Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995
9
>
>
I
i
i
Neðanjarðarmusteri
REUTER
Þversnid af neðanjardarmusteraþyrpingu
sem samfélag handverksmanna og spíritista
byggði á laun inn í ítalska fjallshlíð. Ellefu
hæða hús kæmist fyrir í hvelfingunni
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
Iranir ætla að setja viðskipta-
bann á Noreg vegna meintrar
andúðar Norðmanna á múslím-
um. Viðskipti landanna eru nán-
ast engin ef frá er talinn lítils
háttar útflutningur frá Noregi
sem íranir hafa undanfama mán-
uði ekki greitt fyrir. Norski ríkis-
ábyrgðarsjóðurinn greiðir skuld-
ina og eru Norðmenn því fegnir
viðskiptabanninu.
Undanfama mánuði hefur
spaugilegt áróðursstríð staöið
milli írans og Noregs. Upphafið
var aö sendiherra írans var kall-
aður heim í haust vegna þess að
hann lýsti því yfir að norskir
borgarar væru ekki réttdræpir
vegna stuðnings við Salman Rus-
hdie. Hann situr nú í ónáð í íran.
Norðmenn svömðu með að kalla
sendiherra sinn heim.
Nú ætla íranir að beita við-
skiptabanni á Noreg og saka
Norðmenn um að standa fyrir
alþjóðlegu samsæri gegn múslím-
um. Deilan hefur magnast stig af
stigi án þess að nokkur geri sér
almennilega grein fyrir hvaö
valdi. Bæöi Danir og Sviar hafa
tekið upp þykkjuna fyrir Norð-
menn og neita að ræða við sendi-
menn frá íran.
Clinton nýtur
meiri vinsælda
Bfil Clinton
Bandaríkjafor-
seti nýtur vax-
andi vinsælda
meðal
sinnarefmarka
má nýja skoð-
anakönnun
sem gerð var
fyrir CNN sjónvarpsstööina og
dagblaðið USA Today. Þar lýsa
49 prósent yfir ánægju með störf
forsetans en 44 prósent eru óá-
nægð.
Clinton hefur ekki veriö vin-
sælli frá því í fyrrasumar.
Reuter
Félagar í Damanhur-samfélaginu taka lagið í einu musteranna sem þeir hafa grafið út í fjallshlíð á norðurhluta Italíu.
Simamynd Reuter
SöngvarSatans
leiðatilvið-
skiptabanns
John Majorvar
séreldrikonu
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, var ást-
arleikfang frá-
skilinnar konu
sem var þrettán
árum eldri en
hann þegar
hann var um tvitugt, að sögn
breskra æsiblaða.
Umrædd kona, Jean Kieran,
sem nú er 65 ára, flutti í næsta
hús við fjölskyldu Majors árið
1963 og hóf fijótlega ástarsam-
band við forsætisráðherrann til-
vonandi. Ástarsamband þetta
stóð í nokkur ár þrátt fyrir að
foreldrum hans litist illa á.
Kieran var virkur félagi í
íhaldsflokknum og hvatti hun
hinn unga Major til að fá sér
vinnu í banka og ganga í flokk-
inn. Sem hann og gerði,
„Við lítum á okkur sem þjóð, með
sérstaka menningu, sögu og efna-
hagskerfi. Við erum ekki sértrúar-
söfnuður,. við stúderum töfra og hið
heimullega og höfum sett mannkyn-
ið í öndvegi," segir Oberto Airaudi,
leiðtogi sex hundruð manna hóps
sem kallar sig Damanhur-samfélagiö
og hefur grafið sér musteri djúpt inn
í norður-ítalska fjallshlíð.
Helgistað sinn kallar hópurinn
Musteri mannsins. Framkvæmdir
við það hófust árið 1977 þegar tólf
stofnendur hópsins tóku að höggva í
grjótið á laun með hömrum og meitl-
um og öðrum verkfærum, knúnir
áfram af draumi um að eignast helgi-
stað til að hugleiða á.
Óvissa um framtíðina
Sautján árum síðar nær musterið
yfir fjögur þúsund fermetra neðan-
jarðar og það er svo djúpt að það
mundi gleypa ellefu hæða hús.
Nokkur óvissa hefur ríkt um fram-
tíð musterisins frá árinu 1992 þegar
fyrrum félagsmaður reyndi að kúga
sem svarar 30 milljónir króna út úr
hópnum fyrir að segja ekki frá leynd-
armálinu. Airaudi neitaði að borga
og tilvist musterisins varð á almanna
vitorði.
