Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Síða 15
MANUDAGUR 29. MAI 1995 15 Tilbrigði um frægðina Öll elskum við drauminn um frægðina en ekki frægðina sjálfa. Við fylgjumst af áhuga með þeim sem segist hafa tekist að leggja undir sig heiminn á meöan við þykjumst nokkuð viss um að það sé ekki rétt. Við þurfum ekki að setja merki á Kristján, eins og á villtu álftimar, við vitum að hann snýr aftur. Frægð hans nærist á okkur, hann neyðist til þess að koma til baka. Við getum dáðst að honum því hann stólar á okkur. Björk þarf ekki á okkur að halda. Hún er fræg. Og hvað gerir hún fyrir okkur? Ekkert. Hreint út Segjum það hreint út: Útlending- ar vita ekki að íslendingar eiga nóbelsverðlaunahafa í bókmennt- um, aö þeir eru góðir skákmenn og ná langt í handbolta þegar vel gengur (fæstir Frakkar vita reynd- ar að þeir séu heimsmeistarar í handbolta). Þegar við uppfræðum útlendinga um þessar staðreyndir njótum við tvöfaldra yfirburða: Við vitum, en þeir ekki, og frægð frægra íslendinga varpar ljóma á okkur. íslensk fjölskylda horfir á tvo ís- lenska söngvara í sjónvarpinu sama kvöldið. Alhr reyna að verja Björgvin. Maður skynjar enga elsku, enn þá minni aðdáun, en „greyið“ er ekki „svo slæmur“. KjaUaiinn Gérard Lemarquis kennari og fréttaritari Nokkru seinna er sýnt mjög dýrt myndband með Björk og allir fá útrás fyrir neikvæðni sína. Hún kann ekki að syngja, textarnir eru vonlausir, hún er illa klædd. í stuttu máli; allt er ómögulegt. Þetta er viðburður Tvær fréttir sem birtust meö stuttu millibili í blöðunum: íslensk kvikmynd; skiptir ekki máli hvaða, vann til verðlauna í Frakklandi. Það tók mig korter að finna borgina á korti. Þetta er viðburður! Þá er haft eftir erlendum blöðum aö Sig- urjón Sighvatsson, sem hefur getið sér alþjóðlegan orðstír, sé að hefia framleiðslu á kvikmyndum sem munu kosta tugi milljóna dollara. Varla fréttnæmt! - Samt er hann líklega sá sem ásamt Björk hefur „meikað það“ í útlöndum. Oft er talað um þá frægu í pörum: Sá góði og hinn vondi. Dæmi um þetta: Hógvaeri Kristinn og sjálf- umglaði Kristján. Prúða Hófí og villta Linda. Samanburðurinn get- ur tekið mikið pláss í umræðum á mannamótum. Maður þekkir mann, sem þekkir mann, sem fór á óperu í útlöndum: Söngvarinn fékk lélega dóma, óperuhúsið var hálftómt og þeir sem ekki fóru í hléinu púuðu að lokum. Og þetta var Scala sem hann á að hafa sungið í - er það nokkuð til? Hinn hefur lagt Evrópu að fótum sér án þess að nokkur viti það. Samt syngur hann árið um kring og alltaf fyrir fullu húsi! Móðgun við meðalmennsku Fegurðardísir, sem ná frægð, fara í taugarnar jafnt á konum sem körlum. Við erum afbrýðisöm. Við þolum þær ekki fyrr en þær kom- ast á ævisögualdurinn og hrukk- umar í andliti þeirra hefna okkar. Og þó ... Þessar myndir af þekktu fólki, hótelin í sólinni og skíðaferðir á réttum stöðum eru móögun við meðaimennsku okkar. Sem betur fer hafa þær gifst mönn- um, oftast útlendingum, sem börðu þær áöur en þeir héldu fram hjá þeim. Óhamingja þeirra bjargar þessu. Vilduð þið kaupa æviminn- ingar konu sem hefur alltaf veriö falleg, gáfuð, óhemju aðlaðandi og auk þess nógu ósvífin til þess að hafa líka leyft sér að vera ham- ingjusöm? - Ekki ég! Gérard Lemarquis „Vilduð þið kaupa æviminingar konu sem hefur alltaf verið falleg, gáfuð, óhemju aðlaðandi og auk þess nógu ósvífin til þess að hafa líka leyft sér að vera hamingjusöm? - Ekki ég!