Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 7 Fréttir Svissneska skýrslan um að Seljalandsdalur sé hættusvæði: » Við þurf um að skoða málið í nýju Ijósi - segir Ingibjörg Pálmadóttir, varaformaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis „Viö í heilbrigðis- og trygginga- nefnd höfðum ekM heyrt um þessa svissnesku skýrslu, sem bæjarstjórn ísafjarðar hefur undir höndum, fyrr en í fréttum um helgina. Að sjálf- sögðu munum við krefjast þess að fá að sjá hana áður en við afgreiðum ' frumvarpið frá okkur. Það að svæðið skuh talið hættusvæði gæti breytt miklu. Þetta er greinilega hið versta mál,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir al- þingismaðuir, varaformaður heil- brigðis- og trygginganefndar Alþing- is. Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra sagði að sér hefði ekki ver- ið kunnugt um þessa skýrslu fyrr en hann heyrði hennar getið í fréttum. Hann sagðist mundu óska eftir að fá að sjá hana. Skýrsluna samdi svissneskt fyrir- tæki sem gert hefur úttekt á skíða- svæðinu. Telja Svisslendingamir það svo hættulegt að ekki yrði leyft að byggja á því í Sviss. Þessari skýrslu hefur verið haldið leyndri síðan í haust, merktri sem trúnaðar- mál. Það var ísafjarðarbær sem fékk svissneska fyrirtækið til að gera út- tektina. Heilbrigðis- og trygginganefnd Al- þingis hefur verið að fjalla um frum- varp sem lagt var fram í nóvember síðasthðinn um að Viðlagasjóður greiddi ísafjarðarbæ 90 milljónir króna til uppbyggingar skíðasvæðis- ins á Seljalandsdal, sem rústaðist í snjóflóði í fyrra. ísfirðingar eru þeg- ar farnir að byggja þarna upp skíða- svæðið. Er tahð að kostnaðurinn við alla uppbygginguna nemi um 140 milljónum króna. Innan heilbrigðis- og trygginga- nefndar hefur komið fram gagnrýni á slíka eftirátryggingu. Ingibjörg Pálmadóttir sagði að menn vildu fremur að ríkissjóður stæði straum af þessari sérstöku greiðslu í stað þess að taka upp eftirátryggingar. Alþýðubandalagið á Akureyri: Varafor- maðurinn hyggst hætta Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Ég er bara að fara að gera aðra hluti,“ segir Logi Einarsson, vara- formaður Alþýðubandalagsfélagsins á Akureyri, en samkvæmt áreiðan- legum heimildum hefur hann ákveð- ið að segja af sér trúnaðarstörfum fyrir félagið og orðrómur er um að hann segi sig einnig úr félaginu. Ástæðan er afstaða Alþýðubanda- lagsins í ÚA-málinu svokallaða, en þar varð það ofan á að styðja SH í baráttunni um viðskiptin við Útgerð- arfélag Akureyringa. Logi vildi ekki staðfesta þetta í samtali við DV og sagði þetta ekki vera neitt stórmál. „Ég ætla bara ekkert að ræða um þetta, það er endanlegt af minni hálfu,“ sagði Logi. EyjaQörður: Eining fékk heimild til verkfalls Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Yfirgnæfandi meirihluti félags- manna í Verkalýðsfélaginu Einingu í Eyjafirði, sem þátt tóku í atkvæða- greiðslu um verkfafisheimild til handa stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins, greiddi atkvæði með verk- fallsheimildinni. Fundir voru í öllum deildum Ein- ingar og segir Sigríður Lárusdóttir, skrifstofustjóri Einingar, að 216 fé- lagar hafi tekið þátt í atkvæða- greiðslunni. Já sögðu 181, nei sögðu 34 og einn seðill var ógildur. Að sögn Sigríðar hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort eða hvenær verk- fallsheimildinni verður beitt. Námstefna VIB um bestu ávöxtun og uppbyggingu eigna DAGSKRÁ: Námstefhustjóri: Vilborg Lofts aðstoðarframkvamdastjóri VÍB. Kl. 11:00 - 12:00. Skráning gesta í Súlnasal. Kynning á þjónustu VÍB við ávöxtun peninga í verðbréf- um, m.a. sérstakri fjárvörslu, kaup og sölu á verðbréfum, eignastýringu og bókum VIB um fjármál og verðbréf. aKl. 12:00 -13:15. Hádegisverður. Hádegisverðarerindi um fjármál einstaklinga og skattlagningu sparnaðar. Friðrik Sophusson jjármálaráðherra. Kl. 13:30 -13:35. Námstefnan sett. Margrét Sveinsdóttirforstöðumaður Einstaklingspjónustu VÍB. Kl. 13:35 -13:45. Inngangsorð og kynning. Vúborg Lofts aðstoðarframkvœmdastjóri VIB. Kl. 13:45 -14:15. Hvernig er hægt að ná bestu ávöxtun á sparifé á árinu 1995 og á næstu árum? Horfur um ávöxtun á árinu 1995 og á næstu árum. Erlend verðbréf og eignastýring. Stýring á milli innlendra og erlendra verðbréfa í safni. Sigurður B. Stefánsson framkvamdastjóri VÍB. Kl. 14:15 -14:30. Kynning á niðurstöðum skoðanakönnunar Gallup á íslandi um fjármál fólks á eftirlaunaárunum. Hvað þarft þú að eiga mikla peninga tíl að geta hætt að vinna? Ásgeir Þórðarson forstöðumaður Verðbréfamiðlunar og fyrirtakjaþjónustu VIB. Kl. 14:30 -15:00. Hvernig tryggja lífeyrissjóðir hag þiim? Hvað getur þú átt von á miklum eftirlaunum frá lífeyrissjóðnum þínum? Hrafii Magnússon framkvamdastjóri SAL, Sambands almennra lífeyrissjóða. Kl. 15:30 -16:00. Eignir fólks og sparifé frá 45 ára aldri til starfsloka og fyrstu árin eftir starfslok. Hvernig byggjast eignir og sparifé upp eftir því sem líður á starfsævina? Hve mikill hlutí af heildareignum er í formi réttinda í lífeyrissjóði? Gunnar Baldvinsson forstöðumaður Reksturs sjóða hjá VÍB. Kl. 16:00 -16:30. Hvaða ávöxtunarleiðir bjóðast nú og hvaða skref þarf að taka til að byggja upp eignir til eftirlaunaáranna? Hvernig er best að fjárfesta núna? Hvernig á að byggja upp eignir til lengri tíma? Skattar, eignastýring og erfðamál. Margrét Sveinsdóttir forstöðumaður Einstaklingspjónustu VÍB. Kl. 16:30. Námstefnulok. I námstefuulok býður VIB upp á léttar veitingar. Þátttökuverð: Almennt verðfyrir einstaklinga er 5.900 krónur ogfyrir hjón 7.900 krónur. Sérstakur afsláttur er veittur viðskiptavinum VÍB. Einstaklingargreiða 3.900 krónur og hjón 5-900 krónur. Þátttaka greiðist við skráningu. Sérrit með erindum námstefnunnar liggja frammi í lok dagsins. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aðili að Verðbréfaþingi Isiands • Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Islei isk kjölsúpa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.