Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Síða 18
26 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 íþróttir unglinga . Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi, hefur tekið miklum framförum að undanförnu. Hér er hún með foreldrum sínum, Þorgeiri Þorgeirssyni og Jónu Rebekku Högnadóttur. DV-myndir Hson Unglingasundmót Armanns Ingibjörg Olöf með besta árangurinn - hlaut 597 stig fyrir 1,04,69 í 100 m skriðsundi stúlkna Unglingasundmót Ármanns fór fram síðastliðinn sunnudag í Sund- höll Reykjavíkur. Góður árangur náðist í flestum greinum - þó svo að ekkert íslandsmet væri sett, enda er tímabil sundíþróttarinnar rétt að byrja. Bestum árangri náði Ingibjörg Ólöf ísaksen, Ægi, í 100 metra skriðsundi stúlkna; synti á 1,04,69 mínútum og hlaut 597 stig, sem er góður árangur. Mjög mikil þátttaka var í mótinu og margir komu til að fylgjast með þessu efnilega sundfólki. Ég fylgist vel með Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi, keppti ekki að þessu sirmi vegna smálasleika, en stúlkan var nú samt á staðnum að horfa á, ásamt móður sinni, Björgu Jónsdóttur: „Þaö er slæmt að geta ekki verið með en ég tek þátt í Ægismótinu á Umsjón Halldór Halldórsson sunnudaginn svo þetta er allt í lagi. Jú, ég náði lágmarkinu til þátttöku á Norðurlandamótinu í Ósló í des- ember og hlakka ég mjög til að fá að spreyta mig þar,“ sagði Lára. „Auðvitað fylgist ég vel með - og hef alltaf verið mjög sátt við að Lára iðki sund,“ sagði Björg, móðir Láru, í samtali við DV, en hún á sæti í stjórn Ægis. Ármann er skemmti- legasta félagið Ármannsstúlkurnar Kristín Þor- steinsdóttir og Steinunn Þorsteins- dóttir, sem ekki eru þó systur, voru að búa sig undir riðlakeppnina: „Uppáhaldsgreinar okkar eru bak- sund og skriðsund. Við byrjuðum 7 ára aö æfa hjá Ármanni og er þetta alveg frábært. - Enda er Ármann langskemmtilegasta félagið," sögðu þær stöllur. Foreldrar mínir hafa hvatt mig Halldóra Þorgeirsdóttir, Ægi, 13 ára, hefur bætt sig mjög upp á síðkastið og er aðalgrein hennar bringusund: „Ég byrjaði að æfa 7 ára - og eftir að Petteri byrjaði að þjálfa okkur fór árangurinn fyrst að batna hjá mér. Æfmgarnar eru mjög skemmtilegar og manni líður svo vel vegna þess aö þjálfarinn er svo góður vinur manns. Hann skammar mann sko ekki að óþörfu,“ sagði Halldóra, sem hefur náð lágmarkinu fyrir Norður- landamót unglinga í Ósló. Foreldrar hennar eru hjónin Jóna Rebekka Högnadóttir og Þorgeir Þor- geirsson: „Við höfum alltaf fylgst vel með Halldóru og erum við mjög ánægð með áhuga hennar á íþróttinni. Það fmnst okkur mjög mikiivægt," voru þeirra orð. Þau eru bæði Þróttarar, það er að segja, Jóna var í Þrótti frá Neskaupstað en Þorgeir í Þrótti, Reykjavík. Lára Hrund Bjargardóttir, Ægi, var lasin og gat því ekki synt - en hún fylgd- ist samt með keppninni - og hér er hún með móður sinni, Björgu Jónsdótt- ur, sem aldrei lætur sig vanta þegar dóttirin er að keppa. Tvær hressar úr Ármanni. Til vinstri er Kristín Þorsteinsdóttir og til hægri er Steinunn Þorsteinsdóttir - og auðvitað er Ármann besta félagið. Þær vildu líka að það kæmi skýrt fram að þær eru ekki systur. Sundmót Armanns: Úrslit Hér á eftir birtast úrslit í ungl- ingasundmóti Ármanns - þrír fyrstu í hverri grein. 100 m fjórsund sveina: Guðm. Unnarsson, UMFN ...1,19,19 Jakob J. Sveinsson, Ægi...1,19,87 SteinarSteinarsson, Keílav. 