Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 11 Fréttir Nánast engin hreyf ing í samningamálum okkar - segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Islands „Það hefur verið heldur lítil hreyfmg í okkar samningamálum. Við erum búin að eiga eina 9 fundi, ýmist með samninganefnd ríkisins, undirnefnd- um eða ráðherra. Það sem hefur gerst er að ríkið hefur hafnað launa- lið kröfugerðarinnar án þess þó að koma með neitt útspil á móti. Enda þótt talað hafi verið um að eitthvað svigrúm sé til launabreytinga hafa þeir veriö ófáanlegir til að gefa okkur einhverjar hugmyndir í þeim efn- um,“ sagði Eiríkur Jónsson, formað- ur Kennarasambands íslands, í sam- tali við DV um stöðuna í kjaramálum kennara. Hann sagði að hinn hluti kröfu- gerðarinnar fjallaöi um vinnutíma og fagleg málefni. „Þar hefur okkur verið kastað á milli menntamálaráðuneytis og samninganefndar ríkisins. Samn- inganefnd ríkisins segist ekki semja um nein slík mál nema í samræmi við vilja fagráðuneytis. Svörin í fag- ráðuneytinu hafa lengstum verið þau ' að peningarnir séu ekki hjá þeim og því verði að semja við samninga- nefnd ríkisins. Á fundi með mennta- málaráðherra og ráðuneytisstjóra, rétt fyrir jól, sagðist menntamálaráð- herra ætla að óska eftir fundi með samninganefnd ríkisins milli jóla og nýárs til aö gera henni grein fyrir stefnumiðum sínum í samningamál- um við kennara," sagði Eiríkur. Hann sagði að kennarar væru orðnir mjög þréyttir á þessari stöðu. Hvort til verkfalls kæmi sagðist hann ekki ætla aö segja til um. „Það verður ekki tekin nein afstaða í þá veru fyrr en eftir áramót. Við viijum gjarnan fá eitthvaö upp á borðið til að taka afstöðu til og meta síðan hvað gert verður," sagði Eirík- ur. Hann sagði að verkfall þyrfti að boða með 15 daga fyrirvara. Áður en til þess kemur þarf að fara fram skrifleg allsherjaratkvæðagreiðsla og það þarf að kynna það sem farið yrði í verkfali út af. „Til þess reiknum við 3 vikur og 2 í verkfallsboðun, þannig að í allt tek- ur það 5 vikur að ákveða verkfall og boða það,“ sagði Eiríkur. Verkfallssjóður Kennarasam- bandsins er 400 milljónir króna. Ei- ríkur sagði engar reglur til um út- hlutun úr honum ef til verkfalls kem- ur þar sem félagar í Kennarasam- bandi íslands hafa aldrei farið í verk- fall. Það færi því alfarið eftir því hve Utskriftarhópurinn á tölvunámskeiöinu. DV-mynd Arnheiöur Mikill tölvuáhugi í Stykkishólmi Amheiður Ólafsdóttir, DV, Stykkishólmi; Á námskeiði hjá Tölvuskóla Reykjavíkur, sem haldið var hér í vetur, útskrifuðust 24 nemendur. Þetta var almennt grunnnámskeið. Tekin voru þrjú próf í ritvinnslu, töflureikni og umbroti og auglýs- ingagerð. Tölvuskóh Reykjavíkur heldur námskeið sem þessi á nokkr- um stöðum á landinu á hverjum vetri. Mikill áhugi er á tölvufræðslu í Stykkishólmi því þetta er annar vet- urinn í röö sem haldið er námskeið á þeirra vegum hér í bæ. Benedikt Friðbjörnsson kennari sagðist ánægður með námskeiðið og áhuga nemenda. Það væri augljóslega mik- ill áhugi á tölvufræðslu í Stykkis- hólmi. Það væri ekki algengt að hald- in væru námskeið ár eftir ár í ekki stærra bæjarfélagi og aðsóknin væri alltaf jafn góð. Bruni á Höfn á aðfangadagskvöld: Timburhús mikið skemmt af völdum reyks og hita Björn Ragnarsson og fjölskylda fluttu inn í húsið, sem er úr timbri, í maí 1992. Það verður mikið verk hjá þeim hjónum að gera husið íbúð- arhæft á ný og sennilega þarf að rífa mikið innan úr þvi. Sturlaugur Þorsteinsson bæjar- stjóri bauð þeim íbúð á vegum bæjar- ins meðan viögerð fer fram og flyfja þau í hana um áramótin. Björn og Dóra eiga tvö börn, sex og átta ára. Júlía Imsland, DV, Höfn: Eldur kom upp í íbúðarhúsinu Sandbakka 17 á Hornafirði á að- fangadagskvöld og er húsið mikið skemmt, einkum af reyk og hita. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp. „Við vorum að koma úr matarboði frá tengdamömmu um kl. 20.30 á að- fangadagskvöld," sagöi Dóra Sigur- björnsdóttir „og þegar maðurinn minn opnaði útidyrnar gaus reykur og mikill hiti á móti okkur. Hann lokaði strax aftur, ók bílnum út á götu og sagði mér að fara með börn- in. Hljóp svo í næsta hús og hringdi á slökkviliðið. Það var hreint ótrú- lega fljótt að koma og það tók ekki nema hálftíma að slökkva eldinn," sagði Dóra. Ekki er alveg ljós hvað olli upptök- um eldsins en ljóst er að hann hefur komið upp í sófa í stofunni. há úthlutunin verður hve lengi hann um 3.300 manns leggja niður vinnu endist komi til verkfalls. Alls munu komi til verkfalls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.