Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 3

Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 3
FRETTIR Laugardagur 17. febrúar 1996 - DAGUR - 3 Viðræðunefnd Vestur-Húnvetninga um skólaskrifstofu gefinn mánaðarfrestur: Möguleikar á að Vestur-Húnvetningar standi einir að skólaskrifstofu Yestur-Húnvetningar og Skag- firðingar funduðu í fyrri viku um framtíðarskipan skólaskrif- stofu í Norðurlandskjördæmi vestra og var samþykkt að reyna enn frekar að finna ein- hvern samkomulagsgrundvöll á grundvelli tillögu Ingibergs Guðmundssonar, skólastjóra á Skagaströnd, sem leggur til að stofnuð verði skólamálaskrif- stofa og forstöðumaður hennar hafi umsjón með og beri ábyrgð á rekstri hennar. í til- lögu stjórnar Sambands sveit- arfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, er lagt til að starf skóla- fulltrúa heyri undir stjórn SSNV og framkvæmdastjóra þess. Bjöm Sigurbjömsson, skóla- stjóri á Sauðárkróki, segir mikinn áhuga fyrir því að ná samkomu- lagi á áðumefndum gmnni en Siglfirðingar hafi ákveðið að samþykkja tillögu stjómar SSNV og séu því ekki með í þessum viðræðum lengur. Bjöm segir þá skoðun ríkjandi meðal Skagfirð- inga að sem fyrst þurfi að fá nið- urstöðu í málinu og reynt verði að koma á fundi í næstu viku. Bjöm segir að sú skoðun eigi einnig fylgi að réttast væri að Skagfirðingar stæðu einir að skólaskrifstofu og þær raddir hafi einnig heyrst í Vestur-Húna- vatnsssýslu. Ef það yrði niður- staða mála, yrði Austur-Húnvetn- ingar einnig að standa einir að sinni skólaskrifstofu og skrifstof- umar þá fjórar í kjördæminu með eða án sameiginlegrar, faglegrar yfirstjómar. Guðmundur Guðmundsson, sveitarstjóri á Hvammstanga, sem sæti á í Héraðsnefnd Vestur- Húnvetninga, segir að Skagfirð- ingar hafi verið að leita eftir við- brögðum Vestur-Húnvetninga við tillögu Ingibergs, þ.e. hvort hægt sé að ná samkomulagi um fyrirkomulag þessara mála. „Síðastliðinn þriðjudaginn var sameiginlegur fundur með for- svarsmönnum sveitarstjórna í Vestur-Húnavatnssýslu um hvort samstaða næðist um einhverjar leiðir og þá hverjar. í fyrsta lagi var rætt um eitt byggðasamlag um skólaskrifstofu, sem tæki til Skagafjarðar og beggja Húna- vatnssýslanna og í öðru lagi að stofnað yrði byggðasamlag með skrifstofum í Skagafirði og Húnavatnssýslum og í þriðja lagi var rætt hvort ástæða væri til þess að Vestur-Húnvetningar leystu þetta mál á eigin spýtur. Allar hugmyndimar áttu tals- menn á fundinum og sú síðasta fleiri en ég bjóst við. Samþykkt var samhljóða að taka þátt í frekari viðræðum við fulltrúa frá Austur-Húnvatns- sýslu og/eða Skagafirði um stofnun byggðasamlags um þau verkefni sem heyrt hafa undir Fræðsluskrifstofu Norðurlands vestra. Fundurinn kaus þriggja manna nefnd til viðræðnanna og verða verkefni hennar að gera drög að rekstrarsamningi ef sam- komulag næst með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjóma. Náist ekki niðurstaða á þessu gmnni innan eins mánaðar er nefndinni falið að móta fyrirkomulag fram- angreindar þjónustu innan Vest- ur-Húnavatnssýslu,“ sagði Guð- mundur Guðmundsson, sveitar- stjóri á Hvammstanga. Guðmundur sagði að tíminn væri að renna mönnum úr greip- um og því kynnni síðasti kostur- inn að verða upp á borðinu innan tíðar samhliða hinum tveimur. GG Bátar Langaness hf. á Húsavík komnir meö 7 þúsund tonna ioðnuafla: Loönufrysting hjá SÚA á Seyð- isfiröi nemur um 500 tonnum Fjöregg hættir kjúklinga- framleiðslu Samkomulag hefur náðst milli Ármanns Gunnarssonar, dýra- læknis, og forsvarsmanna kjúklingabúsins Fjöreggs á Svalbarðsströnd um að kjúkl- ingaframleiðslu verði hætt á búinu að sinni, en áfram verða framleidd egg á markað. Ármann segir að ekki hafi tekist að uppræta salmonelluna og enn sé til staðar smitmengun á búinu. Búið hefur m.a. verið skoðað af embætti yfirdýralækn- is og sérfræðingi þess í