1,22,10 100 m fjórsund meyja: Kolbrún Ýr Kristjánsd., ÍA...1,20,58 Hanna Konráðsd., Keflav...1,21,12 GígjaH. Árnad., UMFA......1,24,46 50 m bringusund hnokka: Jón O. Sigurðsson, UMFN.....44,65 Gunnar Steinþórsson, Reyni ..47,41 Jóhann Ragnarsson, IA.......47,74 50 m bringusund hnáta: Harpa Viðarsdóttir, Ægi.....47,29 Birgitta Birgisdóttir, Keflav....47,79 Þuríður Eiríksdóttir, UBK...47,95 100 m bringusund sveina: Jakob J. S veinsson, Ægi..1,25,94 Sævar Sigurjónss., Keflav. ...1,28,88 Einar Örn Gylfason, Árm...1,30,85 100 m bringusund meyja: Kristjana Guöjónsd., ÍA...1,28,34 BerglindR. Valgeirsd.,Árm.l,30,25 GígjaH. Árnadóttir,UMFA..l,31,71 50 m skriðsund hnokka: Jón O. Sigurðsson, UMFN.....34,25 Gunnar SteinþórssomReyni ..35,86 Helgi B. Jóhannsson, ÍA.....38,09 50 m skriðsund hnáta; Karen L. Tómasd., Kefiav....36,06 Rebekka Þormar, Reyni.......36,12 Harpa Viðarsdóttir, Ægi.....36,51 100 m skriðsund sveina: Guðm. Unnarsson, UMFN ...1,07,03 Jakob J. Sveinss., Ægi....1,10,34 Steinar Steinarss., Keflav.1,10,58 100 m skriðsund meyja: Kolbrún Ýr Kristjánsd., ÍA...l,09,69 HannaB. Konráðsd., Keflav.1,10,98 Sunna B. Helgad., SH.......1,13,75 4x50 m fjórsund sveina: 1. A-sveitUMFN...........2,30,07 2. A-sveit Keflavíkur......2,30,87 3. A-sveitÆgis...........2,43,40 4x50 m fjórsund meyja: 1. A-s veít IA...........2,31,32 2. A-s veit Ægis.........2,39,59 3. A-sveit SH............2,41,83 100 m bringusund pilta: Svavar Svavarsson, Ægi.....1,13,46 Ásgeir V. Flosason, KR....1,17,53 Jón Þ. Sigurvinss., KR....1,20,57 100 m bringusund stúlkna: DagnýHauksdóttir, ÍA.....1,24,00 Margrét I. Guðbjartsd., ÍA....1,26,30 Maren B. Kristinsd., KR...1,30,03 100 m baksund drengja: RagnarÞorsteinss.,UMSB...l,ll,24 Eyjólfur Alexanderss., Kef...l,19,64 Guðmundur Hafþórss., Árm. ....................... 1,19,64 100 m baksund telpna: Anna Guðmundsd., UMFN ..1,20,85 HildurEinarsd., UMFN......1,20,89 Inga Steinþórsd., Reyni...1,21,09 100 m baksund piita: Sverrir Sigmundss., Ægi...1,08,96 KarlKristjánsson, ÍA......1,10,32 Ólafur Hreggviðss, Ægi....1,10,99 100 m baksund stúlkna: Erla Kristinsdóttir, Ægi..1,17,26 BerglindHlynsd., UMSB.....1,18,14 Víóletta Ó. Hlöðversd., Stj. ...1,19,45 100 m skriðsund drengja: Kristinn Páimason, Ægi'...1,00,67 Tómas Sturlaugsson, UBK...l,0l,25 RagnarÞorsteinss., UMSB...1,02,65 100 m ‘skriðsund telpna: ArnaMagnúsdóttir, ÍA......1,07,15 Arndis Vilhjálmsd., KR...1,08,75 Halla Guðmundsdóttir, Árml ,08,99 100 m skriðsund pilta; Rikarður Ríkarðsson, Ægi...57,55 Ragnar Jónasson, Keflav....57,87 Jón F. Hjaltason, Keflav...58,71 100 m skriðsund stúlkna: IngibjörgÓ, ísaksen, Ægi...1,04,69 (Besta afrek mótsins: 597 stig). Rán Sturlaugsdóttír, UBK....1,06,68 Víóletta Ó. Hlöðversd., Stj. ...1,07,48 200 m fjórsund drengja: Tómas Sturlaugss., UBK....2,37,44 Kristján Guðnason, SH.....2,49,87 Þorgeir Þorgeirss., UMSB ....3,14,04 200 m fjórsund telpna: Halldóra Þorgeirsd., Ægi..2,43,01 KristinM.Pétursd.,ÍA......2,50,85 Halla Guðmundsd., Árm.....2,58,24 200 m fjórsund pilta: Grétar M. Axelsson, Ægi...2,31,12 MarteinnFriðrikss.,Árm ....2,35,30 ÁsgeirV. Flosason, KR.....2,38,25 200 m fjórsund stúlkna: Elin R. Sveinbjörnsd., Ægi ...2,38,65 SaraB. Guðbrandsd., Ægi ....2,46,09 Dagný Hauksdóttir, ÍA....2,46,94 4x100 m fjórsund pilta: 1. A-sveitÆgis...........4,27,25 2. B-sveit Ægis..........4,51,04 3. A-sveitKR.............5,07,29 4x100 m fjórsund stúlkna: 1. A-sveit Ægis..........4,59,21 2. B-sveitÆgis...........5,08,91 3. A-sveit UMFN..........5,31,10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.