Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1995, Blaðsíða 36
FRETTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem þirtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLYSINGAR - ASKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PW:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL, 6-8 IAUGARDAGS- OG MANUDAGSMORGNA
MÁNUDAGUR 29. MAl 1995.
Kristján Gunnarsson:
Útgerðar-
menn hafa
boðisttilað
ganga úr LÍÚ
„Útgerðarmenn hafa lýst miklum
áhuga á að semja við okkur og jafn-
vel boöist til að ganga úr LÍÚ til þess.
Þeir eru tilbúnir til þess að ganga
mun lengra en LÍÚ og munurinn
liggur fyrst og fremst í því að þeir
hafa lýst yfir vilja til þess að nálgast
okkur varðandi fiskverðið. í því felst
að öllum afla verði landað hjá
óskyldum aðila fyrir hæsta verð sem
fáanlegt er í hvert skipti,“ segir
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur og nágrennis, aðspurður hvort
rétt væri að útgerðarmenn suður
með sjó væru að hugleiða samninga
fram hjá Landssambandi íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ).
„Það er alveg ljóst að ef LÍÚ hreyf-
ir sig ekki til samninga við okkur þá
skoðum við alvarlega hvað við ger-
um. Við hljótum að ljá máls á því ef
einhverjir vilja semja við okkur um
betri kjör og meira kaup en LÍÚ,“
sagði Kristján Gunnarsson sem sagð-
ist vilja vera samstiga félögum sínum
í sjómannasamtökunum, þeim væri
vel kunnugt um þessar viðræður og
þær væru ekki bundnar við Suður-
nesin.
Taugastríð í fullum gangi
„Ég hef heyrt ávinning af þessu en
trúi þessu ekki og veit ekki hveijir
þessir menn eru. Taugastríðið er í
fullum gangi og ég óttast þetta ekki.
Auðvitað eru óábyrgir útgerðar-
menn innan okkar raöa og ef þeir
vilja semja sjálfir þá mega þeir það
mín vegna," sagði Jónas Haraldsson,
skrifstofustjóri LÍÚ, í samtali við DV
ígærkvöldi. -SV
Steingrímsí] arðarheiði:
Árekstur
snjóblásara
og bifreiðar
Árekstur varð milli fólksbils og
snjóblásara á Steingrímsfjarðarheiöi
í vonskuveðri í gær.
Ekkert skyggni mun hafa verið á
heiðinni og því sáu ökumenn bílanna
ekki hvor til annars er þeir mættust.'
Engin slys urðu á mönnum en öku-
tækin urðu fyrir minni háttar tjóni.
LOKI
Spurningin hlýtur að vera
hver bakar hvern í þessari
bakaradeilu!
vegnakjörs
Mikil ólga er nú í röðum ásatrú-
armanna vegna kosningar allsherj-
argoða en nýr allshexjargoði á að
taka við embætti þann 22. júní nk.
Jörmundur Ingi Hansen hefur
geflð kost á sér en hann hefur ver-
ið allsherjargoði sl. ár. Auk hans
hefur Tryggvi Hansen boöíð sig
fram en hann er ósáttur við æðstu
stjóm ásatrúarmanna, Lögréttu,
við undirbúning kosninganna.
Tryggvi segir Lögréttu beita hlut-
drægum og óiýðræðislegum vinnu-
brögðum.
Tryggvi gerir athugasemdir við
að Jörmundur Ingi hafl getað haft
bein áhrif í gegnum Lögréttu á
framkvæmd kosninganna og t.d.
komið í veg fyrir að sérstakur
kynningarfundur yrði haldinn. I
staðinn hefði vetið ákveðið að Jör-
mundur og Tryggvi fengju sína sið-
una hvor í fréttabréfi ásatrúar-
manna undir kynningu á sér og
skrifin yrðu ritskoðuð. Tryggvi
hefur sent Lögréttu bréf þar sem
hann fer fram á að þeir Jörmundur
fái fjórar síður í fréttabréfinu, órit-
skoðaðar. Lögrétta hefur ekki svar-
að jæssum óskum og segist Tryggvi
ekki ætla aö gefast upp á framboð-
inu.
Þá hefur Jón Ingvar Jónsson sagt
sig úr framkvæmdastjóm ásatrú-
armanna sem ásamt nokkrum goð-
rnn skipar Lögréttu. Jón Ingvar
staðfesti þetta í samtali við DV.
Hann sagðist m.a. ekki hafa sætt
síg viö vinnubrögð Jörmundar
Inga og Lögréttu við undirbúning
kosninga og hvernig meðhöndlun
Tryggvi hefði fengið.
