Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1995, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 9 Utlönd Balladurstefnir áfrelsiðjafn- réttiðogEvrópu Edouard Balladur, for- sætísráöherra Frakklands, kynnti stefnu- skrá sína fyrir forsetakosning- arnar í vor þar sem jafnréttiö, frelsið og Evrópu liggja til grund- vallar og hann hét því að hráða umbótum. Balladur var öruggur með sig enda nýtur hann mestra vin- sælda allra forsetaframbjóðenda ef marka má skoðanakannanir. Hann lofaði að boða til þjóðarat- kvæðagreiðslu innan sex mánaða um stjórnkerfisbreytingar, þar á meðal styttingu á kjörtímabih forsetans sem er sjö ár. Einkaneyslan í Danmörku jókst mikiðífyrra Einkaneysla í Danmörku jókst meira í fyrra en nokkru sinni frá lokum heimsstyrjaldarinnar síð- ari. Danir hafa aldrei keypt jafn mikið af bílum, fótum, utanlands- ferðum, tölvum og þvottavélum á einu ári. Blaðið Pohtiken skýrir frá því að einkaneyslan hafi aukist um sem svarar fjögur hundruð mihj- örðum íslenskra króna. Það þýðir að hver Dani hafi eytt hundrað þúsund íslenskum krónum meira í fyrra en árið á undan, að meðal- tah. Stjórnvöld búast ekki við að neyslan aukist jafn mikið í ár. Neysluaukninguna má m.a. rekja til þess að Danir borguðu minni skatta en áður og skattarn- ir eiga enn eftir að lækka á þessu ári. Eyðileggingar Dresdenfyrir50 árum minnst Fuhtrúar Bretlands og Banda- ríkjanna slógust í lið með íbúum þýsku borgarinnar Dresden í gær þegar þeir minntust þess að fimmtíu ár voru liðin frá loftárás- um bandamanna á borgina. Það voru einhverjar grimmilegustu loftárásir síðari heimsstyrjaldar- innar. Allt að 35 þúsund óbreyttir borgarar fórust í loftárásunum þann 13. febrúar 1945. Þær lögðu fallega miðborg Dresden í rúst en minniháttar skemmdir urðu á hernaðarmannvirkjum. Fulltrúi Bretadrottningar af- henti borgaryfirvöldum uppdrátt að gullkrossi sem mun skreyta Frúarkirkjuna þegar hún verður endurbyggð. Rústir kirkjunnar hafa verið óhreyfðar í 50 ár til að minna á hrylling stríðsins. Gingrich býður sigekkiframtil forsetaembættis Newt Gingrich, for- seti fulltrúa- deildar Banda- ríkjaþings, skýrði frá því í gær að hann ætiaði ekki að bjóða sig fram til forsetaembættisins á næsta ári þrátt fyrir boð um hðveiðslu frá stuðningsmönnum. Gingrich sat morgunverðar- fund með kaupsýslumönnum í Georgíu og sagði eftir fundinn að hann ætiaði að sitja áfram í þing- inu til að sjá til þess að „samning- ur“ repúbhkana við þjóðina nái framaðganga. Reuter, Ritzau Réttarhöldin yfir O. J. Simpson: O J. hugleiddi að taka eigið líf - hundaeigendur fylgjast spenntir með málinu Vinur O.J. Simpson segir að O.J. hafi íhugað að fremja sjálfsmorð 17. júní á síðasta ári eða daginn sem hann var handtekínn. Sá sem þetta segir heitir A1 Cowhngs og er gamall vinur ruðningshetjunnar og fyrrum félagi hans úr ameríska fótboltanum. A1 þessi var með O.J. í hvíta Bronco- inum í eltingarleiknum fræga sem sjónvarpað var um öh Bandaríkin og leiddi til handtöku O.J. Á meðan á eltingaleiknum stóð var O.J. að hugsa út staði þar sem hann gæti framið sjálfsmorð, að sögn Als. A1 er þó eklti viss um sekt O.J. „O.J. var eins og hann væri dáinn inni í sér þennan dag,“ segir A1 í sjónvarpsvið- tali sem sent verður út í dag. Nokkr- ar líkur eru á að A1 þessi beri vitni fyrir réttinum í málinu en hann var einnig góður vinur Nicole Simpsons og segist hafa dýrkað hana. Kviðdómendur, fuhtrúar verjenda og sækjenda og O.J. sjálfur fóru að skoða morðstaðinn í auðmanna- hverfmu Brentwood í Los Angeles um síðustu helgi. Það er mat manna að kviðdómendur muni aldrei gleyma því ríkidæmi sem við blasti í hverfinu. Gífurlegur áhugi er á réttarhöldun- um yfir Simpson um allan heim og þúsundir blaðamanna gera ekkert annað en að fylgjast með réttarhöld-' unum. Hundatímarit nokkurt, Dog World Magazine, hefur