Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Blaðsíða 2
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 20. JULÍ 1994
Samningar Tryggingastofnunar og sérfræðinga lausir frá í september
Heilbrigdisráðherra segir
til vísunarskyldu líklega
- rúmlega 100 milljóna króna spamaður úr myndinni
„Það þarf tvo til að ná nýjum
samningi. Hins vegar var ég á sínum
tíma að undirbúa tilvísunarskyldu
þannig að þeim mun lengur sem það
dregst að ná samningi við sérfræð-
inga þeim mun líklegra er að leiðin
út úr þessu verði tilvísunarskyldan,
þannig að ekki verði greitt öðruvísi
en samkvæmt tilvísun frá heimilis-
lækni,“ segir Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra.
Samningar sérfræðinga og Trygg-
ingastofnunar hafa verið lausir frá
því í september síðastliðnum eftir að
núverandi heilbrigðisráðherra sagði
þeim upp. Hingað til hafa samninga-
fundir reynst árangurslitlir, reyndar
hafa samninganefndimar ekki ræðst
formlega við síðan um áramót.
Menn hafa hins vegar hist á óform-
legum fundum og rætt ýmsa mögu-
leika til sparnaðar. Samkvæmt upp-
lýsingum DV hafa hugmyndir um
eins konar kvótakerfi eða eininga-
kerfi, þar sem einstökum læknum
yrði úthlutað ákveðnum fjölda ein-
inga, verið ræddar en sérfræðingar
ekki talið það álitlegan kost.
Samkvæmt fjárlögum átti að ná
niður sérfræðikostnaði á þessu ári
um rúmlega 100 milljónir en þar sem
starfað hefur verið eftir gamla samn-
ingnum hefur enginn útgjaldasparn-
aður orðið. Segir Sighvatur að ekki
þýði að tala um spamað þar sem
ekki hafi tekist að ná nýjum samn-
ingi eins og að var stefnt.
Heilbrigðiráðherra hefur áður lýst
yfir óánægju með samninginn og
sagði hann meðal annars, í samtali
við DV, galopinn krana í kerfmu sem
veitti sérfræðingum frjálsan aðgang
að greiðslukerfi Tryggingastofnun-
ar. Læknar þyrftu ekki annað en að
tilkynna sig sem sérfræðing til að fá
beinan aðgang að greiðslukerfi
Tryggingastofnunar. Sighvatur segir
að vænta megi aðgerða í málinu mjög
fljótlega og engar aðrar leiðir en til-
vísanakerfið séu sjáanlegar.
Formaöur sérfræðinga:
Bolabrögð
og þving-
unarað-
gerðir
„Á þessari stundu vil ég ekki
fuílyrða um hver viðbrögð okkar
verða ef tilvísunarskyldu verður
komið á. Mér finnast þetta óheið-
arlegar aðferðir vegna þess að
almannatryggingalögunum var
breytt eftir að gamli samningur-
inn hafði verið gerður. Þessi ráð-
herra fékk breytt almannatrygg-
ingaiögunum til þess að fá heim-
ild til þess að setja á tilvísunar-
kerfi. Þetta er eins og í Suður-
Afríku þar sem lögunum var
breytt tii að fá höggstað á and-
stæðingnum. Þetta eru ekkert
annað en bolabrögð," segir Guð-
mundur Ingi Eyjólfsson, for-
maður samninganefndar sér-
fræðinga, um ummæh heilbrigð-
isráðherra um að líklega verði að
koma á tilvísanakerfi þar sem
ekki takast samningar milU sér-
fræðinga og Tryggingastofnunar
um greiðslur tíl þeirra fyrr-
nefndu.
Guðmundur Ingi segir allsendis
óvíst hvort takist að ná kostnaði
niður um 100 miUjónir með því
aö setja á tUvísunarkerfi. Hann
lítur reyndar svo á að hér sé ein-
ungis um þvingunaraðgerðir að
ræða.
„Ráðherra vUdi ná niður rann-
sóknarkostnaöi líka. Þar er í gildi
tilvísanakerfi þannig að í því tíl-
viki er um að ræða vindhögg."
„Ég hef ekki minnstu trú á
þessu kerfi. Það er húið að veifa
þessu plaggi oft, þessari tUvísun-
argrýlu, og við erum eiginlega
hættir að taka mark á þessu.“
Guðmundur Ingi telur að að-
gerðir ráðuneytis í málum sem
tengdust röntgengjaldskrá hafi
orðið tU þess að shtnaði upp úr
samningum í mars síðastliðnum.
