Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Blaðsíða 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995
Afrnæli
Siguröur Kristófer Árnason skip-
stjóri, Eskihlíö 24, Reykjavik, er sjö-
tugurídag.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk skipstjórn-
arprófi frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavíkl949.
Sigurður hóf sjómennskuferil
sinn á bv. Gulltoppi RE1943 og var
síðan háseti á ýmsum togurum. Að
námi loknu var hann stýrimaður á
ýmsum togurum, lengst af hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa og BÚR.
Hann réðst til Hafrannsóknastofn-
unar 1968 og starfaði þar við veiðar-
færarannsóknir til haustsins 1973,
var síðan yfirstýrimaður á rann-
sóknarskipinu Bjama Sæmunds-
syni frá 1973 og skipstjóri þar frá
1977 og þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir í árslok 1992.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 19.10.1955, Þor-
björgu J. Friðriksdóttur, f. 25.10.
1933, d. 12.4.1983, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóra á Landspítalanum.
Hún var dóttir Friðriks Jónssonar,
b. frá Hömrum í Lýtingsstaða-
hreppi, og Soffiu Stefánsdóttur,
hjúkrunarkonu frá Litlu-Ásgeirsá í
Víðidal í Húnaþingi. Þau voru bú-
sett á Akureyri frá 1938 þar sem
Friðrik vann verkamannavinnu en
Soffia var hjúkrunarkona við
Barnaskóla Akureyrar.
Börn Sigurðar og Þorbjargar eru
Friðrik, f. 22.5.1957, framkvæmda-
stjóri Celite China Inc. í Kína,
kvæntur Margréti Eydal félagsráð-
gjafa og eiga þau þrjú börn, Hrefnu,
Sindra Má og Brynjar Þór; Steinar,
f. 13.9.1958, kvæntur Helgu Sigur-
jónsdóttur, B A í sálfæði, og eiga þau
eina dóttur, Þorbjörgu Onnu; Ámi
Þór, f. 30.7.1960, borgarfulltrúi í
Reykjavík, kvæntur Sigurbjörgu
Þorsteinsdóttur ónæmisfræðingi og
eiga þau þrjú börn, Sigurð Kára,
Arnbjörgu Soffiu og Ragnar Auðun;
Þórhallur, f. 7.8.1964, innanhúss-
arkitekt í Kaupmannahöfn, kvænt-
ur Guðnýju Ingadóttúr nema; Sig-
urður Páll, f. 10.9.1968, ljósmyndari
í Reykjavík.
Systkini Siguröar eru Gestur
Kristinn, f. 21.9.1918, málari í Hafn-
arfirði; Jóhannes Kristberg, f. 24.7.
1921, pípulagningameistari í Reykja-
vík; Guðríöur, f. 22.10.1930, starfs-
maður Öldrunarlækningadeildar
Landspítalans í Hátúni.
Foreldrar Sigurðar voru Árni
Kristófer Sigurðsson, f. 2.11.1895,
d. 17.9.1969, sjómaður ogverkamað-
ur í Ólafsvík og Reykjavík, og k.h.,
Sigurborg Þórkatla Jóhannesdóttir,
f. 7.9.1894, d. 23.12.1966, húsmóðir.
Þau hófu búskap 1917 í Ólafsvík en
fluttu til Reykjavíkur 1924 og bjuggu
þaruppfráþví.
Ætt
Systkini Árna voru Hulda og Frið-
rik, faðir Amar, fyrrv. varaforseta
ASÍ. Árni Kristófer var sonur Sig-
urðar, sjómanns í Sandholti í Ólafs-
vík, Vigíússonar, b. í Pétursbúð
undir Jökli, Sigurössonar. Móðir
Árna Kristófers var Guðríður J.
Árnadóttir frá Stapabæ.
Sigurborg var dóttir Jóhannesar,
b. á Brimilsvöllum, Bjarnasonar, í
Bakkabæ í Fróðárhreppi, Hallsson-
ar. Móðir Sigurborgar var Anna Sig-
urðardóttir frá Klettakoti í Fróðár-
hreppi. Móðir Önnu var Þorkatla
Jóhannsdóttir, móðir Sigurðar
Kristófers Péturssonar rithöfundar,
Sigurður Kristófer Arnason.
ogamma HaUdórs E. Sigurðssonar,
fyrrv. ráðherra.
80 ára
Sigrún Jensdóttir,
Naustum 3, Akureyri.
Guðrún Sigurðardóttir,
Blesugróf 34, Reykjavik.
75 ára
Guðrún Soffia Hansen,
dvalarheimilinu Fellsenda, Dala-
byggð. *
Júliana Bjamadóttir,
Fannborg 1, Kópavogi.
Júlíanaeraðheiman.
Eyjólfur T. Eyjólfsson,
Sóleyjargötu 25, Reykjavík.
70 ára
Pálína Bjarnadóttir,
Háaleitisbraut 56, Reykjavík.
Ásgrimur Halldórsson,
Vtkurbraut 30, Hornafjarðarbæ.
Vigfús Baidvinsson,
Miðbraut 7, Dalabyggð.
Helga Guðvarðsdóttir,
Helgamagrastræti 23, Akureyri.
60 ára
Húsatóftum 1A, Skeiðahreppi.
Walter Óskar Ehrat,
Haltfríðarstöðum, Skriðuhreppi.
ÓskarEinarsson,
Austurströnd2, Seltjarnamesi.
Guðbjörg Björgvinsdóttir,
Birtingarhotli I, Hrunamanna-
hreppi.
Dagbjört Flórentsdóttir,
Kaldaseli3, Reykjavík,
erfimmtugidag.
