Dagur


Dagur - 08.02.1996, Qupperneq 11

Dagur - 08.02.1996, Qupperneq 11
Fimmtudagur 8. febrúar 1996 - DAGUR - 11 ÍÞRÓTTIR FROSTI EIÐSSON Sigursælar KA-stelpur Akureyrarliðin í fimmta aldursflokki í handknattleik gerðu góða ferð til Reykjavíkur um síðustu helgi og hrepptu flest þau verðláun sem í boði voru í 3. umferð Islandsmótsins, en keppt var í Framheimilinu. A myndinni hér að ofan má sjá sigurlið KA í A-flokki kvenna ásamt þjálfara sínum, Erlingi Kristjánssyni. Nánar verður greint frá mótinu í blaðinu á morgun. Mynd: BG Knattspyrna - A-landsliö karla: ísland tapaði 1:7 fyrir Slóveníu Stúlkur 13-14 ára Harpa Rut Heimisdóttir, Dalvík 1:06,07 Elsa Dögg Benjamínsd., Dalvík 1:18,87 Piltar 13-14 ára Skafti Brynjólfsson, Dalvík 1:08,61 Símon Steinarsson, Olafsf. 1:16,53 Viðar Svansson, Olafsf. 1:20,16 Kristján Karl Bragas., Dalvík 1:23,63 Stúlkur 15-16 ára Ásrún Jónsdóttir, Dalvík 1:12,99 Inga Lára Oladóttir, Dalvík 1:15,12 Piltar 15-16 ára Björgvin Björgvinsson, Dalvík 59,51 Þorsteinn Marinósson, Dalvík 1:06,20 Skafti Rúnar Þorsteinss., Dalvík 1:06,46 Kvennaflokkur Eva Bragadóttir, Dalvík 1:09,01 Karlaflokkur Eggert Óskarsson, Ólafsf. 1:05,19 ValurTraustason, Dalvík 1:05,96 Sigurbjöm Óskarsson, Ólafsf. 1:12,58 íslenska landsliðið í knatt- spyrnu mátti þola sitt stærsta tap í mörg ár þegar liðið mætti Slóveníu í leik á Möltu í gær. Lokatölur urðu 1:7, en þetta var fyrsti leikur mótsins og jafn- framt fyrsti leikur landsliðsins undir stjórn Loga Ólafssonar. íslenska liðið náði forystunni á 40. mínútu með marki Ólafs Þórð- arsonar en Slóvenar jöfnuðu tveimur mínútum síðar. Þeir höfðu yfir 3:1 þegar um fimmtán mínút- ur voru til leiksloka, en bættu við fjórum mörkum á þeim tíma. Logi Ólafsson, landsliðsþjálf- ari, notaði fimm varamenn í leikn- um en byrjunarliðið var þannig skipað. Birkir Kristinsson, Sigursteinn Gíslason, Ólafur Adólfsson, Þorsteinn Guðjónsson, Lárus Orri Sigurðsson, Ólafur Þórðarson, Rúnar Kristinsson, Sigurður Jónsson, Haraldur Ingólfs- son, Helgi Sigurðsson, Þórður Guð- jónsson. Næsti leikur íslands er á morg- un gegn Rússlandi og hefst hann klukkan 15:30 að íslenskum tíma. Skíðamót við Dalvík Hið árlega Kiwanismót var haldið í Böggvisstaðarfjalli við Dalvík um síðustu helgi. Það var jafnframt fyrsta mót vetrarins í fjallinu. Kenpendur voru frá Dalvík og Ólafsfirði, auk þess sem einn keppandi kom frá Húsavík. Úrslit urðu þessi: Svig: Stúlkur 11-12 ára Anna Sóley Herbertsd., Dalvík 57,32 Sara Vilhjálmsdóttir, Dalvík 59,61 Jóna Björg Ámadóttir, Ólafsf. 1:00,89 . Kristín M. Gylfadóttir, Ólafsf. 1:01,43 Elsa Hlín Einarsdóttir, Dalvík 1:03,46 Piltar 11-12 ára Bragi S. Óskarsson, Ólafsf. 52,41 Gunnlaugur I. Haraldsspn, Ólafsf. 56,95 Sigurfinnur Finnsson, Ólafsf. 57,08 Snæþór Arnþórsson, Dalvík 57,33 Kristján Óskarsson, Ólafsf. 57,42 Stúlkur 13-14 ára Harpa Rut Heimisdóttir, Dalvík 46,80 Elsa Dögg Benjamínsd. 