Dagur - 30.04.1996, Blaðsíða 5
FRÉTTIR
Þessi inynd var tekin á námskeiðinu á Akureyri sl. sunnu-
dag. Á innfelldu myndinni er annar tveggja leiðbeinenda;
Einar Guðmundsson. Hinn leiðbeinandinn er Sumarliði
Guðbjartsson. Fulltrúi Sjóvá-Almennra á Akureyri var
Lísbet Grönvaldt Björnsson. Mynd: BG
Sjóvá-Almennar hf.:
Efndu til námskeiðs
fyrir unga ökumenn
Síðastliðinn sunnudag efndu Sjóvá-Almennar hf.
til námskeiðs á Akureyri fyrir unga ökumenn á
aldrinum 17-20 ára. Námskeiðið var ætlað bæði
þeim ungu ökumönnum sem lent hafa í tjónum og
hinum sem hafa komist í gegnum öngstræti um-
ferðarinnar án tjóna.
Þátttaka í námskeiðinu gaf þeim sem það sóttu
hækkun á bónus um tvo flokka hjá Sjóvá-Almennum,
þannig að fjárhagslega var til nokkurs að vinna.
Að sögn talsmanns Sjóvár-Almennra hafa slík
námskeið verið haldin um skeið í Reykjavík og er
góð reynsla af þeim. Þetta var hins vegar í fyrsta
skipti sem slíkt námskeið er haldið á Akureyri og
samskonar námskeið var raunar einnig haldið á Sauð-
árkróki.
Það er ekki að ástæðulausu sem námskeið er hald-
ið fyrir þennan aldurshóp, enda er það staðreynd að
allt að 8 af hverjum 10 17 ára ökumönnum lenda í
tjóni á fyrsta ári sínu undir stýri.
Þess má geta í þessu sambandi að á morgun birtir
Dagur fyrsta pistilinn um umferðaröryggismál sem
blaðið hefur látið vinna. Höfundur þeirra er Steinþór
Þráinsson, ökukennari, og munu þeir að jafnaði birt-
ast á miðvikudögum næstu mánuði. óþh
Eimskip fékk útflutnings-
verðlaun forseta
Útflutningsverðlaun forseta ís-
lands komu í ár í hlut Eimskips.
Þetta var tilkynnt í hófi á Bessa-
stöðum sl. sunnudag. Þetta var í
áttunda skipti sem verðlaunin
eru afhent.
í ávarpi formanns úthlutunar-
nefndar, Páls Sigurjónssonar, kom
fram að Eimskip hafi á undanföm-
um tíu árum aukið verulega rekst-
ur sinn erlendis og séu tekjur fyr-
irtækisins af erlendri starfsemi
orðnar um 18% af heildartekjum
og hafi jafnt og þétt farið vaxandi.
„Ein megin auðlind okkar íslend-
inga er vel menntað og duglegt
fólk sem fær tækifæri til að nýta
krafta sína. Ég tel að Eimskip hafi
með því að nota fjárhagslegan
styrk sinn til að styrkja vaxtar-
brodda á ýmsum sviðum atvinnu-
lífsins stuðlað að því að þetta fólk
fái tækifæri til að byggja upp
betra ísland,“ sagði Páll Sigur-
jónsson m.a. í ávarpi sínu.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, þakkaði þessa viður-
kenningu og sagði hana fyrirtæk-
íslands
inu mikils virði. Hörður sagði
reynslu þeirra Eimskipsmanna
hafa kennt þeim að sjaldan náist
árangur á erlendri grundu með
leiftursókn. Varanlegur árangur
náist ekki nema með margra ára
markvissu og þrotlausu starfi.
Heimamarkaðurinn þurfi að vera
sterkur og fjárhagslegur styrkur
þurfi að vera fyrir hendi til þróun-
ar og markaðsstarfs. Mikilvægast
sé þó að hafa á að skipa góðu
starfsfólki með grundaða þekk-
ingu og stjómunarhæfileika. óþh
Skagstrendingur hf.:
Hlutafé aukið
Á aðalfundi Skagstrendings hf. á Skagaströnd ný-
verið var samþykkt að greiða hluthöfum 5% arð
og jafnframt var samþykkt 20% hækkun hluta-
fjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa, sem mun
nema um 35 milljónum króna. Heildarhlutafé í
Skagstrendingi hf. nemur þá um 211 milljónuin
króna.
