Dagur - 08.02.1996, Blaðsíða 2

Dagur - 08.02.1996, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 8. febrúar 1996 FRÉTTIR Hlutabréfin í ÚA verði seld hæstbjóðanda - er álit Þórarins B. Jónssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins Þórarinn B. Jónsson, bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, segir bæjarfulltrúa flokksins tiibúna að selja öll hlutabréf bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyringa hf. ef viðundandi verð fáist. Hann segir sjálfstæðismenn hafa feng- ið verðbréfamenn til að fara of- an í saumana á þessum málum og niðurstaða þeirrar athugunar hafi styrkt menn í þeirri trú að raunhæft sé að fá allt að einum milljarði króna hærra verð fyrir bréf Akureyrarbæjar í ÚA en menn hafí talið fram að þessu. Þórarinn segir að þegar rætt sé um sölu hlutabréfa Akureyrarbæj- ar í ÚA megi menn ekki gleyma svokölluðu innra virði félagsins. Þannig sé sá kvóti sem ÚA hafi fest kaup á og afskrifað, bókfærð- ur upp á 219 milljónir króna í reikningum félagsins. Sé horft á allan þann kvóta sem ÚA hafi nú yfir að ráða og fundið út virði hans miðað við gangverð kvóta í dag, komi í ljós að kvóti Útgerðar- félags Akureyringa hf. sé metinn á um 3,6 milljarða króna. „Þess vegna tel ég að innra virði félags- ins sé allt að 100% hærra en geng- ið 3,2. Að mínu mati er réttara að miða við 6,2,“ sagði Þórarinn. Hann sagði að menn yrðu að vera tilbúnir að svara þeirri spurningu hvemig brugðist yrði við ef ein- hver aðili byðist til að kaupa öll hlutabréf Akureyrarbæjar í ÚA á genginu 6,2. Þórarinn benti á í þessu sambandi að þótt hlutabréf- in yrðu seld til einhverra nokkurra aðila á Akureyri á mun lægra gengi, hugsanlega núgildandi gengi, þá væri engin trygging fyrir því að þeir sömu aðilar myndu ekki selja bréfin. Þórarinn segir þá afstöðu bæj- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins al- veg skýra að eigi að fela verð- bréfafyrirtæki að afla tilboða í hlutabréfin og þau verði síðan seld hæstbjóðanda. „Við viljum ein- faldlega að leitað verði eftir hæsta tilboði í UA-bréfin og við sjáum hvað út úr því kunni að koma áður en við tökum næstu skref. I okkar huga skiptir það engu máli hvort um yrði að ræða hugsanlega einn kaupanda eða marga kaupendur." „Til hvers?“ spurði Þórarinn þegar hann var inntur eftir því hvort hann teldi ekki rétt að bær- inn ætti áfram hluta bréfa sinna í ÚA, t.d. 20%. „Uppi eru aðrir tím- ar en voru. Þegar Akureyrarbær fór inn í ÚA á sínum tíma var það stórkostlegt byggðadæmi fyrir Akureyri. Núna á ÚA meirihluta í Laugafiski í Reykjadal og það stendur ekki til að flytja það fyrir- tæki þaðan. Útgerðarfélagið hefur sömuleiðis verið að kaupa hluta- bréf í Skagstrendingi á Skaga- strönd og það stendur ekki til að flytja Skagstrending þaðan. Einnig hefur ÚA farið inn í fisk- vinnslu austur á Seyðisfirði að svo ógleymdri landvinnslunni á Greni- vík og meirihlutaeign ÚA í út- gerðarfyrirtæki í Þýskalandi. Svona lítur dæmið út í dag - það eru aðrir tímar.