meðal annars ákveðið að ráða fréttaritara sem ein- göngu á að fjalla um mál Simpsons. Kviödómendur heimsækia moröstaöinn Heimili O.J. Sii sons. REUTER Heimili Nicole Simpson: Lík hennar og Rons Goldmans fundust þar. O.J. Simpson er aftur kominn bak við lás og slá og ró er að færast yfir auðmannahverfið Brentwood í Los- Angeles eftir læti helgarinnar þegar kviðdómendur komu að skoða morðstaðinn þar sem O.J. er sakaður um að hafa myrt eiginkonu sina og vin hennar. Matsölustaður: Þarna vann Ron Goldman og Nicole snæddi hinstu kvöld- máltíðina þar. Ritstjórinn segir málið hafa vakið aukinn áhuga á hundum vegna þess að það var blóðugur hundur Nicole sem leiddi til þess að líkin af Nicole og vini hennar, Ronald Goldman, fundust. Reuter Leikkonan Sharon Stone er i hefndarhug í nýjustu myndinni sinni The Quick and the Dead. Þar leikur hún unga konu að nafni Ellen sem reynir hvað hún getur að ná sér niðri á óprúttnum bæjarstjóra í villta vestrinu. Það hefur vakið athygli að bólsena með Sharon var klippt úr myndinni. Símamynd Reuter Samið um vopnahlé í Tsjetsjeníu Bill Clinton Bandaríkjaforseti hringdi í Borís Jeltsín, starfsbróöur sinn í Rússlandi, í gær og hvatti hann til að leita friðsamlegrar lausnar á detiunni í Tsjetsjeníu þar sem rúss- neskir hermenn hafa verið að berjast við uppreisnarmenn aðsktinaðar- sinna undanfamar vikur. Clinton hringdi eftir að rússneskir embættismenn höfðu tilkynnt að rússneski herinn og leiðtogar upp- reisnarmanna hefðu komist að sam- komulagi um að þagga niður í þunga- vopnunum. Aslan Maskhadov, foringi í liði uppreisnarmanna, sagði að vopna- hléið yrði í gildi fram á miðvikudag. Rússneska vamarmálaráðuneytið skýröi frá því að efnt yrði til viö- ræðna í vikunni tti að gera vopna- hléið víðtækara. „Viö höfum gefið fyrirskipanir um vopnahlé en það getur vel verið að allar herdeildir hlýði þeim,“ sagði Maskhadov við fréttamenn eftir við- ræður við rússneska herforingjann Anatólíj Kúlíkov. Allar fyrri ttiraunir tti að binda enda á átökin í Tsjetsjeníu hafa mis- tekist. Reuter Hillary hveturta'l aukinna brjóstaskoðana Hillarj’ Rod- ham Clinton, forsetafrú í Bandaríkjun- um, kvaddi sér hljóðs í heil- brigðisumræð- unni í gær og hvatti lækna til aö mæla með brjóstaskoðun með- al eldri kvenna. „Krabbamein er oröið sem vek- ur óhug hjá öllum en þó einkum hjá eldra fólki,“ sagði Hillary í viðtali við Reuters fréttastofuna. Bandaríska krabbameinsfélag- ið telur að 46 þúsund bandarískar konur látist af völdum brjósta- krabba á ári. Ef krabbameinið greindist fyrr væri hægt að fækka dauðsföllunum verulega. Krabbameinsfélagið spáir því að 182 þúsund bandarískar konur greinist með brjóstakrabba á þessuári. Reuter Nr. Lelkur: Rööln Nr. Lelkur:______________Róðln 1. Newcastle - Notth For. 1 - - 2. Man. City - Man. Utd. - -2 3. Chelsea - Tottenham -X - 4. Liverpool - QPR -X - 5. Arsenal - Leicester -X - 6. Norwich - Southamptn -X - 7. Leeds - Ipswich -X - 8. Aston V. - Wimbledon 1 - - 9. C. Palace - Coventry - -2 10. Oldham - Middlesbro -X - 11. Barnsley-Tranmere -X - 12. Reading - Derby 1 - - 13. Portsmouth - Millwall 1 -- Heildarvinningsupphæð: 115 mllljónlr 13 réttir 15.315.670 j kr. 12 réttir 183.670 kr. 11 réttir 11.250 kr. 10 réttirl 2.330 kr. Nr. Lelkur:_____________________Röðln Nr. Lelkur:_______________Róðln 1. Bari - Juventus --2 2. Torino - Lazio 1 - - 3. Roma - Inter 1 - - 4. Fiorentina - Genoa 1 - - 5. Milan - Cagliari -X - 6. Sampdoria - Reggiana 1 - - 7. Brescia - Foggia 1 - - 8. Parma - Padova 1 - - 9. Perugia - Lucchese -X - 10. Palermo-Verona 1-- 11. Ascoli -Atalanta --2 12. Cosenza - Piacenza -X - 13. Chievo - Udinese --2 Heildarvinningsupphæð: 15 mllljónlr 13 réttir 172.930 | kr. kr. 12 réttir 4.720 11 réttir 480 122 10 réttir kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.