Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994 25 dv Meiming Úr leikriti Þjóöleikshússins Fávitar. Fólkið frá Sankti Pétursborg í skáldsögunni Fávitanum, sem fyrst kom út veturinn 1868-1869, gegn- umlýsir rússneski rithöfundurinn Fjodor Dostojevski umhverfi sitt og samtíð glöggu auga. Samúð hans með smælingjum lýsir alls staðar í gegn og hann hefur verk sín upp yfir núiö með algildum sannindum um mann- legt eðli. Það að vinna leikgerð upp úr svo margbrotnu skáldverki sem Fávitan- um er ekkert áhlaupaverk. Sú mynd sem kemur fyrir sjónir áhorfenda er auðvitað fyrst og fremst val leikhússins, leikræn útfærsla á inntaki skáldsögunnar. Leikgerð Simons Grey, sem Seppo Parkkinen og leikstjóri sýningarinn- ar, Kaisa Korhonen, hafa endurskoöaö, er þrungin tilfmningum og bygg- ir fyrst og fremst undiröldu mannlegra ástríöna. Atriðin renna fyrirhafn- arlaust áfram nær óslitið og atburðarásin heldur athygli áhorfenda. Uppsetningin er falleg fyrir augað, búningar ákaflega skemmilega hann- aðir og Utaval stemningarfullt (Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir). Leik- myndin er stílhrein, og í mörgum atriðum mjög falleg (Eeva Ijaas). Hún gefur gott rými, en skapar um leið mikla nánd milli persóna. Stundum líktist það göldrum hvernig atriði, sem leikið er mjög „þröngf ‘ á sviðinu, Leiklist Auður Eydal færist út í nýjar víddir þegar sviðsmyndin springur út eins og blóm- króna. Þar spilar ljósahönnunin stórt hlutverk (Esa Kyllönen) en leikur Ijóss og skugga er ákaflega mikilvægur í sýningunni þegar hann kallast á við heiðríkju og myrkur sálardjúpanna. Persónurnar í leikritinu eru að mörgu leyti leiksoppar örlaganna og þeirra aðstæðna sem þær búa við. Hver um sig gegnir ákveðnu hlutverki í heildinni og einstaklingseinkenni þeirra eru skýr. Leikstjórinn Kaisa Korhoinen leggur hverja persónu upp sem mikilvægan hlut í púsluspilinu þar sem engan má vanta því að þá verður myndin gloppótt. Hún nýtir persónurnar oft sem bakgrunn og hluta af leikmynd og tekst ákaflega vel að spila á sjónræna þætti uppsetningarinnar. Það er kannski sérkenni þessarar sýningar hversu styrk persónuleik- stjórnin er. Þar kemur til kasta okkar frábæru leikara sem leystu sín hlutverk allt frá því aö vera góðir upp í afburðatúlkun á viðkvæmum efniviö. Hilmir Snær Guðnason leikur Myshkin fursta, „fávitann" af mikilli hógværð og innilegri tilfmningu fyrir hreinleika og hrekkleysi þessa hálfheilaga manns. Leikur hans er tær og tilgerðarlaus og samsömunin við persónuna algjör. Helstu mótleikarar hans, Tinna Gunnlaugsdóttir (Nastasja) og Baltasar Kormákur (Rogozhín), leika tilfinningaþrungin hlutverk, mjög svo veraldlegar pérsónur, sem lífið hefur leikið grátt. Tinna er glæsileg á sviðinu í einstaklega vel hönnuðum búningum og lýsir ör- væntingarfullri forherðingu konu sem hefur orðið fyrir barðinu á vonsku mannanna svo um munar. Rogozhín dökkklæddur er myrkur maður og fullur reiði. Hann sveiflar svipu refsingar og umbyltir lífi fólks þar sem hann fer. Baltasar Kormákur leggur persónunni til kórrétt útlit og færi andblæ ógnar með sér4 svið. Mjög mikiö jafnræði er með leikendum, eins og áður er sagt, og varla hægt að nefna þar einn öðrum fremur. Úr hópi þeirra má nefna Halldóru Björnsdóttur, Eddu Arnljótsdóttur og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, sem leika systurnar þrjár, skemmtilega ólíkar og skýrar persónur. Gunn- ar Eyjólfsson og Helga Bachmann leika foreldra þeirra með ekta fínum töktum. Sigurður Skúlason er hæfilega ógnvænlegur í hlutverki Ferdísj- enko og vinnur það mjög vel. Helgi Skúlason er kaldur og samviskulaus Totskí. Fáviti er í eðli sínu fallegt og gegnumlýsandi orð sé litið fram hjá þeirri neikvæðu merkingu sem það hefur fengiö á sig á seinni tímum. Myshkin fursti „veit fátt“ af því að hann tekur ekki þátt í undirferlum eða plottum þeirra sem í kringum hann eru og það ber hvorki vott um heimsku né fáfræði heldur um hreint hjarta. Hann kemur ókunnugur inn í samfélag þar sem kæruleysislegur undir- róður, svik og baktal er hluti af tilveru fólksins. Iðjuleysi og stéttaskipt- ing skapar skilyrði fyrir möndl með örlög fólks og letilegt baktjaldamakk er hluti af tilveru yfirstéttarinnar. í mörgum atriðum í.sýningunni er undirstrikað að þeir Myshkin fursti og Rogozhín eru ef til vill tvær hliðar á sama manninum, annar ljós yfir- litum hinn dökkur á brún og brá. Þeir oru persónugervingar góðsemi og illsku í mannlegu fari, hið tvíeina eðli mannsins sem