í fyrstu vildu yfirvöld í nærliggj-
andi bæjarfélagi aö musterið yrði
hreinlega eyöilagt. Þeim snerist hug-
ur síðar og lögðu til að það yrði gert
að skemmtigarði fyrir ferðamenn.
Airaudi og félögum leist á hvoruga
tillöguna og binda nú vonir við að
umdeild sakaruppgjöf til handa þeim
sem stóðu í ólöglegum bygginga-
framkvæmdum sem Berlusconi,
fyrrum forsætisráðherra, kom á, nái
einnig til þeirra. Þar er gert ráð fyrir
að brotlegir greiði aöeins sekt.
Gengið er inn í musterið um litlar
trédyr á húsi efst uppi á hæð einni.
Þaðan er gengið inn langan gang þar
sem veggirnir eru þaktir myndum
úr egypskri goðafræði. Þegar ýtt er
á hnapp á fjarstýringu opnast allt í
einu veggur og við blasir undraheim-
ur Damanhur þar sem loftið er
þrungið reykelsisilmi og musterisbú-
ar gera tilraunir með yfirskilvitlega
hluti. Nokkuð sem hefur skotið hér-
aðsbúum skelk í bringu.
Eðlan og rósin
Flestir íbúa Damanhur hafa hafnaö
skímamöfnum sínum en þess í stað
tekið upp nöfn plantna og dýra, eins
og rósarinnar, eðlunnar, krákunnar
eða bleika filsins. Þeir reka um fjöru-
tiu lítil fyrirtæki sem framleiða m.a.
skartgripi, matvæli, íot og furðulega
málmhluti sem eiga að stuðla að ljúf-
um draumum.
Miklar framkvæmdir eru fyrirhug-
aöar við musterið, ef leyfi yfirvalda
fæst. Meðal annars á að reisa ellefu
hundruð fermetra hvolfþak úr
steindu gleri.
„Það verður stærsta einstaka lista-
verkið í heiminum. Við búum yfir
tækninni en þurfum bara að fá leyfi,“
segirAraudi. Reuter
Musteti mannsins
6renningin (gangar úr marmara og steindu glerí)
@ Saladelt Acqua - Vatnssaturinn
© Sala degli Speceht - Spegiasalurinn
@ Sala della Terra - Jarðarsalurinn
@ SaladeiMetaíi-Málmasalurinn
© Sala delle Sfere - Kvelasalurinn
@ Cripta - grafhvetfiog
Hulunni svipt af töfraheimi Damanhur-samfélagsins:
Musteri höggvið
á laun í fjallshlíð
Útlönd
Fékkháarbætur
fyrir varðhald
Maður sem var sýknaður af
ákæru um að hafa stolið 70 krón-
um af breskum skólapOti fékk
dæmdar skaðabætur upp á rúm-
lega eina milljón króna fyrir að
hafa þurft að dúsa í varðhaldi i
fimm mánuði.
Maðurinn sakaði lögregluna
um ólöglega handtöku og slæleg
vinnubrögö. Reutér
ÍVZkLSLú. LC LVLL'MvL 1
1
5. leikvika, 5. febr. 1995
Nr. Lelkur:________________Röðln
1. Roma - Inter -X -
2. Torino - Lazio 1 - -
3. Bari - Juventus -X -
4. Milan - Cagliari -X -
5. Fiorentina - Genoa -X -
6. Brescia - Foggia -X -
7. Sampdoria - Reggiana -X -
8. Parma - Padova 1 - -
9. Palermo - Verona -X -
10. Perugia - Lucchese 1 --
11. Cosenza - Piacenza -X -
12. Ascoli - Atalanta -X -
13. Chievo - Udinese -X -
Heildarvinningsupphæð:
14 mllljónlr
13 réttir
2.322.240
kr.
12 réttir
18.970 [33
5. leikvika, 4. febr. 1995
Nr. Leikur:
Rööln
1. Notth For. - Liverpool -X -
2. QPR - Newcastle 1 - -
3. Man. Utd. - Aston V. 1 - -
4. Wimbledon - Leeds -X -
5. Coventry - Chelsea -X -
6. Sheff. Wed - Arsenal 1 - -
7. Everton - Norwich 1 - -
8. Southamptn - Man. City -X -
9. Leicester - West Ham --2
10. Ipswich - C. Palace --2
11. Derby - Sheff. Utd - -2
12. Bolton - Wolves 1 - -
13. Luton - Oldham 1 - -
Heildarvinningsupphæð:
115 mllUónlr
13 réttir!
726.940
kr.
12 réttir
11 réttir
10 réttir
17.470
1.560
440
kr.
kr.
kr.
Misstu ekki af PLÚSVINNINGNUM
AUDI A8 álbifreið framtíðarinnar.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Náðu í miða núna.