“ Landvinnslan Sá ótti hefur m.a. komið fram í vettvangsgrein í Degi að stórlega yrði dregið úr landvinnslunni og þar með myndi hugsanlega tapast fjöldi starfa, ef Akureyrarbær seldi hlutabréf sín. Þórarinn segir í þessu sambandi að stórhættulegt sé fyrir fyrirtæki eins og ÚA og það gildi í raun um öll önnur fyrir- tæki, ef bæjarfélagið setji því stól- inn fyrir dymar og segi að það verði að halda uppi ákveðinni starfsemi sem einskonar atvinnu- bótavinnu. Slfk afstaða geti skað- að hagsmuni Útgerðarfélagsins mjög. „Sala á hlutabréfum Akureyrar- bæjar í ÚA þarf hvorki að þýða það að landvinnslu verði hætt né fyrirtækið verði flutt frá Akureyri. Utgerðaraðili í Vestmannaeyjum á stærstan hlut í Krossanesverk- smiðjunni en það stendur ekki til að flytja verksmiðjuna." Greiða niður skuldir Þórarinn sagðist ekki geta spáð fyrir um framgang þessa máls, en hann minnti á að meira að segja Alþýðuflokkurinn hafi kúvent í málinu, kratar hafi aldrei viljað heyra á það minnst að selja UA- bréfin, þeir hafi talið sig standa vörð um fyrirtækið. „Þeir eru komnir á allt aðra skoðun,“ sagði Þórarinn. - En til hvers telur Þórarinn að beri að verja þeim fjármunum sem myndu fást við sölu ÚA-bréf- anna? „í fyrsta lagi að borga niður skuldir Framkvæmdasjóðs Akur- eyrarbæjar. í öðm lagi að borga niður skuldir Akureyrarbæjar og ég teldi koma til greina að lækka skuldir Hitaveitu Akureyrar, sem aftur myndi leiða til lækkunar á hitaveitugjöldum bæjarbúa. Síðan geta menn velt fyrir sér hvort til greina komi að stofna sjóð til að styrkja uppbyggingu nýrra fyrir- tækja. En fyrsta boðorð er að borga niður skuldir þannig að við höfum meiri fjármuni til fram- kvæmda í þágu bæjarbúa," sagði Þórarinn B. Jónsson. óþh Hagsmunir allra aö bærinn selji hlut sinn í ÚA - segir Guðmundur Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um söluna. Það var bókað við samþykkt fjárhags- áætlunar bæjarsjóðs í desember að meirihlutinn ætlaði að selja hlutabréf í eigu bæjarins og áætlun framkvæmdasjóðs end- urspeglar bara þá bókum. Síðan á eftir að vinna málið sjálft,“ sagði Guðmundur Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks og formaður atvinnumálanefnd- ar. Af þessu leiðir að ekki hefur verið mótuð stefna um hvernig verður staðið að sölu hlutabréf- anna í Útgerðarfélagi Akureyr- inga, lang stærstu eigninni og þ.a.l. þeirri sem flestir horfa til. Guðmundur segir það sína skoðun að það sé öllum aðilum fyrir bestu að bærinn selji öll sín hlutabréf í ÚA. „Mér finnst vera þrír aðilar sem á að horfa á í þessu máli. Það er Akureyrarbær sem er eigandi rúmlega 50% hlutabréfa, félagið sjálft og síðan þeir aðrir hluthafar sem eiga tæp 50%. Ef við lítum á hagsmuni þessara þriggja aðila þá sýnist mér allt mæla með því að bréfin verði \ Þorrabingó Stórglæsilegt þorrabingó verður haldið næstkomandi fimmtudag 8. febrúar 1996 á Góða Dátanum. Byrjað að spila kl. 20.30. í boði er fjöldi stórglæsilegra vinninga, þar á meðal leikhúsferð, matarkarfa frá Nettó, vel útilátinn sjáv- arréttapakki, mánaðarkort frá Stúdíó Púls og síðast en ekki síst Evrópuferð með Flugleiðum. í leikhléi mæta leikarar úr Leikfélagi Akureyrar með atriði úr Sporvagninum. Einnig verður Stebbi með bráðfyndið standandi grín. Spjaldið kostar aðeins 300 krónur. Látið þetta tækifæri ykknr ekki úrgreipum ganga og mætið á Bingó á fimmtudagskvöldið. Sjávarútvegsfræðinemar H.A. X / seld. Með því vinnst að bærinn losar mikla fjármuni sem ég held að hann geti haft mun meiri arð af, jafnvel þó hann myndi bara borga upp skuldir sínar. Það skiptir hins vegar einhverju máli hverjir kaupa og okkur er áfram mjög annt um ÚA. Þess vegna er mikilvægt að það komi inn í félagið aðilar sem geta fært því eitthvað meira en bara fjármagn. Þeir komi