Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1995, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1995
29
Gretar Reynisson á sýningu
sinni í Nýlistasafninu.
Skúlptúr og
teikningar
Hinn kunni myndlistarmaöur
og leikmyndahönnuður, Gretar
Reynisson, sýnir um þessar
mundir verk sín í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3b. Gretar sýnir í öllum
sölum safnsins skúlptúrverk og
teikningar, allt nýleg verk, flest
frá síðasta ári. Skúlptúrverkin
eru unnin í krossvið og dúk. í
krossviðarverkunum og teikn-
ingunum eru blýantur og göt alls-
ráðandi.
Sýningar
Gretar lauk námi frá Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands ár-
ið 1978 og dvaldi í Amsterdam
veturinn 1978-1979. Hann hefur
haldið á annan tug einkasýninga
hér heima og erlendis. Auk starfa
við myndlist hefur Gretar gert
leikmyndir fyrir leikhús í
Reykjavík. Sýning Gretars í Ný-
listasafninu er opin daglega kl.
14-20 fram til 12. febrúar.
Hallgrímskirkjuorgelið er full-
komið, stórt og voldugt en stærri
orgel eru til.
Stærsta hljóð-
færi heims
Stærsta hljóðfæri heims, og
jafnframt hiö hljómsterkasta, er
orgel í Atlantic City í Bandaríkj-
unum. Það var fullgert 1930 en
er nú aðeins nothæft að hluta.
Hljóðfærið hefur tvö leikborð,
annað með sjö nótnaborðum og
hitt hreyfanlegt með fimm nótna-
borðum, 1477 stillitakka og 33.112
Blessuð veröldin
pípur, hina stystu 4,7 mm og
lengstu 19 m. Orgel þetta hafði
styrkleika 25 lúðrasveita og tón-
sviö þess náði yfir sjö áttundir.
Stærsta orgelið í fullkomnu
standi er í Fíladelfíu í Bandaríkj-
unum en það var smíðað 1911 og
hefur síðan verið stækkað jafnt
og þétt fram til ársins 1930. Það
hefur sex nótnaborð og 30.067 píp-
ur. Sú lengsta er 19,5 m grav-
issima-pípa.
Café Romance er pianóbar eins
og þannig bar getur bestur orðið.
Þar hafa ávallt veriö fengnir er-
lendir píanóleikarar og söngvarar
sem hafa mikla reynslu af aö leika
á slíkum bömum og er einn slíkur
Skemmtanir
staddur hér á landi sem skemmtir
gestum staöarins á hverju kvöldi.
Ricky Daniels heitir hann og hóf
leik síðastliðið fímmtudagskvöld
og mun hann skemmta gestum
staðarins næstu tvo mánuði. Einn-
ig leikur hann fyrir matargesti á
Café Óperu.
Ricky Daniels er þekktur fyrir
líflega framkomu í söng og leik og
hefur hann skemmt gestum flestra
vinsælustu píanóbara á Spáni, í
Þýskalandi, Noregi, Danmörku,
Sviss og Hollandi en þar hefur
HicKy uameis vio pianoio a c-aie Homance.
hann verið vinsæll skemmtikraft-
ur á Maxim’s, þess fræga píanóbars
sem margir íslendingar þekkja.
Eins og allir píanóleikarar sem
leika á píanóbörum hefur Ricky
Daniels yfírgripsmikið lagasvið og
er öruggt að hann leikur lög sem
flestir þekkja.
Góðvetrar-
færðá
helstuvegum
Góð vetrarfærð er á öllum helstu
vegum landsins, þó er þungfært á
norðurleiðinni í Langadal og á Vatns-
skarði. Einnig er þungfært til Siglu-
fjarðar úr Skagafirði. Austan Akur-
Færðávegum
eyrar er þungfært frá Húsavík aust-
ur um Tjörnes til Kópaskers og upp
í Mývatnssveit. Möðrudalsöræfi eru
ófær. Sömuleiðis vegurinn um Gils-
fjörð og Bröttubrekku.
r
Astand vega
EJ Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
C^) LokaðrSt°OU ® Þungfært (g) Fært fjallabílum
Stærsta kirkjuorgelið og
háværasta röddin
Stærsta kirkjuorgel heims er í
dómkirkjunni í Passau í Bæjara-
landi í Þýskalandi. það var full-
gert árið 1928 af D.F. Steinmeyer
& Co. með 16.000 pípur og fimm
nótnaborð. Háværasta orgelrödd
heims er Ophicleide-rödd í fyrr-
nefndu orgeli í Atlantic City.
