Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 11

Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 11
Laugardagur 17. febrúar 1996 - DAGUR - 11 Renault á Akureyri Þórshamar hf. er orðinn sölu- og þjónustuaðili fyrir Renault bifreið- ar á Akureyri og nágrenni, en Bflasalan Bflaval mun sjá um sölu á Renault eins og á öðrum þeim bifreiðum sem seldar eru í umboði Þórshamars. Bifreiðar- og Landbúnaðarvél- ar tóku við Renault umboðinu á íslandi fyrir einu ári síðan og hafa á þeim tíma selt rúmlega 300 Renault bifreiðar. Núna um helg- ina gefst tækifæri til að skoða alla Renault-línuna á stórsýningu hjá Bílavali. Þjónustan er einnig í góðum höndum hjá Þórshamri, sem rekur stórt og öflugt bifreiðaverkstæði, sem er vel mannað og góðum tækjum búið. Bifreiðaverkstæðið Þórshamar og Bílasalan Bílaval bjóða núver- andi og tilvonandi Renault eig- endur velkomna til samstarfs. Fréttatilkynning. Miðstjórn ASÍ: Vaxtahækkanir að undanförnu eiga sér enga stoð - krefst aðgerða ríkisstjórnar og Seðlabankans Miðstjóm ASÍ hefur sent frá sér ályktun þar sem krafist er að rflcis- stjómin og Seðlabankinn grípi til allra aðgerða sem dugi til að ná niður vöxtum hér á landi. Mið- stjómin telur þær vaxtahækkanir sem komið hafa fram á undan- förnum vikum ekki eiga sér neina stoð í efnahagslegum aðstæðum hérlendis. „Þvert á móti ættu bæði nafn- vextir og raunvextir að fara lækkandi líkt og gerst hefur í ná- grannalöndum okkar. Miðstjórn ASI telur að bankar og sparisjóðir hafi gengið á lagið eftir að Seðla- bankinn hækkaði vexti á peninga- markaði í desember síðastliðnum vegna ótta bankans við meinta þenslu í hagkerfinu. Meðalvextir á almennum víxil- lánum hafa hækkað úr 11,8% í desember sl. í 12,8% um miðjan febrúar, sem jafngildir 8,5% hækkum vaxtakostnaðar, þrátt fyr- ir að verðbólga gefi ekki tilefni til slíkrar hækkunar. Vextir af víxil- lánum eru nú álíka háir og þeir voru fyrir almenna lækkun vaxta haustið 1993 þrátt fyrir að verð- bólga mælist verulega lægri,“ seg- ir í ályktun miðstjómar ASÍ. Bent er á að vextir af verð- tryggðum skuldabréfum banka og sparisjóða hafi einnig farið hækk- andi undanfama mánuði án þess að vextir á ríkisskuldabréfum hafi hækkað. Nú sé svo komið að verðtryggðir vextir banka og sparisjóða séu lítið lægri en þeir voru fyrir vaxtalækkunina haustið 1993. „Miðstjórnin vekur athygli á að meginþungi þessarar vaxta- hækkunar hefur komð fram í skjóli frumskógar vaxtaálaga á skuldabréfum sem bankamir tóku upp fyrir nokkru. Minna má á að við gerð kjarasamninga í aprfl 1992 var gert sérstakt samkomu- lag við bankana um að vaxtamun- ur á skuldabréfavöxtum og ríkis- skuldabréfum yrði ekki meiri en sem nemur 2%. Síðastliðin tvö ár hefur þessi munur hins vegar ver- ið 3%. A sama tíma og þessar vaxta- hækkanir dynja yfir hér á landi hafa vextir erlendis farið lækkandi á undanförnum mánuðum og eru verulega lægri en hér á landi. Því munu hækkandi vextir hér á landi draga úr þeim hæga bata sem á sér stað í efnahagslífinu og jafnframt skerða samkeppnisstöðu okkar út á við. Miðstjóm ASÍ krefst þess að ríkisstjóm og Seðlabanki grípi til allra þeirra aðgerða sem duga til að ná niður vöxtum, enda hafa bankar sýnt fram á að fjármagns- markaðurinn tekur vel við hand- aflsaðgerðum." JÓH Bridgefélag Akureyrar: MeistaratitíU í höfin hjá sveit Antons Haraldssonar Sveit Antons Haraldssonar varð Akureyrarmeistari í sveitakeppni félagsins árið 1996. Sigurinn var glæsilegur því sveitin fékk 305 stig af 350 mögulegum eða 87% vinningshlutfall og 81 stigi meira en sveitin sem varð í öðm sæti. Endanleg úrslit í sveitakeppn- inni urðu þannig: 1. Sveit Antons Haraldssonar 305 stig. 2. Sveit Ormarrs Snæbjömssonar 224 stig. 3. Sveit Ævars Ármannsonar 222 stig. 4. Sveit Páls Pálssonar 214 stig. í sveit Antons Haraldssonar spiluðu auk hans þeir Pétur Guð- jónsson, Sigurbjöm Haraldsson, Stefán Ragnarsson og Ólafur Agústsson. I sveit Ormarrs Snæbjömssonar spiluðu Stefán G. Stefánsson, Hróðmar Sigurbjömsson, Skúli Skúlason, Jónas Róbertsson, Sveinbjöm Jónsson og Sveinn Torfi Pálsson. Næsta keppni hjá Bridgefélagi Akureyrar verður tveggja kvölda Barómeter tvímenningur og er skráningin hafin hjá Páli H. Jóns- syni í síma 462-1695. Óskað er eftir að menn ljúki skráningu sem fyrst en hún stendur til kl. 19.15 næstkomandi þriðjudag. Urslit í síðasta sunnudags- bridge urðu þannig að í fyrsta sæti urðu Kristján Guðjónsson og Una Sveinsdóttir með 157 stig. Jöfn í öðm sæti urðu Kolbrún Guðveigs- dóttir og Ragnheiður Haraldsdóttir annars vegar og hins vegar Sigur- bjöm Haraldsson og Skúli Skúla- son. Pörin fengu bæði 151 stig. JÓH Örvggi Ira Hátæknibúnaður FLYGT Slógdælur (# LOWARA Þrýsitaukadælur, miðflóttaafls- og brunndælur MONO Dælur INTERROLL jdKi Færibandabúnaður JjSMT Allt til rafsuðu Sjómönnum er mikið í mun að öll áhöld, tæki og vélar um borð séu í góðu lagi. Vandaðar vörur þurfa minna viðhald og lipur þjónusta í landi kemur í veg fyrir kostnaðarsamar tafir. Þetta skapar öryggi. Héðinn - verslun hefur þjónað íslenskum sjávarútvegi í áratugi með traustum og vönduðum vörum og góðri þjónustu. í versluninni starfa tæknimenntaðir sölumenn, sem veita þér faglega ráðgjöf þegar þú þarft á henni að halda. = HÉÐINN = V E R S L U N í KEA NETTÓ í dag laugardaginn 17. febrúar kl. 14-15 verða Patrekur og Duranona staddir í versluninni Petta er tækifæri fyrir yngstu kynslóðina að láta taka mynd af sér með hetjunum ií arr r *

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.