Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 5

Dagur - 17.02.1996, Blaðsíða 5
Laugardagur 17. febrúar 1996 - DAGUR - 5 Sú var tíðin að mörg gömlu hús- anna í Hafnarstræti og Aðal- stræti á Akureyri voru talin bæjarhneyksli og engum til sóma. Viðhorfin hafa breyst á síðustu árum, mörg húsanna hafa verið gerð upp, og flestir eru sammála um að gömlu hús- in gefí bænum mikið gildi. í Hafnarstræti, rétt innan við Bautann, hafa staðið yfir tölu- verðar framkvæmdir undanfar- ið og meðal þeirra húsa sem verið er að gera upp eru Hafn- arstræði 88 og 86. Ingibjörg Tryggvadóttir er einn eiganda hússins númer 88 og sonur hennar, Hannes Hartmannsson, er meðal eigenda Hafnarstrætis 86. Blaðamaður Dags brá sér í heimsókn í Hafnarstrætið og spjallaði við þau mæðgin um endurbæturnar. Rúmir þrír áratugir eru liðnir síðan Ingibjörg flutti í Hafnar- stræti 88. Hún og maður hennar, Hartmann Eymundsson, eiga aðra íbúðina í risinu og einnig íbúðina fyrir neðan á 2. hæð. Fyrir tíu ár- um var stofnaður hússjóður til að standa straum af kostnaði við end- urbætur og taka allir eigendumir þátt í þessum kostnaði. Ingibjörg segir að það hafi gert fram- kvæmdir erfiðar ekki síst þar sem eignarhlutimir hafa gengið kaup- um og sölum síðustu árin en nú virðast þó allir eigendur vera sam- mála um að halda endurbótunum áfram og hún því bjartsýn á fram- haldið. Um er að ræða endurbætur utanhúss og fela þær m.a. í sér að allt jám verður rifið utan af húsinu og síðan þarf að gera við skemmdir sem eru undir. Skipta þarf um alla glugga og setja nýja í upphaflegri mynd og einnig hafa verið settar nýjar hurðir. Þegar er búið að gera þakið upp og norður- stafninn og næsta skref er að gera suðurgaflinn upp. Ingibjörg segir kostnað hafa farið langt fram úr áætlun þar sem í byrjun var talið að gluggamir væru heilir. Þegar farið var að nfa jámið af kom hins vegar í ljós að gluggamir voru settir innan í gömlu upphaflegu gluggana, sem voru orðnir graut- fúnir utan um hina. Það þurfti því að rífa allt í burtu og smíða nýja glugga í. Allur tréskurður er nýr en í upprunalegri mynd og segir Ingi- björg tréskurðinn mjög dýran enda þurfi að handvinna allt og vinnan sé seinleg. Tveir smiðir hafa borið hitann og þungann af endurbótunum við Hafnarstræti 88 og koma reyndar líka við sögu í viðgerðum á Hafnarstræti 86. Þetta eru smiðimir Hólmsteinn Snædal og Sverrir Meldal en þeir hafa báðir sérhæft sig í að lagfæra gömul hús. Sonurinn í næsta húsi Hannes Hartmannsson, sonur þeirra hjóna, flutti ekki langt frá æskuheimilinu því hann býr í næsta húsi við og á íbúð í risi hússins númer 86. Hann hefur greinilega erft áhugann á gömlum húsum frá móður sinni og þar á bæ em eigendur langt komnir með að gefa húsinu nýtt og betra útlit. Hannes segir endurbætumar á húsinu sem hann á hlut í hafa ver- ið með nokkmm öðmm hætti en í húsinu númer 88 þar sem ekki hefur þurft að skipta um jám held- ur hafi gamla jámið verið lagað og málað upp á nýtt. Framkvæmd- ir þar em líka lengra á veg komnar og búið að laga og mála allar hlið- ar hússins. „Við höfum ekki skipt um glugga nema í þeim tilvikum þar sem það þótti nauðsynlegt og þeir hafa því setið nokkuð á hak- anum. En við erum búin með þak- ið og meira stendur til hjá okkur enda er þetta verkefni sem aldrei lýkur,“ segir Hannes. Steinhús köid og líflaus Endurbætur á gömlum húsum eru bæði tímafrekar og kostnaðarsam- ar og því vaknar sú spuming hvers vegna fólk kjósi frekar að ráðast í framkvæmdir sem þessar en að búa í nýlegra húsnæði. Ingibjörg er hins vegar ekki í vafa um að í timburhúsi vilji hún búa. „Mér finnst óþægileg að búa í steinhúsi. Kannski er skýringin sú að ég átti heima í torfbæ til tíu ára aldurs þar sem var timburklædd bað- stofa. Mér finnast steinhús vera köld og líflaus og þar er engu hægt að breyta. Fólk flytur inn í steinkassa og verður að vera í honum eins og hann er. í mesta lagi er hægt að brjóta niður einn eða tvo veggi. I húsi eins og ég bý í eru ótal möguleikar og mér finnst timbrið miklu hlýlegra,“ segir hún. Hannes tekur undir með móður sinni og segist kunna betur við sig í timburhúsi en steinhúsi. „Þau em hlýlegri og mér finnst þau hafa ákveðna sál. Viðurinn er meira lif- andi en steinninn og gefur meiri möguleika á breytingum.