Dagur - 08.02.1996, Blaðsíða 8

Dagur - 08.02.1996, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 8. febrúar 1996 MINNIN6 Olöf Aðalheiður Friðriksdóttir fæddist 7. nóvember 1914 á Selabóli í Önundarfirði og lést 23. janúar 1996 á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. For- eldrar hennar voru hjónin Frið- rik Guðmundsson, bóndi og smiður á Selabóli, Breiðadal og síðar Flateyri, f. 3. nóv. 1875, d. 29. mars 1960 og Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Súganda- firði, f. 15. apríl 1880, d. 3. júlí 1960. Þau áttu 13 börn og var Ólöf níunda í röðinni. Hin voru: Stefán, Ólöf (lést í bernsku), Torfi, Guðmundur Einar, Sig- rún, Una, María, Össur, Jón, Oddur, Magnús og Björgvin. Þau eru nú öll látin nema Una sem býr á Flateyri. Ólöf giftist 6. júlí 1940 Aðalsteini Einars- syni, síðar aðalgjaldkera Kaup- félags Eyfirðinga á Akureyri. Hann var fæddur 2. maí 1906 á Eyrarlandi og Iést á Akureyri 8. maí 1985. Foreldrar hans voru Einar Arnason, bóndi, alþingis- maður og ráðherra á Eyrar- landi, og kona hans Margrét Eiríksdóttir. Börn Ólafar og Aðalsteins eru: 1) Einar tæknifræðingur, f. 1941, fyrri kona hans var Halla Ólafsdóttir, eiga þau tvo börn og tvö barnabörn, þau skildu. Síðari kona Einars er Anna S. Björnsdóttir, eiga þau tvö börn auk þess sem Anna á tvö börn frá fyrra hjónabandi og tvö barnabörn. 2) Erlingur Friðrik tæknifræðingur, f. 1946, kvænt- ur Láru Maríu EUingsen, þau eiga tvo börn. 3) Margrét hjúkr- unarfræðingur, f. 1946, gift Matthíasi Matthíassyni, þau eiga tvö börn. 4) Gunnar Víðir smiður, f. 1947, d. 1977. 5) Gylfi hagfræðingur, f. 1950, kvæntur Nönnu Kristínu Christiansen, eiga þau þrjú börn en eitt þeirra er látið. Einnig á Gylfi dóttur úr fyrri sambúð með Sigrúnu Proppé. Olöf ólst upp í Önundarfirði, fyrst hjá foreldrum sínum en þegar móðir hennar veiktist af spænsku veikinni var hún send á fimmta aldursári í fóstur til ættingja. Þar var hún til tíu ára aldurs en fór þá til foreldra sinna á Flateyri. Ólöf lauk námi við Hjúkrunarskóla Islands vor- ið 1939 og starfaði þá hálft ár við Kleppspítalann og veturinn 1939-40 við Sjúkrahúsið á ísa- firði þar til hún fiutti til Akur- eyrar og hóf hjúskap með Aðal- steini. Þau reistu sér hús við Helgamagrastræti 24 og bjuggu þar frá árinu 1949. Árin 1956 til 1962 starfaði hún við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri, vann síðan við skólahjúkrun í Barnaskóla Akureyrar árin 1962-1964 er hún tók við starfi hjá Heilsuverndarstöð Akureyr- ar við ungbarnaeftirlit. Við það vann hún þar til hún fór á eftir- laun í okt. 1980. Meðfram hjúkrunarstörfum annaðist hún heimilis- og upp- eldisstörf og tók vikan þátt í fé- lagsstarfi. Olöf var félagi í Guð- spekifélagi Islands í um 50 ár, einnig starfaði hún í marga ára- tugi með Sam-frímúrararegl- unni og í Stúkunni Brynju á Ak- ureyri, en þar var hún gerð að heiðursfélaga. Hún var í félags- skap postulínsmálara og síðustu árin söng hún með Kór aldr- aðra. Ólöf verður verður jarðsung- in frá Akureyrarkirkju í dag fimmtudaginn 8. febrúar og hefst athöfnin kl. 13.30. Hún amma mín er nú búin að kveðja þetta líf. Hún kenndi mér að eftir þetta líf tekur annað til- verustig við og því er ég sannfærð um að nú líður henni vel og að við munum um síðir hittast aftur. Hún kveður viðburðaríkt líf, líklega hefur engin kynslóð fengið að upplifa aðrar eins umbyltingar í lífsháttum og hennar. Ég er full af söknuði vegna þess að hún var sterkur persónuleiki sem hafði mikil áhrif á alla sem í kringum hana voru. Hún var líka vön að segja að sterkasta fólkið kæmi frá Vestfjörðum, þar