Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Blaðsíða 22
26
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
Afrnæli
Elvar Reykjalín Jóhannesson
Elvar Reykjalín Jóhannesson út-
gerðarmaður, Ásholti 3, Hauganesi
á Árskógsströnd, varð fertugur ann-
aníjólum.
Starfsferill
Elvar fæddist í Hauganesi og ólst
þar upp. Hann var tólf ára er hann
fór fyrst til sjós, á trillu með Svein-
birni Jóhannssyni í Steinnesi. Hann
var með Sveinbirni í þrjú sumur en
síöan með fööur sínum á Sævaldi
EA35.
Elvar hóf nám við Stýrimanna-
skólann í Reykjavíkl974 og lauk
þaðan prófum með skipstjórnarrétt-
indum 1977. Hann hefur stundað
útgerð með föður sínum, bróður sín-
um, Ragnari, og þremur frændum
sínum frá 1973 er þeir keyptu sextíu
og þriggja tonna bát, Víði Trausta
EA 517 sem þeir gera enn út. Auk
þess stunda þeir saltfiskverkun í
Hauganesi. Nafn útgerðarinnar er
Trausti hf. eftir afa Elvars, Trausta
Jóhannessyni.
Elvar var kjörinn í hreppsnefnd
Árskógshrepps 1986 og starfaði í
henni í tvö kjörtímabil en gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi setu
1994.
Fjölskylda
Eiginkona Elvars er Guðlaug J.
Carlsdóttir, f. 4.10.1956, húsmóðir.
Hún er dóttir Carls Eiríkssonar og
Guðríðar Magnúsdóttur í Kópavogi.
Dætur Elvars og Guðlaugar eru
Eva Reykjalín, f. 27.7.1975, nemi;
Ellý Reykjalín, f. 4.2.1980, nemi;
Lísbet Reykjalín, f. 24.1.1983, nemi,
en þær eru allar í foreldrahúsum.
Systkini Elvars eru Hanna, f. 6.7.
1934, húsfreyja á Akri í Eyjafirði,
gift Þór Hjaltasyni b. þar og eiga þau
sjö börn; Hafsteinn Reykjalín, f. 1.4.
1940, framkvæmdastjóri í Kópavogi,
kvæntur Ingu Haraldsdóttur og eiga
þau tvö börn, hvort um sig frá fyrri
hjónaböndum; Vigfús R. Jóhannes-
son, f. 21.3.1943, kvæntur Svanhildi
Árnadóttur og eiga þau þrjú börn;
Elísabet Jóhannesdóttir, f. 30.1.1946,
gift Þorsteini Skaptasyni og eiga þau
fjögur börn; Ragnar Reykjalín, f.
25.9.1948, kvæntur Helgu D. Har-
aldsdóttur og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Elvars: Jóhannes
Reykjalín Traustason, f. 26.7.1913,
d. 22.1.1985, útgerðarmaður og odd-
viti í Ásbyrgi í Hauganesi, og Hulda
Vigfúsdóttir, f. 16.8.1914, húsfreyja.
Ætt
Jóhannes Reykjalín var sonur
Trausta Jóhannesonar, b. á Kuss-
ungsstöðum í Fjörðum, Jónssonar
Reykjalín, prests á Þönglabakka,
Jónssonar Reykjalín, prests á Ríp,
Jónssonar, prests á Breiðabólstað í
Vesturhópi, Þorvarðarsonar.
Móðir Jóhannesar á Kussungs-
stöðum var Sigríður Jónsdóttir frá
Kimbastöðum i Skagafirði, Rögn-
valdssonar. Móðir Trausta var Guð-
rún Sigríður Hallgrímsdóttir, b. á
Hóli í Fjöröum, og Ingveldar Árna-
dóttur frá Sveinsströnd við Mývatn.
Móðir Jóhannesar Reykjalín var
Anna Guðrún Jónsdóttir, b. að
Hrafnagili í Þorvaldsdal, og Jónínu
Jóhannesdóttur frá Selá á Árskógs-
strönd.
Hulda, móðir Hafsteins, er dóttir
yigfúsar, smiðs og útvegsb. í Litla-
Árskógi á Árskógsströnd, Kristjáns-
sonar, b. á Litlu-Hámundarstöðum,
Jónssonarfrá Stóru- Hámundar-
stöðum, Hallgrímssonar. Móöir
Kristjáns var Þuríður Helga Stef-
ánsdóttir.
