
ann í Ólafsfirði.
„Ég á eftir að tala betur við
Bryndísi Schram, framkvæmda-
stjóra Kvikmyndasjóðs, um
hvernig að verkinu verður staðið.
Ennþá er ekkert naglfast með
framleiðendur myndarinnar, en
vissulega hafa menn talað saman.
En ég vil ekkert segja frá þeim
málum á þessari stundu, né heldur
segja meira frá því hver söguþráð-
ur handritsins verður,“ sagði Helgi
Jónsson. -sbs.
Undirbýr lakkrísút-
flutning til Svíþjóðar
79. árg.
Jakob Björnsson um hugsanlega sölu á hlutabréfum Akureyrarbæjar í ÚA:
Ákvaróanir teknar aö
fenginni faglegri ráðgöf
Fjárhagsáætlun Fram-
kvæmdasjóðs sem við vorum
að samþykkja er eðilegt fram-
hald af þeirri bókun sem gerð var
við samþykkt á ljárhagsáætlun
bæjarsjóðs undir lok síðasta árs,“
sagði Jakob Björnsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, um þá stefnu
sem sett er fram í fjárhagsáætlun
Framkvæmdasjóðs, að öll seljan-
leg hlutabréf í eigu sjóðsins verði
seld á árinu. Þar er lang stærst
eign sjóðsins og þar með bæjarins
í Utgerðarfélagi Akureyringa hf..
Jakob leggur áherslu á að þessi
viljayfirlýsing, sem hann orðar
svo, sé ekki það sama og að verið
sé að selja hlutabréfin í ÚA. „Við
þurfum á faglegri ráðgjöf að halda
áður en teknar verða endanlegar
ákvarðanir. Það eru ýmsar hug-
myndir uppi og þær þarf að ræða
til hlítar að fengnu áliti fagaðila,“
sagði Jakob.
Sú niðurstaða liggur ekki fyrir
og á meðan segist hann eiga erfitt
með að tjá sig um ákveðnar hug-
myndir um hvernig standa eigi að
sölu á ÚA-bréfunum. Þetta varðar
t.d. það hvort hugsanlegt sé að
einum aðila verði seld öll bréfin,
hvort aðeins heimamenn koma til
greina og svo framvegis. Jakob
sagði það þó sína persónulega
skoðun að þegar menn telji ekki
rétt að bærinn sé einn með meiri-
hluta í fyrirtækinu þá geti menn
varla talið betra að afhenda þann
meirihluta einhverjum öðrum ein-
um aðila. Slíkt sé því ekki líklegur
kostur í stöðunni.
Hann sagðist jafnframt hafa
lýst því yfir að hann teldi eðilegt
að bakhjarlar fyrirtækisins yrðu
áfram í heimabyggð. Þetta þýddi
þó ekki endilega að einungis
heimamönnum yrði gefinn kostur
á að kaupa bréfin.
Jakob sagðist ekki telja að þó
bærinn seldi bréf sín í ÚA hefði
það áhrif á það samkomulag milli
bæjarins og SH um stuðning
þeirra sfðamefndu við atvinnulíf í
bænum gegn því að fá að halda af-
urðaviðskiptunum. „Bæjarstjórn
samþykkti í fyrra að hún myndi
ekki hlutast til um afurðaviðskipti
ÚA og það stendur. Afurðasölu-
samningar em því í höndum
stjórnar fyrirtækisins á hverjum
tíma,“ sagði Jakob.
Þess má geta að í bréfi SH til
bæjaryfirvalda í tengslum við
þetta mál á síðasta ári segir m.a.:
„Ákveði Akureyrarbær að selja
hlutabréf sín í ÚA að hluta eða
öllu leyti óskar SH eftir að fá
tækifæri til jafns við aðra að bjóða
í þau.“ Að sögn Jakobs hafa engir
aðilar sett sig í samband við hann
nýverið með kaup á hlutabréfum
bæjarins í ÚA í huga. HA
Sælgætisgerðin Skuggi á Ak-
ureyri undirbýr nú útflutn-
ing á lakkrís til Svíþjóðar.
Samningar eru í burðarliðnum
og fyrsta pöntunin verður
afgreidd í næstu viku. Sveinn
Brynjar Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Skugga, kveðst
binda vonir við að um verulega
stórt dæmi geti orðið að ræða,
ef allar forsendur ganga upp.
„Þetta mál hefur verið í þróun
í nokkra mánuði. Við erum að
framleiða besta lakkrís í heimi
og vildum því leyfa fleirum en
íslendingum að njóta þessa með
okkur. Því settum við okkur í
samband við sænska aðila, sem
sýndu þessu strax áhuga. Við er-
um að tala um lakkrísreimar- og
borða, sem seldar yrðu í 200
gramma pokum. Ég á von á því
að við afgreiðum tilraunasend-
Albúnir í útflutning. Sveinn Brynjar, t.v., og Björn Páisson við sælgætis-
rekkann. Mynd: -BG.
ingu í næstu viku, sem verður
eitt tonn. Ekki má minna vera.
Okkur munar mikið um allan út-
flutning, enda gæti hann orðið
mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið,"
sagði Sveinn Brynjar í samtali
við Dag.
Hjá Skugga hf. starfa nú fimm
manns við framleiðslu á nær 30
sælgætistegundum af ýmsu tagi.
„Ef allt gengur að óskum gæti
orðið framhald á þessu. Þá erum
við í virkilega góðum málurn,"
sagði Sveinn. -sbs.
Óhætt er að segja að Útgerðarfélag Akureyringa hf. sé mikið í umræðunni þessa dagana vegna hugmynda um sölu á
hlutabréfum Akureyrarbæjar í félaginu. Mynd: BG.
Gísli Kristinn Lórenzsson,
formaður Framsóknarfélags
Akureyrar, segir félagið ekki
hafa gert samþykkt um að selja
hlutabréf Akureyrarbæjar í Út-
gerðarfélagi Akureyringa hf.
„Það hefur ekki verið tekin um
það ákvörðun innan Framsóknar-
félags Akureyrar að selja hluta-
bréfin. En væntanlega verður þetta
mál tekið til umfjöllunar í félag-
inu,“ sagði Gísli.
Gísli Kristinn sagði að umræða
um sölu hlutabréfa Akureyrarbæj-
ar í ÚA komi sér ekki á óvart, til
fjölda ára hafi með reglulegu