Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1994, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1994
29
Tónleikar
Jólatónleikar Dægradvalar
verða í Bessastaðakirkju.
Jólalög og
íslensk
sálmalög
Jólatónleikar verða haldnir á
vegum Dægradvalar í Bessa-
staðakirkju í kvöld kl. 20.30. Flytj-
endur eru Lenka Mátéová, Svein-
björg Vilhjálmsdóttir, Margrét
Bóasdóttir, Ólöf Sesselja Óskars-
dóttir, Helga Ingólfsdóttir og
Álftaneskórinn undir stjórn
Johns Speight.
Á efnisskránni eru jólalög, verk
eftir Bach, Hándel, Vaughan
Williams, Peter Warlock og göm-
ul íslensk sálmalög í útsetningu
Þorkels Sigurbjörnssonar, Helgu
Ingólfsdóttur og Karólínu Eiríks-
dóttur.
Akurey %
íGufunes
Laugaraaíur
Skildinganesx
Öskjui
Álftandsl ^
Grafarvogur
ossvogur
Kópavogur
•^Sþfjahverfi
jgahraun
Flensborg Við hiið að
Heiðmörk
Tríó Ólafs Stephensens á Kringlukránni:
HULIÐSSVÆTTIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
□ Huldufólk
• Álfar
❖ Ljósálfar
X Gnómar
4* Dvergar
Stórar og litlar
dísilvélar
Höfundur dísilvélanna er
Rudolf Diesel. Hann var lengi að
vinna að hreyfli sínum og gerði
margar tilraunir sem mistókust.
1897 gekk dæmið upp þegar hann
hannað sprengihreyfil þann sem
við hann er kenndur. Diesel
studdist við hugmyndir Carnots
en vissi gjörla að þær yrðu ekki
notaðar án breytinga. Hannaði
hann vél þar sem meginatriðið
var brennsla við stöðugan þrýst-
ing en ekki viö stöðugan hita.
Nokkrir aðrir aðilar höfðu gert
sér grein fyrir vélargerð af þessu
tagi og átti Diesel í hörðum deil-
um um hverjum bæri heiðurinn
af uppfmningunni.
Blessuð veröldin
Tvígengis-dísilhreyfill
Stuttu síðar eða 1899, eftir að
Diesel kom með fjórgengis-dísil-
hreyfil, hannaði þýski verkfræð-
ingurinn Hugo Giildner tvígeng-
is-dísilvél. Fól hún í sér öflugri
vinnslu. Skilaði hún 60-80%
meira en fjórgengis-dísilhreyfill-
inn miðað við strokkrúmtak. Nú
á dögum eru tvígengis-dísil-
hreyflar þeir sprengihreyflar
með stimplum sem skila mestu
afli - allt að 50.000 hestöflum.
Vélar af þessari gerð eru notaðar
í skipum og iðnaði.
Ömurleg endalok
Rudolf Diesel varð frægur fyrir
uppgötvun sína, sérstaklega í
Bandaríkjunum, en hann átti
marga óvildarmenn meðal verk-
fræðinga í Þýskalandi. Diesel efn-
aðist á að selja einkaleyfi út um
víða veröld, en þegar deilurnar
hörðnuðu seldi 'hann hlutabréf
sín í þeim fyrirtækjum sem not-
uðu uppgötvun hans. Hann
reyndi að treysta efnahag sinn
með því að stunda spákaup-
mennsku í kauphöllinni en tapaði
nánast aleigunni. Hinn 27. sept-
ember 1913 drukknaði hann á leið
frá Englandi til Frakklands og
var talið að hann hefði stytt sér
aldur.
Eins og undanfarin miðvikudags-
kvöld á Kringlukránni verða djass-
tónleikar þar í kvöld. Það er Tríó
Ólafs Stephensens sem skemmtir
gestum staðarins með léttri djass-
sveiflu þar sem í fyrirrúmi verða
Skemmtarúr
gömul og klassísk djasslög. Ólafur
Stephensen leikur á píanó en með
honum leika Tómas R. Einarsson
bassaleikari og Guðmmidur R. Ein-
arsson trommuleikari, en hann
mun emnig taka fram básúnuna.
Sjálfsagt mun tríóið leika lög af
nýútkominni geislaplötu, en plata
Ólafur Stephensen, Tómas R. Einarsson og Guðmundur R. Einarsson
skipa tríóið.
tríósins var önnur tveggja djass-
platna sem komu út fyrir jólin. Þá
mun tríóið einnig leika þekkt jóla-
lög í djassútsetningum. Tónleik-
arnir heljast kl, 22.00 og er aðgang-
ur ókeypis.
