Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1994, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1994 Uffe Ellemann-Jensen. Vill íslendinga ÍESB „Ég vona aö íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu en tek það fram að það eru aðeins íslendingar sjálfir sem geta svar- að þeirri spurningu hvort af því verður,“ segir Uffe Ellemann- Jensen í DV. Sækjum ekki um í einhverju bríaríi „Við verðum að skilgreina hvað við viljum og láta reyna á það. Við sækjum ekki um í einhverju bríaríi heldur verður þetta að vera vel undirbúið," segir Vil- hjálmur Egilsson í DV. Ummæli Húsið meira og minna ónýtt „Þegar átti að opna heimilið kom í ljós að húsið var allt meira og minna ónýtt. Þegar þetta kom í ljós var öllu málinu frestað og síðan hafa menn verið í hálfgerð- um vandræðum með húsið,“ seg- ir Pétur Jónsson, framkvæmda- stjóri Ríkisspítalanna, um fæð- ingarheimilið í Reykjavík í Tím- anum. Alveg sama hvað hver segir, kortin gilda ekki „Ég var fullvissaður um að ég þyrfti svo lítinn gjaldeyri. Það átti ekki að vera neitt mál að taka út á debetkort. En í fimm banka- fór ég og hvergi var tekið við kortinu," segir Albert Þorbjöms- son, ferðamaður í Hollandi, í DV. Banna togveiðar báta og togara „Það á að banna allar togveiðar báta og togara út af Austfjörðum frá Glettinganesflaki, norður og vestur um, alveg vestur í Djúpál út í 3 sjómílur. Á þessu svæði ætti að mínu mati eingöngu að leyfa krókaveiðar,“ segir Stur- laugur Stefánsson, formaður Sindra í DV. Aðalfundur Tattoo-klúbbsins Hinn nýstofnaði Tattoo-klúbb- Fundir ur íslands heldur sinn fyrsta að- alfúnd á Tveimur vinum i kvöld, miðvikudaginn 20. júli kl. 20.30. Skráðir félagar mætið og kjósið í stjóm klúbbsins. Tekið veröur á móti nýjum félagsmönnum. Sagtvar: Ef hann mundi taka það að sér mundí ég verða feginn. Rétt væri: Ef hann tæki það að sér yrði ég feginn. Kaldast er á Homströndum I dag verður hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Skýjaö með köflum Veðrið í dag norðaustanlands, súld frameftir morgni suðaustan til en annars smá- skúrir. Hiti verður á bilinu 7 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands yfir daginn en kaldast á Hornströndum. Á höfuðborgarsvæðinu er hæg aust- læg átt og smáskúrir. Hiti 9 til 14 stig. Sólarlag í Reykjavík: 23.11. Sólarupprás á morgun: 3.58. Síðdegisflóð í Reykjavík 16.37. Árdegisflóð á morgun: 5.01. Heimild: Almanak Háskólans. Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 12 Egilsstaðir léttskýjað 12 Galtarviti skýjað 12 Keíla víkurilugvöllur skýjað 9 Kirkjubæjarklaustur r. á s. klst. 10 Raufarhöfn þoka 9 Reykjavik skýjað 10 Vestmannaeyjar skýjað 9 Bergen léttskýjað 13 Helsinki léttskýjað 16 Ósló léttskýjað 19 Stokkhólmur skýjaö 19 Þórshöfn alskýjað 12 Amsterdam léttskýjað 18 Berlín léttskýjað 17 Chicago skýjað 24 Feneyjar þrumur 19 Frankfurt rigning 17 Glasgow lágþokubl. 13 Hamborg léttskýjað 16 London mistur 15 LosAngeles mistur 17 Lúxemborg léttskýjað 16 Madríd léttskýjað 18 Malaga þokumóða 23 Mallorca skýjað 24 Montreal léttskýjað 20 New York léttskýjað 27 Nuuk rigning 10 Orlando skýjað 24 París heiðskírt 17 Vín r. á s. klst. 18 Washington þokumóða 27 Winnipeg alskýjað 17 Beinum ausum okkar að út- „Við erum með samning við eina stóra ferðaskrifstofu í Þýskalandi sem sendir okkur töluvert af ferða- fólki. Víð erum búnir að senda Maður dagsins mikið út af kynningariti til ferða- skrifstofa í Evrópu og verðum að halda markvisst áfram að láta vita af okkur. Það tekur 3-4 ár að byggja þetta upp í alvöru tjaldstæða- og ferðaþjónustu. Þá vonum viö að það sé þess virði að standa í þessu,“ segir Erlingur Hannesson, rekstr- araðili þjónustumiðstöðvar og tjaldsvæðis í Njarðvik og Keflavík. Að sögn Erlings voru gistinætur tæplega 300 í júní en fyrstu dagarn- ir x júlí lofa góðu vegna góðrar veðráttu. Þrátt fyrir 20% samdrátt i tjaldferðalögum þá telur hann að fólkið sé mun seirrna á ferðinni í ár en verið hefur. „íslendingar láta Erlingur Hannesson. lítið sjá sig ennþá en aðstaðan er fyrir húsbila, hægt er að tengja í rafmagn, komin er upp skolaðstaða fyrir klóakið úr bílunum og er los- að og tekið vatn inn á tankana en þessi aðstaða var ekki fyrir hendi.