“ Ingibjörg segir að auðvitað sé misjafn hvemig hús henti fólki og margir hafi verið mjög hissa þegar hún flutti í húsið í Hafnarstræti með þrjú lítil börn, ekki síst í ljósi þess að maðurinn hennar er múr- ari. „Þegar ég flutti hingað var íbúin öll í rúst og mjög slitin. En ég lét mig nú samt hafa það og hef verið að gera íbúðina upp í áhlaupum. Ég vil ekki breyta svona húsi í eitthvert nýtískuhús- næði því mér finnst það ekki eiga við.“ Myndefni fyrir ferðamenn Það er af sem áður var þegar ekki Ingibjörg Tryggvadóttir hefur ^ búið í Hafnarstræti 88 í rúma W' þrjá áratugi og segist ekki geta hugsað sér að búa í steinhúsi. „Mér fínnst timbrið miklu hlýlegra,“ segir hún. Myndir: BG W Hn ÍBI m ; ,s 7«. .' í. ' i 1 f0/ & - WKMmZ: i & a Hannes Hartmannsson er einn eigenda Hafnarstrætis 86. Hús- ið hefur tekið stakkaskiptum á síð- ustu árum, búið að mála það og lag- færa. Meira stendur til enda segir Hannes að þetta sé verkefni sem aldrei lýkur. þótti fínt að búa í gömlu húsi. Húsin tvö sem Ingibjörg og Hann- es búa í em aðeins tvö hús af mörgum í bænum sem verið er að gera upp eða er þegar búið að gera upp og Ingibjörg segir að nú sé í tísku að gera hús upp. „Áður þótti þetta asnalegt og á tímabili stóð t.d. til hjá bænum að rífa þetta hús, en ég hugsa að það séu svona fjögur ár síðan viðhorfið fór að breytast gagnvart þessum húsum.“ Húsin í Hafnarstræti eru mið- svæðis og oft fyrstu húsin sem ferðamenn berja augum enda Um- ferðarmiðstöðin til húsa í Önd- vegi, sem er Hafnarstræti 82. Hannes segir að eftir að fram- kvæmdir hófust sé áberandi að ferðamenn stoppi og taki myndir af húsinu og Ingibjörg hefur sömu sögu að segja. „Á sumrin er varla að ég líti út um glugga án þess að sjá einhvem með myndavél.“ AI Hafnarstræti 88 í nóvember 1898 var Bergsteini Bjömssyni veitt leyfí til að gera uppfyllingu fram í sjó og reisa þar hús og var húsið fullsmíðað árið 1900. Á ámnum 1904-1930 var útibúi íslandsbanda í suðurhluta 1. hæðar og síðan Útvegsbankinn til 1939. Valdimar Steffensen bjó lengi í húsinu og hafði þar lækningastofu og í áranna rás hafa þar verið margar verslanir. Útlit hússins er í megindráttum lítið breytt frá upphaflegri mynd. Veggir vom þó í fyrstu klæddir með panel og þak pappaklætt en snemma var sett bámjám bæði á veggi og þak. Gluggum hefur ver- ið breytt síðar, grindur hafa verið fjarlægðar og póstum breytt í sumum gluggum. Staðsetning glugga er þó að mestu óbreytt. Eig- endur hússins eru nú níu talsins og eru íbúðir á 2. hæð og í risi, hár- snyrtistofa og verslun á fyrstu hæð og í kjallara er verslun og skóvinnustofa. Hafnarstræti 86 Hafnarstræti 86 er tvflyft timburhús á kjallara með háu risi og kvist- um og stendur frammi við gangstétt Hafnarstrætis. Grunnflötur sjálfs hússins er 8,9x12,65 metrar en útbyggingar em austan á því og að sunnan. Húsið var byggð árið 1903 og það var Ólafur G. Eyjólfsson sem fékk upphaflega leyfi til að byggja á lóðinni. Húsið komst síðar í eigu Magnúsar Sigurðssonar sem starfrækti þar Grundarverslun um skeið. 1920 seldi Magnús Kristjáni Ámasyni húsið og rak Kristján, og síðar sonur hans Gunnar, þar verslunina Eyjafjörður. Árið 1940 keypti Gunnar 6 metra breiða spildu af næstu lóð norðan við og byggði við gamla húsið. Aðalverslun fyrirtækisins var í þessari við- byggingu en í gamla húsinu var matvörudeild. Árið 1976 var eignin seld í mörgum hlutum og nú eru eignaraðilar fjórir. Þrjár íbúðir eru í húsinu, ein á hverri hæð, en fjórði eignaraðilinn hefur aðstöðu fyr- ir saumastofu í norðvesturhluta 1. hæðar og kjallara.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.