58,15 Piltar 13-14 ára Skafti Brynjólfsson, Dalvík 47,44 Kristján Karl Bragason, Dalvík 58,20 Viðar Svansson, Olafsf. 59,11 Símon Steinarsson, Ólafsf. 1:04,94 Stúlkur 15-16 ára Ásrún Jónsdóttir, Dalvík 53,46 Inga Lára Óladóttir, Dalvík 54,43 Piltar 15-16 ára Björgvin Björgvinsson, Dalvík 40,81 Þorsteinn Marinósson, Dalvík 53,38 Karlaflokkur Eggert Óskarsson, Ólafsfirði 41,98 Valur Traustason, Dalv. Hætti keppni Stórsvig: Stúlkur 11-12 ára Anna Sóley Herbertsd., Dalvík 1:16,55 Elsa Hlín Einarsd., Dalvík 1:17,26 Jóna Björg Ámad., Ólafsfirði 1:18,41 Kolbrún Amardóttir, Dalvík 1:21,32 Ása B. Kristinsdóttir, Ólafsf. 1:22,64 Piltar 11-12 ára Ámi Freyr Ámason, Dalvík 1:15,61 Kristján Óskarsson, Ólafsf. 1:16,41 Gunnlaugur I. Haraldss., Ólafsf. 1:18,47 Guðjón B. Hálfdánarson, Ólafsf. 1:18,84 Sigurfinnur Finnsson, Ólafsf. 1:19,32 Handbolti: Úrslit standa Dómstóll HSÍ úrskurðaði í gær að úrslit leiks ÍR og ÍBV í m.fl. karla, sem leikinn var 14. janúar sl„ skyldu standa óbreytt. ÍR sigraði í leiknum, en Eyjamenn kærðu leik- inn vegna þess að ÍR-liðið tók ekki út brottvísun leikmanns í tvær mín- útur. Uppselt í flug á bikarleikinn Þau 224 sæti sem stuðningsmönnum KA-liðsins t' handknattleik buðust á sérgjöldum til Reykjavíkur, vegna bikarúrslitaleiksins gegn KA eru öll seld. Síðustu miðamir seldust fyrir kvöldmatarleytið í gær. Mikið hefur selst af niiðunt í áætlunarflugi, til að mynda var nær fullt í allar ferðir frá Akureyri til Reykjavíkur á morgun, að undan- skildu ntorgunfluginu, þar sem þó nokkur sæti voru laus. Hægt er að komast í rútuferðir suður með Sér- leyíisbflum Akureyrar á vægu verði. Ferðimar kosta kr. 2.500 og bætt verður við rútum eins og þurfa þykir. Svipaður fjöldi og gegn Val? Forráðamenn KA eiga von á svipuð- unt fjölda áhorfenda og voru á bikar- úrslitaleik KA og Vals í fyrra, en tæp- lega tvö þúsund ntanns niættu á leik- inn, sent nefndur hefur verið úrslita- leikur allra tfma, sökum gt'furlegrar spennu og skemmtanagildis. Forsala er í gangi t' Versluninni Toppmenn & sport og í KA-heimilinu, en hún hefur farið frekar rólega af stað. Handbolti gegn eiturlyfjaneyslu Félögin gangast fyrir blaðamanna- fundi í dag klukkan 16 í Reykjavtk. Umferðarráð, félögin sem eiga sæti í bikarúrslitum, KA, Víkingur, Fram og Stjaman og starfshópar gegn vímuefnaneyslu hafa tekið höndurn saman urn að tileinka bikarúrslitin baráttunni gegn eiturlyfjaneyslu unglinga, undir kjörorðinu: Forvam- arleikurinn, handbolti gegn eiturlytj- um. Karfa - Urvalsdeild: Tvísýn botn- barátta fram- undan hjá Þór Þórsarar hafa oft þurft að sætta sig við slaka dómara í leikjum sínum. Á myndinni má sjá Jón Guðmundsson, útskýra reglurnar fyrir Georg Ander- sen dómara í leiknum gegn Haukum. Jason Williford fylgist spenntur með. Mynd :BG Aðeins þrjár vikur eru þangað til deildarkeppninni í körfu- knattleik lýkur og flest bendir til að baráttan á toppi og botni deildarinnar verði hörð. Njarð- vík og Haukar eru langlíklegust til að hreppa deildarmeistaratit- ilinn, en þrjú lið eru í einum hnapp í 9.