Tónninn myndast viö þrýsting
sem samsvarar 1,59 kg/cm-
vatnssúlu. Þessi hreini og ærandi
trompettónn orgelsins er sex
sinnum sterkari en háværustu
eimflautur.
Sindn Mar og
SandraSif
Tvíburarmr á myndinni heita
Sindri Már og Sandra Sif. Þeir
fæddust á fæðingardeild Landspit-
alans 18. janúar. Sindri Már fædd
ist kl. 1.36. Hann var 3670 grömm
að þyngd og 51,5 sentimetra langur
og Sandra Sif fæddist mínútu siðar
og var 3490 grömm og 52 sentímetra
löng. Foreldrar þeirra eru Kolbrún
Bjamadótttr og Gunnar Þór Gunn-
arsson. Tvíburarnir eiga eintt bróð-
ur, Pétur Þór, sem er 6 ára.
Steve Martin og Alana Austin i
hlutverkum sínum í Pabbi óskast.
Tveir feður,
ein dóttir
Saga bíó frumsýndi um helgina
nýjustu kvikmynd Stevs Martins,
Pabbi óskast (A Simple Twist of
Fate). Leikur Steve Martin Mic-
hael McCann sem nágrannar
hans líta á sem nískan sérvitring.
Nótt eina breytist líf hans þegar
lítið bam bókstaflega skríöur inn
í hús hans. Hann tekur barnið,
sem er lítil stúlka, að sér og ætt-
leiðir það. Michael veit ekki að
Kvikmyndir
faðir stúlkunnar er ríkur stjórn-
málamaður sem fylgist með upp-
eldinu úr fjarlægð og gerir sínar
áætlanir um framtíð barnsins en
hann hafði afneitað því þegar það
fæddist. Þegar svo hinn raun-
verulegi faðir kemur og vill taka
að sér stúlkuna upphefst stríð um *.
forræðisréttinn.
Steve Martin skrifaði handritið
að Pabbi óskast og er búinn að
vinna að því lengi. Hann segist
hafa fengið hugmyndina að
myndinni þegar hann las nítj-
ándu aldar skáldsöguna Silas
Marner. Leikarar auk Martins í
myndinni eru Gabriel Byrne,
Catherine O’Hara og Stephen
Baldwin.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Skuggalendur .
Laugarásbíó: Timecop
Saga-bíó: Pabbi óskast
Bíóhöllin: Wyatt Earp
Stjörnubíó: Frankenstein
Bíóborgin: Leon
Regnboginn: Litbrigði næturinnar
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 35.
07. febrúar 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Doliar 67,150 67,350 67,440
Pund 104,730 105,040 107,140
Kan. dollar 48,110 48,300 47,750
Dönsk kr. 11,1450 11,1890 11,2820
Norsk kr. 10,0260 10,0660 10,1710
Sænsk kr. 9,0270 9,0630 9,0710
Fi. mark 14,2330 14,2900 14,2810
Fra. franki 12,6710 12,7210 12,8370
Belg. franki 2,1323 ■ 2,1409 2,1614
Sviss. franki 61,8500 52,0600 52,9100
Holl. gyllini 39,1400 39,3000 39,7700
Þýsktmark 43,8800 44,0100 44,5500
it. líra 0,04169 0,04189 0,04218
Aust. sch. 6,2300 6,2610 6,3370
Port. escudo 0,4250 0,4272 0,4311
Spá. peseti 0,5068 0,5094 0,5129
Jap. yen 0,67670 0,67870 0,68240
frskt pund 103,710 104,230 105,960
SDR 98,35000 98,84000 99,49000
ECU 82,7800 83,1200 84,1700
Slmsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
2 t éT L 7
£
10
II u I ,s W
H J 17
I I# W
'V
Lárétt: 1 yfirsjónin, 8 karlmannsnafn, 9
keyrir, 10 trjákróna, 11 hópur, 13 spil, 15
lömb, 16 stöng, 18 getur, 20 lensku, 21
vafi.
Lóðrétt: 1 högg, 2 háls, 3 dá, 4 drengs, 5
ávaxtamauk, 6 fugl, 7 skynja, 12 ekki, 14
bindi, 15 dolla, 17 púki, 19 umdæmisstaf-
ir.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 þorp, 5 árs, 8 erill, 9 op, 10 yl,
11 kafla, 12 bol, 13 stuð, 15 fítu, 16 na, 17
asna, 19 rak, 21 kúgunar.
Lóðrétt: 1 þey, 2 orlofs, 3 rikling, 4 plast,
5 álf, 6 roluna, 7 spaða, 12 blak, 14 tum,
18 au, 20 KR.