Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Blaðsíða 28
F R ÉTTASKOTIÐ 62 • 25 * 25 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 63 27 00 BLAÐAAFGREIÐSLA OG ÁSKRIFT ER OPIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokaö Mánudaga: 6-20 Þriöjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 63 27 77 KL. 6-8 LAUGARDAGS- OG MÁNUDAGSMORGNA MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994. Deilur á Alþingi: Mikillglund- roði á löngum , næturfundi Harðar deilur urðu á Alþingi í nótt við eina af breytingartillögum meiri- hluta efnahags- og viðskiptanefndar við lánsfjárfrumvarpiö. Tillagan ger- ir ráð fyrir að hafbeitarstööin Silfur- lax á Snæfellsnesi fái ríkisábyrgð fyrir 50 milljóna króna láni. Stöðin er að hluta í eigu sænskra aðila. Þegar tillagan var kynnt í gær- kvöldi brást Matthias Bjamason hinn versti við og sagði hana mis- muna fiskeldisfyrirtækjum og nefndi í því sambandi að nýverið hefði Þórs- lax á Tálknafirði verið gert gjald- þrota þar sem stöðin hefði ekki feng- ið bankafyrirgreiðslu hjá Lands- bankanum. í kjölfarið var haldinn —» skyndifundur í þingflokki sjálfstæð- ismanna þar sem nokkrir þingmenn lýstu óánægju með tillöguna. Ur varð hins vegar aö halda tillögunni til streitu en veita þingmönnum frelsi til að greiða atkvæði að vild. Miklar umræður spunnust í kjöl- farið í þinginu um tillöguna sem varð meðal annars til þess að vekja þurfti Sighvat Björgvinson í nótt og kalla á hann til þingstarfa. Um stund ríkti alger glundroði í störfum þingsins út af þessu máli þar sem stjórnarand- staðan neitaði að ljúka umræðu um lánsfjárlög fyrr en Sighvatur mætti. Eftir karp um eðli og uppruna til- lögunnar tókst loks að ljúka umræð- um um lánsfjárlögin á fimmta tíman- um í morgun. Atkvæöagreiðslu var hins vegar frestað þangað til síðar í dag. Allar líkur eru á að breytingart- iilögur meirihlutans verði sam- þykktar þrátt fyrir nokkra andstöðu í þingflokki Sjálfstæðisflokks. Verði lánsfjárfrumvarpið sam- þykkt í dag með boðuðum breyting- um mun fjármálaráðherra verða heimilt að taka allt að 21,9 milljarða að láni á næsta ári og þar af endur- lána rúmlega 8,3 milljarða til Lána- sjóðs íslenskra námsmanna, Þróun- arsjóðs sjávarútvegsins, Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og-'Alþjóðaflug- þjónustunnar. Þá verður fjármála- ráðherra heimilt að veita ríkis- ábyrgðir á lántökum annarra aðila fyriralltað34,7milljarða. -kaa • Slapplítiðmeiddur Ungur maður slapp á undraverðan hátt lítið meiddur eftir að bíll sem hann ók hrapaði tugi metra af Vest- urlandsvegi við Fossá niður í grýtta fjöru í fyrrakvöld. Pilturinn lá í vel á annan tíma í bílnum áður en hjálp barst og hann var fluttur með þyrlu á Borgarspítala. Hann var orðinn mjög kaldur þegar hjálp barst en var útskrifaður í gær af sjúkrahúsi. Bíll- ^*inn sem hann ók er gjörónýtur. LOKI Eitthvað hefurnú þurft af kokkteilsósu með þessum skammti! Maður sem hafði svikist undan innflutningsgjöldum í 33 skipti á 4 árum: Kom sjálfur og greiddi 22 milljónir fyrir svikin - er nú ákærður fyrir að hafa svikist undan tollgjöldum af frönskum kartöflum Rúmlega fimmtugur karlmaður var lagt á innflutning franskra vörurnar. Með þessu svikust menn króna auk vaxta. Hann greiddi síð- hefur verið ákærður fyrir að hafa kartaflna, sem á rætur sínar að undan því að greiða verulegar fjár- an alla upphæðina - 22 milljónir. svikist undan því að greiða 13,4 rekja til innlendrar framleiöslu, hæðir í aðflutningsgjöld. Málið fór engu að síður til viðeig- milljóna króna innflutningsgjöld ákvað framangreindur heildsali að Þégar maðurinn hafði stundað andi yfirvalda, lögreglu og ríkis- af frönskum kartöflum á árunum fara þá leið eins