ekki verður sundur- greint. í Fávitanum liggja allir þættir mannlegar tilveru samantvinnaðir. Óbærilegur léttleiki tilverunnar kristallast í örlögum persónanna þar sem gaman og alvara togast á líkt og í lífinu sjálfu. Þjóðleikhúsið sýnir á Stóra sviðinu: Fávitann Höfundur: Fjodor Dostojevski Leikgerð: Simon Grey Endurskoðuð af Seppo Parkkinen og Kaisu Korhonen Þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir Lýsing: Esa Kyllönen Leikmynd: Eeva Ijaas Búningar: Þórunn Sigriður Þorgrímsdóttir Leikstjórn: Kaisa Korhonen Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Litla svið ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR) eftir Jóhann Sigurjónsson Föstud. 30. des. Laugard. 7. jan. Stóra sviðkl. 20. LEYNIMELUR 13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og Indriða Waage. Föstud. 30. des. Laugard. 7. jan. Litla sviðkl. 20: ÓFÆLNA STÚLKAN eftir Anton Helga Jónsson. Fimmtud. 29/12, sunnud. 8. jan. kl. 16. Söngleikurinn KABARETT Frumsýning föstud. 13. jan., örfá sæti laus, 2. sýn. miðd. 18. jan. Grá kort gilda, örfá sæti laus. 3. sýn. föstud. 20. jan. Rauð kort gilda. Miðasala verður opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00-20.00. Miðapantanir i sima 680680 alla virka daga frá kl. 10-12. Munið gjafakortin okkar Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavíkur- Borgarleikhús — vor Erótík tlnaðsdraumai Pöntunarsími: 96-25588 Póstsendum vörulista hvert ó land sem er! ■ Fatalisti ■Tæl<jalisti ■Blaoalisti ■Videolisti Sendingarkostnaður innifalinn ÞJÓDLEIKHÚSID Sími 11200 Stórasviðiðkl. 20.00 FÁVITINN eftlr Fjodor Dostojevski 2. sýn. á morgun fid., uppselt, 3. sýn. föd. 30/12, uppseit, 4. sýn. fid. 5/1,5. sýn. Id. 7/1,6. sýn.fid. 12/1. SNÆDROTTNINGIN eftir Évgeni Schwartz Byggt á ævintýri H.C. Andersen í dag kl. 17.00, uppselt, sud. 8. jan. kl. 14.00, örfá sæti laus, 15/1 kl. 14.00. GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Símonarson Föd. 6. jan., örfá sæti laus, sud. 8/1, Id. 14/1. Ath. Fáar sýningar eftir. GAUKSHREIÐRIÐ eftir Dale Wasserman Föd. 13. jan. Ath. Sýningum ferfækkandi. GJAFAKORT í LEIKHÚS - SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF. Afsláttur fyrir korthafa áskrlftarkorta. Miöasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13 til 18 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti simapöntunum virka daga frákl. 10. Græna linan 99 61 60. Bréfsimi 6112 00. Simi 1 12 00 - Greiösiukortaþjónusta. Spennandi og margslunginn sakamólaleikur! SÝNINGAR 2. sýning í kvöld kl. 20.30, nokkur sæti laus 3. sýning fim. 29. des. kl. 20.30 4. sýning lau. 7. jan. kl. 20 30 ■iU' u Miðasalun er opin virka daga neinu máiuidaga kl. !4-l8og sýningardaga IVam að sýningu. Sími 24073 G rei ðs I u kortaþj ónu s ta STYRKTARFÉLAG LAMAÐRAOG FATLAÐRA Dregið var í Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1994 þ. 24. desember sl. Vinningar komu á eftirtalin númer: 1. vinningur: Bifreið Nissan Terrano 11 SLX 96-42152 2. vinningur: Bifreið Nissan Primera sedan, sjálfsk. 91-40912 3. vinningur: Bifreið Nissan Primera sedan, sjálfsk. 985-20853 4. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 91-689544 5. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 91-889211 6. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 91 -77366 7. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 91-685300 8. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 985-33938 9. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 985-44866 10. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 91-650138 11. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 93-72183 12. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 93-56708 13. vinningur: Bifreið Nissan Micra LX 985-42167 Styrktarfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning. 011111 '>»**■ «*“■ ~ 55 SS 5S jSB ov 9 9-1 7-00 Verð aðeins 39,90 mín. 1] Fótbolti 21 Handbolti 3 j Körfubolti 41 Enski boltinn 5 j ítalski boltinn 61 Þýski boltinn 7 [ Önnur úrslit 81 NBA-deildin 1] Vikutilboð stórmarkaðanna 21 Uppskriftir 11 Læknavaktin 21 Apótek 1[ Dagskrá Sjónv. 2j Dagskrá St. 2 3j Dagskrá rásar 1 4j Myndbandalisti vikunnar - topp 20 5 j Myndbandagagnrýni : 6 j ísl. listinn -topp 40 71 Tónlistargagnrýni .smmsmmm 9Krár . 2 j Dansstaðir [3] Leikhús 4 j Leikhúsgagnrýni _5J Bíó 6 j Kvikmgagnrýni vmnmgsnumer lj Lottó 2: Víkingalottó 3| Getraunir 99-17-00 Verð aðeins 39,90 mín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.