alifugla- ræktun. „Framleiðslan var samkvæmt leyfi yfirdýralæknis og með mínu samþykki var leyft að senda hitaða kjúklinga á markað- inn en enga hráa kjúklinga. Hér er aðeins um salmonellusýkingu í kjúklingum að ræða, fullorðni fuglinn hefur reynst ósýktur. Þau sýni sem tekin hafa verið af eggjunum hafa verið hrein,“ sagði Ármann Gunnarsson. Heilbrigðisfulltrúi hefur að undanfömu fylgst náið með framleiðsluvörum Fjöreggs. GG Sæunn Axelsdóttir: Vænti afsökun- arbeiðni frá bæjarstjóra Sæunn Axelsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sæunnar Axels hf. í Ólafsfirði, segist undrast þau ummæli Hálfdáns Krist- jánssonar, bæjarstjóra í Ólafs- firði, í Degi á dögunum að fréttir af flutningi starfa frá Sæunni Axels hf. í Ólafsfirði suður til Reykjavíkur séu stór- lega ýktar. Sæunn segir að með þessum orðum sé bæjarstjóri að segja hana Ijúga opinberlega og því kunni hún afar illa. Sæunn skor- ar á Hálfdán Kristjánsson að biðja sig opinberlega afsökunar á þessurn ummælum. Sæunn segir að staðreyndimir tali sínu máli. Flutt hafi verið um tíu störf frá Ólafsfirði til Reykja- víkur. Saltfiskverkun í nafni Sæ- unnar Axels hf. sé nú hafin syðra og gangi samkvæmt áætlun. Sæ- unn segir að norður í Ólafsfirði séu eftir álta störf við þurrfisk- verkun, það geti bæjarstjórinn í Ólafsfirði fengið staðfest með því að kynna sér vinnsluna. óþh Mokveiði heldur áfram á loðnu- miðunum og færist veiðisvæðið stöðugt vestar, var í gær við Hrollaugseyjar og loðnan á stöðugri ferð í vesturátt, eða allt að eina mílu á klukkustund. Landað er allt frá Akranesi og austur um til Raufarhafnar. Björg Jónsdóttir II ÞH landaði í gær 530 tonnum á Raufarhöfn en þáturinn er kominn með 2.340 tonn á þessu ári af um 7.000 tonna heildarkvóta, sem að hluta til er leigður. Nafn hans féll niður þegar getið var um heildarkvóta loðnu- báta nýverið. Kona varð fyrir bíl í gærmorg- un klukkan 7.30 á mótum Eyr- arlandsvegar og Hrafnagils- strætis. Farið var með konuna á slysadeild en meiðsl hennar eru minniháttar. Slysið varð með þeim hætti að Björg Jónsdóttir II verður á loðnuveiðum til loka marsmánað- ar, en þá verður báturinn afhentur nýjum eigenda, G. Ben hf. á Ár- skógsströnd. í stað þess fær Langanes hf., útgerð Bjargar Jóns- dóttur II, Höfðavík frá Akranesi. Björg Jónsdóttir ÞH landaði 600 tonnum á Reyðafirði í gær og hefur veitt um 4.500 tonn það sem af er árinu en alls um 8.300 tonn á allri loðnuvertíðinni frá því í ágústmánuði 1995. Frystiskip sem flokka loðnu um borð sem og frystitogarar fylgja flotanum eftir og frysta bfll, sem var á leið niður Eyrar- landsveg, rann til í hálku og lenti á vegfaranda sem var að ganga suður Eyrarlandsveginn. Konan kastaðist fram af götunni en eins og áður sagði meiddist hún ekki alvarlega. AI flokkaða kvenloðnu um borð en hrognafylling hennar er nú orðin nægjanaleg fyrir Japansmarkað. Hjá SÚA, fyrirtæki Útgerðarfé- lags Akureyringa hf. á Seyðisfirði, hafa verið fryst um 500 tonn af loðnu, sem fæst flokkuð frá verk- smiðju SR-mjöls hf. á Seyðisfirði. SÚA tók á leigu frystihús Norður- sfldar á Seyðisfirði og starfa þar 20 menn frá ÚA á Akureyri auk 8 Seyðfirðinga. GG Aðalfundur Ferðamálafélags atfarfiar Eyjafjarðar verður haldinn á Fiðlaranum á Akureyri laugar- daginn 24. febrúar nk. og hefst kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar. Fulltrúar Upplýsingamiðstöðvarinnar á Akureyri mæta á fundinn og rætt verður um tengsl félagsins og Upplýsinga- miðstöðvarinnar. Félagsmenn og hagsniunaaðilar eru hvattir til að nueta á fundinn. Nýir félagsmenn velkomnir, en fundurinn er öllum opinn. Stjórnin. BKEMMTISTAQUR Stephan Hilmarz og milljónamæringarnir Laugardagskvold Stuðboltarnir úr Eyjum Papar í góftum sköpum Fritt inn Opið á milli Dáta og Sjalla Kjallari Laugardagskvöld Bylting Akureyri: Kona fyrir bil

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.