Jörmundur Ingi sagðist í samtali
við DV ekki skilja óánægju
Tryggva og hans manna og sagði
það „hinn mesta misskilning" að
hann hefði haft einhver áhrif á
framkvæmd kosninganna.
„Framboðsreglur hafa verið sam-
þykktar og ég fer eftir þeim. Ann-
ars vil ég litiö tjá mig um þetta þar
sem ég tel að kosningabaráttan eigi
ekki að fara fram í fjölmiðlum,"
sagði Jörmundur.
Kosningar eiga samkvæmt lögum
ásatrúarmanna að taka 3 vikur og
vera skriflegar. Samkvæmt því
veröa þær aö hefjast í síðasta lagi
1. júni eigi að skipa nýjan allshetj-
argoða 22. júnf. Tæplega 200 manns
eru i félaginu.
-hib
Hamast við baksturinn. Hjónin Haukur L. Hauksson og Erna K. Sigurðardóttir hjá Borgarbakarii hömuðust við að
koma brauðdeiginu á plöturnar þegar Ijósmyndari DV leit inn til þeirra í gærkvöldi.
DV-mynd JAK
Veöriö á morgun:
Hlýjast
lands
i V V V-
/\± 2* 'ém
Á morgun verður norðaustlæg
átt, kaldi eða stinningskaldi norð-
vestan til en annars fremur hæg.
Dálítil rigning austanlands og við
norðurströndina en annars þurrt
og sæmilega þjart sunnan- og vest-
anlands. Hiti 1-5 stig á Vestfjörðum
og annesjum norðanlands en ann-
ars 7-15, hlýjast sunnanlands.
Veðrið í dag er á bls. 44
‘ y /
/ /
'EO / /
5/ /
/ V vj .
/ / -/ /
/i7</)
7//V
f/
(W1 /
— ag
ar
¥
Austfírðir:
Færeyingar
landa sfld
Jóhaim Jóhaiuisson, DV, Seyðisfirði;
Færeyski síldveiðibáturinn Króm-
borg kom með 1500 tonn af síld til
Seyðisfjarðar í gærmorgun og var
henni landað hjá SR-mjöli.
Síðar sama dag kom svo annar
færeyskur síldveiðibátur, Kristján í
grjótinu, með 1000-1100 tonn af sfld
sem landa átti hjá síldarbræðslu
Hraðfrystihúss Eskiljarðar.
Þjóðarbókhlaðan:
Vatnsf lóð í Þjóð-
arbókhlöðu
Slökkviliðið var kallaö í Þjóðarbók-
hlöðuna í gærmorgun vegna vatns-
leka. Slanga sem fest er við kafíivél
fór að leka með þeim afleiðingum að
vatn flæddi á rúmlega tvö hundruö
fermetra svæði og var orðið 2-3 sentí-
metra djúpt þegar að var komið.
Nokkrar skemmdir urðu á hús-
næðinu en mesta mildi var aö ekki
fór verr. Það tók um tvo klukkutíma
fyrir slökkviliðsmenn að þurrka
svæðið. Mjög alvarlegt hefði verið ef
vatnið hefði lekið í kjallara hússins
þar sem mikil verðmæti eru geymd.
Bakarasveinar:
Mikið bar á milli
„Okkar kröfur eru þær aö við för-
um fram á að fá tvo launataxta, leng-
ingu orlofs og næturvinnu aftur eftir
átta tíma. Fyrir fundinn í kvöld þar
mikið á milli en okkar viðsemjendur
hafa ekki viljað koma til móts við
kröfur okkar," sagði Gunnar Guð-
mundsson, formaður Bakarasveina-
félagsins í gærkvöldi.
Sáttafundur stóð enn þegar þoðað
verkfall bakarasveina hófst á mið-
nætti. Á skrifstofu sáttasemjara
fengust þær upplýsingar að menn
sætu sem fastast og málin væru á
viðkvæmu stigi. -sv
Sleipnismenn á
fundiframánótt
Sleipnismenn sátu á fundi með við-
semjendum sínum hjá ríkissátta-
semjara fram á nótt. Þegar DV fór í
prentun voru viðræðurnar á við-
kvæmu stigi. Óskar Stefánsson,
formaður Sleipnis, sagðist á mið-
nætti ekki vera bjartsýnn á að samn-
inga tækjust en ómögulegt væri að
fullyrða neitt. -bjb
NSK
kúlulegur
SuAuriandsbraut 10. 8. 686403.
LfTI#
alltaf á
Miðvikudögnm