Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Fjárvana borg Nýr meirihluti í Reykjavík hefur látið gera úttekt á fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar. í ljós kemur að staðan er afar slæm og mildu verri en almennt hafði verið búist við. Athyghsvert er að þessi slæma fjárhagsstaða virðist koma flestum í opna skjöldu. Nýir valdhafar, jafnt sem þeir gömlu, reka upp stór augu. Svo virðist sem enginn hafi haft heildaryfirsýn yfir fjármálastöðu borgarinnar. Þó er nóg af fjármálastjórum, hagfræðingum, endurskoð- endum og borgarfulltrúum sem hafa af því atvinnu að fylgjast grannt með. Borgin skuldar tólf milljarða króna en skuldasöfnun á síðasta kjörtímabih jókst um átta mihjarða króna. Lánsíjárþörfm er tveir og hálfur mihjarður á þessu ári. Lausafjárstaðan er afar þröng og borgarstjóri fuhyrðir að borgarstjórn hafi aðeins 240 milljónir króna th nýfram- kvæmda þegar búið er að gera ráð fyrir hefðbundnum rekstri og afborgunum lána. Sú upphæð er eins og upp í nös á ketti. Sjálfstæðismenn í borgarstjóm Reykjavíkur hafa löng- um státað sig af því að hafa rekið borgina með ráðdeild. Þegar hin dökka mynd er dregin upp af skuldastöðunni hafa þeinsvarað gagnrýninni á þá leið að skuldastaðan sé betri heldur en hjá flestum nágrannsveitarfélögunum ef miðað er við höfðatölu. Þeir hafa bent á atvinnuástand- ið og nauðsynlegar úrbætur og aðgerðir á þeim vett- vangi, sem hafi kostað mikla peninga á síðustu tveim árum. Þetta em skýringar út af fyrir sig en duga þó hvergi th að réttlæta þá erfiðu stöðu sem nú blasir við. Ekki em nema nokkur ár síðan borgarsjóður var vehauðugur og þá einkum eftir að staðgreiðslan var ákveðin um miðbik valdaferhs Davíðs Oddssonar. Síðan hefur sigið á ógæfu- hliðina. Síðan þá hafa íjármál borgarinnar farið úr bönd- um. Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Styrk fjármála- stjóm hefur einmitt verið ein sterkasta röksemd sjálf- stæðismanna fyrir stjórn þeirra á borginni. Baráttan um meirihlutann í vor hefur og reynst dýr ef marka má fuh- yrðingar hins nýja meirihluta. Nýju valdhafamir í borg- inni em enn að uppgötva skuldbindingar og ákvarðanir, sem teknar vom í kosningabaráttunni og leiða th auk- inna og óvæntra útgjalda, sem standa verður við. Einhver hefur greirúlega farið á taugum í kosningabar- áttunni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir að þrjár leiðir komi th greina th að rétta stöðu borgarsjóðs við. í fyrsta lagi að spara í rekstri, sem verður gert hvort sem er, en skhi thtölulega litlum árangri og á lengri tíma. í öðm lagi að taka ný lán og auka þannig skuldabyrði borgarsjóðs, sem ekki sé góður kostur. Þriðja leiðin er sú að hækka útsvör og þjónustugjöld af hálfu borgarinn- ar. Sú leið er póhtískt erfið en ekki úthokuð af hálfu borgarstjóra. Sjálfsagt verður sitt lítið af hverju notað af þessum þrem kostum. Það á sömuleiðis eftir að reyna á það hvemig nýjum meirihluta, sem er með fuht farteski af hugmyndum um breytt vinnubrögð, vegnar í sinni eigin Úármálastjóm. Síðast þegar vinstri menn náðu völdum í Reykjavík vom íjármálin sem sviðin jörð þegar þeir skhuðu af sér. Mun sú saga endurtaka sig? Verður Ingi- björg Sólrún fómarlamb sundurleitra afla sem öh vhja koma sér og sínum að? Hún tekur ekki við góðu búi. Hún þarf sömuleiðis að sanna að sigur R-hstans hafi verið tímabær. Ingibjörg Sólrún er mffli steins og sleggiu. EUert B Schram Beiting hervalds við Persaflóa og á Haití styrkir stöðu Clintons verulega og eyðir gagnrýnisröddum um rolu- gang, segir m.a. í grein Gunnars. Símamynd Reuter Saddam gerir sitt gagn Það hefur alltaf verið fullljóst að refsiaðgerðir stórveldanna í Sam- einuðu þjóðunum gegn írak beind- ust aöeins að einum manni. Leið- togar Vesturlanda eru enn fangar eigin orða, sem George Bush lagði þeim í munn í móðursýkiskastinu mikla 1991, að Saddam Hussein sé verri en Hitler. Þeir hafa ekki sið- ferðisþrek né pólitískan kjark til að viðurkenna að Saddam Hussein er hvorki betri né verri en aðrir leiðtogar á þessum slóöum. Fyrir sært stolt Bush, sem tókst ekki að kollvarpa Saddam heldur féll sjálfur, verða nú 20 milljónir manna að þola einangrun og útskúfun vegna þess að stríðið um Kúveit var kynnt á röngum for- sendum. Ástæðan var