Talsverður skaf-
renningur á vest-
anverðu landinu
Nú er allgóð vetrarfærð á flestum
vegum landsins. Verið er að moka
Mývatns- og Möðrudalsöræfi og
Vopnafjarðarheiði, Talsverður skaf-
renningur er á vestanverðu landinu
Færð á vegum
og á stöku stað á Norðurlandi og á
Suðurlandi. Á Vesturlandi var í gær
ófært um Bröttubrekku og þungfært
um Gilsfjörð. Búið er að opna veginn
til Hólmavíkur og þá er fært til ísa-
fjarðar. Einnig er orðið fært um
Siglufjarðarveg og Öxnadalsheiði og
Víkurskarð. Hálka er víða á vegum.
[51 Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
0] Þungfært © Fært fjallabílum
yndinni fæddist
fatóingardeild
02.27. Hún reynd-
ist vera 3920 grömm að þyngd og
54 sentímetra löng. Tveggja daga
gömui var hún skírð Anita Karen
Crawford af séra ,Ióni Bjárman á
Landspitalanum. Foreldrar Anitu
eru Bllen Kristinsdóttir og Ólafur
Crawford og er hún fyrsta barn
þeirra.
Richard Attenborough og Mara
Wilson i hlutverkum sinum.
Jólasveinn í
stórmarkaði
Kraftaverk á jólum (Miracle on
34th Street) er endurgerð
klassískrar jólamyndar sem hef-
ur verið nokkurs konar skylda
að sýna börnum á jólunum, síðan
1947, Þessi endurgerð þykir hafa
tekist með ágætum og er það ekki
síst að þakka Richard Attenboro-
ugh sem leikur jólasveininn. í
myndinni kynnumst við hinni
sex ára gömlu Susan Walker sem
hefur glatað trúnni á jólasvein-
inn. Það var mamma hennar sem
sagði henni leyndarmálið en
þessi skoðun á eftir að breytast
Kvikmyndahúsin
þegar hún kynnist jólasveininum
sem starfar í stórmarkaðinum
þar sem mamma hennar vinnur
enda er þar kominn hinn eini
sanni jólasveinn. Tekst honum
að heilla öll börn sem til hans
leita. Ekki eru allir hrifnir af
s'veinka og verður hann að mæta
fyrir rétt til að sanna hver hann
er. Kraftaverk á jólum er tilvalin
fjölskyldumynd.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Junior
Laugarásbíó: Jungle Book
Saga-bíó: Skuggi
Bíóhöllin: Konungur ljónanna
Stjörnubíó: Karatestelpan
Bíóborgin: Kraftaverk á jólum
Regnboginn: Stjörnuhlið
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 292.
28. desember 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 69,050 69,260 68,610
Pund 106,690 107,010 107,140
Kan. dollar 49,190 49,380 49,940
Dönsk kr. 11,1570 11,2020 11,2000
Norsk kr. 10,0210 10,0620 10,0350
Sænsk kr. 9,1950 9,2310 9,1730
Fi. mark 14,4380 14,4950 14,2120
Fra. franki 12,6710 12,7220 12,7690
Belg. franki 2,1298 2.1384 2,1306
Sviss. franki 51,8300 52,0400 51,7100
Holl. gyllini 39,0900 39,2400 39,1400
Þýskt mark 43,7700 43,9000 43.8400
it. líra 0,04199 0,04220 0,04234
Aust. sch. 6,2160 6,2470 6,2290
Port. escudo 0.4256 0,4278 0,4293
Spá. peseti 0,5170 0,5196 0,5253
Jap. yen 0,68750 0,68960 0,69480
irskt pund 105,250 105,780 105,650
SDR 99,89000 100,39000 100,13000
ECU '83,1900 83,5300 83,5100
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 dugleg, 5 hlóðir, 7 snemma, 8
lélegar, 10 skordýr, 11 handsamaði, 12
útrýming, 14 hanka, 16 ekki, 17 látnir, 19
tóm, 20 ljúf.
Lóðrétt: 1 hætta, 2 bráðu, 3 feril 4 trjóna,
5 batnaði, 6 saur, 9 skjálfir, 10 einbeitni,
13 skarð, 15 gort, 18 til.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 flygsa, 8 eir, 9 elna, 10 skráin,
11 atti, 12 öm, 13 skissa, 16 trítl, 18 Si, 19
bás, 20 vakt.
Lóðrétt: 1 felast, 2 list, 3 yrkti, 4 gerist,
5 slá, 6 anir, 7 mannvit, 12 ösla, 14 krá,
15 ask, 17 ís.