sem rætur henn- ar liggja og hún var svo stolt af. Hana einkenndi mikil þörf fyrir sjálfstæði, sem m.a. lýsti sér í því að hún braust áfram til náms í hjúkrun áður en hún gifti sig. Það var hennar trygging fyrir því að geta alltaf staðið á eigin fótum í lífsins ólgusjó. Ég man þegar ég var lítil hvað það var alltaf gaman að fara norður í heimsókn í Helga- magrastrætið og heimsækja ömmu og afa. Þar var ávallt margt um manninn því fjölskyldan safnaðist alltaf saman norður á Akureyri á sumrin. í minningunni er því hús- ið í Helgamagrastrætinu fullt af fólki og þar vorum við frændsyst- kinin að leika okkur inni eða úti í garðinum hennar ömmu þegar veðrið var gott. Amma ræktaði svo falleg blóm í garðinum og á sumrin þegar jurtimar voru í blóma var garðurinn svo fallegur. Ég man sérstaklega eftir rósunum, en amma var mjög natin við rækt- un þeirra. Á haustin þegar kominn var tími til að taka upp matjurtirn- ar fengum við bamabörnin rabar- bara sem við dýfðum ofan í sykur til að smjatta á. I garðinum framan við húsið er klettur. Þar vorum við barnabörnin vön að klifra í óþökk foreldra okk- ar. Amma var sannfærð um að í þessum kletti byggju álfar enda hefur þeim alveg áreiðanlega liðið vel í návist hennar. Amma var Iíka afar listræn kona og hún átti mörg áhugamál. Ég hef fáum manneskj- um kynnst sem hafa verið eins orkumiklar og framkvæmdasamar og hún amma. Hún prjónaði lopa- peysur á okkur öll barnabömin og mér er minnisstætt þegar ég fór aftur til Svíþjóðar eitt haustið hve sænsk vinkona mín öfundaði mig af lopapeysunni sem amma hafði prjónað á mig um sumarið. Henni var fleira til lista lagt. Hún málaði líka á postulín og við bömin, bamabömin og bamabarnabömin höfum öll fengið postulín sem hún hefur málað. Ég á enn diskinn með myndinni af Dísu ljósálfi sem ég fékk í afmælisgjöf þegar ég var lít- il. Hún iðkaði þetta áhugamál sitt alveg til hins síðasta og mér þykir því alveg óskaplega vænt um ket- ilinn sem hún málaði óstyrkri hendi og gaf mér í jólagjöf um síð- ustu jól. Ketillinn var sennilega eitt síðasta sem hún málaði, en það eru þessir hlutir, sem hún skapaði til að gleðja aðra, sem eru nú eftir þegar hún er farin. Hún amma var líka afar smekk- leg kona. Hún var ávallt glæsileg og hafði ánægju af því að klæðast fallegum fötum. Hún átti líka mik- ið af fallegum skartgripum en sá eftirminnilegasti er gullmenið sem hún bar alltaf um hálsinn með tákni Guðspekifélagsins og hring- rásar lífsins. Amma kveikti áhuga minn á andlegum málefnum strax þegar ég var lítil stúlka. Við áttum löng samtöl um lífið, tilgang þess og leiðir. Hin kristnu siðgæðisvið- horf og trú var sterkur þáttur í lífi hennar og uppeldi bamanna en þetta óf hún með hugmyndafræði guðspekinnar og elsti sonur henn- ar, Einar, er nú forseti Guðspeki- félags íslands. Það má að vissu leyti segja að amma hafi verið langt á undan sinni samtíð því sem ung kona fór hún að hafa mikinn áhuga á andlegum málum. En hugrækt og karma, auk skyld- leika sálanna voru hlutir sem hún hóf að kynna sér fyrir hálfri öld og hafði hún tileinkað sér mikinn fróðleik á því sviði. Hin sterka sannfæring hennar hjálpaði henni mikið þegar Gunnar sonur hennar dó aðeins þrítugur að aldri af slys- förum. Hún amma var virk í Guð- spekifélagi íslands auk þess sem hún var félagi í Sam-frímúrara- reglunni og Stúkunni Brynju. Amma varð grænmetisæta fyrir mörgum áratugum og ég hef oft velt því fyrir mér hversu erfitt það hlýtur að hafa verið að borða aldrei kjöt né fisk þegar fáar grænmetistegundir voru á boð- stólnum á Islandi. Þrátt fyrir þetta eldaði hún alveg hreint dásamleg- an mat handa okkur hinum og fiskibollurnar hennar ömmu eru frægar í fjölskyldunni. Við bama- bömin bárum alla tíð virðingu fyr- ir hugleiðsluherberginu hennar ömmu, en þangað hvarf hún ávallt stund úr degi til að hugleiða. Þá vissum við að ekki mátti trufla. 