-11. sæti deildarinnar og margt þarf að breytast til að eitthvert þeirra nái 8. sæti deild- arinnar af ÍR. Þórsarar eru nú í 11. sæti deildarinnar og verði það lokaniðurstaðan, þá þarf liðið að leika aukaleiki við næst efsta liðið í 1. deild, en liðið í tólfta sæti fellur beint niður. Ef lið verða jöfn að stigum, eft- ir umferðirnar 32, þá eru það inn- byrðisviðureignir liðanna sem telja. Það dugir því Þórsurum ekki að ná Skagamönnum að stigum, þar sem ÍA hefur sigrað í öllum þremur leikjum liðanna til þessa. Þórsarar hafa hins vegar haft betur gegn hinum liðunum sem berjast við fallið. Liðið tapaði með eins stigs mun gegn Breiða- bliki fyrir norðan í ársbyrjun, en sigraði með 23 stigum í viðureign liðanna í Kópavogi. Liðin eru í sitt hvorum riðlinum og leika því að- eins tvo leiki. Þó Valsmenn eigi möguleika á að ná Þór að stigum með því að vinna þremur léikjum fleira heldur en Þór í síðustu sex umferðunum þá dugir það ekki til, ekki nema Valsmenn vinni Þór á heimavelli sínum með 84 stigurn, sem er fjar- stæðukennt, svo ekki sé meira sagt. Þrjú 1. deildarlið eiga raunhæfa möguleika á sæti í úrvalsdeildinni, en það eru Snæfell og Körfuknatt- leiksfélag ísafjarðar, sem bæði hafa 24 stig í deildinni eftir 14 leiki og ÍS sem hlotið hefur 20 stig, en á einn leik til góða. Það lið sem hafnar í 2. sæti deildarinn- ar, leikur um sæti, en er með oddaleikinn á útivelli, ef til hans kemur. Tindastóll hefur fengið að meðaltali eitt stig út úr leikjum sínum í vetur og er nú í 6. sæti. Liðið hefur vinninginn gegn Skallagrími úr innbyrðisviður- eignum, en miðað við stöðuna í deildinni, eins og hún er í dag mundi liðið mæta Keflavík. Ýmis- legt á þó eftir að breytast í þeim sex umferðum sem enn eru eftir af mótinu, en ljóst er að hvert stig er mikilvægt fyrir Tindastól, því það skiptir miklu hvort lið hafna í 5. eða 8. sæti deildarinnar, þegar kentur að úrslitakeppninni. Leikir liðanna sem berjast við fall: Þór: ÍR (Ú), Skallagrímur (Ú), Valur (Ú). KR (H), Grinda- vík (Ú), ÍA (H). Breiðablik: Skallagrímur (H), Njarðvík (Ú). Haukar (Ú), Tinda- stóll (H), ÍR (Ú), Keflavík (H). ÍA: Njarðvík (Ú), Valur (H), KR (Ú), Grindavík (H), Skalla- grímur (H), Þór (Ú). Valur: Haukar (Ú), ÍA (Ú), Þór (H), Skallagrímur (Ú), KR (Ú), Grindavík (H). Staðan í úrvalsdeild: Njarðvík 26 22 4 2356:2053 44 Haukar 26 22 4 2302:2010 44 Keflavík 26 18 8 2422:2162 36 KR 26 14 12 2209:2202 28 Tindastóll 26 13 13 2016:2054 26 Skallagrímur 26 13 13 2050:2094 26 ÍR " 26 1115 2092:2141 22 Breiðablik 26 8 18 2058:2372 íó ÍA 26 7 19 2228:2430 14 Þór 26 7 19 2177:2200 14 Valur 26 4 22 2009:2468 8 í kvöld Heil umferð, sú 27. í röðinni, verður leikin í kvöld, Tindastóll mætir Grindavík á heimavelli. sín- um og Þórsarar halda suður fyrir heiðar, þar sem þeir leika gegn ÍR.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.