líka með þekkingu í útgerð og fiskvinnslu. Þannig held ég að félagið standi sterkara en áður og þá ættu hluta- bréf þeirra hluthafa sem nú eiga minnihluta a.m.k. að halda verð- gildi sínu. Sterkara fyrirtæki er einnig hagsmunir þeirra sem þar vinna og þar með bæjarfélagsins alls,“ sagði Guðmundur. Hann sagði menn ekki horfa til þess að selja einum aðila öll bréf bæjarins, sem þar með yrði meiri- hlutaeigandi. Slíkt sé þó ekki úti- lokað. Því hefur verið haldið fram að þannig fengist talsvert meira fyrir bréfinn og Guðmundur sagði þama togast á peningalega hags- muni bæjarins og ábyrgð hans gagnvart öðrum hluthöfum. „En félagið er almenningshlutafélag og ég held að það sé ekki eðlilegt að einn aðili geti haft svo mikil áhrif að hann ráði lögum og lof- um. En eðli málsins samkvæmt yrði það auðvitað sama og nú er þegar bærinn er með hreinan meirihluta." Varðandi samkomulag Sölu- miðstöðvar Hraðfrystihúsanna og Akureyrarbæjar um afurðavið- skiptin á síðasta ári þegar SH flutti m.a. hluta af sinni starfsemi norður, sagðist Guðmundur ekki telja að sala Akureyrarbæjar á sín- um hlut í ÚA hefði einhver áhrif á þau mál. „Ef það var vilji félags- ins í fyrra að vera áfram í SH þá sé ég ekki að það þurfi að breytast og ekkert slíkt sem liggur á bak við okkar vilja til að selja hluta- bréfin. í fyrra snérist málið um að fá höfu.ðstöðvar ÍS en það er úr sögunni. Ef Sölumiðstöðin stend- ur sig vel í sölu afurðanna, sem ég hef enga ástæðu til að halda að hún geri ekki, sé ég ekki að breyt- ing ætti að verða á þeim málum þó bærinn selji hlut sinn í ÚA,“ sagði Guðmundur. HA ÚA verði áfram í eigu Akureyringa - er skoðun Sverris Leóssonar, fyrrv. stjórnarformanns ÚA Sverrir Leósson, fyrrverandi stjórnarformaður Útgerðarfélags Akureyringa hf., segist undrast að sjálfstæðismenn séu nú til- búnir að selja hæstbjóðanda hlutabréf Akureyrarbæjar í ÚA. Svo hafí ekki verið þegar hluta- bréf Akureyrarbæjar í Krossa- nesverksmiðjunni voru seld. „Sjálfstæðismenn meina ekkert með þessu, það er mitt mat. Þeir eru í pólitískum leik,“ sagði Sverrir. „Ég segi það hiklaust að KEA á að kaupa þessi bréf. í mín- um huga kemur ekki til greina að þessi bréf Akureyrarbæjar í ÚA fari úr bænum. Það er frumskil- yrði og forgangskrafa að hluta- bréfin verði áfram í eigu aðila á Akureyri. Þetta mál snýst ekki um krónur og aura, að fá sem mest fyrir bréfin í upphafi. Málið snýst um það að Útgerðarfélag Akur- eyringa hf. sé í eigu Akureyringa og við höfum tryggingu fyrir því að félagið verði í rekstri hér á Ak- ureyri. Fyrirtæki hafa verið að flytjast á milli landshluta og það má ekki gerast með Útgerðarfélag Akureyringa hf.,“ sagði Sverrir. Landvinnslan hefur gengið illa að undanfömu og þar er ÚA engin undantekning. Sverrir segir að það hafi ætíð verið svo í sjávarútveg- inum að einn þáttur hans gangi illa. „Núna gengur rækjan vel og sömuleiðis sjófrystingin, loðnan og sfldin. Stórfyrirtæki eins og Út- gerðarfélag Akureyringa hf. þarf að vera með fætumar alls staðar og tryggja þegar einn rekstrarþátt- ur gengur illa að aðrir rekstrar- þættir haldi vinnslunni uppi. Þó ég viti að landvinnslan eigi í erfið- leikum í augnablikinu, þá hef ég ekki svo sterkan beyg af því til lengri tíma litið og ég tel enga ástæðu til þess að hafa af því verulegar áhyggjur," sagði Sverrir Leósson. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.