Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995
11
Fréttir
Skiptar skoðanir eru um hvort nóg hafi verið mokað og saltað:
Pólitísk ákvörðun hvað
menn vilja gera mikið
- segir Agnar Strandberg, yfirverkstjóri hjá Kópavogsbæ, vegna hálkuslysa undanfarið
„Það má alltaf gera betur en þetta
veður skall á mjög skyndilega. Við
liggjum aldrei með stóran lager af
sandi því hann má ekki frjósa. Við
urðum þó ekki uppiskroppa með
sand því við höfum aðgang að viðbót-
arbirgðum í Reykjavík eftir klukkan
4 á morgnana. Það tafði okkur
kannski aðeins en óverulega," segir
Agnar Strandberg, yfirverkstjóri hjá
Kópavogsbæ.
Eins og greint var frá í DV í gær
leitaöi um 300 manns á slysadeild
með áverka vegna hálkuslysa. Ágúst
Kárason, bæklunarsérfræöingur á
Borgarspítala, fullyrti í samtali við
blaðið að hægt væri að koma í veg
fyrir ástand eins og það sem skapað-
ist um helgina með því að moka
gangstéttir og götur jafnóðum og
snjóar.
„Við byrjuðum á því í ár aö moka
helstu gangstéttir. Það er í sjálfu sér
hægt að auka þessa þjónustu en þetta
er frekar spurning um að sandbera
sem fyrst og sú vinna fór fram með
eðlilegum hætti hér í Kópavogi. Á
hitt ber að hta að þetta voru afskap-
lega erfiðar aðstæður. Það er í raun
pólitísk ákvörðun hvað menn vilja
leggja mikið í þessa vinnu.“
„Ég get engan veginn verið sam-
mála því að ástæöan fyrir þessum
mikla fjölda hálkuslysa um helgina
sé sú að götur og gangstéttir séu ekki
mokaðar nógu títt. í fyrsta lagi höf-
um við á undanförnum árum aukið
mjög mokstur á gangstígum og gang-
stéttum. Við höfum keypt til þess
tæki og búnað og verjum til þessa
verkefnis 160 tii 170 milljónum króna
á ári. Auðvitað er alltaf hægt að gera
betur en það er reynt að standa að
þessu eins vel og kostur er. Við ráð-
um hins vegar ekki við veðuraðstæð-
ur eins og þær sem sköpuðust nú á
dögunum," segir Sigurður Skarphéð-
insson, gatnamálastjóri í Reykjavík,
aðspurður um hvort ástæðan fyrir
miklum fjölda hálkuslysa um helg-
ina sé slæleg frammistaða við mokst-
ur og hreinsun gangstétta.
- En myndaðist klaki ef betur væri
mokað?
„Þetta er spurning um hve menn
eru viljugir. Að sjálfsögðu væri hægt
að tvö- eða þrefalda þá upphæð sem
varið er til þessa nú en það myndi
ekki að sama skapi skila bættum
Flugleiðir:
Fyrsta
reyklausa
f lugfélagið í
Flugleiöir verða fyrsta reyk-
lausa flugfélagiö í Evrópu frá og
meö gildistöku sumaráætlunar
26. raars nk.
Reykingabann í Norður-Atl-
antshafsflugi, sem tekur gildi í
næsta mánuði, er í samræmi viö
nýútgefna reglugerö samgöngu-
ráðuneytisins. Búist er við aö
nokkur af stærri fiugféiögunum
í Evrópu fylgi í kjölfar Flugleiða
og banni reykingar á þessari flug-
leið. Innlandsflug Flugleiða hefur
verið reyklaust frá 1984 og Evr-
ópuflug félagsins frá 1993.
árangri. Menn verða alltaf að reyna
að fmna leið sem uppfyllir venjuleg-
ar kröfur. Það er nokkuð sama hvað
við gerum og hve miklu fé við eyðum;
við getum aldrei ráðið við þær að-
stæður sem einstaka sinnum skapast
hérna. Þær aðstæður sem sköpuðust
um síðustu helgi voru ekki til komn-
ar vegna slælegrar frámmistöðu né
vanbúinna tækja að mínu mati,“ seg-
ir Sigurður.
-PP
MnniR
£Ilis
fyrstu tvær
bækurnar
komnar!
Miöaldamunkurinn ógleymanlegi er þegar
kominn í flokk sígildra sögupersóna og
höfundinum, Ellis Peters, er skipað ó bekk með
snillingum spennusögunnar eins og Agöthu
Christie og Arthur Conan Doyie.
ITV sjónvarpið breska hefur gert
sjónvarpskvikmyndir eftir fjórum bókanna með
Sir Derek Jacobi í aðalhlutverki. Vinsœldirnar
eru þvrlíkar að 6 í viðbót eru í undirbúningi!
Önnur myndin, Bláhjálmur
verður sýnd í Sjónvarpinu
17. febrúar nk.
Bróðir Cadfael 1: Líki ofaukið
Bróðir Cadfael 2: Bláhjálmur
Aðeins 895 krónur bókin
- eða sérstakt kynningarboð:
Báðar saman í pakka á 1.340!
Á næsta sölustað
m
: is
BróSir
CADFAKX