Móðir Huldu var Elísabet Jó-
hannsdóttir, formanns á Hinriks-
mýri á Árskógsströnd, Jóakimsson-
ar,húsmannsíHöfðahverfiogá •
Svalbarðsströnd, Þorsteinssonar.
Elvar Reykjalín Jóhannesson.
Móðir Jóhanns var Björg Tómas-
dóttir frá Hóli í Höfðahverfi. Móðir
Elísabetar var Hanna Gísladóttir,
b. á Svínárnesi, Jónassonar og Rak-
elar Jóhönnu Jóhannsdóttur Kröy-
er, b. á Munkaþverá í Eyjafirði.
Bjami Sigurðsson
Bjami Sigurðsson, fyrrv. starfs-
maður Vegagerðar ríkisins, Grund-
argerði 1D, Akureyri, er sjötíu og
fimmáraídag.
Starfsferill
Bjarni er fæddur á Skálum á
Langanesi og ólst þar upp fyrstu
átta árin. Þá fluttist hann með for-
eldrum sínum að Svalbarðseyri á
Svalbarðsströnd, en hann hefur
búið öll sín búskaparár á Akureyri.
Bjarni gekk í Laugaskóla og var
í bændaskólanum á Hvanneyri.
Hann vann fyrst við almenn sveita-
störf og vai' til sjós en starfaði síðan
sem vefari hjá verksmiðjum SÍS í
tuttugu og sex ár. Þá starfaði hann
hjá hjá Vegagerö ríkisins frá 1973
og þar til hann lét af störfum.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist þann 5.5.1948
Sigríði Egilsdóttur húsfreyju, f.
10.8.1917. Foreldrarhennarvoru
Egill Gottskálksson og Ingibjörg
Bjornsdóttir á Miðgrund í Skaga-
firði.
Börn Bjarna og Sigríðar eru:
Sigþór, f. 1L2.1948, starfsmaður
herradeildar JMJ á Akureyri,
kvæntur Guöríði Bergvinsdóttur
og eiga þau fjögur börn.
Ingibjörg, f. 19.2.1949, átarfar við
fiskvinnslu á Hjalteyri, gift Sveini
Inga Eðvaldssyni og eiga þau tvö
börn.
Egill, f. 23.12.1951, starfar á tré-
smíðaverkstæöin Alfa á Akureyri,
búsettur á Hjalteyri, kvæntur Emu
Jóhannsdóttur og á hann fjögur
börn.
Þórdís, f. 8.4.1953, rekurblóma-
skálann Vín í Eyjafirði, búsett í
Skák, gift Hreiðari Hreiðarssyni og
eiga þáu fjögur börn.
Sigurður, f. 7.7.1957, trésmiður
en starfrækir nú verslunina Sport-
ver á Akureyri, kvæntur Friðriku
Árnadóttur og eiga þau fjögur
börn.
Systkini Bjarna: Ingibjörg Sigur-
rós, f. 1913, látin, var búsett á Rauf-
arhöfn og gift Páli Helgasyni: Einar
Stefán, f. 1917, lengst af búsettur á
Akureyri, nú vistmaður á Seli:
Hermann Sigurjón, f. 1930, bifreið-
arstjóri, búsettur í Keflavík,
kvæntur Guðrúnu Emilsdóttur.
Foreldrar Bjarna voru Sigurður
Einarsson, f. 1893, og Þórdís Stef-
ánsdóttir frá Skálum, f. 1895.
Merming
Vilhjálmur Vilhjálmsson - í tíma og rúmi ★ ★ ★
Hljómplötur
Sigurður Þór Salvarsson
Meira af glæstum ferli
Vilhjálmur Vilhjálmsson var á
sínum tíma einn ástsælasti dægur-
lagasöngvari þjóðarinnar. Lög
hans hafa lifað með þjóðinni en
lengi vel var ekki hægt um vik að
ganga að þeim vísum því þau voru
dreifð um allar trissur því Vil-
hjálmur söng bæði með ýmum
hljómsveitum og einn síns liðs.
Þess vegna var þvi vel fagnað fyrir
nokkrum árum þegar safnað var á
eina geislaplötu 20 lögum sem Vil-
hjálmur hafði gert vinsæl. Brunn-
urinn var þó langt í frá tæmdur og
til stóð að gefa aðra plötu út í kjöl-
far hinnar. Eitthvað dróst fram-
kvæmdin á langinn og umrædd
plata kom loks út nú í haust sem
leið. En betra er seint en aldrei og
mikill fengur að þessari síðari
plötu með vinsælum lögum Vil-
hjálms þó allra best hefði auðvitað
verið að gefa allt safniö út í einum
pakka. Á þessari síðari plötu er að
finna mörg af vinsælustu lögum
Vilhjálms enda spannar platan yfir
12 ára tímabil frá 1966 til 1978.