og aðrir vegna þetta í fjögur ár og framvísað 33 saksóknara. Þar hefur ákæra nú 1988-1992. Hér er um að ræða 33 bágrar samkeppnisaðstöðu að fá fölskum. reikningum i tollinum verið gefin út og verða réttarhöld vörusendingar til heildsölu hans á seljanda vörunnar erlendis til að haföi hann ekki samvisku til að í málinu í dag. Dóms er að vænta umræddu tímabili. Rannsóknar- senda tvo vörureikninga með mis- hafa „líkið lengur í lestinni". Hann Qjótlega enda er ekki tekist á um lögregla ríkisins hefur a.m.k. tvö háum upphæðum. fór til tollstjóraembættisins og sekt eða sakleysi i málinu heldur önnur hliðstæð mál til rannsóknar Á öðrum reikningnum kom að- lagði fram öll rétt gögn og sagðist refismat. Með þvi að leggja fram en í þeim hafa ákærur ekki veriö eins um þriðjungur raunverulegs ætla að greiða alla þá upphæö sem gögn og greiða sínar skuldir telst gefnar út ennþá. verðmætis sendingarinnar fram. hann hafði svikist undan með á maðurinn að fullu hafa viðurkennt Málið á' sér sérstakan aðdrag- Þessum reikningi var síöan fram- tímabilinu. Þegar allt var reiknað brot sín. Héraðsdómari ákvarðar anda.. visað í tolli en hærri reikningnum upp reyndist maðurinn skulda refsingu. Þegar 190 prósenta jöfnunargjald í banka til að greiða sendanda iyrir tollayfirvöldum 13,4 milljónir -Ótt Kötturinn Gulli alsæll í faðmi fjölskyldunnar. Það urðu miklir fagnaðarfund- ir þegar hann fannst enda var hann þá búinn að vera að heiman i nærri því ár. Á myndinni eru ásamt kettinum bræðurnir Stefán Sturla, Snæbjörn, Árni Pétur og Gunnar Helgi Gunnsteinssynir. DV-mynd ÞÖK 1 $ Köttur hvarf aö heiman 1 heilt ár: Flúði á gamlárs- dag, f annst um jól - var löngu talinn af „Þetta var besta jóldgjöf sem hægt var aö hugsa sér. Við höfðum engar spurnir af feröum kattarins frá því á gamlársdag í fyrra þar til þaö var hringt í okkur núna nokkrum dögum fyrir jól og okkur sagt að hann væri fundinn," segir Helga Snæbjörns- dóttir í Hafnarfirði en hún og fjöl- skylda hennar fengu upphringingu frá Kattholti rétt fyrir jól þar sem þeim var sagt að heimilisköttur þeirra, Gulli, væri þar í góðu yfirlæti. Það urðu miklir fagnaðarfundir meö fjölskyldunni og kettinum enda var hann löngu talinn af eftir árs fjarvist að heiman. Helga segir að kötturinn hafi greinilega orðið skelf- ingu lostinn þegar sprengingarnar byrjuðu á gamlárskvöld og hafi hann því villst frá heimili sínu. „Það er ástæða til að benda fólki á að hafa dýr sín inni við á gamlárs- dag. Mörg þeirra þola alls ekki þau læti sem fylgja áramótunum. Við híeyptum okkar ketti út um miðjan dag sem varð til þess að hann sást ekki í heilt ár,“ segir Helga. Hún segist hafa auglýst eftir kettin- um í DV í janúar á þessu ári, en án árangurs. Þau hafi því verið búin að telja hann af þegar hann fannst. Hún segir greinilegt aö hann hafi fengið einhvers staðar inni þar sem hann er vel haldinn eftir fj arvistina. -rt Útgeröarfélag Patreksflaröar: Sveitarf élagið yfirtaki reksturinn - segir forseti bæjarstjómar „Við áttum fund með forsvars- mönnum Útgeröarfélagsins í gær þar sem við mótmæltum því að félagið væri lýst gjaldþrota," segir Gísli Ól- afsson, forseti bæjarstjórnar Vestur- byggðar. Hann er þarna að vísa til ákvörðunar stjórnar Útgerðarfélags Patreksfiarðar aö óska eftir gjald- þroti félagsins. „Við teljum eðlilegra að sveitarfé- lagið yfirtaki félagið og ráðstafi eign- umþess,“segirGísli. -rt Veörið á morgun: Snjókoma eða éljagangur Á morgun verður hvöss norð- austanátt. Snjókoma eða élja- gangur norðanlands og austan en skýjað með köflum suðvestan til. Frost verður á bilinu 1-5 stig. Veðrið í dag er á bls. 28 LOTTO alltaf á Miðvikudögnm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.