„Við sáum ekki samnings-
grundvöU eftir þetta. Það sem við
áttum að fá í staðinn fyrir okkar
eftirgjöf var farið. Maður gerir
ekki einhliða samning og gefur
endalaust eftir,“ segir Guðmund-
ur Ingi. Hann segir jafnframt að
útgjöld Tryggingastofnunar
vegna sérfræðiþjónustu á sein-
asta ári hafi verið 600 milljónir.
Yfir 100 mUljóna króna lækkun á
þessari upphæð sé að minnsta
kosti 16 prósenta lækkun á
greiðslum til sérfræöinga.
„Ef aðrir í þjóðfélaginu eru til-
húnir að taka á sig svona tekju-
skerðingu þá erum við einnig tU-
búnir. Annars ekki,“ segir Guð-
mundur Ingi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Friörik Sophusson fjármálaráðherra ræddu byggingarmálin fyrir HM '95
á fundi i gærmorgun. DV-mynd ÞÖK
Borgarráð styður íþróttahús
- borgin hefur samþykkt aö byggja hálft hús, segir bármálaráöherra
Borgarráð hefur samþykkt að
veita 270 mUljónir króna í byggingu
nýs fjölnota íþróttahúss í Laugardal
fyrir HM ’95 að því tUskUdu að forr-
áðamenn Handknattleikssambands
íslands, HSÍ, tryggi samsvarandi
upphæð frá ríkisvaldi eða öðrum
aöilum sem sjái sér hag í húsinu.
„Við munum leita leiða til þess aö
byggja hús sem yrði viðunandi fyrir
okkur fyrir HM fyrir þessa upphæð
og gæti orðið fyrsti áfangi að fjölnota
íþróttahúsi. Ég ht svo á að 260 miUj-
ónir séu til reiðu og eins og staðan er
í dag hef ég ekki trú á öðru en að
hægt sé að byggja hús fyrir þessa
upphæð. Það er óreynt-ennþá hvort
okkur tekst að fá samsvarandi upp-
hæð og verður það bara aö koma í
ljós. HSÍ mun ekki beita sér fyrir
því,“ segir Ólafur Schram, formaður
HSÍ.
„Fjármálaráöherra vísar í samning
milli HSÍ og fjármálaráðuneytisins
frá 1991 þar sem fjármálaráðuneytið
er laust allra mála og þarf ekki að
leggja meiri framlög f HM ’95. Það
er ekki nema menn séu tUbúnir að
opna þetta aftur, tU dæmis með sam-
þykki ríkisstjórnarinnar fyrir því.
HSÍ verður náttúrlega að vinna þetta
mál áfram en við höfum bara verið
að bregðast við áhyggjum þeirra
kringum þetta mót,“ segir Ingihjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
„Forsenda þess að þetta mót yrði
haldið var að það yrði gert með nú-
verandi húsakosti. Þetta mál hefur
komist aftur á hreyfmgu vegna þess
að frambjóðendur í Reykjavík reif-
uðu hugmyndir um að byggja yfir
íþróttastarfsemina og þess vegna
kom fram ósk frá HSÍ. Með sam-
þykktinni er borgarráð að koma sér
hjá því að byggja húsið með því að
setja skUyrði fyrir framlaginu um að
HSÍ leiti eftir stuðningi hjá ríkisvald-
inu. Reykjavíkurborg hefur sam-
þykkt að hyggja hálft hús,“ segir
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra.
Ekkert erindi hefur horist frá HSÍ
til fjármálaráðuneytisins um að rík-
isvaldið skoði máhð á nýjan leik.
Stuttar fréttir
Bæjarstjórn neitar
Bæjarstjórn sameinuðu sveit-
arfélaganna á Suðurnesjum neit-
aði að kaupa dráttarbraut af
Skipasmíðastöð Njarðvíkur.
Framkvæmdastjóri stöðvarinnar
sagðist í RÚV vera vonsvikinn.
Sjálfhættá Hrafnseyri
Menntamálaráðherra sagði í
RÚV endurbyggingu fæðmgarbú-
staðar Jóns Sigurössonar á
Hrafnseyri vera sjálfhætt i sumar
vegna fjárskorts.