“ „Þessar myndir með þekktu fólki, hótelin í sólinni og skíðaferðir á réttum stöðum eru móðgun við meðalmennsku okkar," segir Gérard m.a. i grein sinni. Fasteignaskattar og dauði Nú er svo komið að enginn má eignast fasteign án þess að þurfa að upplifa það að vera skattpíndur og mergsoginn af Gjaidheimtumii til þess eins að framfleyta því sveit- arfélagi sem fasteignin er staðsett í. ímyndaður skattstofn Það er nú einu sinni svo að ekki eru allir í aðstöðu til þess að geta haft tekjur af sinni fasteign, má í því sambandi nefna þá sem hafa óseljanlegar fasteignir á sínum snærum. Fasteignir sem enginn vill leigja né kaupa. Fasteignir sem standa auðar árum saman. Þar ræðst Gjaidheimtan á hinn ímynd- aða skattstofn og mergsýgur þar til eignin hafnar á uppboði Gjald- heimtunnar, því að þar endar dæmið að sjálfsögðu er eigendur geta ekki greitt hin svimandi háu fasteignagjöld. Það þarf ekki annað en að lesa uppboðsauglýsingamar í Lögbirt- ing til þess aö sjá að Gjaldheimtan fer þar offari, fremst allra í flokki. Vitanlega eru þar á ferðinni ógreidd gjöld, bæði persónubundin og eignalegs eðlis, en samt sam- tvinnuð. Lögmenn fiármagnsstofn- ana bíða eftir því að Gjaldheimtan gangi fram fyrir skjöldu og taki af þeim kostnaðinn og ómakið og KjaUarinn Njáll Harðarson framkvæmdastjóri krefiist uppboðs, þaö má ailtaf treysta á Gjaldheimtuna í þeim efn- um. Eins og maðurinn sagði „það er bara eitt víst í þessu lífi, það eru skattar og dauði". Hvemig væri nú að Gjaldheimtan gæfi eftir opinber gjöld af eignum sem standa auðar árum saman svo að eigendur þeirra þurfi ekki að gefa þær einhveijum svo að þeir verði ekki gerðir nauðugir að van- skilamönnum af Gjaldheimtunni sem innheimtir miskunnarlaust gjöld af engum tekjum. Auðar fasteignir Er ekki kominn tími tii þess að hiö opinbera fari að horfast í augu við staðreyndir eins og t.d. þær að ef engar tekjur em af fasteignum þá er ekkert rými til þess að borga af þeim svimandi gjöld. Ástandið er oröið þess eðlis núna eftir að menn hafa byggt allt sem hægt er aö byggja, jafnvel perlur, kirkjur og bílastæðahús, að fasteignir standa auðar um alia borg, skrif- stofuhúsnæði, iðnaðarhúsnæði og íbúðir svo nemur tugþúsundum fermetra. Er nema von að erfitt sé aö fá viðunandi leigu eða söluverð fyrir slíkar eignir? Hvað eiga þeir aöilar að gera sem sitja uppi með eignir sem þeir losna ekki við? Gjaldheimtan þykist hafa svarið. Ef þeir losna ekki við eignimar á eðlilegan hátt þá losar Gjaldheimt- an þá við eignirnar á næsta upp- boði. Ert þú, lesandi góður, einn af þessum fasteignaeigendum? Flestar eignir hafa einhverjar veðsetningar og er