freklegar móðganir Sabah-hyskisins í Kúveit gagnvart Saddam, sem þó hafði í umboði Persaflóaríkjanna og Sádi- Arabíu tekið að sér aö verja Persa- flóaríkin gegn Shia-byltingu Khomenis í Iran. Um álit araba á Kúveit má láta þess getið að þegar menn þar um slóðir afsaka sig til að bregða sér á salerni heitir það „að skreppa til Kúveit“. Allt talið um að olíuhags- munir Vesturlanda væru í hættu er þvættingur eins og Japanar og Þjóðverjar skildu mæta vel; OPEC ræður ekki lengur olíuverðinu. Þetta var persónuleg herferð Bush gegn Saddam og „Sameinuðu þjóð- irnar“ í þessu samhengi eru ekkert annað en Bandaríkin og Bretland. Öryggisráðið Öryggisráðið setti skilyrði fyrir því að aflétta viðskiptabanninu og þeim upphaflegu skilyrðum hefur öllum verið fullnægt að mati eftir- litsmanna SÞ. En þá eru bara búin til ný skilyrði, vel utan uppruna- legra ákvæða, um að Saddam Hus- sein beri að hætta að kúga þjóð sína Gunnar Eyþórsson blaðamaður að landamærunum við Kúveit, sem um tíma litu ískyggilega út. En það hefur tekist að vekja at- hygh á því ranglæti sem 20 milljón- ir Iraka eru beittar vegna hégóma- girni nokkurra stjórnmálamanna sem ekki geta tekiö aftur fyrri orð um einn mann og hafa kynt upp móðursýki út af honum síðustu þrjú ár. Pólitísk refskák í raun er þetta síðasta flog þó himnasending fyrir Clinton og Major. Þarna geta þeir sannfært sjálfa sig um að þeir hafi forðað heimsbyggðinni frá stórstyijöld og staðið vörð um réttlætið í leiðinni, auk þess sem Chnton hefur unnið áfangasigur á Haítí með því að losna við hershöíðingjakhkuna úr landi. „Nú þora hvorki Bandaríkjamenn né Bretar, af innanlandspólitískum ástæöum, að aflétta refsiaögeröunum sem þeim ber þó lagaleg og siðferðileg skylda til.“ og írak skuh viðurkenna Kúveit sem sjálfstætt ríki - sem fáir írakar eru reiðubúmr til enda er þetta land búið til út úr íröksku landi að undirlagi Breta, í því skyni að vernda olíuhagsmuni þeirra í íran (BP) og halda írak niðri. Þetta var 1920, áður en olía fannst í Kúveit. Nú þora hvorki Banda- ríkjamenn né Bretar, af innan- landspóhtískum ástæðum, að af- létta refsiaðgerðunum sem þeim ber þó lagaleg og siðferðileg skylda th. Th að leggja áherslu á sitt sjón- armið fóru Irakar út í liðsflutninga Frakkar og Rússar eru ekki eins vissir um réttmæti núverandi stefnu. - Málstaður íraka nýtur vaxandi skilnings og núverandi stefna kyndir undir fjandskap al- mennings í Arabalöndunum gegn Vesturlöndum yfirleitt. En Chnton hefur sýnt að hann þorir að beita hervaldi, bæði við Persaflóa og á Haítí, og þar með hefur hann styrkt stöðu sína veru- lega og eytt gagnrýnisröddum um rolugang. Saddam gerir sitt gagn. Gunnar Eyþórsson Skoðanir annarra Afrekaskrá R-listans „Hlýhugur er eitt og bjartsýni annað - að maður nefni ekki traust. Ég sé nefnilega ekki að R-hstinn hafi komið nokkrum sköpuðum hlut í verk á þeim flmm mánuðum sem eru hönir síöan Reykvíkingar kusu hann yfir sig - nema þá að taka sumarfrí sem enginn hafði unnið fyrir og rífast um það hvernig ætti að fara að því að opna Ehiaámar, hvort rétt sé að keyra um á jeppa og hver eigi að hafa kontór." Egill Helgason í Alþbl. 20. okt. Steingeldur fjölmiðill „í nútímasamfélagi fjölmiðlunar og upplýsinga- tækni er það út í hött að ríkisvaldið skuli enn reyna að halda úti fjölmiðli, sem engum thgangi þjónar. ... En hvað sem þessum vangaveltum líður eru eng- in marktæk rök fyrir því að ríkisvaldið reki sér- stakt léttmetisútvarp eins og Rás 2. Reynslan undan- farna daga undirstrikar þetta. Og það sem meira er, Rás 2 er gjörsamlega steingeldur fjölmiðill, þaðan koma engar nýjungar heldur aðeins sjálfumglatt hjal starfsmanna." í forystugrein Viðskiptablaðsins 19. okt. Lúðarnir og lambakjötið „Slátrun dýra og holskurðir lækna eiga lítið skylt við sundurtætta búka og limlest lík fómarlamba morðóðra brjálæðinga. En lúðarnir, sem stýra myndavélum og útsendingum, sýnast nálgast allt þetta með svipuðu hugarfari, sem er að fylla skjáina af sundurtættu holdi og líífæmm í annarlegu um- hverfi. Svona myndsýningar stöðva hvergi stríð, en þær geta sem best dregið úr slátursölu og lambakjöts- áti, og mikið eiga hvahr og selir þeim að þakka.“ OÓ í Timanum 20. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.