Eiginmaöur Dagbjartar er Sæ-
mundur Alfreösson framkvæmda-
stjóri, en hann verður fimmtugur
þann26,2.nk. .
I tilefni afmælanna taka þau
hjónin á móti gestum í Kiwanishús-
inu, Engjateigi 11, Reykjavík, laug-
ardaginn 11.2. nk. milli kl. 18.00 og
22.00.
Erna Hj artardóttir,
Fannafold 40, Reykjavík.
Jóhanna Kristín Sigurðardóttir,
Stórateigi 9, Mosfellsbæ.
EinarÞórarinsson,
Greniteigi 30, Keflavfk.
Alda Jóna Vigfúsdóttir,
Miðbraut9, Seltjamamesi.
Jóhanna Þovarðardóttir,
Smárabraut 8, Hornarfjarðarbæ.
Jón Gunnarsson,
Staðarbakka 16, Reykjavík.
Liv Synöve Þorsteinsson,
Stórageröí 34, Reykjavík.
HjaltiHjaltason,
Skarðshlið 2 J, AkureyrL
Þorsteinn Vigfússon,
40 ára
Konráð Einarsson,
Ólafsbraut 52, Snæfellsbæ.
Guðmundur Valdi Einarsson,
Sogavegi 128, Reykjavík.
Hólmfríður G. Júlíusdóttir,
Búhamri 76, Vestmannaeyjum.
Lína María Aradóttir,
Brautarholti 2, ísaflrði.
Óskar Ingi Húnfjörð,
Garðabyggð 1, Blönduósl
Guðbj örg í sleifsdóttir,
Heiðvangi23, Rangárvallahreppi.
Lárus Luciano Tosti,
Logafold 192, Reykjavík.
EKn Stephensen,
Munkaþverárstræli 12, Akureyri.
Einar Olgeir Gíslason,
Löngumýri9, Garðabæ.
Andlát
Pétur Guðjónsson
Pétur Guðjónsson rakari, til heimil-
is að Grundaríandi 10, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn31.1. sl. Hannvar
jarðsunginn frá Bústaðakirkju í
gærmorgun.
Starisferill
Pétur fæddist í Reykjavik og ólst
þar upp. Hann hóf nám í rakaraiðn
hjá Pétri Ó. Jónssyni hárskera-
meistara 1942, lauk prófi frá Iön-
skólanum í Reykjavík og sveins-
prófi í þeirri grein og öðlaðist síðar
meistararéttindi.
Pétur opnaði rakarastofu ásamt
félaga sínum, Val Magnússyni, 1951
að Skólavörðustíg 10 í Reykjavík og
starfrækti stofuna með Val og síðan
einn eftir að Valur hvarf til annarra
starfa.
Er gamla húsið að Skólavörðustíg
10 varð að víkjafyrir nýbyggingu
fyrir íjórum árum flutti Pétur stofu
sína um set í næsta hús en keypti
síðan húsnæði í nýbyggingunni að
Skólavörðustíg 10 og starfrækti þar
áfram rakarastofu sína til dánar-
dags.
Pétur hóf umboðsstörf fyrir
hljómsveitir og ýmsa þekkta
skemmtikrafta 1952 og hafði umboð
fyrir slíka aðila um árabil.
Pétur stundaði fimleika hjá Ár-
manni á sínum yngri árum og sýndi
m.a. fimleika með sýningarflokki
félagsins á lýðveldishátíðinni 1944.
Hann var alla tíð mikill áhugamað-
ur um íþróttir og landsþekktur fyrir
áhuga sinn á knattspyrnu og dyggan
stuðning við knattspyrnufélagið
Val.
Hann starfaði mikið fyrir Meist-
arafélag hárskera, var lengi formað-
ur þess ogheiðursfélagi. Þá starfaði
hann í Lionshreyfingunni og frí-
múrarareglunni og gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum á vegum þeirra
samtaka.
Fjölskylda
Pétur kvæntist 13.10.1951 eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Hjördísi
Ágústsdóttur, f. 19.4.1934, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Ágústs Guðmunds-
sonar, rafmagnsveitustjóra Raf-
magnsveitu Reykjavíkur við Elliða-
ár, og k.h., Sigríöar Pálsdóttur hús-
móður.
Börn Péturs og Hjördísar eru
Anna Sigríður Pétursdóttir, f. 17.2.
1952, kennari í Reykjavík, gift
Magnúsi Ólafssyni kennara pg eiga
þau þrjú börn; Guðmundur Ágúst
Pétursson, f. 3.5.1953, vélvirki með
eigið fyrirtæki, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Huldu Björgu Sigurð-
ardóttur og eiga þau þrjú börn;
Sturla, f. 14.9.1954, þjónn í Reykja-
vík, kvæntur Rósu Þorvaldsdóttur
Pétur Guðjónsson.
og eiga þau þrjú börn; Bryndís, f.
9.6.1957, sjúkraliði í Reykjavík; Pét-
ur, f. 11.1.1963, nemi í Kaupmanna-
höfn.
Alsystkini Péturs: Sigurjón, nú
látinn, málarameistari í Reykjavík;
Anton, leigubílstj óri í Reykjavík;
Rósa, húsmóðir í Reykjavík.
Hálfbræður Péturs; Erlingur Ól-
afsson, fyrrv. bæjarstjóri á Nes-
kaupstað, ogKjartan Ólafsson, dó
ungurmaður.
Foreldrar Péturs voru Guðjón
Jónsson, fisksali í Reykjavík, og
k.h„ Þuríður Guðfinna Sigurðar-
dóttirhúsmóðir.
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ PIJA MAA
EÐA I ÁSKRIFT I SÍMA VWV fclUU