Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1994, Qupperneq 28
36 Sighvatur Björgvinsson. Hiö opinbera hækkar ekki matarverð „Aöferðin til að lækka mat- vöruverð á íslandi er ekki, eins og margir halda, að lækka ein- hverjar opinberar álögur, vegna þess að það eru ekki þær sem orsaka hátt matvöruverð," segir Sighvatur Björgvinsson í Tíman- um. Ummæli Sjálfstæðismenn vinna með stuðningi R-listans „Þvert á móti held ég að Sjálf- . stæðisílokkurinn eigi vísan ein- hvern allrastærsta kosningasig- ur fyrr og síðar. Við það mun hann njóta dyggilegs stuðnings R-listans, þessarar málamynda- sameiningar á vinstri kantin- um,“ skrifar Egill Helgason í Al- þýðublaöið. Fyrsta beina kvörtunin „Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ beina kvörtun yfir þessu. Varð- andi meðlætið þykir það yfirleitt mjög frambærilegt en að vísu hafa einstöku sinnum komið '■% kvartanir út af kaffinu," segir Ragnar Örn Pétursson, veitinga- maður í Fríhöfninni, í DV. Listasaga fyrir börn og unglinga Á Kjarvalsstöðum hefst i fyrra- málið námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 12-16 ára um listasögu 20. aidarinnar. Námskeiöið er í fyrirlestraformi og veröa sex fyrirlestrar næstu sex laugardaga. Fyrirlesari er Þorbjörg Br. Gunnlaugsdóttir safnaleiöbeinandi. Nánari upp- lýsingar í síma 26188. Eru aldraöir utangarðs og einmana i samfélaginu? Öldrunarráð íslands gengst fyrir ráðstefnu í dag kl. 13 i Borgartuni 6. Ber hún yfirskriftina: Eru aldr- aðir utangarðs og einmana í ís- lensku samfélagi? Erindi flvtjá Sr. Pálmi Matthíasson, Sigurgeir Jónsson, f.v. hæstaréttarlögmað- ur, og Sigríður Jónsdóttir félags- fræðingur. Afmælisfundur Félag fráskilinna heldur afmælis- fund í kvöld kl. 20.30 að Bverfis- götu 105, Risinu. Málþing um menningu Framsóknarflokkurinn efnir til málþings á morgun í Hótel Lind og hefst það kl. 10. Verður farið yfir stöðu menningarmála í land- inu, hvað er á döfinni og hvað er framundan. Þá verður fjallað um samskipti listgreina við yfirvald- ið. Málþingið er öllum opið. :; Rétt væri: Hann fór■ saður til Afríku. Norðaustanátt á landinu í nótt verður aiihvöss norðaustanátt um mestalit iand, nema austast á landinu, þar verður mun hvassara. Sunnan- og austanlands veröur súld eða rigning í dag, en skýjaö eða slydduél norðan- og vestanlands þeg- Veðrið í dag ar líður á daginn. Hægt kólnandi veð- ur, fyrst vestan- og norðanlands. Á höfuðborgarsvæðinu léttir til síðdegis með norðan- og norðaustan stinnings- kalda. Allhvöss norðan- eða norðaust- anátt og aö mestu úrkomulaust í nótt. Hiti 4 til 7 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.48 Sólarupprás á morgun: 8.38 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.22 Árdegisflóð á morgun: 07.37 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyrí rigning 2 Akurnes rigning ' 9 Bergsstaðir rigning og súld 2 Keíla víkurílugvöllur rign. á síð. klst. 6 Kirkjubæjarklaustur rigning 7 Raufarhöfn rigning 4 Reykjavík súld 7 Stórhöfði rign.ásíð. klst. 7 Bergen léttskýjaö 3 Helsinki skýjað 3 Kaupmannahöfn léttskýjað 6 Berlín léttskýjað 2 Feneyjar . þokumóða 11 Frankfurí léttskýjað 4 Glasgow mistur 8 Hamborg léttskýjað 3 London skúr 13 Nice rigning 13 Róm þokumóöa 15 Vín skýjað 5 Washington skýjað 15 Winnipeg skýjað 10 Þrándheimur léttskýjað -2 menn „Ég ólst upp í Vestmannaeyjum og lék í Eyjum með öllum yngri flokkunum. Fór svo frá Eyjum til Vopnafjarðar þar sem ég lék eitt sumar. Þaðan lá leiðin 1984 til KA en ég meiddist illa það sumar, fót- brotnaði á Valsvellinum. Þegar ég var búinn að jafna mig gekk ég til liðs við Skagamenn og lék með ÍA, 1985-1987, endaði svo í Fram þar sem ég hef verið síðan,“ segir Maöurdagsins landsliðsmarkmaðurinn Birkir Kristinsson sem var valinn prúð- Birkir Kristinsson, asti leikmaðurinn í 1. deild á síð- „Ég hef orðið fyrir smáhnjaski í asta leiktímabili. Þessi tilnefning leikjum og fínn oft fyrir meiðslun- kemur engum á óvart sem til Birk- um frá 1984 en aldrei svo að ég is þekkja; hann er manna viðraóts- hafi þurft að sleppa leik.