PiúsáGrundartanga
Fram kom í Mbl. að 40 milljóna
króna hagnaöur varð af rekstri
Jámblendiverksmiðjunnar á
Grundartanga fyrstu sex mánuöi
ársins.
Engarjarðirkeyptar
Enginn áhugi viröist vera hjá
útlendingum að kaupa jarðir á
íslandi í kjölfar EES-samnings-
ins. Þetta kom fram á Stöð 2.
Launavísitala hækkar
Launavísitala fyrir júlímánuð
er 133,1 stig sem er 0,7% hækkun
frá fyrra mánuði. Vísitalan var
reiknuð miöað við meðallaun í
júní si.
4,1 prðsent verðhólga
Byggingarvísitala er núna 197,8
stig, 0,3% hærri en í júni Siðustu
3 mánuði hefur vísitalan hækkaö
um 1% sem jafngildir 4,1 prósent
verðbólgu á ári.
Meirigrásleppa
Sjávarútvegsráðherra hefur
framlengt veiðitíma til grá-
sleppuveiöa xun allt að einn mán-
uö að beiðni smábátaeigenda.
Hafrannsóknastofhun lagði
blessun sína yfir framlenging-
una.
Hermann Níelsson, varaþingmaður krata á Austurlandi:
Styð Jóhönnu en klýf ekki f lokkinn
Emil Thorarensen, DV, Eskifiiði:
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður hefur hafið liðskönnun sína á
Austfjörðum. Var á Höfn á mánudag
og ók um kvöldið til Djúpavogs. Gisti
á prestssetrinu hjá séra Sjöfn Jó-
hannesdóttur, eiginkonu séra Gunn-
laugs Stefánssonar alþingismanns.
Jóhanna dvaldi á Djúpavogi í gær.
Hélt þá til Breiðdalsvíkur. Þar tók
séra Gunnlaugur á móti henni.
Þau heimsóttu vinnustaði og spjöll-
uðu við fólk á Breiödalsvík og Stöðv-
arfirði. í gærkvöldi heimsótti Jó-
hanna Fáskrúðsfjörð. Þar tók Eirík-
ur Stefánsson, formaður kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins á Austurlandi,
á móti þeim opnum örmum og voru
þau með vinnustaðáfundi í morgun.
„Við reynum að skipuleggja vel
þessa heimsókn Jóhönnu. Hér vilja
allir allt fyrir hana gera,“ sagði Ei-
ríkur. Forsvarsmenn Goðaborgar hf.
á Fáskrúðsfirði, sem hafa 40 manns
í vinnu, létu gera sex rjómatertur
sem boðið var upp á í kaffinu í morg-
un þegar Jóhanna heilsaði upp á.
Ég vona að Jóni Baldvin beri gæfa
til þess að halda flokknum saman. Á
þessari stundu vil ég ekkert um þaö
segja hvort ég fylgi Jóhönnu að mál-
um en það verður að taka tillit til
allra sjónarmiða í flokknum. Þau
40% sem studdu Jóhönnu á flokks-
þinginu verða að finna sig velkomin
áfram í Alþýðuflokknum. Lítill
flokkur eins og Alþýöuflokkurinn
má ekki verða minni," sagði Eiríkur.
Eftir hádegi í dag fer Jóhanna til
Reyðarfjarðar og kemur til Eski-
fjarðar í kvöld og mun gista. Á
fimmtudag verður hún með fundi á
Eskifirði. Fer síðan til Neskaupstað-
ar og um kvöldið til Egilsstaða. Verð-
ur þar til hádegis á fostudag og held-
ur þá niöur á Seyðisfjörö.
Hermann Níelsson, varaþingmað-
ur Alþýðuflokksins á Austurlandi,
kvaðst í samtali við DV hafa stutt
Jóhönnu á flokksþinginu.
„Hún hefur unnið geysigott starf í
þágu alþýðu þessa lands og nú finnur
hún vel stuðning við sínar skoðanir
hjá þorra fólks. Allir vilja bjóöa
henni gistingu og mat og gera þessa
ferð sem ánægjulegasta. Sýna henni
á þann hátt stuðning við hennar
stefnu. Ég er stuðningsmaður Jó-
hönnu en ég er ekki tilbúinn að klj úfa
Alþýðuflokkinn. Jón Baldvin er
formaður flokksins, kjörinn af meiri-
hluta, og ég ber virðingu fyrir honum
sem formanni," sagði Hermann.