Dagur


Dagur - 03.07.1996, Qupperneq 7

Dagur - 03.07.1996, Qupperneq 7
A Miðvikudagur 3. júlí 1996 - DAGUR -7 Vinar gjöf skal virða og vel hirða segir máltækið og það á sannarlega við um þá Jóhann Jóhannsson, togara- sjómann frá Sigtúnum, og Eirík Bóasson, garðyrkju- mann frá Rein í Eyjafjarðarsveit. Þeir virtu gjöf vinar síns, Vilbergs Jónssonar landpósts í sveitinni, sem fól það í sér að fjármagna útgáfu geisladisks með tónlist þeirra og hafa eftir fremsta megni reynt að hirða hana. „Þessi elliglöp í okkur, eins og við köllum þetta uppátæki, koma þannig til að félagar okkar fara að hvetja okkur til að gefa eitthvað út af þeim lögum sem við höfum samið í gegnum árin. Maður tók þetta nú ekki bókstaflega fyrr en Vilberg vinur okkar býður okkur að taka að sér að fjármagna útgáfu geisladisks ef við værum til í að fara í hljóðver og taka upp. Þessa gjöf fær enginn staðist þannig að við drifum í þessu,“ segir Eiríkur. „Okkur þóttu þessar hugmyndir hjá Vilberg heldur óraunhæfar í upphafi. Það að vinir okkar og vandamenn skyldu vera til í það að leggja peninga í þessi elliglöp í okkur var líka ótrúlegt. Samt drif- um við í þessu og vorum ekkert hræddir við það þar sem við geng- um út frá því í upphafi að við ætl- uðum ekki að verða frægir. Þetta voru engir framadraumar. Aðeins að koma þessu skammlaust á diskinn fyrir afkomenduma," bæt- ir Jóhann við. Samvinna þeirra Jóhanns og Eiríks er tilkomin í gegnum Frey- vangsleikhúsið frá árinu 1986 og það er út frá þeirri samvinnu sem fleytir mér yfir erfiðustu hjallana. Lögin sem ég öll sjálfur ásamt því að semja nokkra texta. A disknum eru einnig textar eftir Hannes Örn Blandon, skipsfélaga minn Ágúst Marinósson og eitt lagið er samið við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk." Semja hvor í sínu horninu „Varðandi spilamennskuna þá hef ég aðallega verið að spila með þeim Freyvangshljómsveitum sem hafa verið stofnaðar í það og það skiptið. Ég er einnig fastráðinn í harmonikuhljómsveitinni Þuríður og hásetarnir," segir Eiríkur. „Hljómsveitareynsla mín er hins vegar til komin úr grínhljómsveit- um sem stofnaðar hafa verið um borð og hafa komið fram opinber- lega í nokkur skipti eins og á sjó- mannaballi og árshátíðum. Það er ofsalega gaman að standa í þessu út á reginhafi og mér fannst það ansi merkilegt á æfingu hjá einni slíkri hljómsveit þegar 10 karlar af 26 manna áhöfn voru famir að troðast inn í einn klefann til þess að vera með. Þetta heldur manni gangandi í löngum túrum,“ segir Jóhann. ◄ Félagarnir Eiríkur Bóasson, til vinstri, og Jóhann Jóhanns- son. magna diskinn og við erum því fólki sem hefur lagt okkur lið ákaflega þakklátir," segir Eiríkur. Og hann heldur áfram: „Við byrj- uðum 15. mars að vinna við disk- inn og ætlunin er að hann komi út í byrjun júlí. Við erum löngu hætt- ir að hugsa um það að halda ein- hverja útgáfutónleika, þó það hefði verið rosalega gaman, því það eru svo margir sem standa að útgáfunni að það er illmögulegt að ná öllum saman. Það er því engin herferð í gangi varðandi kynn- ingu. Við munum bara reyna að beita öllum mögulegum aðferðum við að selja diskinn. Takmarkið hjá okkur er að ná upp í kostnað- inn svo við sjáum vini og vanda- menn sem fjármagna þetta fá sitt til baka.“ Aðspurðir um velgengni segir Eiríkur að þeir viti ekkert. „Vel- gengni er gjörsamlega óþekkt stærð. Við vitum ekkert hvar við komum til með að standa vinsæld- arlega og spilunarlega séð.“ „Við teljum okkur bara lúsheppna ef við náum upp í kostnaðinn,“ bætir Jóhann við. „Annars eru þetta bara elliglöp í okkur og gaman að hafa tækifæri til þess að kynnast öllu því ferli sem fylgir því að koma svona útgáfu af stað. Við hugsuðum þetta til þess að eiga í ellinni. Það er engin önnur speki á Engin alvarleg undiralda hugmyndin að sameiginlegri út- gáfu á tónlist þeirra kviknar. „Við ákváðum að hjálpast að við að láta drauma okkar beggja rætast, þ.e. að gefa út eigin tónlist. Okkur fannst gaman að eiga í ellinni al- vöru upptökur af lögunum okkar og dæmið var einfaldlega léttara værum við tveir í þessu," segir Jó- hann. Gutlarar á gítar og hljómborð „Ég hef verið gutlari á gítar frá 15 ára aldri og ég samdi fyrsta lagið 1972-3. Aðallega hefur maður verið að kirja fyrir vini og vanda- menn og þetta þróast út frá því án þess að vera eitthvað markvisst. Ég sem enga texta sjálfur, bara lögin og oft er það þannig að ég sem lög við Ijóð sem höfða til mín. Á disknum eru 2 ljóð eftir Laxnes og textana við hin lögin mín semur Emelía Baldursdóttir. „Það sama gildir um mig og Eirík," segir Jóhann. „Maður byrj- aði að glamra á unga aldri á fót- stigið stofuorgel og þaðan hefur mín tónlistarkunnátta þróast. í dag er það þannig að hljómborðið mitt Aðspurðir að því hvort þeir hafi verið að semja saman eða hvor í sínu lagi segir Eiríkur að þeir hafi alfarið verið að semja hvor í sínu horninu. „Við förum einnig mjög ólíkar leiðir í tónlist- inni og aðhyllumst sitt hvora tón- listarstefnuna. Ég er aðallega í því að spila alþýðutónlist og ljóðatón- list en Jonni sér um poppið." Jó- hann samsinnir því. „Já, það má kalla þetta popp, þetta er samt ansi blandað og alger grautur.