“ þýðastur og má geta þess að hann Birkir er spuröur hvort það séu hefur ekki fengið gult spjald allan minni líkur á aö markmenn fái sinn feril í meistaraflokki og ekki gult spjald. „Það var þarrnig en nú misst úr leik í tíu ár eða frá því er orðið mun erflðara fyrir mark- hannmeiddistáValsvellinuml984. menn að foröast spjöldin því að reglumar eru orðnar strangari en þær voru. Til dæmis ef leikmaður er kominn í gegn og lendir í návígi við markmanninn þá er farið áð taka strangar á þvi ef markmaður- inn er sekur. Þá má hann þakka fyrir að fá ekki rauða spjaldið. Þetta hefur gert það að verkum að maður er farinn að spá meira í hvað á að gera þegar leikmaður sleppur í gegnum vörnina. Birkir sagðist mundu halda áfram að leika knattspyrnu meðan hann hefði gaman af. „Það kemur að því að aðrir fara að banka á dyrnar en á meðan ég hef getu og er í góðu formi held ég áfram.“ Birkir hefur leikið 30 landsleiki; lék sinn fyrsta landsleik 1988. Birk- ir, sem er endurskoðandi, sagði að hann hefði ekki haft tíma fyrir önn- ur áhugamál en fótboltann á und- anlömum árum og að rækta fjöl- skylduna. Hann er í sambúð með Sigrúnu Bryndísi Björnsdóttur og eiga þau rúmlega ársgamlan dreng. Myndgátan FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 Bikarkeppn- ínihand- bolta hafin Bikarkeppni HSÍ hófst í gær- kvöldi með leik Fram og Vík- ings-b og verður henni fram hald- ið næstu þijá daga. i kvöld verða fjórir leikir. í Vestmannaeyjum leika heimamenn í ÍBV við Ár- menninga. Strax þar á eftir, kl. 20.30, leikur ÍBV-b gegn Gróttu. Á Húsavík leika Völsungar gegn UBK og á Akureyri tekur Þór á móti Víkingi úr Reykjavík. Einn leikur er í 1. deild kvenna 1 kvöld, þá leika Valur og Stjarn- an í Valsheimilinu. Skák A útsláttarmótinu í Tilburg á dögunum kom þessi staöa upp í skák stórmeistar- anna Ivans Sokolovs, sem haföi hvítt og átti leik, og Kirils Georgievs. Þetta var í bráðabana þenra, með 20 minútna um- hugsunartíma, en Sokolov var þó fljótur aö koma auga á vinnmgsleiðina: 26. Bxg6! fxg6 27. Dh6+ Kg8 28. Hxg6 + Dxg6 29. Dxg6+ og svartur gafst upp nokkrum leikjum síðar. Jón L. Árnason Bridge Á hverju ári velja alþjóðasamtök bridge- blaðamanna spil ársins. Þetta spil fékk verðlaun fyrir besta úrspilið en verð- launahafinn er enginn annar en Frakk- inn Mouiel. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og AV á hættu: ♦ -- ¥ ÁKD987432 ♦ 92 + G2 ♦ ÁKDG543 ¥ 65 ♦ KG + 64 ♦ 1097 ¥ G10 ♦ D87 + ÁD1093 Vestur Norður Austur Suður 14 5V Pass Pass 54 Pass 64 p/h Norður gat hnekkt spilinu með laufi út en valdi hjartaásinn í upphafi. Mouiel trompaði, svínaði tígulgosa, trompaði hjarta aftur og renndi síðan niður öllum trompunum. Aður en því síðasta var spil- að, var staðan þessi: ¥ -- ♦ 92 + G5 ♦ 3 ¥ -- ♦ K + 64 ♦ -- ¥ - - ♦ D8 + ÁD Suður varð að halda tíguldrottningu ann- arri og varð því að fara niður á laufásinn blankan. Vestur tók þá tígulkónginn og spilaði sig út á laufl. Suður fékk á ásinn en varð að gefa síðasta slaginn á tígul (staksteinakastþröng - stepping stone squeeze). ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.