Gjaldheimtan hefur lagt fram 150 þúsundin þá koma bankamir og sjóðimir og segja „nú get ég“. Er nokkur furöa þó að bankamir hafi ailir stofnaö eignaumsýsludeildir, pakkaðar með eignum, þínum eignum? Kannski ekki núna, en fljótlega. Ég held að Gjaldheimtan ætti aö draga sín uppboðsmál eitthvað á langinn og fella niður gjöld af eign- um sem standa auðar árum saman. Njáll Haröarson „Er nokkur furöa þó aö bankarnir hafi allir stofnaö eignaumsýsludeildir, pakkaðar meö eignum, þínum eignum? Kannski ekki núna, en fljótlega.“ Meðog ámóti Krókabátar á aflamark Enginnfiski frjálst „Þaö liggur í augum uppi aðþegarverið er að stýra veiðunum með þeim hættiaðhvert skip fai kvóta þá gengur þaö ekki að einn hópurbátafái Krlrt|énÁ»aelrMon út- aö veiöa fijálst utan nokkurra banndaga. Mér finnst það einnig ósann- gjamt gagnvart bátum af sömu stærð hvemig krókabátamir fá að veiða ftjálsL Þegar minni bát- amir vom teknir inn í kerfið var þeim gefinn kostur á að vefia á milli þess að taka upp krókaleyfið með banndögum eða fara á afla- mark sem byggt væri á afla- reynslu þeirra árin á undan. Síð- an geröíst það hjá þeim sem völdu aflamarksleiöina að úthlutun á hvem bát vár mjög lítil vegna þess hve þorskveiðin hefur verið skorin niður. Nú em þessir menn þannig settir aö þeir em með þetta tvegga til tuttugu tonna kvóta. Hinir sem völdu þá leið að taka krókaleyfið fá að vera ftjáls- ir á veiðum að því marki sem banndagamir ekki stoppa þá. Mln reynsla var sú aö það var góð viðvera að geta farið 160 til 180 róðra á ári meöan allt var ftjálst. Að mínum dómi er það versta við þetta allt í dag hveraig þeir hafa fariö iiia ut úr ðllu saman sem treystu á löggjafenn og treystu á aflareynslu sína. Einnig er það afar slæmt að hafa einn hóp báta ftjáslan á meðan verið er að þrengja að öllum öðrum.“ Krókabátar mega aldrei f ara inn í kvótakerfið „Krókabát- ar mega aldr- ei fera inn kvótakerfiö. Ástæðan er afar einföld. Leikurinn innan þess kerfis, á milli smæstu skelja og Arthúr Bogaaon, for- maður UmdBssmbanda stærstu verk- »m*WHaels««la. smiðjuskipa, er svo ójafh gagn- vart iitlu bátunum að þaö er og verður alltaf algerlega óásættan- legt að hafa þá undir sama þaki. Við höfum bent á þaö í mörg ár að með þvi aö vera með þetta aUt undir sama stýrikerfi sé sú hætta fyrir hendi aö smábátaútgerðin, og bátaútgerð almennt, leggist hreinlega af vegna ftjálsra við- skipta með aflaheimUdir. Menn hafa slett í góm i gegnum tiðina vegna þessara fuUyrðinga okkar. Þessar gómslettur hafa nú ögn minnkað meö ár unum vegna þess að sú staðreynd blasir viö að árið 1991 vom 1043 smábátar settir á kvóta. Þessum bátum hefúr nú feekkaö niður í um þrjú hundmð sem eru á sjó í dag. Það er raeðal annars vegna þessa að við höfn- um þvi aö útrýraa smábátaflotan- urn og útdeUa hrikalegu óréttlæti i kjölfer þess að selja þá inn í aíla- mark. Þaö er alveg sama hvemig menn velta þessu fyrir sér. Það gengur aldrei upp að setja smá- bátana inn í kvótakerfið."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.