“ Tjaldsvæðið er staðsett við Sam- kaup í Njarðvík en svæðið var opn- að í fyrra. „Það er alveg öruggt að ef við fáum ferðamanninn til að koma hingað fyrstu nóttina þegar hann kemur til landsíns þá skilar hamx sér aftxir síðustu 2-3 næturn- ar áður en hann heldur af landi brott og notar síðustu dagana til að skoöa svæðið hér í kring. Við bjóðum miklu meira en bara íjald- stæði, við reynum að þjóna ferða- manninum á sem flestan máta, bjóðum ferðir, útsýnisflug, bíla- leigubíla, sjóstangaveiði og margt fleira. Fólk sem hefur komið hing- að hefur óspart nýtt sér þessa þjón- ustu en mest eru það Þjóðveijar, þeir eru það sem af er árinu um 60% af öllum gestum en voru 83% í fyrra. Norðurlandabúar hafa sést töluvert þetta sumarið en það má segja að hér tjaldi fólk alls staöar að úr heiminum." Áhangandi Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Leikir í fjórðu deildinni Nú er heimsmeistarakeppnin búin sællar minningar þótt ekki séu menn á eitt sáttir um gæði úrslitaleiksins verður því ekki breytt að Brasilía verður heims- íþróttir meistari næstu flögur árin, Hvaða lið vei-öur íslandsmeistari í ár er ekki hægt að segja til um enda er keppni í 1. deild tæplega hálfhuð. Á morgun verða leikir í 1. deildinni en i dag verða þrír leíkir í fjórðu deild. Á Njarðvík- m-\'elli leika Njarðvíkingar gegn Grindvíkingum. Þarna er að sjálfsögðu ekki um að ræða 2. delldar lið Grindvíkinga heldur er þetta lið á vegum golfklúbbs- ins. Á Þórshöfn leika UMFL og KBS og á Reyðarfxröi leika KVA og Sindri. Skák Stórmeistarinn Alonso Zapata frá Kól- umbíu deildi efsta sæti á minningarmót- inu um Capablanca í maí. í þessari stöðu frá mótinu stýrir hann hvítu mönnunum og er í stórsókn gegn Becerra. En hvem- ig leiðir hann taflið til lykta? 1. Dc6+ Kb8 2. Hxc5! dxc5 3. Bf4+ Bd6 4. Bxd6+ Hxd6 5. Dxd6+ Dxd6 6. Hxd6 og með peði meira og virkari stöðu vann hvítur létt. Jón L. Árnason Bridge Aðsókn virðist vera að aukast 1 sumar- bridge í Sigtúni 9 og síðastliðiö mánu- dagskvöld var metþátttaka í sumar, 40 pör skráðu sig til leiks. Ræður þar eflaust miklu um að heimsmeistarakeppninni í knattspymu er lokið. Hér er eitt spil frá' sumarbridge síðasta mánudagskvöld. Suður taldi sig vera í góðum málum þeg- ar austur kom skyndilega inn á hindnm á þriðja sagnstigi á hættxinni gegn utan. Suður átti hins vegar eftir að vakna upp við vondan draum. Sagnir gengu þaimig, norður gjafari og AV á hættu: ♦ K10753 V -- ♦ Á3 + ÁKG973 ♦ ÁDG62 V 753 ♦ K10874 4* -- ♦ 984 V ÁG9 ♦ DG62 + D108 * — V KD108642 ♦ 95 -1. CCAO Norður Austur Suöxir Vestur 1* 3» Dobl p/h Austur sagði djarflega á spilin og hefði getað fengið refsingu en örlögin vom honum hliðholl og hann þáöi hreinan topp fyrir spilið. Suður spilaði út spaða- níu og vestur lagði niður og sagðist um leið oft hafa lagt niður lélegri blindan. Sagnhafi drap á ás og henti tígli heima og spilaði síðan spaðadrottningu. Norður setti lítið spil og þá hvarf síðari tígull austurs. Nú kom tígulkóngur, ás frá norðri, trompað heima, lauf trompað, tíg- ull trompaður, lauf trompað og tígull trompaður. Eim var lauf trompað í blind- um og síðan fjórði tigullinn. Sagnhafi fékk yflrslag í spilinu og 930 í sinn dálk. Útspil suðurs var ekki vel ígrundað, betra hefði verið að spOa út tíguldrottningu. Besta útspilið er hins vegar hjartaás og meira hjarta, þó erfiðar sé að frnna það útspil við borðið. Það vekur hins vegar rneiri furöu að norður skyldi sitja í dobli suðurs með svo góða skiptingarhendi. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.