“ Hver snillingurinn á fætur öðrum Þegar undirbúningur hófst fyrir al- vöru að útgáfu geisladisksins má segja að viðbrögð tónlistarmann- anna sem Jóhann og Eiríkur leit- uðu til hafi ekki látið á sér standa. „Við fengum til liðs við okkur hvern snillinginn á fætur öðrum, fengum í raun alla sem við vildum og það var enginn sem sagði nei. Fyrstan er náttúrulega að nefna Kristján Edelstein sent sá um upp- tökuna, ásamt því að útsetja öll lögin, spila á gítar og hljómborð. Aðrir sem spila með okkur eru einnig frábærir tónlistarmenn. Það Kór Akureyrarkirkju í Kanada: Góðar móttökur - segir Bryngeir Kristinsson Kór Akureyrarkirkju er nú á hálfs mánaðar ferðalagi í Kanada og söng í gær á fjórðu og síðustu tón- leikunum í ferðinni í Vancouver. Formaður kórsins sagði í samtali við blaðið fyrir helgi að ferðin hafi gengið vel. „Ferðin hefur gengið alveg framar vonum og aðsókn að tón- leikunum verið frekar góð,“ sagði Bryngeir Kristinsson, formaður Kórs Akureyrarkirkju, skömmu áður en haldið var yfir Klettafjöll- in áleiðis til Vancouver. „Þetta hefur gengið eins og best verður á kosið og móttökum- ar hafa verið mjög góðar. Það er gaman að hitta hér fólk sem hefur búið hér alla sína ævi en talar mjög góða íslensku. Hjá þessu fólki eru mjög sterk bönd til ís- lands og það ræktar þessi þjóð- ræknistengsl með því að fylgjast með hvað er að gerast heima á ís- landi. Við höfum verið að fá alls kyns spurningar um fólk heima á Islandi og höfum stundum lent í vandræðum með ættfræðina,“ sagði Bryngeir. Á fimmtudag heldur kórinn heim á leið og kemur til Keflavík- ur á föstudagsmorgun. JÓH er eins með söngvarana. Pálmi Gunnarsson, Óskar Pétursson, Erna Gunnarsdóttir, Ingólfur Jó- hannsson, Júlíus Guðmundsson og Þórhildur Örvarsdóttir syngja fyrir mig og sjálfur syng ég eitt lag til þess að vera með þar sem ég spila ekkert sjálfur á diskinum," segir Jóhann. „Ég setti mér upp óska- lista áður en við byrjuðum og sá listi gekk upp hundrað prósent. Ég fékk Óskar Pétursson og Huldu Björk Garðarsdóttur til að syngja saman eitt lag, síðan flytja Hulda Björk, Þórhildur Örvarsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir hver sitt lagið, Kristjana og Hjörleifur úr Tjarnarkvartettinum syngja eitt lag og sjálfur er ég með eitt,“ seg- ir Eiríkur. Engin speki á bak við þetta Útgáfan er algerlega í höndum Jó- hanns og Eiríks. „Við stöndum sjálfir í þessu öllu saman. Það er enginn útgefandi sem tekur okkur upp á sínar herðar. Annars er það Vilberg sem er prímusmótorinn og upphafíð í þessu í öllu saman og það er hann sem fjármagnar þetta. Við höfurn ekki komið ná- lægt þessu og fréttum bara af því um daginn að búið væri að fjár- bak við þessa plötu,“ segir Eirík- ur. Tónlistin sáluhjálparatriði Áhrif tónlistarinnar á líf þeirra fé- laganna leynir sér ekki. „Tónlistin gefur manni svo mikið, hún getur bæði verið róandi ásamt því að halda manni gangandi," segir Eiríkur. Jóhann samsinnir því og bætir við: „Fyrir mig er þetta al- gert sáluhjálparatriði úti á sjó. Ég kæmist ekki af án tónlistarinnar. Þegar ég er alveg að farast úr heimþrá þá sest ég við hljómborð- ið og sem tónlist." hbg Umferðarhornið Umferðarhornið - gatnamót! Algengasta orsök árekstra og slysa á gatnamótum er sú að Oftast er umferðarréttur/forgangur á gatnamótum til- greindur meö umferðarmerkjum, stöðvunarskylda = A á mynd eða biðskylda = B á mynd. I báðum tilfellum á um- ferð annarrar götunnar forgang á umferð hinnar. A sumum gatnamótum er umferð stjórnað með umferðar- Ijósum = C á mynd. Vegfarendur beggja gatnanna beygja sig þá undir stjórn Ijósanna. Bili Ijós fær önnur gatan forgang á hina samkvæmt umferðarmerkjum. Séu engar merkingar við gatnamót gildir meginreglan um forgang, „hægri reglan", þ.e. að sá víkur sem hefur hinn sér á hægri hönd = D á mynd. Ath. að auðvitað eru engin gatnamót merkt eins og mynd sýnir! umferðarréttur er ekki virtur. Akið varlega - forðist slysin Ráðhústorgi 5 • 600 Akureyri Sími 462 2244 • Fax 462 3631 SJOVAufluALM E N N AR

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.