Meðal laga sem hér er aö finna eru:
Litla sæta ljúfan góða, Sumarauki,
Angelía, Það ert bara þú, S.O.S. ást
í neyð, Þú ert vagga mín haf, Þórð-
ur sjóari og Söknuður. í samein-
ingu gefa plöturnar Við eigum sam-
leið og þessi, í tíma og rúmi mjög
góða mynd af ferli Vilhjálms Vil-
hjálmssonar og sýna hversu góður
og fjölhæfur söngvari og listamað-
ur Vilhjálmur var. Jafnframt veita
þær ómetanlega innsýn í þróun
dægurtónlistar á íslandi.
Til hamingju
með afmælið
28. desember
80 ára 60ára
Þórólfur Stefánsson,
Lagarási 2A, Egilsstöðum.
Björgvin Jón Pálsson, sjómaður
og verkamaður,
Suðurgötu 36, Sandgerði,
verðuráttræður
á morgun.
Björgvintekurá
mótigestumí
samkomuhúsinu
iSandgerðiáaf-
mælisdaginn
millikl. 17.00 og
21.00.
75 ára
Óli Hélgi Ananíasson,
Merkigerði 21, Akranesi.
Lára Arnfinnsdóttir,
Hrafnabjörgum n, Hvalfjarðar-
strandarhreppi.
Sigurður Jónsson,
Engjavegi22, ísafirði.
Einar Júlíusson bifreiðastjóri,
Holtsgötu 24, Sandgerði,
verðursjötíuog
fimmáraámorg-
un.
Einartekurá
mótigestumí
samkomuhúsinu
iSandgerðiáaf-
mælisdaginn
millikl. 17.00 og
21.00.
70 ára
Bragi Salómonsson,
Reynihvammi 35, Kópavogi.
Bragieraðheiman.
Helga Ingvarsdóttir,
Bræðraborgarstíg
Helgatekurá
mótigestumísal
sjálfstæðisfélags
Seltjarnarness,
Austurströnd3
(yfirsparisjóðn-
um), eftir kl. 20.00
áafmælisdaginn.
Sigríður Eyjólfsdóttir,
Heiðarvegi 2, Reyðarfjarðarhreppi.
María Sigríður Bjarnadóttir,
Tangagötu 19, ísafirði.
Sigfús Þórðarson,
Sunnuvegi 12, Selfossi.
Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Miðvangi 16, Haftiarfirði.
Ingileif Þórey Jónsdóttir,
Hvassaleiti 27, Reykjavík.
Jón Haukur Sigurbjörnsson,
Stekkjargerði 8, Akureyri.
Adolf Jakob
Bemdsen,
umboðsmaður
Olís,
Bankastræti9,
Skagaströnd.
EiginkonaAdolfs
JakobserHjördís
Sigurðardóttir.
50 ára
Sigurlaug Aðalsteinsdóttir,
Sólheimum 28, Reykjavik.
Kristinn Þorsteinsson,
Norðurgarði U,Keflavík.
María K. Jónasdóttir,
Freyjuvöllum 16, Keflavík.
HreinnPálsson,
Jörfabakka 4, Reykjavík.
Halldór Steingrímsson,
Skúlagötu 68, Reykjavík.
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Karlsbraut 24, Dalvík.
Friðbjört Jensdóttir,
Hraunbæ 108, Reykjavík.
Einar Óskarsson,
Einholti 14D, Akureyri.
Ámi Einarsson,
Þingholtsstræti 12, Reykjavík.
Sigríður J. Gísladóttir,
Völvufelli 44, Reykjavik.
Bjarney Sveinbjarnardóttir,
Hafnarstræti23B,Akureyri. .
40 ára
Sigurður Friðfinnsson,
Álfaskeiði 74, Hafnarfirði.
Dóra Guðrún Þorvarðardóttir,
Grasarima 18, Reykjavík.
Sigursteinn Þorsteinsson,
Þingási 41, Reykjavík.
Hólmfríður Eðvarðsdóttir,
Kópavogsbraut 11, Kópavogi.
Steindóra Andreasen,
Aðalgötu 17, Súgandafirði.
AJmar Benedikt Hjarðar,
Dverghamri 42, Vestmannaeyjum.
Berghildur Gísladóttir,
Engjaseli 83, Reykjavík.