Jafnframt var samþykkt heimild til að auka hlutafé
um 50 milljónir króna og hafa hluthafar forkaupsrétt
að þeim. Skagstrendingur hf. var rekinn á sl. ári með
71 millj. króna hagnaði og kom fram á fundinum al-
menn ánægja með að fyrirtækið skuli nú skila hagn-
aði eftir taprekstur að upphæð 400 milljónir króna á
þremur árum. Það náðist m.a. með sölu togarans Am-
ars HU til Grænlands og Amars gamla HU til Akur-
eyrar og lækkun skulda um 500 milljónir króna. í
stjóm félagsins vom kosnir Lárus Ægir Guðmunds-
son, sem er formaður, Adolf H. Bemdsen og Magnús
um 50 milljónir
B. Jónsson, sem tilnefndir voru af Höfðahreppi, sem
á 25% hlutafjár, Björgólfur Jóhannsson, fjármála-
stjóri ÚA, en félagið á 20% hlut, Þórður Magnússon,
framkvæmdastjóri Eimskips, sem kemur inn fyrir
Burðarás, Jökla og Tryggingarmiðstöðina. Úr stjóm
gengu Róbert Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Þor-
móðs ramma hf. á Siglufirði, og Gylfi Sigurðsson á
Skagaströnd, sem var búinn að vera í stjóm í 26 ár,
þar af stjómarformaður síðustu árin.
Örvar HU-21 er á grálúðuveiðum fyrir vestan land
og Helga Björg HU-7 á rækjuveiðum á Flæmingja-
grunni. Amar HU-1, sem keyptur var á síðasta ári, er
í slipp í Reykjavík, en heldur í næstu viku á úthafs-
karfaveiðar á Reykjaneshrygg. Verið er að setja um
borð nýja vinnslulínu fyrir flakafrystingu bolfisks og
heilfrystingu á karfa og grálúðu. Skipið kernur í
fyrsta skipti til Skagastrandar fyrir sjómannadaginn,
sem ber upp á 2. júní í ár. GG
Þriðjudagur 30. apríl 1996 - DAGUR - 5
Golfklúbbur Akureyrar
Vinnudagur
laugardaginn 4. maí kl. 10.
Félagar í GA, nú mæta allir og hjálpast að við að undir-
búa völlinn okkar og skálann fyrir sumarið.
V
Við hefjum vinnuna kl. 10 fyrir hádegi, þeir sem ekki
komast þá geta komiö síðar.
Kaffi og kökur í lok vinnudags.
Stjórnin.
Sókn til nýrra tækifæra
Vöruþróun '96
Vúlt þú þróa nýja vöru og koma henni á markað? f VÖRUPRÓUK %
í verkefninu Vöruþróun '96 er fyrirtækjum veittur fjárhagslegur og
faglegur stuðningur við vöruþróun. Umsóknareyðublöð liggja frammi
hjá atvinnuráðgjöfum og á Iðntæknistofnun, Keldnaholti, s. 587 7000.
Umsóknarfrestur er til 3. maí 1996.
Hugmyndasamkeppnin
Snjallræði
er kjörið tækifæri til að koma góðri hugmynd á framfæri og í framkvæmd.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Bjöigvini Njáli Ingólfssyni,
Iðntæknistofiiun, Keldnaholti, s. 587 7000.
Umsóknarfrestur er til 3. maí 1996.
Sumarbúðirnar
Vestmannsvatni
Innritun er hafin í síma 462 6605.
Barnaflokkar fyrir 7-10 ára.
1. fl. 19. júní-26. júní Grallararnir
2. fl. 27. júní-4. júlí Garparnir
3. fl. 8. júlí-15. júlí Útilegumennimir
Barnaflokkur fyrir 11-13 ára.
4. fl. 16. júlí-23. júlí Könnuðimir
Unglingaflokkur fyrir 14-16 ára.
6. fl. 12. ágúst-16. ágúst Smellurinn.
Aldraðlr
Vikuflokkur dagana 25. júlí-1. ágúst.
Verð í 1 .-4. flokk kr. 14.500 en kr. 9.800 í 6. fl.
í flokk aldraðra kostar kr. 19.500.
Tekið við innritun og nánari upplýsingar veittar alla virka
daga kl. 16-19 í síma 462 6605.
Systkinaafsláttur.
Innritunargjald, kr. 3.000, er óafturkræft en dregst frá dvalar-
gjaldi.
✓
%
ORÐ DAGSINS
462 1840
✓