1 seinni tíð þegar ég hef farið norð- ur og búið hjá ömmu hef ég feng- Ingibjörg Magnúsdóttir Fædd 21. október 1950 - Dáin 30. janúar 1996 Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Ingibjörgu Magnús- dóttur og starfa með henni í næst- um heilan áratug. Hún var einstök kona og bæði einlægari og hjarta- hlýrri en fólk er flest. Svo var hún alltaf svo sérlega jákvæð og bjart- sýn og lífsglöð að þeir sem kring- um hana voru hlutu að njóta þess ríkulega. Ingibjörg var að auki ákaflega duglegur og traustur starfsmaður og alltaf boðin og bú- in að ganga erinda blaðsins síns, hvemig sem á stóð hjá henni sjálfri. Slfkur starfsmaður er fjár- sjóður hverju fyrirtæki. En skyndilega er Ingibjörg okkar horfin af sjónarsviðinu. Við sem eftir sitjum erum snauðari en orð fá lýst. Ég vil að skilnaði færa Ingibjörgu hjartans þakkir fyrir samfylgdina og vona að sú kveðja berist henni eftir þeim leiðum sem ekkert okkar þekkir. Þorbirni, son- unum þremur, sonardótturinni Ingibjörgu og öðrum aðstandend- um færi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur og styðja í sorginni. Fyrir hönd fyrrum vinnufélaga á Degi, Bragi V. Bergmann. ið að sofa í þessu herbergi og þar líður mér ávallt mjög vel, það er greinilega góður andi sem hefur skapast eftir áratuga hugleiðslu og jákvætt hugarfar þar inni. Það var þegar amma kom suður til að sækja fundi í margvíslegu félags- starfi sem hún bjó oft hjá okkur pabba, Nönnu og litlu systkinum mínum. Þá spjölluðum við oft saman um táknfræði og drauma og hún hafði alltaf margt að segja um Jrau mál. Ég sá hana í síðasta sinn í fyrra vor heima hjá pabba og Nönnu. Þar áttum við saman ánægjulegan dag, amma, bömin, bamabömin, bamabamabömin og tengdafólk. Einn sonarsonur hennar, hann Addi sem er menntaður ópem- söngvari frá Bandaríkjunum kom ásamt japanskri konu sinni yfir hafið og söng fyrir okkur fjöl- skylduna við undirleik píanóleik- ara. Þetta var afar hátíðleg stund sem ég mun seint gleyma. Þessi fallegi vordagur var sá síðasti sem við hittumst öll saman á meðan amma var á lífi. Það var við hæfi að hlusta á fallegan óperusöng þennan eftirminnilega dag vegna þess hve amma sjálf var mikill fagurkeri. Tónlistin var hluti af fjölskyldulífinu og fengu öll böm- in hennar og afa að læra á hljóð- færi í bernsku. Sjálf var hún síð- ustu árin í Kór aldraðra. Ég man að hún amma var orðin ósköp lúin í lok dagsins, enda átti hún ekki lengur til það þrek sem hafði ein- kennt hana alla tíð. Hún hafði átt við veikindi að stríða um all nokk- urt skeið og undanfama mánuði vissum við öll að hún amma gæti kvatt þetta líf hvenær sem væri. Eftir að afi dó árið 1985 bjó hún ein í Helgamagrastrætinu. Eg fann að fráfall hans fékk á hana þó hún bæri sig alltaf vel, því þau voru svo góðir félagar síðustu árin eftir að börnin fluttu að heiman. Þá var gott til þess að vita að Erlingur sonur hennar og fjölskylda hans voru á Akureyri og alltaf var hægt að treysta því að þau litu til með henni. Síðustu mánuðina dvaldi hún í öryggi heima hjá þeim í Þór- unnarstrætinu og var búin að koma sér vel fyrir með hluta af búslóð sinni. Það leið ekki sá dag- ur að Margrét dóttir hennar hringdi ekki til að spjalla við hana og var hún alltaf fljót að fara til Akureyrar ef eitthvað bjátaði á hjá mömmu hennar. Undir það síðasta var sérhver dagur í raun gjöf en hún amma var vel undirbúin undir brottförina. Það er skrýtið að hugsa til þess að daginn áður en ég hélt aftur til náms í Englandi eftir jólin var síðasta skiptið sem fékk að tala við hana ömmu. Það var þungbært að fá þær fréttir úl að nú væri hún farin. Það er trú mín að nú sé hún amma á góðum stað þar sem henni líður vel. Ég kveð þig amma með söknuði og þakklæti fyrir allt sem þú hefur gefið í þessu lífi. Samúðarkveðjur sendi ég allri fjölskyldunni. Elfa Ýr Gylfadóttir. Mín kæra vinkona, Ólöf, er látin. Ég sakna hennar mjög og veit að ég mun sakna hennar um ókomin ár. Hún var einstök kona, óvenju einlæg og heil í hugsun og athöfn og til hennar var alltaf hægt að leita ráða varðandi ýmis vandamál því að hún var afar réttsýn og átti mikið innsæi og visku til að bera. Ólöf var andlega leitandi alla tíð og gerðist ung félagi í Guð- spekifélagi íslands. Hún var virk- ur félagi í Akureyrardeildinni um áratuga skeið, var gjaldkeri félags- ins til fjölda ára en annaðist einnig bókasafn þess. Jafnframt þýddi hún og flutti mörg erindi og fyrir- lestra á fundum hjá félaginu, um ýmis andleg efni eftir þekkta fyrir- lesara og rithöfunda og auðgaði þannig starfsemi félagsins svo um munaði. Ég kynntist Ólöfu fyrst þegar ég flutti til Akureyrar árið 1972 og byrjaði að sækja fundi félags- ins hér. Ég tók strax eftir hversu heilsteyptur persónuleiki hún var og að hún bjó yfir þeirri visku sem aðeins þroskaðar sálir hafa til að bera. Margar voru þær orðnar heimsóknimar heim í fallegu stof- una hennar þar sem hún bauð upp á kaffi og heimabakaðar kræsing- ar. Þama sátum við og gleymdum okkur oft klukkutímum saman í samræðum um andleg málefni, ræddum hugsjónir, guðspekileg viðhorf og margs konar reynslu, bæði okkar eigin og annarra. Þess- ar stundir urðu mér dýrmætar og munu verða mér andlegt veganesti um ókomin ár. Ég vil þakka þér, kæra Ólöf, fyrir allt þitt mikla og dýrmæta framlag til Guðspekifélagsins, fyr- ir vináttu þína og heilindi. Ég veit að þú ert nú komin inn á þau svið sem við minntumst svo oft á og þú hlakkaðir til að heimsækja í fyll- ingu tímans. Fyrir hönd félaganna í Guð- spekifélaginu hér á Akureyri vil ég einnig senda þér hjartans kveðjur og þakkir fyrir störf þín. Þín vinkona, Esther Vagnsdóttir. Kveðja frá templurum á Akureyri Ólöf gekk til liðs við Góðtempl- araregluna árið 1968 og varð þá félagi í stúkunni Brynju nr. 99. Hún tók virkan þátt í starfi templ- ara hér í bæ og var ætíð reiðubúin að vinna að framgangi bindindis- mála sem og öðrum málum sem tengjast reglunni. Lengst af var Ólöf dróttseti og í yfir 20 ár sá hún um að undirbúa salinn okkar fyrir fundi. Síðustu ár gegndi hún þó embætti Varatemplars í Brynju. Um skeið sat Ólöf í stjóm fyr- irtækja IOGT á Akureyri ásamt Friðbjamarhúsnefnd, sem sá um húsið og að halda því opnu á sunnudögum í júlí og ágúst. Buðu reglusystur gestum sínum sem komu til að skoða minjasafn templara og fræðast um regluna oftar en ekki ókeypis kaffi og meðlæti. Ólöf hafði öll stig regl- unnar og sat mörg Stórstúkuþing. Hún var heiðursfélagi í st. Brynju nr. 99. Fyrir allt þetta þökkum við templarar henni góða samfylgd og allt það sem hún gerði fyrir regl- una okkar. Sjáframtíðarvonirnar vekja’ okkar dug, á varðbergi trúir að standa! Og brosandi geislarnir benda’ okkar Inig til bjartari hugsjónalanda. Þar stýrir sáfundi, er stóð oss við hlið ístaiftnu, ríkari' og máttugri en við! (Guðm. Guðmundsson) Enn er stórt skarð höggvið í okkar fámenna félagsskap, sem við köll- uðum postulínsmálningaklúbbinn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.